Nýtt kvennablað - 01.12.1962, Qupperneq 10

Nýtt kvennablað - 01.12.1962, Qupperneq 10
LJÓSIÐ I KIRKJUGARÐINUM (Framh. aí bls. 3.) Þór stóð lengi við gluggann, svo lengi, að snjó- birta og stjörnuljómi breyttu myrkrinu fyrir hin- um viðkvæmu innri sjónum hans. En allt í einu hvarf bæði snjóbirta og stjörnuljós. Það var eitt- hvað, sem logaði og Iýsti upp þarna niðri í kirkju- garðinum. — í myrkri þarf ekki nema loga af einni eldspýtu til þess að kveikja í hugmyndafluginu. En hver kveikti á eldspýtu í kirkjugarðinum á sjálfa jólanóttina? Það slokknaði á eldspýtunni, en loginn sást áfram og blakti líkt og í dragsúgi. Þór stóð lengi og horfði á þetta. Ilann var byrj- aður að afklæða sig, en fór nú í fötin aftur, klæddi sig í kuldaúlpu og setti á sig húfu og vettlinga. Höfuðfat notaði hann sjaldan. Hann gekk hljóð- lega ofan stigann, sem alltaf brakaði í, og fram í útidyrnar. Úti var sárkalt. Hann gekk ofan hall- ann í áttina til kirkjugarðsins. Kirkjan skyggði nú á þann hluta garðsins, sem hann hafði séð ljósið loga í. Nú gekk hann fyrir kirkjugarðshornið. — Þar lengst burtu í horninu lá einhver á hnjánum í snjónum eins og á bæn. Fyrir framan hana, því að þetta var kona í dökkum búningi, logaði á kerti í liolu í snjónum, sem konan hafði auðsjáan- lega búið til, til þess að skýla ljósinu. Þór varð gagntekinn af þessari sjaldgæfu sjón. Konan var fátæklega klædd, sennilega var hún ein af alþýðufólki sveitarinnar, þessi sorgbitna, niður- beygða vera. Á Ieiðinu, sem hún kraup við, var kross, þakinn snjó, sem glitraði og endurspeglaði logann frá kertaljósinu. — Þór stóð aðeins nokkrum fótmálum fyrir aftan konuna. Hann stóð með út- rétta hönd, eins og hann héldi á pensli og væri að mála. Og í huganum málaði hann mynd. Á nokkrum sekúndum var sem hann lyki við hana, hugur hans var fullur sköpunargleði. — — Síðan læddist hann burt og flýtli sér inn í herbergi sitt. Þegar kirkjuklukkurnar hringdu á jóladagsmorg- un, fylltust vegirnir af fólki, sleðabjöllur klingdu, tjörublys blossuðu. Litla kirkjan var uppljómuð og frá gamla námustjórabænum kom allur hópurinn, Iiinir kátu höfuðborgarbúar. Þeir gengu í fylkingu inn kirkjugólfið, framhjá troðfullum bekkjunum. inn í kórinn og settust í bekk Óttastaðar, scm stór- kauprnaðurinn opnaði fyrir gesti sína. — Þór sást hverrgi fremur en venjulcga. Hann sat sjálfsagt í einhverju skotinu. En þarna héldu menn nú saman heilög jól, fálæklingar sveitarinnar og ríku gestirnir auðmannsins frá Óttastað. Og bæði fátækir og ríkir sungu: „Heiðra skulum vér herrann Krist. Heims í fallinna barna vist flekklaus hann mærin fæddi um nátt, fagnandi syngja englar dátt: Sé drottni dýrð!“ Hvað fátæklingarnir hugsuðu þarna í kirkjunni meðan sálmurinn var sunginn er ekki gott að segja, og hvaða hugsanir hreyfðu sér í brjósti stórkaup- mannsins er sjálfsagt jafn óþekkt. En presturinn prédikaði, organleikarinn spilaði og fólkið söng. Það voru jól og jólagleði. Þegar sezt var að snæðingi á Óttastað kom Þór heldur okki. Stórkaupmaðurinn varð órólegur. Innst inni bærðist föðurhjarta i barmi hans. Hann fór sjálfur upp á loft og drap á dyr í herbergi sonar síns. Enginn svaraði. Það var tæplega orðið bjart úti. Hann opnaði dyrnar. Inni í herberginu va) kalt. Þór lá í rúminu og steinsvaf í öllum fötunum. Hvað var eiginlega um að vera? Pilturinn var þó ekki farinn að drekka? Listamenn var einatt erfitt að reiða sig á. Stórkaupmaðurinn gekk inn í herbergið. Þá kom hann auga á mynd á málaragrind. Ó, já. Þór var enn tekinn til við að mála. Líklega lrafði hann haldið áfram alla nóttina. Veslings drengurinn. — Hvenær skyldi hann gefast upp við þetta? Og hvar skyldi þetta lenda? — Og þessi mynd! Fyrst sá kaup- maðurinn ekkert. Honum sýndist það allt vera dökk- blátt. En svo tók hann cftir kertaljósi, sem logaði, krossi í snjónum og kvenmanni, sem lá þarna. Eða kraup hún á kné? Vesalings Þór. Var hann orðinn geggjaður? Þetta var nú eitthvað til að mála eða hitt þó heldur. Kaupmaðurinn litaðist. um eftir cinhverju til þess að breiða ofan á son sinn. Gam all og slitinn skinnfeldur lá á gólfinu hjá ofninum. Tók hann feldinn og lagði yfir piltinn. Síðan lædd- ist hann niður. Drengurinn sefur, sagði hann, — hefur verið að mála í nótt. Gestunum fannst viðeigandi að vera forvitnir. — Málverk! sögðu þeir spyrjandi. Falleg mynd? — Eitthvert nýtízku klaslur eins og vant er, svar- aði faðirinn. Hann kærði sig ckkert um að fara að skýra frá því, af hverju myndin væri. Fjöldi Stokkhólmsbúa fór að skoða mynd Þórs á sýningu í Listahöllinni. Þeir, sem vissu, að hann var sonur hins þekkta miljónamærings, er átti lysti- snekkjuna, höfðu aldrei haft mikla trú á listgáfu hans. Sonur ríkismannsins verður sjaldan stórmenni. En nú var því samt sem áður slegið föstu: „Ljósið í kirkjugarðinum" var listaverk, og það meira að segja göfugt listaverk. 8 NÝTT KVENNABLAÐ

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.