Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 2

Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 2
ALDREI hafa fleiri sagst andvígir aðild að Evrópusambandinu frá því Samtök iðnaðarins hófu að láta gera fyrir sig kannanir. Í nýrri könnun Capacent kemur fram að um 50% svarenda eru andvíg aðild, 33% sögðust hlynnt og 17% hvorki hlynnt né andvíg. Baldur Þórhallsson, prófessor í stjórnmálafræði, telur að skýra megi þessa niðurstöðu með hliðsjón af hegðun vinaþjóða Íslands, s.s. í Icesave-málinu. „Engin af okkar nánustu vinaþjóðum stóð með okk- ur og allar lögðust þær á sveif með hollenskum og breskum stjórnvöld- um. Almennt tel ég að þetta hafi fyllt þjóðina vantrú á alþjóðlegu samstarfi. Í ljósi þess kemur þetta ekki á óvart,“ segir Baldur sem var í framboði fyrir Samfylkinguna í síðustu kosningum. Capacent spurði einnig hvernig svarendur myndu greiða atkvæði ef aðild að ESB væri borin undir þjóð- aratkvæði í dag. 61,5% sögðu lík- legt að þau myndu sennilega eða örugglega greiða atkvæði gegn að- ild en 38,5% sennilegt eða öruggt að þau myndu greiða atkvæði með aðild. andrikarl@mbl.is Aldrei fleiri sagst andvígir aðild að Evrópusambandi                                      2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VESTLÆG átt var á nánast öllu landinu í gær og mikið rok á miðhá- lendinu. Fór vindstyrkur þar sums staðar upp í um 28 metra á sekúndu, að sögn Haralds Eiríkssonar, veð- urfræðings á Veðurstofunni. Á gervitunglamynd frá bandarísku geimrannsóknastofnuninni, NASA, hér að ofan sést svæði á Austurlandi þar sem mikið moldrok gaus upp. Victor Kr. Helgason er jarðfræð- ingur og verkefnisstjóri landupplýs- inga hjá Landsvirkjun Power ehf. Hann segir að augljóst sé að mikill rykmökkur hafi gosið upp á til- tölulega litlu svæði sunnan við Öskju eins og oft gerist við ákveðnar að- stæður og í ákveðinni vindátt. Þurrt hefur verið um hríð á norðaustan- verðu landinu. Vatn er farið að minnka í jökulám vegna lækkandi hitastigs og því verður sums staðar til mikið af þurr- um leir við árfarvegi. Hann er afar léttur og fýkur því auðveldlega í miklum vindi. Mikil uppspretta af ryki „Á gervitunglamyndinni er skýja- hula yfir stórum hluta landsins,“ segir Victor. „En það er skýlaust á svæði norðan við Vatnajökul, við sjáum Öskjuvatn, Hálslón, Lagar- fljót og Austfirði en ský allt um kring. Fyrir sunnan Öskjuvatn er ljós flekkur og eins og slæða frá þessum flekki í norðaustur. Það er ekki að sjá að það bætist neitt við slæðuna heldur færist hún áfram í norðaustur, yfir norðurhluta Lagarfljóts og Egilsstaði en þynnist náttúrlega stöðugt. Það er rok á öllu hálendinu en þarna er aðalefnið í moldrokið.“ – En við sjáum ekki vel hvað er að gerast þar sem skýjahulan er eða hvað? „Nei en við sjáum greinilega að þarna er mikil uppspretta af ryki, fyrir sunnan Öskjuvatn. Þarna eru aurar Jökulsár á Fjöllum. Ég hef oft flogið þarna yfir í áætlunarflugi og séð hvernig moldviðri gat komið bókstaflega allt af svæði á stærð við einn eða tvo fótboltavelli. Moldin og rykið áttu ekki upptök sín á ein- hverju risastóru svæði. Þetta er kall- að Holuhraun og er fyrir neðan Dyngjujökul. Nú er farið að kólna, árnar farnar að skreppa saman. Framburður sumarsins bíður þarna tilbúinn eftir rokinu. Þetta er alþekkt meðal jarð- fræðinga og þetta er mikilvægasti uppblásturinn. Myndin sýnir vel hvaðan rykið kemur.“ Victor segir að umrætt svæði á aurunum með upptökum ryksins sé sennilega 40-50 ferkílómetrar en hann vill ekki giska á magnið af jarð- vegi sem hafi fokið af staðnum. Til þess þurfi hann meiri upplýsingar. Upptök á litlu svæði Á veðurmynd sést moldrok fara af stað á 40-50 ferkílómetra svæði sunnan við Dyngjujökul í vestanáttinni í gær Skýjahula Tungl NASA senda á hverjum degi frá sér veðurmyndir. Hér er mynd af Íslandi í gær, tekin úr Terra. Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ENDURSKIPULAGNING á skuld- um heimila og fyrirtækja er næsta skref í því að takast á við kreppuna. Ganga þarf í það verk án þess að ýta skuldavandanum á undan sér eða fela hann í bankakerfinu, að sögn Þorvarðar Tjörva Ólafssonar, hag- fræðings í Seðlabanka Íslands. Án endurskipulagningar á þessum skuldum er veruleg hætta á því að hagkerfið lendi í vítahring gjald- þrota, greiðsluerfiðleika og atvinnu- leysis. Þetta kom fram í erindi Þorvarðar Tjörva í Seðlabankanum í gær. Sagði hann að endurreisn bankakerfisins hefði dregist mikið en tímabundnar aðgerðir fyrir skuldara verið notaðar til að brúa það bil. Nú styttist hins vegar í að varanlegar lausnir þyrfti. Þarf vel fjármagnaða banka Lagði hann út frá reynslu annarra þjóða af fjölmörgum kreppum sem gengið hefðu yfir á síðustu áratug- um. Tók hann meðal annars dæmi af Mexíkó, S-Kóreu, Taílandi, Indó- nesíu og Japan, þar sem reynst hef- ur dýrkeypt að taka ekki á slíkum skuldavanda heimila og fyrirtækja, heldur eftirláta illa endurfjármögn- uðum bönkum að leysa hann sjálfir. Þeir hafi þá forðast að afskrifa eignir, til að standa vörð um þegar veika eiginfjárstöðu sína. Oft hafi eignatengsl banka og skuldara í bankakerfum líka haft óeðlileg áhrif á þessa endurskipulagningu. „Hér eins og víða annars staðar þarf að búa þannig um að tengsl af þessu tagi hafi ekki óeðlileg áhrif á lausn vandans,“ segir Þorvarður Tjörvi. Mjög muni reyna á eftirlit með bönk- um og eins innra eftirlit þeirra á næstunni. Til samanburðar nefndi hann lönd á borð við Noreg, Pólland og Chile þar sem dæmi væru um vel heppn- aða endurskipulagningu á skuldum einkageirans eftir kreppu. Jafnvel þótt í Chile hafi stjórnvöldum fyrst um sinn gengið illa. „Í Chile drógu þeir lappirnar í að veita nægilegt fjármagn í eiginfjár- stöðu banka, vanmátu umfang vand- ans, hindruðu ekki áhrif krosseigna- tengsla á meðferð skuldanna og breyttu ekki gjaldþrotalögum,“ seg- ir Þorvarður Tjörvi. Eftir nokkur ár hafi þeir tekið sig á og farið að fram- fylgja lögum og reglum af hörku. Það sé reynsla sem læra megi af. Tekið verði fljótt á skuldum heim- ila og fyrirtækja Mun reyna mikið á eftirlit með bönkum Morgunblaðið/Ómar Skuldir SÍ vinnur að tillögum til lausnar á skuldavanda heimila. Í HNOTSKURN »Stjórnvöld hafa þrjár leið-ir. Sú fyrsta er miðstýrð, að ríkið sjái sjálft um end- urskipulagninguna, til dæmis á vettvangi eignaumsýslu- félags. »Önnur leiðin er dreifð, þarsem bankar eru studdir til að sjá um endurskipulagn- inguna sjálfir, í samstarfi við skuldara. Þriðja leiðin er blanda af hinum tveimur. »Oftast hefur leið tvöreynst best, að sögn Þor- varðar Tjörva. Stjórnvöld í hverju landi þurfi þó að vega og meta þessa reynslu og yf- irfæra á sínar aðstæður. HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjaness yfir karlmanni sem handtekinn var í Flugstöð Leifs Eiríkssonar aðfaranótt 12. september. Maðurinn kom með flugi frá Varsjá í Póllandi og í fór- um hans fundust 2.647 e-töflur, faldar í niðursuðudósum. Maðurinn mun sæta gæsluvarðhaldi – og ein- angrun – til 2. október nk. Meintur samverkamaður manns- ins var jafnframt handtekinn í flugstöðinni. Hann kom með sömu flugvél og fundust í fórum hans 3.348 e-töflur, einnig í niðursuðu- dósum. Mennirnir eru því grunaðir um að hafa saman staðið að inn- flutningi tæplega sex þúsund e-taflna. Samkvæmt því sem kemur fram í greinargerð lögreglustjórans á Suðurnesjum er rannsókn málsins á frumstigi og m.a. þurfi að kanna tengsl mannanna við hugsanlega vitorðsmenn á Íslandi eða erlendis, aðdraganda ferðarinnar og sakar- feril þeirra. Líkur á að mennirnir myndu reyna að komast úr landi Þar sem mennirnir eru af er- lendu bergi brotnir telur lögregla yfirgnæfandi líkur á að þeir reyni að komast úr landi og hafa áhrif á vitorðsmenn sæti þeir ekki varð- haldi. Lögregla segir að miðað við magnið sem fannst í fórum mann- nanna sé um stórfellt brot að ræða. Verði þeir sakfelldir liggur allt að 12 ára fangelsisvist við brotinu. Teknir í tollinum með 6.000 e-töflur Tveir menn í varðhaldi til 2. október

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.