Morgunblaðið - 20.07.2009, Qupperneq 23
Velvakandi 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
BÍDDU NÚ
HÆGUR...
VARÚÐ!
TÝNDUR
HUNDUR
VARÚÐ!
TÝNDUR
HUNDUR
VARÚÐ!
TÝNDUR
HUNDUR
ÉG HORFÐI
Á LIÐIÐ ÆFA,
OG ÞAU VORU
HRÆÐILEG!
EKKERT ÞEIRRA GAT SLEGIÐ
BOLTANN LENGRA EN NOKKRA
METRA! Í LIÐINU ER
KJAFTFOR STELPA SEM
KANN EKKI AÐ GRÍPA...
ÞAU ERU LÍKA MEÐ
EITTHVAÐ SKRÍTIÐ DÝR SEM
GETUR EKKI KASTAÐ, OG
KASTARINN ÞEIRRA ER EINN
SÁ VERSTI SEM ÉG HEF SÉÐ!
ÞÚ NJÓSNAÐIR UM
ÞITT EIGIÐ LIÐ!!!
PABBI, ÉG VEIT AÐ ÞÚ BAÐST
MIG AÐ MOKA INNKEYRSL-
UNA... EN ÉG
ER MEÐ BETRI
HUGMYND
ÉG GET BÚIÐ TIL
RISASTÓRAN STÖKKPALL
ÚR ÖLLUM SNJÓNUM, OG
SÍÐAN GETUR ÞÚ SPÓLAÐ
ÚT ÚR BÍLSKÚRNUM
OG FLOGIÐ YFIR
INNKEYRSLUNA!
VIÐ GETUM SETT TUNNUR Í
INNKEYRSLUNA TIL AÐ SJÁ
HVAÐ ÞÚ GETUR
STOKKIÐ YFIR
MARGAR!
ÉG SKIL EKKI AF HVERJU
SUMT FÓLK KAUPIR SÉR BÍL
HELGA, ERTU NOKKUÐ
TIL Í AÐ NÁ Í BJÓR
HANDA MÉR, FYRST ÞÚ
STENDUR?
ÉG ER
BARA MEÐ
TVÆR
HENDUR
!!
EF ÞÚ MYNDIR HENGJA
ÞVOTTINN Á HORNIN Á ÞÉR
ÞÁ GÆTIR ÞÚ NÁÐ Í TVO
BJÓRA
HANDA
MÉR!
VELTU
ÞÉR
LALLI,
VARSTU
ÚTI?
ÉG SKAUST
BARA ÚT Í BÚÐ
AÐ KAUPA
SPAGETTÍ
OG
HVAR ERU
KRAKK-
ARNIR?
INNI...
ÉG VAR BARA
KORTER Í
BURTU
SKILDIR
ÞÚ ÞAU EIN
EFTIR
HEIMA?!?
ÉG
ÞURFTI AÐ
ELDA MAT
FYRIR
KLUKKAN
SJÖ! ÉG
VARÐ...
ÞANNIG
AÐ ÞETTA
VAR UPP Á
LÍF OG
DAUÐA?
ÉG HEFÐI
MISST AF
KÖRFU-
BOLTANUM!
KÓNGULÓARMAÐURINN, VERÐIRNIR OG
FANGINN ERU FASTIR INNI Í BÍLNUM...
OG NÚ ER ÁSTANDIÐ ORÐIÐ MUN VERRA...
GAS!
SOFÐU
VÆRT,
LITLA
PADDA
UNGLINGARNIR á Ingólfstorgi sýna oft snilldartakta á hjólabrettum.
Eflaust er ekki síður vandasamt að velja réttu tónlistina meðan á æfing-
unum stendur. iPodinn fær alla athygli unga mannsins á bekknum.
Morgunblaðið/Heiddi
Vandasamt að velja rétta tónlist?
Hvað er
sjúkranudd?
SJÚKRANUDD er
viðurkennd heilbrigð-
isstarfsgrein og ber
sjúkranuddurum að
starfa samkvæmt
reglugerð nr. 204/1987
með síðari breytingum
og fara að læknalögum.
Ekki er hægt að læra
sjúkranudd á Íslandi
og eru þeir skólar sem
heilbrigðisráðuneytið
viðurkennir í Þýska-
landi og Kanada. Nám-
ið, sem tekur þrjú ár og
er á háskólastigi, bygg-
ist m.a. á líffærafræði, lífeðlis- og líf-
efnafræði, sjúkdómafræði, hreyfing-
arfræði, meinafræði, siðfræði,
taugafræði, taugalífeðlis- og líf-
efnafræði og innkirtlafræði. Einnig
æfingum, kennslu í skoðun og mati á
líkamlegu ástandi sjúklings, vatns-
meðferðum og sérhæfðum sjúkra-
nuddaðferðum. Þar sem ekki er
hægt að læra sjúkranudd á Íslandi
gerir sú staðreynd það m.a. að verk-
um að ekki fjölgar hratt í stéttinni.
Starfandi sjúkranuddarar á Íslandi í
dag eru um 30 sem ekki þykir mikið.
Nú virðist vera í tísku að fara í nudd
og er það sannarlega af hinu góða.
En nokkurs misskilnings hefur gætt
varðandi þessa stétt. Í munni fólks
eru t.d. sjúkraþjálfar oft nefndir
nuddarar, sem er auðvitað rang-
nefni, og eins hafa hinir ýmsu nudd-
arar gefið sig út fyrir að vera sjúkra-
nuddarar. Kínverskt nudd og fleira í
þeim dúr er til að mynda ekki
sjúkranudd. Fólk ætti að vera með-
vitað hvert það er að fara og hvernig
meðferð það er að sækjast eftir.
Margar stofur auglýsa að þær hafi
sjúkranuddara innanborðs sem
reynist svo ekki rétt þegar betur er
að gáð. Þar sem löggiltur sjúkra-
nuddari starfar á að hanga uppi á
vegg löggildingarpappír frá heil-
brigðisráðuneyti þar
sem segir að viðkom-
andi hafi löggildingu í
sinni grein. Og ef ein-
hver er að fara í
sjúkranudd á hann
heimtingu á að sjá lög-
gildingarpappíra áður
en meðferð hefst.
Sjúkranuddarafélag
Íslands (SNFÍ) hefur
verið að taka á þessum
málum og biðjum við
almenning að vera vak-
andi því það er ekki
það sama nudd og
sjúkranudd. Sjúkra-
nudd er meðferð-
arform, viðurkennt af
heilbrigðisyfirvöldum á Íslandi.
Nokkuð hefur einnig verið um það
að fólk álíti, vegna þess að Sjúkra-
tryggingar Íslands hafa ekki nið-
urgreitt meðferð hjá sjúkranuddara,
að sú stétt sé þar með ekki löggild
heilbrigðisstétt. Það er auðvitað al-
rangt og má benda á að fram undir
hið síðasta hafa hvorki iðjuþjálfar né
sálfræðingar verið inni í niður-
greiðslukerfi Sjúkratrygginga Ís-
lands þótt enginn efist um að þetta
séu löggiltar heilbrigðisstéttir.
Það er markmið Sjúkranudd-
arafélags Íslands að afla sjúkra-
nuddi sömu virðingar og viðurkenn-
ingar og það nýtur í öðrum löndum
innan vestrænna læknavísinda svo
og að auka samstarf við aðrar heil-
brigðisstéttir. Nú þegar eru sjúkra-
nuddarar starfandi víða, t.d. á
sjúkrahúsum, heilsugæslustöðvum,
Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði
og á eigin stofum. Það er því von
okkar að þessi stétt haldi áfram að
þróast við hlið og í samvinnu við aðr-
ar heilbrigðisstéttir í landinu, lands-
mönnum öllum til hagsbóta.
Elsa Lára Arnardóttir, formaður
Sjúkranuddarafélags Íslands.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður
vegna sumarlokunar. Hádegismatur kl.
12-13. Næsta sumarferð verður 5. ágúst.
Rangárvellir, Keldur, Landeyjar. Brottför
kl. 8.30 frá Aflagranda, verð 6.300 kr.,
hádegismatur innifalinn.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna kl. 9-16, félagsvist kl. 13.30, pútt-
völlur opinn.
Dalbraut 18-20 | Brids kl. 13.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Ferð til Vestmannaeyja 22.-24.
júlí. Brottför kl. 10 frá Gullsmára og kl.
10.15 frá Gjábakka með rútu til Þorláks-
hafnar. Siglt með Herjólfi til Eyja. Gist í
tvær nætur í gistihúsinu Heimi. Skoð-
unarferð um Heimaey og ekið um eld-
stöðvarnar frá 1973. Bátsferð í umhverfi
Heimaeyjar. Leiðsögn.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinnustofa opin, ganga kl. 10, matur kl.
11.40, félagsvist kl. 20.30, púttvöllurinn
opinn.
Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er op-
in kl. 9-14, matur kl. 12.
Hæðargarður 31 | Opið í allt sumar.
Morgunspjall kl. 9, Stefánsganga kl.
9.10, gáfumannakaffi kl. 15, „hot spot“
og tölvur, 18 holu púttvöllur, ljóðabók
skapandi skrifa til sölu, hugmyndabank-
inn opinn, málverkasýning Erlu og Stef-
áns og félagsvist alla mánudaga kl.
13.30. Upplýsingar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó og pútt á
menningarflötinni við Gerðarsafn í Kópa-
vogi kl. 13. Upplýsingar í síma 564-1490,
554-5330 og 554-2780.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og léttar æfingar kl. 10.30,
Handverks- og bókastofa opin kl. 11.30,
Kaffiveitingar kl. 14.30, söng- og sam-
verustund kl. 15. Fótaaðgerðastofa opin,
s. 552-7522.
Vesturgata 7 | Blöðin og kaffi í setu-
stofu kl. 9, handavinna kl. 9-15.30, leik-
fimi kl. 11 (júní-ágúst). Matur kl. 11.30 og
kaffi kl. 14.30. Fótaaðgerðir og hár-
greiðsla kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Morg-
unstund kl. 9.30, handavinnustofan op-
in, spilað, stóladans. Fótaaðgerðarstofan
opin alla daga. Uppl. í síma 411-9450.