Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 27
Daglegt líf 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 Bredgade 33 DK-1260 Kbh. K Tel +45 8818 1111 Mánudaginn 7. september kl. 13-18 á Hverfisgötu 29, 101 Reykjavík Bruun Rasmussen Kunstauktioner er stærsti uppboðshaldari Danmerkur. Sérfræðingar okkar bjóða þig velkominn til ókeypis mats á listmunum þínum án nokkurra skuldbindinga. Við bjóðum upp skartgripi, silfur, Georg Jensen listmuni, Flora Danica skartgripi, rússneska list, mynt, frímerki, vopn, bækur og vín árið um kring. Láttu okkur vita ef þú átt listmuni í þessum flokkum og einn af sérfræðingum okkar mun hafa samband við þig áður en þeir koma til landsins. Við erum einnig að leita að verkum eftir íslenska listmálara eins og: Jón Stefánsson, Olafur Eliasson, Ásgrím Jónsson og Jóhannes S. Kjarval og marga fleiri. Við bjóðum besta verðið á markaðinum ásamt skjótu uppgjöri. Hægt er að meta listmuni heima hjá fólki þann 6. eða 7. september. Vinsamlegast hafðu samband – með góðum fyrirvara – við Kasper Nielsen í síma +45 6035 1121 eða með tölvupósti: k.nielsen@bruun-rasmussen.dk Næstkomandi skoðanir og uppboð, sjá: www.bruun-rasmussen.dk Uppboð Matsdagur í Konunglega danska sendiráðinu Ljósanótt stendur nú sem hæst. Það dylst engum sem fer um bæinn. Allt frá því á fimmtudag hefur meira og meira líf verið að færast í bæinn, fólk tekur ljósaseríur úr skápunum eða stingur í samband þeim sem hafa verið í dvala í sumarbirtunni. Bærinn er skreyttur með fánum og ljósum og hann hefur fengið nýja ásýnd. Nú trónir stór klukka á einu hringtorginu á Hafnargötunni, Kiwanisklukka, sem sett var upp í minningu Ævars Guðmundssonar, eins stofnanda Kiwanis, sem lést í fyrra. Okkur verður í framtíðinni sýndur réttur tími með aðstoð gervitungla og GPS-staðsetningartækis.    Sem íbúa í Reykjanesbæ hafa mér ekki síð- ur þótt upphafsdagarnir skemmtilegir en hápunkturinn sjálf Ljósanótt á laugardeg- inum. Fimmtudagana notar maður gjarnan til þess að kíkja á sýningar í rólegheitum og njóta þessarar notalegu stemningar sem smátt og smátt færist yfir bæinn. Á föstu- deginum er enn meiri stígandi með hápunkti í fjölskylduskemmtun um kvöldið. Dagurinn í dag verður erilsamur, fullur af áreiti, kveðjum og skemmtilegheitum úr öllum átt- um. Kveikt verður á ljósunum á Berginu í kvöld, sem minnir mann á að haustið er komið og vetur í nánd.    Hátíðin er nú haldin í 10. sinn og er margt gert til þess að minnast tímamótanna. Ljósanótt hefur t.a.m. fengið einkenn- ismerki. Safndiskur með ljósalögum frá upp- hafi hefur verið gefinn út, ásamt ljósalagi ársins í ár og lagi Gunnars Þórðarsonar „Gamli bærinn minn“ sem alltaf fær að hljóma undir flugeldasýningunni. Tímamót- unum verður fagnað með Ljósanætursvítu í kvöld og hátíðartónleikum á morgun.    Annarra tímamóta verður einnig minnst þessa ljósanótt. Fyrir 40 árum opnaði at- hafnamaðurinn og listunnandinn Birgir Guðnason verkstæði í Grófinni, BG Bíla- kringluna. Af því tilefni var efnt til myndlist- arsýningar og hefur sú sýning verið end- urvakin á þessari ljósahátíð. Að auki eru 6 aðrar sýningar í nýjum sýningarsölum í hús- næði Bílakringlunnar, sem saman mynda Listatorg BG Bílakringlunnar.    Ný skipulags- og umhverfisverkefni hafa jafnan verið kynnt á ljósanótt og sú er einn- ig raunin í ár. Að undanförnu hafa starfs- menn lagt nótt við dag til að fullvinna göngustíg sem liggur meðfram nýjum sjó- varnargarði sem lagður hefur verið í Reykjanesbæ. Stígurinn er upplýstur að stærstum hluta og nær frá Gróf að Stapa í Innri-Njarðvík. Stígurinn er skemmtilega fjölbreyttur, liggur ýmist meðfram sjó, framhjá tjörnum, í grasi grónu sléttlendi eða grýttum hæðum. Þar sem það á við hefur verið komið fyrir sögukortum með fróðleik um viðkomandi svæði, örnefni og fuglateg- undir í fjörum.    Göngustígurinn verður vígður kl. 11 í dag. Byggðasafn Reykjanesbæjar ætlar að efna til sögugöngu frá Stekkjarharmi í Ytri- Njarðvík að Duus í Keflavík. Í göngunni fá göngugarpar að heyra sögu bæjarfélagsins séð frá göngustígnum en þegar komið verð- ur að Duus fer fram vígsla á fánastöng sem Guðlaugur heitinn Karlsson, fyrrverandi skipstjóri á Voninni, ánafnaði Bátasafni, en fánastöngin hvílir á bátsskrúfu. Að því loknu hefst í húsakynnum Bátasafnsins skjá- myndasýning á ljósmyndum Byggðasafnsins frá strandlengjunni.    Á sama tíma hefst í Keili fyrirlestur pró- fessors Kaj Mickos, nýsköpunarsérfræðings frá Svíþjóð, undir yfirskriftinni „Frá hug- mynd á markað á 3 sólarhringum“. Að fyr- irlestri loknum verður farið í vinnustofur og m.a. velt vöngum yfir því hvort og hvernig þetta er gerlegt, jafnvel án fjármagns.    Mikil heilsuvakning hefur verið í bænum. Auk almennrar heilsuvitundar íbúa eiga þeir fjölmörgu sem bjóða upp á heilsunámskeið í margvíslegu formi ekki síður heiðurinn af því. Ballettnám er hafið í bænum, jógakenn- urum hefur fjölgað, hlaupanám á boðstólum og úr fleiri heilsustöðvum og einkaþjálfurum er að velja. Þá gefur nýr göngustígur ekki síður tækifæri til útivistar. Blásið verður til heilsu- og forvarnarviku í Reykjanesbæ vikuna 21.-27. september og er þetta í annað sinn sem það er gert. Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir Nýr göngustígður sem liggur gegnum bæinn meðfram strandlengjunni verður vígður í dag REYKJANESBÆR Svanhildur Eiríksdóttir fréttaritari Rúnar Kristjánsson á Skagströnd segirmargt í gangi í samfélaginu sem fyrr: Tekist er á um auð og völd, alls staðar reynt að véla. Orkar Mammons með augu köld iðka það helst að stela. En varnarráðið er nú sem ætíð: Eigðu í hjarta helgan stað, hann sé þar við rætur innst. Íslenskaðu í þér það sem óþjóðlega vanrækt finnst. Loks yrkir hann um „útrásarvíkinga“: Víkingar eru þeir ekki, það á ekki að heyrast í frétt, sem hengja á þjóð sína hlekki og hirða ekki um neitt sem er rétt. Hörður Þorleifsson sendir Vísnahorninu stöku um „aurasálirnar“: Mammon var hér með í ferð mennskum klæðum búinn, ágætur að ytri gerð en innviðurinn fúinn. Heimir L. Fjeldsted lýsir líðan sinni í ver- aldarvafstrinu: Ráðvilltur og röflandi rokna skuldum hlaðinn. Bitur er og bölvandi, bættur ekki skaðinn. Það upplýsist hér með að bragurinn Reið- túr í Húnaþingi var birtur á fimmtudag í Vísnahorninu, sem gengið hefur manna á milli á Netinu, er eftir Gísla Sigurðsson. Þá leiðréttast hér með sléttubönd Valgarðs Eg- ilssonar, en rangt var farið með þau aftur- ábak á dögunum: Slóðar leita andans enn æðsta heiðurs njóta. Þjóðar vorrar meðalmenn mestu virðing hljóta. VÍSNAHORN pebl@mbl.is Af þjóð og víkingum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.