Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 22
22 Dagbók MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009 Sudoku Frumstig 6 9 8 4 8 7 1 5 3 5 3 7 2 6 9 6 5 7 4 9 8 3 2 1 5 4 1 2 4 9 7 6 1 7 6 8 1 2 9 5 6 7 9 3 6 8 4 5 3 8 1 9 6 8 5 9 4 8 3 1 5 6 9 7 1 3 4 2 6 5 3 2 5 8 1 3 2 6 9 7 4 7 2 6 9 1 4 3 8 5 3 4 9 5 8 7 1 6 2 8 7 3 6 9 5 4 2 1 9 1 4 7 3 2 6 5 8 6 5 2 1 4 8 7 3 9 2 3 5 4 6 1 8 9 7 4 6 8 2 7 9 5 1 3 1 9 7 8 5 3 2 4 6 8 7 4 1 2 3 5 9 6 1 5 3 6 9 7 4 2 8 2 9 6 4 5 8 7 3 1 9 3 2 5 1 4 6 8 7 6 8 1 9 7 2 3 5 4 7 4 5 3 8 6 2 1 9 3 2 8 7 6 1 9 4 5 4 6 9 8 3 5 1 7 2 5 1 7 2 4 9 8 6 3 5 9 1 4 7 8 2 3 6 6 3 7 1 5 2 4 8 9 4 8 2 6 3 9 7 1 5 1 5 4 2 9 7 3 6 8 8 7 6 5 4 3 9 2 1 3 2 9 8 1 6 5 4 7 9 1 8 3 2 5 6 7 4 7 6 3 9 8 4 1 5 2 2 4 5 7 6 1 8 9 3 Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverj- um 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röð- inni. Í dag er mánudagur 20. júlí, 201. dagur ársins 2009 Orð dagsins: Úr fjarlægð birtist Drott- inn mér: „Með ævarandi elsku hef ég elskað þig. Fyrir því hefi ég látið náð mína haldast við þig.“ (Jer. 31, 3.) Víkverji játar að eiga það stundumtil að kvarta yfir hinu og þessu. Auðvitað á sumt rétt á sér. Máltækið góða, vinur er sá er vamms segir, á oft vel við. Þó oft megi líka satt kyrrt liggja. x x x Þess vegna langar Víkverja að rifjaupp hvað hugarfar getur skipt miklu máli. Víkverji hefur að vísu stundum verið áminntur fyrir óþol- andi bjartsýni. Þó svo að margir hafi líka talið hann óþolandi svartsýnan. Með þetta í huga, þá er hugarró eiginleiki sem sumir virðast fá í vöggugjöf. Eiginleiki sem að mati Víkverja er gulli betri. Það skiptir ekki máli hvaða áföll dynja yfir. Alltaf er öllu tekið með ró og spekt x x x Víkverji hefur alltaf dáðst að fólkisem getur tekist á við vanda- málin af æðruleysi. Þá er Víkverji ekki að tala um hið víðfræga „þetta reddast“ hugarfar Íslendinga. Held- ur frekar hina bjargföstu sannfær- ingu sem virðist búa í brjóstum þess- ara einstaklinga um að það verði allt í lagi. Á meðan að „þetta reddast ein- staklingurinn“ er stressaður og í sí- felldu kapphlaupi. Kapphlaupi sem snýst um að sjá til þess, að þetta reddist. x x x Þegar Víkverji spyr rólega ein-staklinginn, hvort hann sé ekki áhyggjufullur, finnst þetta jafnvel óeðlilegt kæruleysi á köflum, þá á við- komandi alltaf sama svarið. „Það breytir engu þó ég hafi áhyggjur af þessu. Það eina sem myndi breytast væri að mér liði illa.“ Yfir þessu fólki hvílir ákveðin ró. Það kann að lifa í núinu. x x x Það var ekki ætlun Víkverja aðvera með einhverja predikun. En eftir að hafa verið samvistum við einstakling sem er að vinna einmitt svona úr erfiðum aðstæðum, sem hefðu ekki komið upp í eðlilegu ár- ferði, þá verður hann að játa að hann er fullur aðdáunar á viðkomandi. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 tælir, 8 breiðir firðir, 9 er fær um, 10 ílát, 11 búa til, 13 óskertur, 15 þref, 18 hvöss, 21 bæklingur, 22 lesta, 23 snagar, 24 stuttir dagar. Lóðrétt | 2 svipað, 3 til- biðja, 4 vafra, 5 lauslegt samkomulag, 6 eld- stæðis, 7 púkar, 12 léleg skrift, 14 endir, 15 gang- flötur, 16 þrekvirki, 17 þyngdareining, 18 þjófn- að, 19 auðna, 20 ávöxtur. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 dugur, 4 fúkki, 7 máfur, 8 lítil, 9 tel, 11 róma, 13 þrír, 14 kálar, 15 bóla, 17 árós, 20 ára, 22 lekur, 23 ungar, 24 afræð, 25 nurla. Lóðrétt: 1 dómur, 2 gæfum, 3 rýrt, 4 fúll, 5 kýtir, 6 illur, 10 eflir, 12 aka, 13 þrá, 15 bólga, 16 lúkur, 18 rægir, 19 syrta, 20 árið, 21 auðn. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Staðan kom upp á alþjóðlegu móti sem lauk fyrir skömmu í Purley í Englandi. Portúgalski stórmeistarinn Luis Ga- lego (2454) hafði svart gegn heima- manninum Jack Rudd (2357). 16… Dxf4! 17. Dxb6 Bb4+ 18. Kf1 Db8! og hvítur gafst upp enda liðstap óumflýj- anlegt þar sem svartur hótar að fanga hvítu drottninguna með Ha8-a6. Loka- staða mótsins varð þessi: 1.-2. Keith Arkell (2517) og Alexander Cherniaev (2423) 6 1/2 vinning af 9 mögulegum. 3. Alexei Slavin (2308) 5 1/2 v. 4.-5. Peter Poobalasingam (2240) og Luis Galego (2454) 5 v. 6. Daniel Gormally (2487) 4 1/2 v. 7. Jack Rudd (2357) 4 v. 8. Simon Ansell (2394) 3 1/2 v. 9. Guðmundur Kjartansson (2388) 2 1/2 v. 10. Robert Eames (2312) 2 v. Svartur á leik Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Eðli trompa. Norður ♠Á54 ♥752 ♦Á53 ♣Á1083 Vestur Austur ♠DG108 ♠732 ♥10 ♥DG98 ♦G974 ♦D10 ♣KG42 ♣D976 Suður ♠K96 ♥ÁK643 ♦K862 ♣5 Suður spilar 4♠. Summa tapslaga og tökuslaga ætti með réttu að vera þrettán, en svo er ekki alltaf. Einkum gengur þessi sam- lagning illa upp þegar tromplitur sagn- hafa er götóttur. Lítum á spil dagsins. Í þessari legu má telja fimm tapslagi: einn á spaða, tvo á tromp og tvo á tígul. Á hinn bóginn renna upp tíu tökuslagir með tiltölulega einfaldri spilamennsku. Útspilið er ♠D. Best er að drepa á ♠K heima og taka strax ♥Á-K. Leggja svo upp í þann leiðangur að trompa þrjú lauf heima: Spila laufi á ás og trompa lauf, taka ♦K og ♦Á og stinga annað lauf, spila loks spaða á ás og trompa síðasta laufið. Nú eru tíu slagir í húsi. Tapslagatalningin byggist á því að trompin falli saman í sókn og vörn. En það er auðvitað ekki megineðli trompa. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Mikið skáld hélt því fram að lífið væri jafn leiðinlegt og vísa sem kveðin er of oft, sem ergir sljótt eyra syfjaða mannsins. Svona er að sjá takmarkið fyrir sér ljóslifandi. (20. apríl - 20. maí)  Naut Mál sem tengjast ferðalögum, fram- haldsmenntun og lögfræði ættu að ganga sérlega vel á þessu ári. Leitaðu aðstoðar ef eitthvað vefst fyrir þér. Haltu því vöku þinni. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Í dag er gott að tala um peninga við nána ættingja eða félaga. Ekki vor- kenna þér og reyndu að hressa aðra við sem líður eins og þér í dag. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þú ert eins og milli steins og sleggju í ákveðnu máli. Notaðu tækifærið til að koma ár þinni sem best fyrir borð. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Það er betra að fara sér hægt þegar átt er við ókunnuga. Sýndu tilfinningum þeirra tillit, en hugsaðu síðan um það sem skiptir þig máli, sama hvað þeir segja. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Það er betra að hafa slæma áætlun en enga. Mundu að það er undir þér kom- ið að gera rútínuna þína nógu skemmti- lega. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú ert uppfullur af hugmyndum og fleiri streyma að þér úr öllum áttum. Leggðu þig fram um að vingast við aðra. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Láttu það ekki slá þig út af laginu þótt undirtektir annarra séu eitt- hvað öðruvísi en þú helst vildir. Ef þér finnst eitthvað ekki rétt skaltu rannsaka málið. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Bogamaðurinn fær gott tæki- færi til þess að bæta sambandið við nána vini og maka á næstunni. Minnstu allra góðu stundanna með viðkomandi og láttu þær létta þér lífið. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þróunin heldur stöðugt áfram og þú verður að fylgjast með hvað sem tautar og raular. Dragðu hvergi af þér í þeirri viðureign. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Það er til mikils ætlast af þér í vinnunni og þú þarft að leggja þig allan fram. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila, og vertu sanngjarn. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Láttu það ekki blekkja þig þótt þú eigir auðvelt með að koma skoðunum þín- um á framfæri. Láttu þær engin áhrif hafa, heldur haltu þínu striki. Stjörnuspá 20. júlí 1783 Eldmessan á Kirkjubæj- arklaustri. Meðan séra Jón Steingrímsson messaði í Klausturkirkju stöðvaðist framrás hraunsins úr Skaft- áreldum stutt frá kirkjunni. Vildu menn þakka það bæn- hita Jóns. 20. júlí 1798 Alþingismenn yfirgáfu Þing- velli sökum ónæðis og „heilsu- spillandi dragsúgs í gegnum gluggabrotið og opið lögréttu- hús“, eins og lögmaður orðaði það. Þar með lauk störfum Al- þingis á Þingvöllum. 20. júlí 1947 Snorrahátíð var haldin í Reyk- holti í Borgarfirði og voru þar allt að átta þúsund manns. Ólafur krónprins (síðar kon- ungur) afhjúpaði styttu af Snorra Sturlusyni en hún var gjöf frá Norðmönnum. Styttan er eftir Gustav Vigeland. 20. júlí 1968 Vatn til Eyja. Skrúfað var frá vatnsleiðslunni sem lögð hafði verið til Vestmannaeyja frá Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum. Áður höfðu Eyjamenn nýtt regnvatn. 20. júlí 1969 Útvarpið lýsti lendingu fyrsta mannaða geimfarsins á Tungl- inu, kl. 20.17, og síðar tungl- göngu Neil Armstrong og Edwin Aldrin. Á forsíðu Vísis daginn eftir stóð: „Það tókst!“ 20. júlí 1997 Minnisvarði um franska heim- skautafarann dr. Jean Char- cot var afhjúpaður í Straum- firði, en þar fórst hann með Pourquoi Pas? rúmum sextíu árum áður. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson Þetta gerðist … „ÞAÐ er nú ekki verra að fá slíkan dag, að fá skírn á afmælinu sínu verður yndislega gaman,“ segir Jóhanna Davíðsdóttir, húsfreyja og bóndi á Grund í Skorradal sem á 69 ára afmæli í dag. Afmælið er þó ekki aðalatriði dagsins að hennar mati því í dag hlýtur einnig nýr fjölskyldu- meðlimur skírn. Reyndar fagnar stórfjölskyldan á Grund miklu barnaláni því stúlkan er sjöunda barnabarn Jóhönnu og bónda hennar Davíðs Pét- urssonar, hið áttunda er einnig nýkomið í heiminn og það níunda væntanlegt. „Þetta er ótrúleg fjölg- un á stuttum tíma, innan við fjórum mánuðum. Það er alveg frábært, sér í lagi þegar maður fer að hallast á þennan aldur,“ segir Jóhanna hlæjandi. Hún segist jafnvel eiga von á ein- hverri óvæntri uppákomu í skírninni í dag líkt og þegar hin nýbakaða móðir gaf upp nafn fyrstu dóttur sinnar Dagmarar í bundnu máli við skírn fyrir fjórum árum. Athöfnin og hin tvöfalda veisla fer að sjálf- sögðu fram í Skorradalnum þar sem ríkt hefur einmuna veðurblíða og heyskap lauk nýlega á mettíma. „Það kláraðist á átta dögum sem er ótrúlegt og hefur aldrei verið síðan ég kom fyrst á Grund fyrir 35 ár- um,“ segir Jóhanna sem hefur yfir mörgu að gleðjast í dag. una@mbl.is Jóhanna Davíðsdóttir, bóndi á Grund, 69 ára Skírnarveisla í afmælisgjöf Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? Sendið mynd af barninu til birtingar í Morgunblaðinu Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda mynd af barninu með upplýsingum um fæðingarstað, stund, þyngd, lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig má senda tölvupóst á barn@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.