Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Qupperneq 3

Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Qupperneq 3
NYTT KVENNABLAÐ 1. tbl. janúar 1964 25. árgangur Mansöngur minni kvenna eftir Ingibjörgu Benediktsdóttur Ingibjörg Benediktsdóttir. Fædd 11. ágúst 1885. Dáin 9. október 1953. Hér birtist það síðasta, sem hún samdi til flutnings. Erindið mun hafa verið flutt í útvarpið 1949, en ekki birt á prenti fyrr en nú. Enn er mér minnisstætt, þegar ég sem unglingur í'ór að hugsa um hvað orðið mansöngur þýddi. Það var formáli hverrar einustu rímu og allt voru það ástaljóð, eða einhverjar gælur við kvenfólk, oft dýrt kveðið og háttbundið. Ég vissi að það, að selja mansali var sama og þrælasala. Man hlaut því að þýða þræll, líklega gilti það jafnt fyrir bæði kynin: þræl og ambátt. Mér þótti samt ótrúlegt að öll þessi seiðandi ástaljóð væru kölluð ambáttarljóð. Seinna var mér sagt að man þýddi kona. — Það var söngur til konu. — Þá skildi ég. Það átti víst að vera til að létta lundina og hýrga skapið, svo þeim leiddist ekki rímurnar sjálfar. Og í man- söngnum var auðvitað leikið á þá strengi, sem menn héldu að konur gætu helzt skilið, einu og einustu strcngina, sem menn álitu og álíta enn að kveneðlið eigi til. Og í veizlum eða á samkomum, þar sem ræðu- höld hafa fram farið, hefur lengi vel verið einn af sjálfsögðustu veizlukostunum íburðarmikil ræða NÝTT KVENNABLAÐ fyrir minni kvenna með orðskrúði, húrrahrópum og söng á eftir: „móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís“ og „lifi því veigar og lifi því sprund“. — Ég býst við að það séu margar fleiri konur en ég, sem höfum oft kosið að ganga út, eða snúa baki við slíkurn flutningi. Okkur hefur oft boðið við því. Svo væmið og vesælt hefur okkur fundizt það. Og þessi framleiðsla af mansöngvum og minn- um kvenna mætir okkur unnvörpum í hverri ljóðabók og kvæðakveri, misjafnar eins og höfund- arnir, en oftast eins og náðarmolar, sem fleygt er af borðum hinna ríku og þiggja á með þakklæti og blíðu brosi, samfara nægjusemi. En ef íslenzka konan íengi loks nóg af að hlusta á skjallið og fagurgalann og stæði upp í allri sinni reisn, þeirri reisn, sem hún hefur alltaf átt og oft sýnt frá því á landnáms- og söguöld til vorra tíma. —Já, ef íslenzka konan gæti einum rómi ávarpað alla þesa mörgu og mælsku höfunda að mansöngv- um og minnum kvenna, lagt fyrir þá nöprustu og átakanlegustu spurninguna, sem kona hefur lagt fyrir karlmann á örlagastund í nokkru íslenzku skáldriti, bituryrði Steinunnar til Galdra-Lofts: „Hefur þú nokkurn tíma spurt um sál mína?“ — Mundi þeim flestum verða svarafátt og það að vonum? Þó að einurn undanteknum, sem ekki þyrfti að verða niðurlútur við þessari spurningu. Það er 1

x

Nýtt kvennablað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kvennablað
https://timarit.is/publication/767

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.