Nýtt kvennablað - 01.12.1962, Blaðsíða 4

Nýtt kvennablað - 01.12.1962, Blaðsíða 4
máttarverk hans, skapandi og frelsandi hönd hans, sannleiksorð hans. Orðið varð hold, og hann bjó með oss fullur náðar og sannleika og vér sáum dýrð hans, dýrð sem eingetins sonar frá föðurnum. Börn urðu fyrstu píslarvottar sannleikskonungs- ins, saklaus börn, deydd af hatursfullu ofríki vald- hafans, sem sóttist eftir lífi Jesú, strax meðan hann var nýfæddur. Oft síðan hefur valdhafinn sótzt eftir að deyða líf Jesú, deyða hann meðal þjóðanna. Sæl er sú þjóð, þar sem valdhafinn óskar þess, að ljós Guðs dýrðar skíni og segir: Ég og mínir ættmenn munum Drottni þjóna. Sálmurinn, Sjá himins opnast hlið, er uppfræð- andi í senn og fagurt listaverk með einföldu, litríku tungutaki. Hann er dýrlegur lofsöngur, líkt og lagið við hann. Hann er sigur- og fagnaðarsöngur. Höf- undar lags og ljóðs hafa skilið eftir hjá söfnuðinum dýrustu reynslu hjarta síns: Ljós, sem glæðist og lýsir inn í dimmt og hljótt rúm heims og hugar- þels, — og glæðist. Það ljós Guðs dýrðar er. Það er vert fyrir hvern þann, sem ekki kann þennan sálm, að læra hann. Hann gleður. Hvort tveggja er jóla-auðlegð, ljóð og lag, þekking á guð- spjallinu og kynni við fögnuðinn. Ég held glaður jól. — Látið börnin læra þennan sálm. Lesið guðspjallið upphátt fyrir börn á aðfanga- dagskvöld. Hljóðlát helgistund, sem allir heimilis- menn taka þátt í, helgistund guðspjallsins og heim- ilisins, kennir börnunum hvernig jól eru haldin helg. Þá má einnig minna á það, að hugarfar það, sem stendur á bak við jólagjafirnar, er sprottið af því kærleikshugarfari, sem Jesús innrætti mönnunum. Þess vegna varð það eðlilegt að minnast fæðingar hans með því að láta eitthvað af hendi rakna til þess að gleðja hver annan í Jesú minningu, líka til þess að minna á þá miklu gjöf, sem Guð gaf oss. Allir kristnir menn vilja gleðja eiiihvern á jólum með ýmsu móti. Þess vegna er það ekki rétt að amast við umstangi húsmæðra fyrir jól, aðeins að þess sé gætt, að sjálf hátíðin sé svo undirbúin, að heimilið geti notið kyrrlátrar stundar og sinnt börnum sínum, þar sem þau eru. Gætið þess að segja börnunum hvers vegna svo mikið er um undir- búning hátíðar þessarar. Segið þeim frá Jesú, meðan verið er að undir- búa jólin, Lesið að endingu jólaguðspjallið á að- fangadagskvöld. Farið með börnin í kirkju. og verið áður búin að kenna þeim jólasálma, þeim börnum, sem eru orðin þriggja til fjögurra ára, svo að þau gleðjist við að heyra sálminn sinn í kirkjunni. 2 LJOSIÐ I KIRKJUGARÐINUM Kirkjan og kirkjugarðurinn voru inni í miðjum skóginum á barði einu, sem var um það bil hundrað og fimmtíu fermetrar að stærð. Þjóðvegurinn lá fast upp að nyrðri kirkjugarðsveggnum. Þarna var aðeins einn mannabústaður, gamall námumanns- bær. Kirkjan var ekki gömul, byggð í lok síðustu aldar. Kirkjugarðurinn var í órækt og auðnarlegur. Fátæklegur helgidómur í fátækri sveit, eftir að stóriðnaðurinn hafði lagt litlu námugryfjurnar und- ir sig. Gamli námumannsbærinn hét Óttarsstaður, en fólkið nefndi hann Óttastað. Þar hafði eitt sinn búið námustjóri, konunglegur embættismaður, sem stýrði litlu sókninni með harðri hendi. Allra harð- astur hafði hann þó verið við konuna sína. Það var hann, sem hafði komið því til leiðar, að gamla kirkjan var rifin og önnur ný byggð í staðinn á hans eigin landareign. Lóðina undir hana seldi hann söfnuðinum háu verði. Námustjórinn lagðist fárveikur, Kona hans var dáin löngu fyrir aldur fram, södd lífdaga eftir kúg- un og harðrétti. Sjálfur varð hann heldur ekki Ljósadýrð kirkjunnar og fagur sálmasöngur og helg orð textans samverkar allt til göfgandi gleði fyrir barnið og verður því, er tímar líða, helgari minning og fegri en allar gjafir, sem það fær, enda þótt þær einnig auki gleði þess yfir jólum. Hvað gerir Jesús þar sem honum er boðið hjarta- rúm og húsrúm. Hann auðgar af kærleika, gleði, von. Hann minnir á miskunnsemi. Hann minnir á einhvern, sem annars hefði gleymzt. Og er vér samt sem áður gleymum eða vanrækjum, þá er sök- in ekki hans. Því að hann sagði: Þetta bar yður að gjöra og annað ekki ógjört að láta. Og þrátt fyrir allt, sem vér höfum til skaða og sorgar ógjört látið, þá er hann samt vorkunnsamur. Hann býður líiknar blessað ár. Hann býður dýpstu að græða sár, því að það er hann, sem „frið og frelsi gefur, og fallna reisir hjörð“, Guð gefi yður gleðileg jól, ljós, er glæðist. Allur vegurinn með honum liggur frá myrkri til Ijóss. Rósa B. Blöndals. NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.