Morgunblaðið - 20.07.2009, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. JÚLÍ 2009
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13 OG 14 Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER AND THE
HALF BLOOD PRINCE kl. 1 - 2D - 4 - 5D - 7 - 8D - 10:10 - 11:10D 10
DIGTAL BRÜNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 8:30 - 10:10 - 10:30 - 12:10 14
HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:20 12
HARRY POTTER AND THE
HALF BLOOD PRINCE kl. 2 - 5 - 8 - 11:10
örfá sæti laus í VIP, tryggðu þér miða
LÚXUS
VIP
TRANSFORMERS kl. 2 - 5 10
/ KRINGLUNNI
HARRY POTTER AND THE
HALF BLOOD PRINCE kl. 2D - 5D - 8D - 10D - 11:10D 10
DIGITAL
BRÜNO kl. 6D - 8D - 10:10 - 12 14 DIGITAL
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 23D - 43D L DIGTAL 3D
THE HANGOVER kl. 2 - 4 - 6 - 8 12
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
STÆRSTA KVIKMYNDASERÍA
ALLRA TÍMA ER KOMIN Í BÍÓ!
HHHH
„POTTER HEFUR ALDREI VERIÐ FYNDNARI,
MANNLEGRI, ÁHRIFARÍKARI EÐA SKEMMTILEGRI.
KLÁRLEGA BESTA MYND SEM ÉG HEF
SÉÐ ALLT SUMARIÐ.”
T.V. - KVIKMYNDIR.IS
„DAZZLINGLY WELL MADE...“
VARIETY - 90/100
„HÚN VAR FRÁBÆR!“
NEW YORK MAGAZINE – 90/100
HHHH
„ÞESSI KYNNGIMAGNAÐA RÆMA ER
SÚ BESTA Í RÖÐINNI.“
„YFIRBURÐAFÍNT SJÓNARSPIL
MEÐ SNILLDARLEGRI
TÓNLIST OG HLJÓÐMYND.“
Ó.H.T. – RÁS 2
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
„ÉG þverneitaði þegar mér var
fyrst boðið hlutverkið. Ég var full-
ur fordóma gagnvart þessari mynd
og hélt að hún yrði alger klisja,“
byrjar leikarinn Michael Nyqvist
samtal sem fram fer í hádegishléi
hans á tökustað í Danmörku. Nyq-
vist snæðir hádegismatinn sinn í
rólegheitum á meðan blaðamaður
rekur úr honum garnirnar um nýj-
ustu mynd hans, Karlar sem hata
konur, sem frumsýnd verður hér á
landi á miðvikudag. Þar fer Nyq-
vist með hlutverk nafna síns, Blom-
kvists, rannsóknarblaðamannsins
slynga.
„Ég var eini maðurinn í Svíþjóð
sem ekki hafði lesið bækur Stiegs
Larsons, ég er svo snobbaður og
hélt að þetta væri ekkert fyrir
mig,“ heldur leikarinn áfram um
aðkomu sína að myndinni. „Þegar
Niels Arden Oplev, leikstjóri fyrstu
myndarinnar, kallaði mig svo á sinn
fund small eitthvað saman. Við
tengdumst alveg ótrúlega vel og ég
treysti honum fullkomlega til að
gera góða mynd. Þegar ég svo loks-
ins las bókina og svo handritið varð
ég sannfærður um að við værum
með stórkoslegt efni í höndunum.“
Bjóst ekki við góðum viðtökum
Bækur Stiegs Larssons um þau
blaðamanninn Blomkvist og tölvu-
þrjótinn Lisbet Salander hafa selst
í bílförmum á Norðurlöndum og
víðar. Skyldi Nyqvist ekkert hafa
verið efins um að taka að sér hlut-
verk manns sem svo margir hafa
lesið um og hafa skoðanir á hvernig
eigi að vera?
„Ég hugsaði ekkert mikið um
það í byrjun. Ég reyndi bara að
gera mitt besta í að kafa ofan í per-
sónu Blomkvists og gera honum
sem best skil. Það var ekki fyrr en
að tökum myndanna lauk sem það
rann upp fyrir mér hvað við hefð-
um verið að gera. Ég uppgötvaði að
13 milljónir manna hafa keypt sér
bókina, og svo lánað hana hugs-
anlega einum eða tveimur svo að ég
var að leika karakter sem um 30
milljónir manna höfðu lesið allt um
og höfðu væntanlega skoðun á
hvernig ætti að vera. En þá var of
seint fyrir mig að gera nokkuð í
því,“ segir leikarinn.
Hann þarf þó varla að örvænta
því líkt og bókin virðist myndin
hafa unnið hug og hjörtu almenn-
ings á Norðurlöndum, þar sem
henni hefur verið afar vel tekið.
„Já, ég bjóst satt að segja alls
ekki við því. Það er svo sjaldgæft
að eitthvað sé varið í kvikmyndir
sem gerðar eru eftir bókum. Sjáðu
bara Da Vinci-lykilinn. Einu tilvikin
sem það hefur heppnast eru The
Godfather og Harry Potter, og
núna vonandi Karlar sem hata kon-
ur,“ segir Nyqvist.
Uppgjör við fortíðina
Sem kunnnugt er náði Stieg
Larsson að skrifa þrjár bækur áður
en hann lést og verða þær allar
fluttar yfir á hvíta tjaldið. Búið er
að taka þær allar, þær voru teknar
í einum rykk, og verða önnur og
þriðja myndin sýndar síðar á þessu
ári. Nyqvist hefur því eytt um
tveimur árum ævi sinnar sem nafni
sinn Blomkvist. Hann segist eiga
eftir að sakna hans.
Tökur fóru fram víðsvegar um
Svíþjóð. Fann Nyqvist ekki fyrir
því að fólk væri áhugasamt um
verkefnið á meðan á tökum stóð?
„Jú, mikil ósköp. En við vorum í
sjálfskipuðu fjölmiðlabanni og töl-
uðum ekki við neinn um myndina.
Ég talaði ekki einu sinni um verk-
efnið við konuna mína og börnin
mín,“ segir Nyqvist og hann segist
ganga sáttur frá verkefninu.
„Það sem er svo gott við bæk-
urnar hans Stiegs er hve mikið
uppgjör felst í þeim, uppgjör
sænsks samfélags við meðal annars
samvikskubit frá seinni heimsstyrj-
öldinni, um morðið á forsætisráð-
herranum okkar og spillingarmál
tengd Sósíaldemókrataflokknum.
Hann skrifaði þetta svo vel og það
er án efa lykillinn að velgengninni.“
Rithöfundurinn Nyqvist
Það er nóg framundan hjá Nyq-
vist því auk þess að standa í kynn-
ingum á myndunum þremur kemur
hans fyrsta bók út í september.
„Hún segir frá þeirri erfiðu æsku
sem ég átti en ég ólst upp á mun-
aðarleysingjahæli,“ segir Nyqvist
um bókina, sem heitir When the
Child is Sleeping.
„Ég er því ein taugahrúga yfir
viðtökunum á þessu öllu saman.
Bókin verður gefin út í Svíþjóð,
Noregi og Danmörku auk Þýska-
lands. Ég vona að hún komi út á Ís-
landi líka. Ég veit að þið bæði skrif-
ið og lesið mikið af bókum,“ bætir
hann við að lokum.
Sænski leikarinn Michael Nyqvist fer með hlutverk Mika-
els Blomkvists í Karlar sem hata konur Afþakkaði hlut-
verkið í upphafi, sannfærður um að myndin yrði klisja
Tvíeykið Þau Noomi Rapace og Michael Nyqist í hlutverkum sínum sem
Lisbet Salander og Mikael Blomkvist í Karlar sem hata konur.
Leikarinn „Ég var eini maðurinn í Svíþjóð sem ekki hafði lesið bækur
Stiegs Larsons, ég er svo snobbaður og hélt að þetta væri ekkert fyrir mig.“
Karlinn sem leikur Blomkvist
NÚ stendur yfir ljósmynda-
samkeppni mbl.is og Canon.
Mynd vikunnar að þessu sinni
ber yfirskriftina „Beðið eftir
póstinum“.
Ljósmyndarinn nefnist
Magnús Már Haraldsson og er
hann búsettur í Mosfellsbæ.
Ljósmyndasamkeppnin er
opin öllum áhugamönnum um
ljósmyndun. Allar upplýsingar
um keppnina má finna á
mbl.is.
Mynd
vikunnar
BANDARÍSKA leikkonan Sandra
Bullock segir að breska hljómsveitin
Spice Girls hafi fengið hana til að
verða ástfangin af eiginmanni sín-
um. Bullock gekk að eiga mót-
orhjólakappann Jesse James árið
2005, en hún segir að hún hafi ekki
orðið almennilega ástfangin af hon-
um fyrr en hún heyrði hann syngja
með lagi með Spice Girls. „Hann var
alltaf að hlusta á Slayer eða Metal-
lica en svo heyrði ég hann allt í einu
vera að hlusta á Spice Girls. Þá fyrst
hugsaði ég með mér að þetta væri
maðurinn sem ég elskaði, og að hann
væri ekki eins og ég hafði áður hald-
ið,“ segir hin 44 ára gamla leikkona.
Spice Girls hjálpuðu
Reuters
Undarleg Sandra Bullock.