Morgunblaðið - 05.09.2009, Blaðsíða 52
LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 248. DAGUR ÁRSINS 2009
Heitast 11° C | Kaldast 7°C
Breytileg átt, 1-7
m/s, og dálítil rigning
sunnan- og vestan-
lands en úrkomulítið
annars staðar. » 10
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+0,-/
**1-*.
+2-+**
+0-333
*4-104
**3-/
*-.,0,
*/4-2+
*30-+1
5 675 2# 89
6 +00/
*+,-,/
+04-2
**1-24
+2-+3+
+0-/1
*4-113
**/-+.
*-.,2,
*/3-0*
*30-41
+.2-*204
&:8
*+,-//
+04-/
**1-3*
+2-.1.
+*-0*+
*4-,0/
**/-1,
*-.,3,
*/3-,
*3*-+1
FÓLK Í FRÉTTUM»
TÓNLIST»
Orgelkvartettinn Appa-
rat fer í gang. »44
Ferskleikinn á
Reykjavík Dance
Festival ber vitni
um mikla þróun
danslistar hin sein-
ustu ár. »46
AF LISTUM»
Danslistin
blómstrar
TÓNLIST»
Nýjasta plata múm fær
3,5 stjörnur. »47
KVIKMYNDIR»
Woody Allen vill stýra
Cörlu Bruni. »45
Sjálfstætt framhald
kvikmyndarinnar
Leitin að Rajeev,
Rajeev Revisited,
verður frumsýnt í
október. »48
Rajeev
heimsóttur
KVIKMYNDIR»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
SPARIÐ HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Agndofa og þakklátur
2. Reiknar með að snúa aftur
3. Uppskrift að stórslysi
4. Þrýstnar línur vekja fögnuð
Íslenska krónan veiktist um 0,3%
„ÞESSU tilboði var
ekki hægt að neita.
Maður veit aldrei
hvort tækifæri sem
þetta kemur upp í
hendurnar á manni á
nýjan leik,“ sagði
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðs-
maður í handknattleik, í viðtali á
íþróttasíðum blaðsins í dag, en Snorri
skrifaði undir 10 mánaða samning við
þýska stórliðið Rhein-Neckar Löwen
í gær. Talið er að félagið hafi greitt
GOG í Danmörku um 50 milljónir
króna fyrir Snorra.
Snorri verður þriðji Íslendingurinn
í herbúðum þessa stjörnum prýdda
liðs en fyrir eru þar Guðjón Valur
Sigurðsson og Ólafur Stefánsson.
Snorri á 50 milljónir
KONUR hafa tekið
völdin í bæjarstjórn
Snæfellsbæjar en í
sumar hætti Ásbjörn
Óttarsson í bæjar-
stjórn. Í hans stað
kom Fríða Sveins-
dóttir inn í bæjarstjórn. Ásbjörn var
fyrr á árinu kosinn alþingismaður
fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Ásbjörn
sat í bæjarstjórninni í 15 ár eða allt
frá því sveitarfélagið var stofnað.
Nýr forseti bæjarstjórnar Snæfells-
bæjar er Kristjana Hermannsdóttir
en hún er fyrsta konan sem gegnir
því embætti í Snæfellsbæ.
Fjórar konur sitja í bæjarstjórn
Snæfellsbæjar og þrír karlar. 200.
fundur bæjarstjórnar var haldinn á
fimmtudag og voru konur þar í
fyrsta skipti í meirihluta.
Konur með meirihluta
PÍLUKAST er
íþróttagrein sem litla
umfjöllun hefur feng-
ið hér á landi. Það
vita því eflaust ekki
margir að nokkur
pílukastsfélög eru
starfrækt á landinu, hvað þá að einn
félaganna, Sigríður Jónsdóttir, hef-
ur náð það mikilli færni að hún mun
taka þátt í heimsmeistaramóti í pílu-
kastskeppni í Charlotte í N-
Karólínuríki Bandaríkjanna 23.-26.
september nk.
Sigríður státar af mörgum titlum
hér heima en hún æfir nú af fullum
krafti fyrir mótið. Þetta verður þó
ekki í fyrsta sinn sem hún tekur þátt
því hún keppti einnig árið 2007 og
komst þá í 16 manna úrslit.
Heldur utan í pílukast
„ÞETTA er alveg mögnuð stund,“ sagði Gunn-
laugur Jónsson, þjálfari Selfyssinga eftir að lið
hans lagði Aftureldingu 6:1 í 1. deild karla í
knattspyrnu í gærkvöldi. Með sigrinum tryggði
Selfoss sér sæti í efstu deild að ári í fyrsta sinn.
Gunnlaugur sagði markmiðið hafa verið að ná
fótfestu í fyrstu deildinni en er á leið sumarið
hafi menn séð að það væri möguleiki á að komast
lengra og þá hefði verið kýlt á það. Selfyssingar
héldu upp á árangurinn með viðeigandi hætti í
gærkvöldi en nú er markmið liðsins að sigra í
deildinni. | Íþróttir
SELFYSSINGAR KOMNIR UPP Í EFSTU DEILD Í FYRSTA SINN
Þetta er alveg stórkostleg stund
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Plötuútgáfan
Naxos hefur gert
samning við
flautuleikarann
Kolbein Bjarna-
son og japanska
tónskáldið Tos-
hio Hosokawa
um útgáfu á öll-
um flautuverk-
um tónskáldsins í
flutningi Kol-
beins. Naxos er stærsti útgefandi í
heimi þegar kemur að klassískri
tónlist. Líklega verða diskarnir
tveir með flutningi Kolbeins. | 42
Naxos samdi
við Kolbein
Kolbeinn
Bjarnason
„ÞETTA er mjög spennandi. Aðal-
rekstrarvandi Óperunnar í gamla
húsinu er að þar eru bara 470 sæti,“
segir Stefán Baldursson óperustjóri,
en ákveðið hefur verið að Íslenska
óperan flytji í tónlistarhúsið.
„Til þessa höfum við þurft að
borga með hverju einasta sýningar-
kvöldi, jafnvel þótt það sé fullt hús.“
Samvistir við Sinfóníuhljómsveitina
bjóði upp á fleiri samstarfsverkefni.
Eftir á að ganga formlega frá
samningnum við Austurhöfn.| 42
Óperan fer í
tónlistarhúsið
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„MYNDIN gerist í ótrúlega
skemmtilegu umhverfi, í hjólhýsa-
hverfi á Íslandi. Það er mjög áhuga-
verður heimur sem býður upp á
margt enda er þetta heilt samfélag á
einu litlu svæði, öll flóran af fólki í
þrjátíu hjólhýsum,“ segir Gísli Örn
Garðarsson leikari um kvikmyndina
Kóngaveg 7 sem nú er í bígerð.
Myndin er samstarfsverkefni leik-
hópsins Vesturports og leikstjórans
og klipparans Valdísar Óskars-
dóttur, en um er að ræða gaman-
mynd með dramatísku ívafi.
„Það er ótrúlega gaman og gef-
andi að vinna með Valdísi, enda
draumaumhverfi allra leikara að fá
að vera með í sköpun verksins frá
upphafi og hafa áhrif á það sem ger-
ist,“ segir Gísli, en þetta er ekki í
fyrsta skipti sem Vesturport vinnur
með Valdísi því nokkrir leikarar úr
leikhópnum fóru með hlutverk í
fyrstu mynd hennar, Sveitabrúð-
kaupi. | 44
Vesturport í bíó
Leikhópurinn Vesturport og Valdís Óskarsdóttir leikstjóri
leiða saman hesta sína við gerð dramatískrar gamanmyndar
Í HNOTSKURN
»Kóngavegur 7 er önnur kvikmynd Valdísar Óskarsdóttur í stólileikstjóra, en hún er hvað þekktust fyrir vinnu sína við klippingar.
»Á meðal leikara í myndinni má nefna Gísla Örn Garðarsson, Ingv-ar E. Sigurðsson og Nínu Dögg Filippusdóttur.
Í fremstu röð Gísli Garðarsson og Ingvar E. Sigurðsson leika í Kóngavegi 7.