Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 18

Morgunblaðið - 20.07.2009, Síða 18
18 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 ✝ Súsanna Hall-dórsdóttir (Sunna) fæddist í Vestmannaeyjum 19. maí 1929. Hún lést á líknardeild Landspít- ala, Landakoti að- faranótt 6. júlí sl. Foreldrar hennar voru Elín Sigurð- ardóttir, f. 1899, d. 1966, og Halldór Jón Einarsson, f. 1894, d. 1972. Þau voru bæði ættuð frá Rauðafelli undir Austur- Eyjafjöllum, en bjuggu allan sinn búskap í Vestmannaeyjum. Systk- ini Sunnu voru Sigríður Jakobína, f. 1921, d. 1977, og Einar, f. 1923, d. 2007. Fyrri eiginmaður Sunnu var Jón Atli Jónsson, vélstjóri, f. 1924, og áttu þau saman gott og farsælt líf frá 1952, þar til hann lést árið 1975. Seinni eiginmaður hennar var Haukur Benediktsson Gröndal, f. 1912, en hann lést 1979, tæpu ári eftir giftingu þeirra. Sunna fór í Húsmæðraskólann í Reykjavík, og vann síðan við versl- unar- og skrifstofustörf, m.a. í bókabúðinni Helgafelli á Njáls- götu, þaðan sem margar góðar sögur um fjölbreytt mannlíf þess tíma áttu uppruna sinn. Starfsferli sín- um, utan heimilis, lauk hún hjá Heyrn- ar-og talmeinastöð- inni, þar sem hún undi hag sínum vel. Hún starfaði lengi með Kvenfélaginu Heimaey, og var gjaldkeri þess um tíma, auk þess sem hún var sjálfboðaliði í þjónustumiðstöðinni í Hafnarbúðum eftir gosið í Eyjum. Handavinna gaf henni margar ánægjustundir og ekki síður þeim, sem ávaxta þeirrar vönduðu og fal- legu vinnu nutu. Sunna og Atli byggðu sér sum- arbústað við Álftavatn árið 1963, sem varð þeirra sælureitur, og áfram hennar eftir lát Atla. Gestir voru ávallt velkomnir og jafnan kátt í kotinu. Sunna eignaðist ekki börn sjálf, en börnin í fjölskyldunni nutu gæsku hennar og glettni í ríkum mæli. Hún var stoð og stytta í dagsins önn, og hrókur alls fagn- aðar á hátíðarstundum. Útför Súsönnu fer fram frá Há- teigskirkju í dag, mánudaginn 20. júlí, og hefst afhöfnin kl. 13. Við sitjum á pallinum í Álftarhól og rifjum upp minningarnar, ein af skemmtilegustu minningunum er þegar við komum hingað fyrir tutt- ugu árum sem ungt par og mál- uðum húsið og pallinn. Stundirnar sem við áttum þá eru okkur skemmtileg minning en við borð- uðum úti og nutum góða veðursins ásamt því að mála. Við vorum líka svo heppin að fá að fara með ömmu Sunnu, eins og hún var alltaf kölluð á okkar heimili, til Ameríku árið 2006. Þegar við komum á flugvöll- inn var henni skellt í hjólastól og brunað með hana um alla flugvelli sem við þurftum að fara um og litla fjölskyldan fór fram fyrir allar raðir á öllum flugvöllunum með ömmu Sunnu í broddi fylkingar. Við hlóg- um mikið að því að nú yrði amma Sunna höfð með í allar ferðir fjöl- skyldunnar hér eftir. Eitt sinn þegar einn af strákun- um okkar hafði vaknað kvöld eftir kvöld grátandi mætti Sunna og fór með okkur á Heyrnar- og talmeina- stöðina þar sem hún vann áður, en þar var hún búin að koma okkur að hjá lækni og reyndist tilgáta hennar rétt – barnið var með eyrnabólgu. Sunna var líka stór partur af jóla- haldi fjölskyldunnar, en seinni árin eyddi hún jólunum í Safamýrinni. Síðustu jól vorum við svo lánsöm að hafa þau hjá okkur á aðfangadags- kvöld. Sunna fylgdist með vinahópnum okkar og spurði reglulega um þeirra hagi. Sunna passaði oft fyrir okkur yngsta drenginn þegar við vorum bæði orðin útivinnandi og ekki var málið að taka við litlum gutta sem alltaf þótti jafn gaman að fá að fara til ömmu Sunnu og oft fengum við að heyra það ef hann fékk hita „Má ég þá fara til ömmu Sunnu á morgun“ og þó það stæði til að annað okkar væri heima var meira sport að fá að fara til ömmu Sunnu en hafa annað okkar heima. Þegar strákarnir okkar voru litlir og komu í sveitina til afa Ödda og ömmu Laugu sá maður fljótt undir iljarnar á þeim þar sem þeir hlupu kerlingarskarð yfir til ömmu Sunnu til að fá nammi, því alltaf átti hún rúsínur eða gúmmíbangsa til að stinga í litla munna. Við vorum sannarlega heppin að fá að hafa hana sem ömmu. Blessuð sé minning hennar. Bergur Ingi Arnarson. Sigrún Björnsdóttir. Elskuleg mágkona mín, Súsanna Halldórsdóttir eða Sunna eins og hún var alltaf kölluð, er látin. Ég minnist þess þegar elskulegur bróðir minn, Jón Atli, kom glaður heim til foreldra okkar með glæsi- lega stúlku frá Vestmannaeyjum. Þar var Sunna komin. Hún stundaði þá nám við Húsmæðraskólann í Reykjavík. Fjölskyldan tók Sunnu fagnandi, enda augljóst að þau voru ástfangin. Hún var hin útvalda hjá Jóni Atla. Jón Atli og Sunna voru samrýnd og samvalin hjón með sömu áhuga- mál. Fyrstu hjúskaparárin var Jón Atli á sjónum. Langvarandi fjar- vistir voru hvorugu að skapi, enda gerði sjómennskan þeim erfiðara um vik að stunda fjölmörg áhuga- mál þeirra. Jón Atli hætti því á sjónum og fór að starfa í landi. Næstu árin ferðuðust þau um allt landið á sumrin. Jón Atli smíðaði þeim sjálfur húsvagn, einn hinn fyrsta sem farið var með um óbyggðir landsins. Laxveiði var þeim hugleikin. Úti- veran, náttúran og félagsskapurinn laðaði þau að því áhugamáli. Á vetrum var tónlistin aðaláhuga- mál þeirra. Í þessu sem öðru voru Jón Atli og Sunna samhent. Fáir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands og Tónlistarfélagsins fóru framhjá þeim. Heima áttu þau jafn- an bestu tæki til hljómflutnings. Jón Atli og Sunna keyptu sér fagurt land í Grímsnesi með útsýni yfir Álftavatn. Jón Atli bæði teikn- aði og byggði sjálfur sumarhús í landinu og kölluðu þau sumarbú- staðinn Álftahól. Á nokkrum árum gróðursettu þau og ræktuðu saman sannkallaða sumarparadís, sem vin- ir og ættingjar nutu, og móttökur ávallt frábærar hjá þeim. Þar dvöldu þau löngum stundum. Í byrjun áttunda áratugarins hófu Jón Atli og Sunna sjálfstæðan atvinnurekstur þegar þau keyptu sumarið 1973 Lakkrísgerðina Krumma. Jón Atli sá um framleiðsl- una, Sunna um sölu og bókhald, al- vön slíkum störfum eftir að hafa starfað um margra ára skeið í Ban- anasölunni. Þau ráku fyrirtækið af miklum myndarskap í nokkur miss- eri og settu metnað sinn í vörugæði á Krumma-lakkrís. Alvarleg veikindi Jóns Atla urðu til þess að rekstrinum urðu þau að hætta. Sunna var Jóni Atla ómet- anlegur stuðningur í hans erfiðu veikindum. Jón Atli lést langt fyrir aldur fram 19. mars 1975. Nokkrum árum síðar giftist Sunna Hauki Gröndal fram- kvæmdastjóra. Þau áttu saman örfá ár, ferðuðust mikið og voru ham- ingjusöm. Hann lést haustið 1979. Sunna varð þá ekkja öðru sinni á stuttum tíma. Það var henni þung- bær reynsla. En Sunna var sterkur persónu- leiki og studdist að auki við stóran og sterkan hóp ættingja og vina. Hún var félagslynd, gestrisin og glaðlynd, ættrækin og eftirsótt af öllum sem henni kynntust. Sunna tók langvarandi veikindum síðustu ára af æðruleysi og trú. Á áttræðisafmælisdaginn hennar, fyr- ir örfáum vikum, bar hún sig vel, þó hún væri orðin helsjúk, umvafin ættingjum, tengdafólki og vinum. Síðast hitti ég Sunnu tveimur vik- um fyrir andlát hennar. Hún var sátt við Guð og menn. Saman lásum við Faðirvorið að skilnaði. Við Páll og öll tengdafjölskylda Sunnu minnumst hennar með sökn- uði. Blessuð sé minning hennar. Guðrún Jónsdóttir. Hinn 6 júlí síðastliðinn lést á Líknardeild Landspítalans, Landa- koti, móðursystir mín og vinkona Súsanna Halldórsdóttir, amma Sunna eins og hún var kölluð af barnabörnum okkar. Við fráfall hennar eru viss þátta- skil hjá okkur því genginn er á vit feðranna síðasti náni meðlimur fjöl- skyldunnar af elstu kynslóðinni. Hún skipaði stóran sess í lífi okkar fjölskyldu og tók virkan þátt í öllum viðburðum sem upp komu og studdi okkur dyggilega bæði í gleði og sorg. Hún giftist Jóni Atla 1952. Þau voru einstaklega glæsileg hjón og höfðu yfirbragð mikilla heims- borgara, höfðu mikinn áhuga á menningu og voru tíðir gestir á menningaviðburðum borgarinnar. Jafnframt höfðu þau yndi af ferða- lögum og veiðiskap. Jón Atli var mikill listasmiður og langt á undan sinni samtíð á mörgum sviðum. Eitt af því sem hann gerði var að smíða hjólhýsi sem þau ferðuðust á um landið, en það var fátítt í þá daga að sjá slíka gripi á vegum úti. Ein af mörgum góðum minningum sem ég á um Sunnu og Jón Atla er þegar þau reistu sér sumarhús í Gríms- nesi. Ég dvaldist um tíma hjá þeim við að aðstoða við byggingu hússins. Það var heldur betur upplit á vinnumanninum úr Kópavogi þegar þau hjón birtust með heilan kassa af kók sem ég mátti ganga í að vild, sem ekki var algengt í þá daga. Þau undu hag sínum þar vel og hlúðu að sælureitnum af einstakri smekkvísi og útsjónarsemi. Jón Atli lést langt um aldur fram árið 1975. Sunna giftist Hauki Gröndal árið 1978 og stofnuðu þau fallegt heimili við Melhaga. Þau áttu góðan tíma saman sem þó var allt of stuttur því Haukur lést 1979. Sagði Hauk- ur að allir dagar með henni væru „Sunnudagar“. Eftir lát Hauks fluttist Sunna aftur í Stigahlíðina þar sem hún hafði áður búið með Jóni Atla. Upp frá því tókust með okkur náin kynni og ævarandi vinátta. Það var okkur ómetanlegt lán árið 1994 þegar Sunna bauð okkur skika úr landi sínu. Eftir að við reistum sumarhús þar bjó hún ávallt hjá okkur þegar við dvöldum þar og áttum við góðar stundir saman. Sunna bjó yfir mikilli þekkingu um frumbyggja svæðisins og var gaman að eiga við hana samræður um líf og störf þeirra. Við fráfall Sunnu rifjast upp margar minn- ingar um ferðalög sem við ásamt henni fórum saman svo sem til Kúbu, Bandaríkjanna og Evrópu. Ferðin til Kúbu var Sunnu sér- staklega minnisstæð en ég kom þar oft vegna starfa minna hjá Arn- arflugi. Á þessum tíma var ekki auðfengin vegabréfsáritun til Kúbu og var því eina leiðin að Lauga og Sunna klæddust flugfreyjubúningi og gengju samhliða áhöfninni í land, og var Sunna titluð sem yf- irflugfreyja félagsins. Það voru tvær stoltar dömur sem gengu hnarreistar í gegnum vegabréfa- skoðun á Kúbu án athugasemda. Með Sunnu og Laugu tókst mjög kær vinátta og tryggð sem aldrei bar skugga á og áttu þær sér margar góðar og ómetanlegar stundir saman. Að leiðarlokum er- um við þakklát fyrir að hafa getað aðstoðað og hlúð að Sunnu í veik- indum hennar allt til hennar hinstu stundar. Við munum ávallt varð- veita minningu hennar. Örn Sævar Ingibergsson og Guðlaug Óskarsdóttir. Elsku Sunna, í dag kveðjum við þig og þökkum þér svo innilega fyrir samleiðina. Við vissum að kveðjustundin myndi koma og þó maður væri undirbúinn þeim fréttum, þá var það mikil sorgarstund. Hugur minn reikar til baka til Vestmannaeyja á Skólaveg 25 þar sem þú og systkini þín Sigga frænka og Einar pabbi ólust upp og þar sem við eldri systkinin nut- um umhyggju afa og ömmu. Og þó að þú værir á þeim tíma flutt til Reykjavíkur, var ekki ósjaldan tal- að um „hana Sunnu okkar“. Ég minnist þess hversu hjálpleg þú varst foreldrum okkar á ótal stundum, þegar við krakkarnir vor- um að alast upp. Einnig nutum við þess innilega þegar þig Atli komuð í heimsókn á Ljósvallagötuna – þið voruð alltaf tilbúin að sýna okkur áhuga og blíðu. Oft er minnst á gamlárskvöldin þar og sérstaklega þegar Atli mætti með ýmislegt gríndót sem vakti lukku og kátínu jafnt hjá börnum sem fullorðnum. Minningar um skemmtileg jóla- boð, ferðir á Þjóðhátíðina í Eyjum og margar stundir þar sem þú kenndir okkur handavinnu og fleira nýtilegt, koma upp í hugann. Seinna komu skemmtilegar ferðir í sumarbústaðinn ykkar Atla við Álftavatn, þar sem við nutum gest- risni og glaðværðar ykkar. Eftir að ég flutti til Ameríku, naut ég þess að fá bréfin frá þér, þú varst svo natin við að skrifa og segja fréttir af fjölskyldunni. Í ferðum heim var alltaf jafn gaman að hitta þig, hressa og káta. Við Rick erum þér sérstaklega þakklát fyrir hvað þú sýndir börnum okkar, Eileen og Ricky, mikla hlýju. Þau minnast góðsemi þinnar og gæsku. Sunna mín, þú varst tígulega frænkan okkar – smart, skemmti- leg og umhyggjusöm. Þú varst mitt á milli okkar, staðföst og bjartsýn. Þín verður sárt saknað, en minning þín lifir og nafnið þitt verður nefnt með hlýhug um ókomin ár. Við þökkum þér fyrir allar ógleyman- legu stundirnar. Guð blessi þig og varðveiti þig. Þórunn (Tota), Rick, Eileen, Eric, Rick og Tara. Elsku Sunna. Sem barn var ég að koma úr Sundhöllinni með pabba og þá hitti þig í fyrsta sinn. Þú varst á hjóli en fullorðnir voru ekki á hjóli á þess- um árum. En þar sem þú varst vin- kona uppáhalds frænda míns, Jóns Atla, var þér fyrirgefið. Þú sagðir mér seinna, að þú hefðir heyrt börnin segja, að þú værir annað- hvort dönsk eða vitlaus. Það háði þér ekkert og lýsti þér vel. Þú fórst þínar eigin leiðir. Seinna urðum við góðar vinkon- ur. Pabbi las fyrir okkur systkinin eina Íslendingasögu á hverjum vetri, svo las hann ljóð og þjóðsög- ur, sem tengdust þeim stað. Á sumrin var svo farið á slóðir þess- ara sagna. Farið var á tveim jepp- um, við fjölskyldan á öðrum og þið á hinum. Jón Atli hafði gengið svo frá bílunum að þeir voru tilbúnir í hvað sem var. Þannig fórum við á slóðir Brennu-Njálssögu, Laxdælu, Grettissögu, heimsóttum sögu Skaftárelda, Sögu Höllu og Fjalla- Eyvindar o.fl. Þessar ferðir eru einn af bestu hlutum lífs míns og ástæða fyrir því hvað ég elska land- ið okkar mikið. Það var yndislegt að hafa ykkur hjónin með, þið gerðuð þessar ferðir ógleymanlegar. Jón Atli kenndi okkur margt, m.a. að veiða, en þú varst alltaf þarna þeg- ar við þurftum að tala við einhvern. Við systkinin vorum ótrúlega hepp- in að fá að hafa ykkur með í þess- um ferðum. Þú misstir mikið þegar Jón Atli dó. Á menntaskólaárum mínum fór- um við nokkrar vinkonur austur um páskana til að lesa fyrir próf. Úti var snjór og kalt. Fyrsta kvöldið var bankað á dyrnar og þið voruð mætt til að líta eftir okkur. Ég hélt að þið væruð í ykkar bústað, en, nei, þið keyrðuð bara austur til at- huga hvernig okkur liði, hvort vatn væri á húsinu og hvort kolaeldavél- in virkaði. Seinna ákváðum við Davíð að fara vestur á Hornbjarg og hjálpa Jóa vini okkar að flytja. Edda dóttir okkar var nýfermd og varð að fara með okkur. Hún var ekki til í það, hélt að hún gæti verið ein heima, en við hlustuðum ekki á það. Við buð- um þér að koma með vegna þess að við vissum að þér leið ekki vel og Jói var vinur þinn líka. Edda þakk- ar þér fyrir hvað var gott að hafa einhvern til að tala við í þessari ferð. Hún lærði að meta þig á sama hátt og ég gerði mörgum árum fyrr. Eftir að Davíð dó, þurfti ég að fara austur aftur og ég bað þig um að koma með mér. Þú varst til í það og fórst með mér hringinn. Ég þakka þér fyrir það, þessi ferð var erfið fyrir mig en þú gerðir hana góða, eins og allt sem þú gerðir. Samt held ég að sú ferð hafi verið okkur báðum til góðs. Elsku Sunna, ég vildi að ég hefði alla þann fróðleik á tölvu, sem þú hafðir, en því miður hverfur hann með þér. Elsku Sunna, þakka þér fyrir allt. Auður Ragnarsdóttir. Elsku Sunna, þú varst aðdáunarverð frænka, alltaf með hlýlegt bros á vörum, ilmandi pönnsur á borðum og góð föndurráð fylgdu í kaupbæti. Þú varst þolinmóð þegar við hlupum um íbúðina þína sem krakkar og sýndir okkur einlægan áhuga nú þegar við sjálf erum að ala upp börn. Við elskum þig og biðjum Guð að blessa þig, þar sem þú hvílir nú. Eileen G. Kelley. Elsku besta Sunna, við þökkum þér fyrir allar sam- verustundirnar sem við áttum, þær eru okkur ómetanlegar. Við þökk- Súsanna Halldórsdóttir (Sunna) Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fædd- ist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minning- argrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á netfangið minning@mbl.is og láta umsjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.