Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 4

Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is MIKLAR og langar umræður fóru fram á ríkisstjórnarfundi í gær um þá óvissu sem uppi er um framhald orkuverkefna. Ágreiningur hefur verið á milli stjórnarflokkanna um stefnu og áherslur en reynt verður að leiða málin til lykta í sérstökum vinnuhópi sem skipaður verður fjór- um ráðherrum, forsætisráðherra, iðnaðarráðherra, fjármálaráðherra og umhverfisráðherra. Litið til ríkisstjórnarinnar um næstu skref í orkumálum Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráð- herra segist lengi hafa beðið eftir að ríkisstjórnin færi svo ítarlega yfir þessi mál eins og gert var í gær. ,,Það er mjög litið til ríkisstjórnar- innar um næstu skref í orkumálum. Það er komið að þeim tímapunkti að við þurfum að fara yfir þessi mál frá a til ö og það gerðum við í morgun,“ segir Katrín. Hún segir að annars vegar þurfi að móta sýn til framtíðar á uppbygg- ingu á léttum iðnaði í græna geir- anum. „Hann þarf á orku að halda og við þurfum því að hugsa orkugeirann öðruvísi og hafa meira tilbúið vegna þess að þetta eru verkefni sem ekki geta beðið. Langtímauppbyggingin hentar þar ekki eins vel og í stóriðj- unni, sem hingað til hefur verið stærsti raforkukaupandinn. Við þurfum að fara að átta okkur á þeirri stöðu sem við þurfum að koma á í orkumálum. Hins vegar eru svo mál sem standa út af og snúa að stöðugleika- sáttmálanum, t.d. í Helguvík og fleiri slík verkefni.“ Spurð um fyrirhugað álver Alcoa á Bakka segir Katrín: „Við erum vakin og sofin yfir því að reyna að leysa þau mál farsællega. Það sem ég hef fyrst og fremst að markmiði er að koma þessari orku í vinnu og búa til atvinnu fyrir norðan með þessari orku. Mér er nokk sama um hvað sá heitir sem það mun gera og að því er- um við að vinna,“ segir hún. Ýmsar hugmyndir eru uppi að sögn hennar. Reyna að leysa orkuhnútinn Þurfum að fara yfir þessi mál frá a til ö, segir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra KÓNGSSVEPPURINN sem Margrét Sigurðardóttir fann í Almenningum í Fljótum nýverið er engin smásmíði, 22 sm í þvermál og vegur 1,5 kíló. Sveppurinn ku góður til átu en er fremur sjaldgæfur. Morgunblaðið/Sigurður Ægisson KÓNGUR OG DROTTNING „EKKI liggur fyr- ir að svo stöddu hvernig efla megi sérþekkingu dóm- ara í efnahags- brotamálum, en nefna má þann möguleika að komið verði á fót sérdómstól um þessi mál með sömu rökum og komið var á fót emb- ætti sérstaks saksóknara,“ segir Helgi I. Jónsson, dómstjóri við Hér- aðsdóm Reykjavíkur og starfandi for- maður Dómstólaráðs. Spurður um þetta segir Helgi að Dómstólaráð hafi ekki rætt við dómsmálaráðuneytið um þann möguleika, að sérdómstóll fjalli um þau mál sem upp kunna að koma í kjölfar bankahrunsins. Ragna Árnadóttir dómsmálaráð- herra sagði í Morgunblaðinu á sunnu- daginn að hún teldi að Dómstólaráð og dómarar yrðu að vera vakandi fyr- ir því að efla sérþekkingu á efnahags- brotum þannig að dómstólar séu undirbúnir þegar kemur að því að fjalla um afleiðingar bankahrunsins. Dómarar við öllu búnir „Dómarar þurfa að vera við því búnir að leysa úr öllum málum sem lögð eru fyrir þá, sama hvers eðlis þau eru,“ segir Helgi. „Fyrir dómara eru lögð fjölmörg flókin lögfræðileg álitaefni á öllum sviðum réttarins á ári hverju sem þeim ber að leysa úr. Sú skylda hvílir á þeim, sem leggja mál fyrir dómstóla, að gera þau þann- ig úr garði að unnt sé að leysa úr þeim á grundvelli gildandi laga. Efna- hagsbrotamál eru þar ekki undan- skilin. Þá skal á það bent að ef mál eru þess eðlis að dómari telji sér- þekkingar þörf er heimilt að kveðja til sérfróða meðdómendur.“ sisi@mbl.is Helgi I. Jónsson Möguleiki að stofna sérdómstól Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur jmv@mbl.is „BRÁÐAVISTUN í neyðartilfellum, þ.e. þegar unglingar fara á vergang eða strjúka að heiman, hefur farið vaxandi á árinu,“ segir Bragi Guð- brandsson, forstjóri Barnavernd- arstofu. Aukning hafi verið á neyð- arvistun unglinga á árinu og mikið og vaxandi álag sé í neyðarvistun meðferðarstöðvarinnar Stuðla. „Það hefur oft verið fullt þar [á neyð- arvistun Stuðla, innsk. blm.] og bið- listi myndast sem auðvitað á ekki að gerast í neyðarvistun,“ segir Bragi. Hann segir að þótt aukin eftirspurn hafi verið eftir neyðarvistun hafi eftirspurn eftir langtímameðferðum farið minnkandi og sú þróun virðist halda áfram. Fram í maí á þessu ári leitaði lög- reglan á höfuðborgarsvæðinu 74 sinnum að ungmennum en á sama tímabili í fyrra voru 58 slíkar leitir gerðar. Nýrri tölur liggja ekki fyrir en í nokkrum tilfellum var um sama ungmennið að ræða og ungmennin því færri en tölurnar gefa í skyn. Talsvert mikið hefur borið á að auglýst hafi verið eftir týndum ung- mennum á árinu og segir Bragi það að hluta til mega skýra með breyttu verklagi. „Fyrir ári eða svo var mikil umræða um það í kerfinu meðal barnaverndarstarfsmanna hvort ekki væri rétt að auglýsa fyrr eftir börnum en verið hefði til að ná fyrr til þeirra. Ég held að sú umræða hafi skilað sér í þessu,“ segir Bragi. Bragi segir að Barnaverndarstofa hafi kynnt sér ítarlega afleiðingarnar sem efnahagskreppan í Finnlandi hafði á barnaverndarstarf þar í landi á tíunda áratugnum og reynt að nýta sér þá vitneskju í starfi. Hann segir fyrir- byggjandi vinnu gríðarlega mikilvæga. „Þar kemur til sögunnar nýjung hjá okkur sem Finnarnir voru ekki með, svokölluð fjölkerfameðferð eða MST, sem við byrjuðum með í nóvember. Hana bjóðum við á vettvangi heimilis- ins og er ætlað að varna því að þurfi að skilja barnið frá fjölskyldunni og ráð- stafa því á stofnun. Okkur sýnist reynslan vera góð, tugir barna hafa farið í gegnum það kerfi og örugglega hefði hluta þeirra annars þurft að vista á stofnun,“ segir Bragi. Álag vegna neyðarvistunar unglinga  Biðlistar myndast í neyðarvistun meðferðarstöðvarinnar Stuðla  Eftirspurn eftir langtímavistun hefur ekki aukist  Fyrr auglýst eftir ungmennum en áður  Fjölkerfameðferð gefur góðan árangur Morgunblaðið/Golli Ungmenni Kreppan hefur misjöfn áhrif á unglinga og skipta heimilis- aðstæður þar oft máli. Þessi ungi hjólabrettakappi tengist ekki fréttinni. » Fram í maí leitaði lögreglan á höfuð- borgarsvæðinu 74 sinnum að ung- mennum. » Á sama tímabili í fyrra voru 58 slíkar leitir gerðar. FYRSTA fundarboð nefndar um er- lenda fjárfestingu verður sent út síð- ar í vikunni og áætlað er að fundur verði haldinn í næstu viku. Formað- ur var skipaður í gær en Alþingi skipaði nefndina 11. ágúst sl. Hún mun meðal annars skoða aðkomu Magma Energy Sweden að HS Orku. Unnur Kristjánsdóttir var skipuð formaður nefndarinnar og Silja Bára Ómarsdóttir varaformaður. „Þetta mál [kaup Magma á hlut Orkuveitunnar í HS Orku] verður skoðað, aflað upplýsinga um það og sett fram einhver skoðun á því hvernig eigi að meðhöndla það,“ seg- ir Unnur. Nefndin hefur ekki getað fundað fyrr en nú, þar sem það er verk for- mannsins að kalla til fundar. Unnur segir lítið hafa verið að gera hjá nefndinni undanfarin ár en nú horfi svo við að nokkuð mörg máli bíði af- greiðslu. Hún segir löggjöfina hins vegar engan veginn miðast við þær að- stæður sem uppi eru í dag, en hún er í grunninn átján ára. „Það er ekki gert ráð fyrir neinum skúffufyr- irtækjum og ýmsu öðru sem er að gerast í dag og þessi lög ættu að ná yfir en gera það ekki.“ andri@mbl.is Áætlað að funda í næstu viku Mörg mál bíða af- greiðslu nefndar um erlenda fjárfestingu Katrín Júl- íusdóttir iðn- aðarráðherra segir að ráð- herrahópur muni vinna úr orkumálunum á næstu dög- um og leggja fram „skýra sýn á þennan málaflokk innan tíðar“. Í grunninn sé ekki langt á milli stjórnarflokkanna í mál- inu „en það er auðvitað áherslu- munur um einstaka þætti“. Ekki langt á milli Katrín Júlíusdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.