Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 36

Morgunblaðið - 05.09.2009, Page 36
36 Minningar MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. SEPTEMBER 2009 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan í Vestmannaeyjum | Sam- koma í dag, laugardag, kl. 10.30. Biblíu- fræðsla fyrir börn og fullorðna. Aðventsöfnuðurinn á Suðurnesjum | Sam- eiginleg samkoma í dag, laugardag, hefst með biblíufræðslu fyrir börn og fullorðna kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Daniel Duda prédikar. Lukkupottur og hádegisv. á eftir. Aðventsöfnuðurinn í Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, hefst kl. 10 með biblíufræðslu. Aðventsöfnuðurinn í Hafnarfirði | Biblíu- fræðsla fyrir fullorðna í Loftsalnum kl. 11. ÁRBÆJARKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta og sunnudagskóli kl. 11. Rebbi refur, Bangsi litli og söngvar. ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Börnin taka þátt í upphafi en fara síðan ásamt leiðtog- unum Elíasi Bjarnasyni og Hildi Björgu Gunnarsdóttur í safnaðarheimilið. Sókn- arprestur prédikar og þjónar fyrir altari, kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Börn og foreldrar hvött til að vera með í starfinu frá byrjun. BESSASTAÐAKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Nýtt efni sunnudagaskól- ans afhent, söngur, sögur. Fjóla, Bjartur Logi, Hans Guðberg og ungir leiðtogar. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestar sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr. Gísli Jónasson, kór Breiðholtskirkju syng- ur, organisti Julian Isaacs. Vænst er þátt- töku fermingarbarna og foreldra þeirra. Fundur með foreldrum fermingarbarna á eftir. Sunnudagaskóli kl. 11. Kaffi á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barna- og fjöl- skyldumessa kl. 11. Foreldrar eru hvattir til að fylgja börnunum til messu. Nýtt efni barnastarfsins kynnt. Félagar úr Kór Bú- staðakirkju leiða sönginn, organisti er Re- nata Ivan. Prestur er sr. Pálmi Matthías- son. Kaffi og hressing á eftir. Messuþjónar taka á móti kirkjugestum. DIGRANESKIRKJA | Útvarpsmessa kl. 11. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir, organisti Kjartan Sigurjónsson, kór Digraneskirkju. Einsöngvari er Þórunn Freyja Stef- ánsdóttir. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu á neðri hæð. Veitingar á eftir. Sjá digraneskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson prédikar, sr. Anna Sigríður Páls- dóttir og sr. Þorvaldur Víðisson þjóna fyrir altari. Dómkórinn syngur, organisti er Mar- teinn Friðriksson. Fermingarbörn og for- eldrar séstaklega boðin velkomin. Á eftir verður farið yfir fermingarstarfið. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduhátíð - fjölskylduguðsþjónusta. Söngur, gleði og skemmtun. Telpur úr listasmiðjunni Litróf syngja og sögð verður Biblíusaga. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Sigríður Kristín og Skarphéðinn leiða stundina. Kvöldvaka kl. 20. Bjarg- ræðistríóið syngur en tríóið skipa þau Anna Sigga, Örn og Aðalheiður. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudagaskólinn kl. 11. Kennsla og börnin geta tekið með sér bangsa eða tuskudýr. Samkoma. Björg R. Pálsdóttir prédikar, lofgjörð og boðið til fyrirbæna. Á eftir verður kaffi og samvera og verslun kirkjunnar opin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Fjölskylduguðs- þjónusta og barnastarf kl. 14. Anna Hulda, Margrét Lilja og Ágústa sjá um barnastarfið. Fermingarbörn og foreldrar eru hvött til þátttöku. Barn borið til skírn- ar. Tónlist leiða tónlistarstjórarnir Anna Sigga og Carl Möller ásamt Fríkirkjukórn- um. Hjörtur Magni Jóhannsson predikar og þjónar fyrir altari. GARÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson, nýráðinn prest- ur í Garðaprestakalli verður settur inn í embætti af dr. Gunnari Kristjánssyni pró- fasti sem jafnframt prédikar. Prestar og djáknar í prestakallinu þjóna fyrir altari ásamt prófasti. Bjartur Logi Guðnason og Jóhann Baldvinsson organistar leiða tón- listina ásamt Álftaneskórnum. Boðið upp á kaffi í safnaðarheimilinu að Brekku- skógum 1 á Álftanesi. Einnig er boðið upp á akstur frá Vídalínskirkju kl. 13.30, Jóns- húsi og Hleinum. GRAFARVOGSKIRKJA | Uppskerumessa og fyrirlestur um kartöfluna kl. 10, Hildur Hákonardóttir flytur fyrirlestur um kart- öfluna í sögu og samtíð, hún hefur skrifað bók um efnið. Sunnudagaskóli kl. 11. Prestur sr. Guðrún Karlsdóttir, umsjón hef- ur Rúna, undirleikari er Stefán Birkisson. Messa kl. 11. Þakkað verður fyrir upp- skeru haustsins. Félagar úr kartöflufélag- inu lesa ritningarlestra, Árni Johnsen syngur lagið „Í kartöflugörðunum heima“. Organisti er Hákon Leifsson, kór kirkj- unnar syngur og sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Á eftir messu munu upp- skriftir að kartöfluréttum liggja frammi. Borgarholtsskóli | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari, Vox populi syngur, ogrg- anisti er Guðlaugur Viktorsson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson djákni. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu og unglinga úr kirkjustarfi. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot til ABC barnahjálpar. Messuhópur. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, organisti Árni Ar- inbjarnarson, prestur sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir. Kaffi á eftir. Kyrrðarstund á þriðjudag kl. 12, stutt helgistund með altarisgöngu og bæn fyrir bænaefnum. Hversdagsmessa á fimmtudag kl. 18 með Þorvaldi Halldórssyni, messan einkennist af kyrrð og einfaldleika. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sveinbjörn Bjarnason messar, söngstjóri Kjartan Ólafsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Kjartan Jónsson, Barbörukór Hafnarfjarðar syngur undir stjórn Guð- mundar Sigurðssonar kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni og messuþjónum. Schola cantorum syngur, stjórnandi Sim- on Carrington, organisti Hörður Áskels- son. Umsjón barnastarfs Magnea Sverr- isdóttir. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnaguðs- þjónusta kl. 11. Umsjón með barnastarfi Sunna Kristín og Páll Ágúst. Organisti Douglas A. Brotchie og prestur er Tómas Sveinsson. Veitingar á eftir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Tónlist- armessa kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar. Björgvin Birkir Björgvinsson leikur einleik á gítar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða söng, organisti er Jón Ólaf- ur Sigurðsson. Sunnudagaskóli kl. 13. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam- koma kl. 20 í umsjá Kafteins Sigurðar Ingimarssonar. Lofgjörð og fyrirbænir. Beðið fyrir íslensku þjóðinni. HVERAGERÐISKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Baldur Kristjánsson, organisti Hannes Baldursson, kór Hveragerð- iskirkju syngur. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Fjöl- skyldusamvera og brauðsbrotning kl. 11. Barnakirkjan byrjar vetrarstarfið. Ræðu- maður er Vörður Leví Traustason. Al- þjóðakirkjan í hliðarsal kirkjunnar kl. 13. Samkoman er á ensku. Lofgjörð- arsamkoma kl. 16.30. Ræðumaður er Jón Þór Eyjólfsson. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl. 20. Lofgjörð og fyrirbænir. Friðrik Schram prédikar. Heilög kvöldmáltíð. Barnastarfið hefst næsta sunnudag. KÁLFATJARNARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Frank Herlufsen, kór Kálfatjarnarkirkju, prestur sr. Bára Frið- riksdóttir. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Fundur um fermingarstörfin að guðsþjón- ustu lokinni. Kaffi á eftir í þjónustuhúsinu. KÓPAVOGSKIRKJA | Barnastarf kl. 11 í safnaðarheimilinu. Guðsþjónusta kl. 11. Sóknarprestur sr. Ægir Fr. Sigurgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari, félagar úr kór Kópavogskirkju leiða söng. Organisti og kórstjóri Lenka Mátéová kantor. LANDSPÍTALI Landakot | Guðsþjónusta kl. 13.30. Sr. Sigfinnur Þorleifsson mess- ar, organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna- starf kl. 11. Barnastarfið hefst í kirkjunni, en síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut, Steinunni og Aroni. Nýtt efni af- hent. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson, organisti Jón Stefánsson. Ferming- arfræðsla sunnudagkvöldið kl. 19-22. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnu- dagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson þjón- ar ásamt Gunnari Gunnarsyni organista og kór Laugarneskirkju. Umsjón með sunnudagaskóla hefur sr. Hildur Eir Bolla- dóttir ásamt hópi sunnudagaskólakenn- ara og nokkurra ungleiðtoga. Frumsýning í Laugarásbíói á kvikmyndaverkefninu Dyggðin dýra verður kl. 12.30. Sýndar verða þrjár stuttmyndir um dyggðir og lesti sem hópur unglinga hefur unnið að í allt sumar á vegum safnaðarins í samvinnu við fjölda aðila. LÁGAFELLSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11. Fermingarfræðsla, barna- og æskulýðsstarf hefur göngu sína. Foreldrar og börn hvött til að mæta. Prestar og starfsfólk safnaðarins annast athöfnina. Kór Lágafellskirkju syngur. Kaffi í safn- aðarheimilinu Þverholti 3 á eftir. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Fjölskyldu- guðsþjónusta kl. 11. Félagar úr Kór Linda- kirkju leiða safnaðarsönginn undir stjórn Keiths Reeds. Gestir úr sunnudagaskól- anum, brúðuleikhús. Prestur er Guð- mundur Karl Brynjarsson. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Veitingar á eftir. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Umsjón Sigurvin og María. Kór Neskirkju leiðir söng og sr. Örn Bárður Jónsson pré- dikar og þjónar fyrir altari. Messuþjónar aðstoða. Ferming. Veitingar og samfélag á Torginu. Kl. 13 verður fyrirlestur dr. Ann Belford Ulanov, Andlegt líf þjóðar í kreppu, en hún er prófessor í geðlækn- isfræði og trúarbragðafræði við Union Theological Seminary í New York. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Batamessa kl. 17. Lofgjörð, söngur og bænir ásamt vitn- isburði. Vinir í bata sérstaklega hvattir til að taka með gesti. Kaffi og spjall í lokin. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17. Hugleiðingu hefur sr. Kjartan Jónsson. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Ósk- ar Hafsteinn Óskarsson þjónar ásamt Eygló J. Gunnarsdóttur djákna. Kirkjukór Selfosskirkju leiðir söng, organisti er Jörg Sondermann. Veitingar í safnaðarheimili á eftir. Kvöldmessa með Þorvaldi Hall- dórssyni kl. 20. Léttir sálmar, ritning- arorð, hugvekja og bæn. Rætt verður um 12 sporin andlegt ferðalag sem hefst í kirkjunni innan skamms. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur og saga. Almenn guðsþjón- usta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédik- ar, kór Seljakirkju leiðir söng undir stjórn Tómasar Guðna Eggertssonar organista. SELTJARNARNESKIRKJA | Barnastarf kl. 11. Börn fá sunnudagaskólatösku og starfsemin kynnt. Umsjón Pálína Magn- úsdóttir og starfsfólk í barnastarfinu. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Færeyski kammerkórinn Tarira syngur í messunni. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Birgir Thomsen þjónar fyrir altari og prédikar, organisti er Ester Ólafsdóttir, almennur safnaðarsöngur. Meðhjálparar eru Ólöf Erla Guðmundsdóttir, Eyþór Jó- hannsson og Erla Thomsen. STRANDARKIRKJA | Uppskerumessa kl. 14. Prestur sr. Úlfar Guðmundsson, fyrr- verandi prófastur, organisti Hannes Bald- ursson, kór Þorlákskirkju syngur. VEGURINN kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 14. Lofgjörð, barnastarf, prédikun og fyr- irbæn. Guðmundur Sigurðsson predikar. Kaffi og samfélag á eftir. Unglingastarf á föstudagum kl. 20. VÍDALÍNSKIRKJA | Fjölskylduguðsþjón- usta kl. 11 í tilefni af upphafi sunnudaga- skólans. Nýir fræðarar í barnastarfinu eru kynntir. Biblíufræðsla, brúðuleikrit og tón- list. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir og sr. Frið- rik J. Hjartar þjóna fyrir altari. Margrét Rós Harðardóttir, nýr æskulýðsfulltrúi, heldur utan um stundina og Jóhann Bald- vinsson organisti leiðir tónlistina ásamt félögum úr kór Vídalínskirkju. Djús og kaffi í safnaðarheimilinu á eftir. Sjá gardasokn.is. ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Pró- fasturinn í Árnesprófastdæmi, sr. Eiríkur Jóhannsson í Hruna, prédikar og skoðar framkvæmdir við kirkjuna. Kristján Valur Ingólfsson þjónar fyrir altari, organisti Guðmundur Vilhjálmsson. Orð dagsins: Miskunnsami Samverjinn. (Lúk. 10) Morgunblaðið/Ómar Helgafellskirkja í Helgafellssveit. MESSUR Á MORGUN ✝ Stefán fæddist 17.nóvember 1924 að Skinnalóni á Mel- rakkasléttu. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Húsavík 22. ágúst umkringdur börnum sínum og nafna. Hann var sonur hjónanna Hólmfríðar Þuríðar Guðmunds- dóttur og Magnúsar Stefánssonar bónda. Stefán var næst- yngstur sex systkina. Hin voru Rannveig, f. 16.6. 1912, Sigríður, f. 3.3. 1915, Hörður, f. 16.4. 1917, Guðmundur, f. 10.12. 1921 og Kristín, f. 20.12. 1930. Þau eru öll látin. Eftirlifandi maki Stefáns er Kristjana Ósk Kristinsdóttir frá Hafnarfirði og bjuggu þau allan sinn búskap á Raufarhöfn. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru Kolbrún, hún á tvær dætur: Birgittu Björgólfsdóttur sem á tvo syni, Sigurð Jóel og Viktor Erni Ingi- marssyni, og Brimr- únu Björgólfsdóttur sem líka á tvo syni, Björgólf Bersa og Hergil Henning Krist- inssyni. Særún, henn- ar sonur er Stefán Jan Sverrisson. Guð- rún, hennar börn eru Daníel og Eva Bene- diktsbörn en Bene- dikt lést af slysförum 2001 og Magnús, sem á tvær dætur: Millu Ósk og Völu Rún með Erlu Sigríði Ragnarsdóttur. Stefán bjó að Ásgötu 12 á Raufarhöfn og naut umönnunar dóttur sinnar Særúnar seinustu árin. Útför Stefáns fer fram í dag, 5. sept., frá Raufarhafnarkirkju og hefst athöfnin kl. 14. Það eru blendnar tilfinningar sem brjótast um í mér núna, pabbi minn, þegar komið er að því að kveðja þig í þriðja sinn á einum mánuði. Fyrst hressan og kátan eftir nokkurra daga heimsókn til þín í Brún, en þá fékk ég það á til- finninguna að þetta yrði okkar síð- asta faðmlag. Nokkrum dögum síð- ar kvaddi ég þig á dánarbeðnum án þess að vera viss um hvort þú heyrðir til mín. Í dag er það hinsta kveðjan. Það er auðveldara að sætta sig við orð- inn hlut eftir að hafa séð þig svona veikan og þjáðan og trúa því að nú veljir þú þér nýja birtingarmynd á öðru tilverustigi þar sem þú verður aftur glaður og frískur. Þegar ég sest niður og hugsa til baka eru margar ljúfar minningar sem streyma í hugann. Ég man fyrst eftir mér hlaupandi á eftir bílnum þegar fjölskyldan var í bíl- túr. Ég átti það til að verða bílveik og var þá sett út fyrir og látin hlaupa til að hressa mig við. Ég man líka eftir unglingsárunum og öllum þeim söngæfingum sem ég þurfti að taka þátt í þó ég vildi heldur vera úti með jafnöldrunum. Það var leyst með því að þeim var kippt með og látin hlusta meðan reynt var að ná nýjustu dægurlög- unum af segulbandstæki og þau spiluð aftur og aftur til að ná text- anum. Þetta hefur sjálfsagt orðið til þess að leikfélagar okkar systk- inanna voru alltaf velkomnir á okk- ar heimili. Þú varst alltaf vinsæll í þeirra hópi. Ég man líka þegar þú útskýrðir fyrir mér hvað ást væri og hvernig ég gæti vitað hvort ég væri ástfangin. Það var alltaf mikið um að vera heima hjá okkur. Oftast voru hljómsveitaræfingar því alltaf vor- uð þið í hljómsveitum, þú og systk- ini mín. Við áttum hins vegar sam- leið í kirkjukórnum í rúma þrjá áratugi. Ég bjó með mína fjölskyldu í sama húsi og þið mamma í mörg ár. Samgangur var því alltaf mikill og góður þó við hefðum bæði ákveðnar skoðanir. Þar held ég að umburðarlyndi þitt hafi spilað meira inn í en nokkuð annað. Þú gast nú kallað hlutina réttum nöfn- um eins og þegar þú kallaðir ákveðnar aðgerðir í fjármálum „bankaheimsku“. Það var mjög fyndið þá en eflaust eru nokkuð margir sammála þér í dag. Það var ekki bara spilað og sungið. Það var líka farið í anda- glas, teflt, spilað á spil og sagðar sögur. Þú varst sanngjarn og góður fað- ir og ekki að skipa þér af okkur umfram það sem þurfti. Eftir að ég flutti burtu voru samskiptin alltaf til staðar í gegnum síma og nokkr- ar ferðir norður eða suður. Ég verð að segja þér að ég er af- ar stolt af því uppeldi og þeirri æsku sem ég fékk að njóta og tel að það hafi gert mig víðsýnni og kennt mér að njóta lífsins á ein- faldari hátt. Ég efast um að nokkur annar hafi átt heimili eins og við á þessum árum á Raufarhöfn. Ég er líka viss um að fáir hafa átt skemmtilegri föður. Þú fékkst þinn skammt af sorg og sársauka og hann í stærra lagi en þú barst ekki tilfinningar þínar á torg. Elsku pabbi minn, ég bið góðan guð að taka nú við þér og veita þér góða vist hinumegin. Við aðra að- standendur vil ég segja um leið og ég votta mína dýpstu samúð: líttu alltaf á það sem þú átt en ekki ein- blína á það sem þú hefur glatað. Kolbrún Stefánsdóttir. Afi minn, Stefán Magnússon, var afar hlýr maður, tónlistarunnandi, mikill harmonikkuleikari, dýravin- ur og húmoristi. Ég naut þeirra forréttinda að alast upp í mikilli nálægð við ömmur og afa frá báð- um foreldrum mínum og eina lang- ömmu meðan ég átti heimili á Raufarhöfn. Þegar ég var sex ára fékk ég lít- inn sætan hvolp í jólagjöf frá for- eldrum mínum en ég var svo hrædd við hvolpinn að við gátum ekki haft hann hjá okkur. Þá kom afi og bjargaði okkur, mér og hvolpinum, hvoru frá öðru. Afi sið- aði hundinn, kenndi honum alls konar kúnstir og sýningaratriði sem við dáðumst öll að. Næstu 20 árin sást afi Stebbi sjaldan án Stubbs en það var nafnið sem hvolpurinn fékk enda afar stutt- fættur. Um tíma bjuggum við í sama húsi og þau afi Stebbi og amma Sjana og var því samgangur mikill. Stundum kom ég til að fá mjólk og kex, stundum til að sníkja pening í sjoppuna og stundum bara til að athuga hvað væri skemmti- legt um að vera í Brún. Alvanaleg sjón var að sjá afa í eldhúsinu að spila á nikkuna, stundum einn, stundum voru einhverjir vinir hjá honum, jafnvel með nikku eða munnhörpu, en oftast var afi að spila á nikkuna og börnin hans fjögur að syngja þríraddað og afi gerði athugasemdir ef þau sungu ekki rétta tóninn eða fóru ekki rétt með textann því afi vildi hafa þetta vel gert. Hans uppskera varð sú að þau eru öll prýðis tónlistarfólk í dag. Afi var alltaf kátur og gantaðist með alla hluti. Þegar hann kom til Reykjavíkur hin seinni ár, sem var örsjaldan, þá oftast í einhverskon- ar læknastússi, sagði hann okkur að það væri ekki að spyrja að því, stelpurnar á læknastöðinni væru svo skotnar í honum að þær vildu endilega sjá hann aftur og það sem allra fyrst. Svona gat afi matreitt fyrir okkur hlutina á jákvæðan hátt en í rauninni fannst honum fátt leiðinlegra en að standa í læknastússi og vildi helst vera í öruggu skjóli sínu í Brún. Um leið og ég kveð afa með söknuði kveð ég hann líka með gleði og þakklæti yfir því hversu mikils ég hef að minnast og sakna. Birgitta Björgólfsdóttir. Stefán Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.