Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 20
20 Minningar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 ✝ Jóhann Hálfdán-ardóttir var fædd á Neðri- Fitjum í Víðidal, A- Hún. 23. janúar 1921. Hún lést á öldr- unarlækningadeild Landspítala, Landa- koti, 9. júlí síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Elín Jónsdóttir frá Strönd í Landeyjum, f. 11.10. 1888, d. 29.5. 1982, og Hálfdán Árnason frá Stóra- Hvarfi í Víðidal, A-Hún., f. 15.3. 1897, d. 20.12. 1959. Systkini Jó- hönnu eru Sigríður Hálfdán- ardóttir, f. 12.2. 1920, d. 30.8. 1999, Helgi Júlíus Hálfdánarson, f. 19.7. 1927, Júlíana Svanfríður Hálfdánardóttir, f. 4.5. 1932. Jó- hanna giftist 29.3. 1945 Hauki Svanberg Guðmundssyni frá Reykjavík, f. 4.7. 1920, d. 12.7. 2007. Foreldrar hans voru Ingi- björg Gísladóttir frá Syðri-Brúna- völlum á Skeiðum, f. 4.11. 1882, d. 25.6. 1965, og Guðmundur Magn- ússon frá Ánanaustum í Reykjavík, f. 15.11. 1883, d. 29.1. 1932. Börn Hauks og Jóhönnu eru 1) Ingvar, f. 1.9. 1945, kvæntur Sigríði Axels- dóttur, f. 29.10. 1946, börn þeirra eru Jóhanna, f. 19.8. 1967, og Ax- el, f. 4.12. 1971. 2) Elín, f. 5.8. 1955, gift Svavari Helgasyni, f. 12.8. 1951, börn þeirra eru Helgi Guðlaugur, f. 6.10. 1979, Dóróthea, f. 30.10. 1981, og Ka- milla, f. 30.10. 1981. 3) Guðmundur Vign- ir, f. 8.3. 1957, kvæntist Kristínu Höllu Daníelsdóttur, f. 17.10.1957, þau skildu. Synir þeirra eru Haukur Svan- berg, f. 17.6.1976, Kristinn Dan, f. 23.6.1981. Sambýliskona er Lilja Guðmundsdóttir, f. 5.2. 1951, börn hennar eru Jessica Tómasdóttir, f. 18.5. 1971, og John Tómasson, f. 12.12. 1974. 4) Sigurdís Jóhanna, f. 5.4. 1958. Jóhanna ólst upp á Valdaráseli, Víðidalstungusókn, V-Hún. Um fermingaraldur fluttist hún á Vals- hamar á Mýrum. Jóhanna fluttist til Reykjavíkur um tvítugt til að læra að sauma og vann við sauma- skap og var heimavinnandi hús- móðir. Hún bjó lengsta hluta ævi sinnar í Sigluvogi 8 og síðustu tíu árin á Skúlagötu 20. Útför Jóhönnu verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin kl. 15. Elsku mamma. Það er erfitt að trúa því að þú sért búin að kveðja okkur. Daginn fyrir andlátið varstu kát og hress en næsta morgun varstu búin að kveðja. Efst í huga okkar systra er þakklæti fyrir það hvað þú varst okkur góð móðir, alltaf tilbúin að gera allt fyrir okkur. Þú hafðir gam- an af að sauma á okkur, hvort sem það var fyrir böllin eða utanlands- ferðir og hvort sem það voru glæsi- kjólar, bikiní, dragtir eða kápur – það var alveg sama hvað það var, við þurftum bara að lýsa því hvernig það átti að vera og þú töfraðir það fram. Það var gott að alast upp í Siglu- voginum í húsinu sem þið pabbi byggðuð. Að halda garðinum falleg- um var þitt líf og yndi og minnumst við þess að garðurinn angaði af næt- urfjóluilmi. Þú varst af þeirri kynslóð kvenna sem flestar voru heimavinnandi hús- mæður og þú varst ein af þeim sem elduðu tvær heitar máltíðir með eft- irmat á dag og alltaf bakaðir þú margar sortir af kökum í hverri viku. Minnumst við þess að hafa fengið volgar kökur með kaffinu þegar við komum heim úr skólanum. Einnig minnumst við stóru jóla- boðanna sem þú hélst þar sem fjöl- skyldan kom saman. Þau byrjuðu á kaffihlaðborði með heitu súkkulaði um miðjan daginn og um kvöldið var hamborgarhryggur með öllu tilheyr- andi. Okkur er sérstaklega minnisstæð Kanaríeyjaferðin sem þið pabbi fór- uð með okkur jól og áramót 2005, þú kveiðst mikið fyrir ferðinni en hafðir svo mikla gleði og ánægju af. Það var mikið áfall fyrir þig þegar pabbi dó fyrir tveimur árum, því hann var stoð þín og stytta í lífinu. Elsku mamma, þá ertu komin til pabba og við eigum eftir að sakna þín mikið. Við vonum að guð geymi þig vel. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína, englar hjá guði þig geymi við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Elín og Sigurdís. Nú þegar elskuleg tengdamóðir mín Jóhanna Hálfdánardóttir er lát- in hrannast upp minningar, allar jafn góðar. Það er margs að minnast þegar ég kveð mína kæru tengdamóður eftir 34 ára kynni. Nanna eins og hún var kölluð af fjölskyldunni var einstök kona. Frá fyrsta degi tók hún mér sem syni sínum. Þar sem ég hafði misst móður mína ungur drengur var það dýrmætt að finna móður- kærleikann aftur, en það fann ég svo sannarlega hjá tengdamóður minni. Hlýja og kærleikur ríkti í Sigluvogi 8, sem var heimili fjölskyldunnar í mörg ár. Jóhanna og Haukur tengdafaðir minn voru mjög samrýnd. Ég bjó hjá þeim í þrjú ár meðan við hjónin vorum að koma okkur upp heimili. Ég minnist þess hvað þau stjönuðu við okkur. Á þessum tíma voru flest- ar konur heimavinnandi og það átti auðvitað um Jóhönnu. Heitur matur kvölds og morgna og alltaf var eitt- hvað nýbakað með kaffinu. Ég á góðar minningar frá mörg- um jólum í Sigluvoginum. Þar voru stórar fjölskylduveislur haldnar sem þótti sjálfsagt. Börn, tengdabörn og barnabörn komu saman og húsmóð- irin var þannig að hverjum fannst hann vera á stórstjörnu hóteli. Á haustin var sjálfsagt að taka slátur og setja niður kartöflur. Jó- hanna lærði saumaskap og saumaði öll föt á börnin og síðar barnabörnin. Þetta var mikill sparnaður og kom sér vel fyrir okkur að fá frí föt á börnin þegar við stóðum í því eins og aðrir að byggja og koma okkur upp heimili. Þetta verður seint þakkað. Þess má geta að hún saumaði ekki aðeins barnaföt, hún saumaði kjóla, kápur, buxur, jakka o.fl. á fullorðna fólkið líka. Þegar hún var 70 ára sagðist hún vera hætt að sauma. Haukur og Jóhanna byggðu sér fallegt heimili að Sigluvogi 8 í Reykjavík. Það var líka það sem ég tók eftir þegar ég kom inn á heimilið hve allt var snyrtilegt og vel hugsað um allt, bæði úti og inni. Garðurinn og berin voru hennar yndi. Hún vann öllum stundum í garðinum og ég var settur í stígvél og færð skófla í hönd og vann í beðunum með tengdaforeldrunum. Ég man hvað það var erfitt fyrir Jóhönnu að yfirgefa Sigluvoginn, þetta yndislega hús sem þau byggðu og garðinn fallega sem þau hjónin voru búin að leggja svo mikla rækt við. Haukur og Jóhanna fluttu á Skúlagötu 20 fyrir 10 árum. Haukur tengdafaðir minn lést 12. júlí 2007. Það var mikill missir fyrir Jó- hönnu þegar Haukur lést, sérstak- lega vegna þess hve samrýnd þau voru alla tíð. Hún varð aldrei söm eftir lát mannsins síns. Hennar líf varð daufara. Heilsu hennar hrakaði jafnt og þétt eftir lát Hauks. Ég held að ég halli ekki á neinn þó ég segi það að dætur Jóhönnu, þær Elín og Jóhanna Hálfdánardóttir✝ Hreiðar G. Viborgfæddist á Flateyri við Önundarfjörð 3. febrúar 1923. Hann lést á Vífilsstöðum 30. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru María Hálfdán- ardóttir húsmóðir, f. 28.10. 1889, d. 1980, og Guðmundur Pjet- ursson trésmíða- meistari, f. 10.3. 1891, d. 1993. Systkini Hreiðars eru: Guð- rún, f. 1911, d. 1956; Hálfdán, f. 1913, d. 1999; Jens, f. 1915; Garðar, f. 1917, d. 2009; Elís, f. 1918, d. 1998; Marinó, f. 1920. Hreiðar kvæntist 20. apríl 1946 Jónu Helgadóttur, f. 9.7. 1924 á Ísa- firði. Foreldrar hennar voru Helgi Þorbergsson vélsmiður, f. 2.10. 1895, d. 1964, og Sigríður Jón- asdóttir húsmóðir, f. 24.12. 1897, d. 1981. Börn þeirra eru: 1) Helgi Þór, f. 6.8. 1950, kvæntur Hildi Sveins- dóttur. Dætur þeirra eru a) Eva Bryndís, f. 19.5. 1972. Maður henn- ar er Stefán Þór Bjarnason. Synir þeirra eru Oddur, f. 14.10. 2001, og Ari, f. 1.8. 2006. b) Ásthildur, f. 9.5. 1976. Í sambúð með Hirti Hann- essyni. Sonur þeirra er Hannes, f. 29.5. 2009. c) Þóra Björg, f. 5.5. 1981. 2) Guðmundur, f. 11.10. 1953. Sambýliskona hans var Sjöfn Arn- finnsdóttir, þau slitu samvistir. Dóttir þeirra er Þórdís, f. 31.10. 1978. Sambýlismaður hennar er Jón Arnar Benediktsson. Börn þeirra eru Freydís Glóð, f. 24.2. 2003, og Hrafnkell Goði, f. 19.3. 2009. 3) Sigríður María, f. 31.3. 1958. Synir hennar eru Ásgeir Hall- dórsson, f. 4.12. 1983, og Brynjar Freyr Halldórsson, f. 31.8. 1989. Hreiðar, sem hét fullu nafni Þór Hreið- ar Guðmundsson Vi- borg, ólst upp og bjó á Flateyri til tvítugs, en flutti þá til Ísafjarðar með fjölskyldunni. 1943 fór hann til Reykjavíkur og hóf nám í klæðskeraiðn hjá fataverksmiðj- unni Gefjun. Að loknu námi starfaði hann sem klæðskeri, í fyrstu hjá Gefjun og síðan hjá Fata- verksmiðju Magnúsar Víglunds- sonar hf. sem verkstjóri. Hann stofnaði sína eigin sauma- stofu árið 1965 í Barmahlíð 34. Þar starfaði hann sem klæðskeri það sem eftir var starfsævinnar. Hann átti stóran hóp viðskipta- vina sem lögðu leið sína með reglu- bundnu millibili í Barmahlíðina enda fóru saman verð og gæði. Hann var lipur í að sauma á kúnna sem þurftu á sérsaumuðum fötum að halda, annaðhvort vegna starfs síns eða vaxtarlags. Hreiðar var í Frímúrarareglunni og starfaði innan reglunnar með miklum áhuga á meðan heilsan leyfði. Hann bjó í Barmahlíð 34 allt til ársins 2004 þegar þau hjónin fluttu í íbúð fyrir aldraða á Hraunvangi 3 sem er í tengslum við DAS í Hafn- arfirði, en síðustu tvö árin var hann á Vífilsstöðum. Útför Hreiðars fer fram frá Garðakirkju á Álftanesi og hefst at- höfnin kl. 15. Það er margs að minnast þegar lit- ið er yfir farinn veg við tímamót sem þessi. Pabbi búinn að kveðja þessa jarðvist, eftir erfiða sjúkdómslegu. Ég var því miður stödd erlendis, gat ekki kvatt hann almennilega og verið hjá honum undir það síðasta. En svona var pabbi, hægur og hlédræg- ur, vildi aldrei gera mál eða láta hafa fyrir neinu, ekki fyrir hann sjálfan. Alltaf var hann þó tilbúinn til að rétta öðrum hjálparhönd, sama hvað hann var beðinn um, allt lék í hönd- unum á honum. Þau voru ófá skiptin sem ég gerði mér ferð út á sauma- stofu til að spjalla eða til að dunda mér með honum þegar ég var stelpa. Þar var saumuð hver flíkin af ann- arri eftir tískustraumum hvers tíma. Síðar þegar ég fór að búa var gott að eiga pabba að þegar fara átti út í framkvæmdir. Hann var alltaf til í að gefa góð ráð og aðstoða. Aldrei þurfti að kaupa iðnaðarmenn til verka, þetta gerði maður sjálfur. Pabbi var ákaflega heimakær maður og það var gott að líta inn í Barmahlíðinni þegar maður átti leið framhjá í spjall um daginn og veg- inn, því ekki var komið að tómum kofunum þegar fréttir og pólitík voru annars vegar, oft var fjölmennt og fjörugar umræður við eldhús- borðið yfir kaffi og meðlæti sem mamma hafði galdrað fram. Hann fylgdist vel með okkur krökkunum, hafði kannski ekki fullan skilning á því hvers vegna maður var alltaf að flækjast upp um fjöll og firnindi jafnt að sumri sem vetri, honum fannst miklu notalegra að vera heima og hlusta á útvarpið eða líta í dagblöðin. Ferðasöguna vildi hann heyra og vita hvort allir hefðu skilað sér heilir heim. En nú er tími til að kveðja og þakka fyrir góða samveru og allan þann mikla stuðning sem hann veitti mér, hann var alltaf til staðar þegar á reyndi og fyrir það vil ég þakka. Sigríður María (Sigga Mæja). Undanfarna daga hafa leitað á mig ótal minningar og minningabrot um afa. Sú mynd sem er sterkust er af honum gangandi fram og tilbaka á rósótta teppinu í Barmahlíðinni í gráu vesti með keðjuna af gullúrinu festa í hnappagatið. Afi var alltaf vel til fara og snyrtilegur, meira að segja þegar hann var að smíða, mála eða múra. Enda klæðskeri. Þessa mynd af afa mun ég varðveita en hún er óneitanlega gerólík því hvernig afi var orðinn löngu áður en hann fór frá okkur. Ég var mikið hjá ömmu og afa þegar ég var lítil og naut forréttinda, sem elsta barnabarnið, með einka- rétt á athygli fyrstu árin. Þegar ég fæddist bjuggu mamma og pabbi í risíbúðinni fyrir ofan ömmu og afa sem við fluttum svo aftur í ellefu ár- um síðar á meðan mamma og pabbi byggðu húsið sitt. Þá skall á kreppa eins og núna og hjálp ömmu og afa skipti eflaust sköpum um að mamma og pabbi héldu sjó. Afi var alltaf boð- inn og búinn að hjálpa til í húsinu og reyndist pabba ómetanleg hjálp. Sjálfur hafði afi byggt Barmahlíðina ásamt pabba sínum og bræðrum þegar fjölskyldan fluttist frá Vest- fjörðum. Löngu fyrir mína tíð. Afi kenndi mér ótalmargt, eins og til dæmis að skræla kartöflur og tala ekki þegar hádegisfréttirnar voru í útvarpinu. Allt er þetta mikilvægt. Mér varð ljóst smám saman að á milli okkar afa væri strengur sem aldrei myndi bresta. Ég sótti í að vera í skúrnum hjá afa, sem var sér- heimur með risastóru sníðaborði, efnisströngum í hillum, brúnum sníðablöðum og lykt af pressuðu terlíni. Frammi var afgreiðsluborð, mátunarklefi og tilbúnar buxur á hringstatífi. Þetta bauð að sjálfsögðu upp á ýmsar tegundir leikja hjá ungri stúlku. Þar reyndi ég eflaust á þolrif afa því ég flækti ítrekað og endalaust saumavélarnar. En afi stóð bara þegjandi upp, stundum dæsandi, og losaði flækjurnar þann- ig að ég gæti haldið áfram. Þegar ég eltist kom ég með efni og bað hann að sauma á mig föt, sem honum fannst algjörlega fáránleg á köflum. En afi gerði allt sem ég bað hann um. Af öllum þeim fötum sem afi saumaði á mig hef ég sérstaklega passað kjól- ana sem hann saumaði þegar ég út- skrifaðist úr menntaskóla. Það eiga ekki margir afa sem sauma kjóla á barnabörn sín. Það hlýtur að teljast til forréttinda. Við sniðmátun flugu líka stundum gullkorn frá afa sem eru orðin klassísk milli mín og systra minna en við erum sammála um það að svarta hlutann af húmor okkar höfum við erft frá afa. Afa fannst líka mjög gaman þegar okkur systrunum fannst hann fyndinn en þá brosti hann með sérstöku glotti. Þótt afi hafi verið orðinn gamall og tilbúinn til þess að fara er núna kveðjustund. Lífaldur og heilsufar breyta ekki eðli þeirrar stundar. Erfiðast er að horfa upp á ömmu sína missa lífsförunaut sinn til margra áratuga eftir að hafa staðið með honum í gegnum löng og erfið veikindi. Getur enginn sett sig í hennar spor nema hafa staðið í þeim sjálfur. Afa þakka ég allt gamalt og gott. Blessuð sé minning hans. Eva Bryndís Helgadóttir. Nú hefur elskulegur vinur minn og mágur, Hreiðar G. Viborg, kvatt þennan heim eftir langvarandi veik- indi. Hreiðar var klæðskeri að mennt og mjög laghentur, sannkallaður þúsund þjala smiður. Má segja, að allt hafi leikið í höndum hans. Nutu margir þess, því að hann var afar hjálpsamur. Hann var listfengur og eiga ýmsir í fjölskyldunni fallegar myndir, sem hann málaði. Á skólaárum mínum bjó ég hjá honum og Jónu, systur minni, að Barmahlíð 34, og reyndust þau mér sem bestu foreldrar. Í sama húsi og því næsta bjuggu foreldrar Hreiðars og fjögur systkini. Höfðu þau öll unnið sameiginlega að byggingu húsanna. Á þessum árum var oft glatt á hjalla á heimilinu. Hreiðar var mús- íkalskur og spilaði ýmist á harmon- ikku eða orgel, og ég reyndi að fylgja með á saxófón. Mikið var sungið, þegar fjölskyldan kom saman, enda allir bræðurnir góðir söngmenn. Hreiðar var hlédrægur maður og heimakær en gekk snemma í Frí- múrararegluna og sótti þangað fundi og andlega upplyftingu á meðan heilsan leyfði. Þau hjónin voru góðir bridge-spil- arar og við Þórunn minnumst ótelj- andi skemmtilegra stunda við spila- borð þeirra. Spilakvöldin voru oft krydduð með tónleikum, þ.e. Hreið- ar setti diska á fóninn með uppá- haldssöngvurum, íslenskum og er- lendum. Það er erfitt að sjá á eftir góðum vini eftir 63 ára samleið. Margs er að minnast og margs að sakna, þegar við kveðjum Hreiðar Viborg. Bless- uð sé minning hans. Erlingur Helgason. Hreiðar G. Viborg Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minn- ingargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að útför hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur verið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefnum, www.mbl.is/minningar. Æviágrip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýsingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreinahöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.