Nýtt kvennablað - 01.01.1964, Síða 15
Efni: 700 g grátt, 100 g brúnt, 100 g miHiblátt, 50 g
Ijósblátt, 50 g gult. — Stór og lítill hringpr. nr. 3, sokkapr.
nr. 2y2. Stærð: 48 — 50 — 52.
Framst. og bak prjónað í einu lagi.
Fitjaðar upp 190 — 200 — 210 1. með gráu, á hringpr.
nr. 3, prjóna 6 umf. r. 1 umf. sn. (innafbrotsbrún), 6 umf.
r. og síðan Iitla mynzturbekkinn. Þá haldið áfram
með gráu. Settur mislitur þráður í hvora hlið, yfir 2 1. og
einni 1. aukið í áttundu hverja umf. báðum megin við
merktu lykkjumar unz 232, 242, 252 1. eru á. Þegar peysan
mælist 30 — 32 — 34 cm frá litla mynzturb. er mynzt-
urb. 2 prjónaður. Ath. að láta miðjuna í mynztrinu
koma á mitt framst. Er mynzturb. 2 hefur verið prjón-
aður, þá 3 umf. r. með aðall. Nú eru 25 miðl. á framst.
settar á hjálparprjón og ekki lengur prjónað í hring,
heldur fram og til baka, slétt prjón, annar pr. r.,
hinn sn. og prjónaðar 2 1. saman í byrjun og endi fjórða
hvers prjóns, 5 sinnum. Er prjónaðir hafa verið 10 cm frá
mynzturb. 2 cru allar baklykkjurnar settar á hjálparpr.
og axlirnar að framan prjónaðar hvor í sínu lagi. Teknar
úr handvegsmegin 6 1. á báðum öxlum næstu 6 pr. og
fclldar af þær I., scm eftir eru. Setja nú 38 bak miðl. á
hjálparpr. og fella hinar af handvegsmegin eins og axl-
irnar að framan.
Ermar: Fitja upp 44 — 48 — 52 1. á sokkapr. nr. 2y2,
prjóna 8 cm snún., 2 r., 2 sn. Skipta um pr., taka hringpr.
nr. 3, prjóna slétt prjón og auka út með jöfnu millib. í
fyrstu umferðinni svo 65 1. verði á, síðan G. hverja umf.
2 1. hvorum megin við lykkju merkta mislitum þræði
(undir hönd), unz 91 1. er á, eftir það 4. hverja umf unz
101 I. er á. Prjóna áfram unz ermin mælist 37, 39, 41 cm.
Þá er mynzturbekkur 2 prjónaður. Er bekknum
sleppir, prjónaðar 6 umf. r. með gráu, 1 umf. sn. og 5
umf. r. (innafbrot).
Kraginn: Hinar 25 1. á hjálparpr. prjónaðar, 2 r., 2
sn., á pr. nr. 2y2, aukið í 4. hvern pr. axlarmegin, unz 32
1. eru á, haldið áfram þar til snúna prjónið mælist 13 cm,
setja þá 1. á hjálparpr. og taka upp þessar 25 1. á röng-
unni og prjóna eins og áður, til hinnar hliðarinnar, 13 cm.
Síðan teknar þessar 32 I. á hvorri öxl og 38 baklykkj-
urnar, alls 102 1. og prjónaðir 8 cm. 2 r., 2 sn., fellt laust af.
Frágangur: Stykkin pressuð vel á röngunni með vot-
um klút yfir, að undanteknum snún. Vídd erminnar að
ofan mæld og mörkuð í bolinn, saumaðir í maskínu 2
saumar hvorum megin, klippt milli saumanna og erm-
arnar saumaðar í með aftursting á úthverfunni þannig
að 5 síðustu umferðirnar á crminni brjótast yfir klipptu
brúnirnar. Kraginn saumaður við með aftursting á röng-
unni.
Frh. af 2. kápusíðu.
ekki hafa gifzt fyrr en á fimmtugs- og sextugsaldri.
HvaS gerir það, hvað gamlar þær eru, bara að þær giftist
þeim rétta. Það skiptir minnstu máli, hve lengi manni
líður vel, aðeins að manni líði að loktun vel. Það hlýtur
að vera betra að búa aðeins fá ár með manni, sem maður
er hrifin af, heldur en alla ævina með þeim, sem fer í
taugarnar á manni. — Já, ef til vill er það betra að búa
ein alla ævi, en að hafa ekkert að vonast eftir. — Hvers
vegna sjást svona mörg slokknuð andlit? — Það er fólk,
sem ekki hefur þorað að bíða, eins og ég ...
Skyndilega fór hún að gráta, tárin runnu hljóðlega
niður kinnarnar.
— Ég hef engan stað til að flýja til, nema nýju íbúðina.
Þar er allt dótið mitt. Ég á ekkert annað afdrep. Allir
hans munir voru fluttir þangað í morgun. Hvað á ég að
segja honum?
Hún fór loks inn í annað herbergi, púðraði sig og lag-
aði sig til. Þegar hún kom aftur, hafði hún jafnað sig.
— Viltu hringja til veitingahússins, sagði hún.
Eiginmanninum varð það hugarléttir er hann heyrði
frá henni. Hann sagðist koma í bíl á stundinni. — Hann
afsakaði hana á allan hátt, þegar hann kom. Það voru
einmitt þessir duttlungar, sem komu í konur á brúð-
kaupsdaginn. Hann hló, tók í hönd hennar og sagði að
þau skyldu hraða sér. Morgunverðurinn biði. Hún stanz-
aði augnablik og leitaði eftir tilliti mínu um leið og þau
fóru, en við þögðum báðar. Hvorug vissi, hvað var rétt.
Nýtt kvennablað. Verð kr. 45,00 árg. Afgr. Fjölnisvegi 7, Rvík. Sími 12740. Ritstj. og ábm.: Guðrún Stefánsd.
Setberg sf. prentaði