Nýtt kvennablað - 01.10.1966, Blaðsíða 15
„Nú er kátt
í bæ"
1. rautt, 2. dökkur hör-
undslitur, 3. ljósblátt, 4.
ljósblágrænt, 5. ljósgult,
G. gulbrúnt, 7. dökkgult,
8. dökkblágrænt.
Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir húsmœðrakennari:
MATUR
STEIKTUR SILUNGUR
5 litlir silungar
(hæfilegir handa
einum manni hver)
salt
3—4 msk smjör
steinselja
sítróna
2—3 tómatar
1 dós grænar baunir
soðnar kartöflur.
Silungarnir eru hreinsaðir og salti núið utan á
þá. Nokkuð af smjörinu brúnað á pönnu og sil-
ungarnir steiktir heilir í 5 mín. á hvorri hlið við
vægan hita. Látnir á heitt fat. Það sem eftir er
af smjörinu látið á pönnuna og saxaðri steinselju
og sítrónusafa bætt út í og hellt freyðandi yfir
fiskinn á fatinu. — Með fiskinum er gott að bera
soðnar kartöflur, sem steinselju er stráð yfir,
baunir, sítrónusneiðar og tómatsneiðar.
FLJÓTLEGUR KJÖTPOTTUR
34—1 kg hakkað kjöt,
bezt að helmingurinn
sé nautakjöt
1—2 laukar
1 dl rjómabland
14—1 dl tómatkraftur
salt, pipar
karrý
makkarónur
eða spaghetti.
Kjötið og laukurinn, sem skorinn hefur verið
í sneiðar, er brúnað saman í potti. Þá er rjóma-
blandi og tómatkrafti hellt saman við. Kryddað
með salti, pipar og karrý og látið malla í 15—20
mín. Þá er sundurskornum makkarónum bætt
út í ásamt dálitlu af söxuðum asíum (þeim má
sleppa). Borið fram með franskbrauði eða hrærð-
um kartöflum og gjarnan hráu grænmetissalati.