Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur samþykkti á
fundi sínum í gær umsókn Menntaskólans ehf.
um stofnun sjálfstætt rekins grunnskóla fyrir 5-
10 ára börn. Umsóknin var samþykkt með níu
greiddum atkvæðum, sex borgarfulltrúar minni-
hlutans greiddu hins vegar atkvæði gegn henni.
Menntaskólinn verður í húsinu þar sem Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur var til margra ára, við
Barónsstíg.
Kjartan Magnússon, formaður menntaráðs,
mælti fyrir tillögunni og sagðist m.a. binda vonir
við að nýi skólinn yki fjölbreytni í skólastarfi í
Reykjavík, enda tryggðu fleiri sjálfstætt starf-
andi grunnskólar í Reykjavík borgarbúum aukið
val um nám barna sinna.
Þeir fyrirvarar eru gerðir við samþykkt borg-
arstjórnar að starfsemin verði í samræmi við
grunnskólalög og aðalnámskrá grunnskóla.
Einnig að starfsemi skólans skuli fullnægja kröf-
um heilbrigðiseftirlits, eldvarnaeftirlits og
vinnuverndar.
Meðal þess sem kom fram í máli fulltrúa Sam-
fylkingarinnar var að óverjandi væri að setja fé í
nýjan skóla þegar nemendum í borginni fækkaði
auk þess sem þrengt væri að grunnskólum.
Fjárhagslegt umhverfi grunnskólanna á næsta
ári væri jafnframt verulega ótryggt.
Fleiri skólar veikja skólastarfið
Borgarfulltrúar Vinstri grænna töldu málið
unnið af of miklum hraða og meðferðin væri ekki
ásættanleg. „Skólanámskrá er ekki fullunnin,
t.d. liggja áfangamarkmið ekki fyrir auk þess
sem ekki er gerð grein fyrir hvernig skólinn
hyggst mæta þörfum nemenda með sérþarfir,“
segir í bókun fulltrúa VG og einnig að það fé sem
fari úr borgarsjóði til skólans skerði fjárframlög
til grunnskóla borgarinnar. Borgarfulltrúarnir
telja að með fjölgun grunnskóla nýtist skattféð
verr og veiki starfið í þeim skólum sem fyrir eru.
Menntamálaráðuneytið veitir sjálfstætt starf-
andi skólum lögbundna viðurkenningu til að
hefja starfsemi að fengnu samþykki mennta-
ráðs. Það er því ráðuneytið sem gefur út hið end-
anlega starfsleyfi.
Umsókn um einkaskóla samþykkt
Sjálfstætt rekinn grunnskóli fyrir 5-10 ára gömul börn verður til húsa í Heilsuverndarstöðinni
Borgarfulltrúar minnihlutans telja ekki rétt að fjölga skólum á meðan nemendum fækkar
Í HNOTSKURN
»Áheyrnarfulltrúar Skóla-stjórafélags Reykjavíkur
og Kennarafélags Reykjavík-
ur bókuðu í menntaráði að á
tímum niðurskurðar og
fækkunar nemenda væri ekki
þörf eða forsenda fyrir stofn-
un nýs grunnskóla.
»Einnig að almennirgrunnskólar væru full-
færir um að sinna skóla-
göngu allra barna í borginni
og það án sérstakrar gjald-
töku.
»Umsóknin fer nú tilmenntamálaráðherra,
sem á lokaorðið.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Byggingin Úr heilsuvernd í fræðslustarf.
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
UNDIR háværum hrópum og
frammíköllum staðfesti borgar-
stjórn Reykjavíkur á sannkölluðum
hitafundi sínum í gær samning um
sölu á 32% hlut Orkuveitu Reykja-
víkur (OR) í HS orku til kanadíska
fyrirtækisins Magma Energy. Var
samningurinn staðfestur með átta
atkvæðum meirihlutans gegn sjö at-
kvæðum minnihlutans.
Felldar voru tillögur minnihlut-
ans um að fresta málinu þar til við-
skiptaráðherra og nefnd um erlend-
ar fjárfestingar úrskurðuðu um
lögmæti samningsins við Magma
Energy. Einnig voru felldar tillögur
Samfylkingar og VG um að fá óháða
aðila til að leggja mat á virði skulda-
bréfsins sem kemur til greiðslu fyrir
70% af söluandvirðinu á hlut OR.
Fjöldi fólks var samankominn á
pallana í borgarstjórnarsalnum í
Ráðhúsinu en hópur er kallar sig
Vaktin hafði hvatt til mótmæla á
pöllunum. Lögreglan hafði verið
kölluð á staðinn og eftir að salernis-
rúllu var kastað niður af pöllunum
um það leyti sem atkvæðagreiðslu
um málið lauk var einn maður hand-
tekinn og tveir til viðbótar sem
reyndu að stöðva handtökuna.
Meðal þess sem fólk hrópaði að
borgarfulltrúum meirihluta sjálf-
stæðismanna og framsóknarmanna
var „vanhæf borgarstjórn“ og „það
eru landráð að samþykkja samning-
inn“. Einnig féllu orð af pöllunum
eins og „lygarar“ og „svikarar“.
Gera þurfti hlé á fundi borgar-
stjórnar um stund, á meðan ró var
komið á mannskapinn. Þegar næsti
dagskrárliður kom til umfjöllunar,
um einkarekna grunnskóla, tæmd-
ust pallarnir svo gott sem.
Frammíköllin hófust strax í upp-
hafi fundar þegar Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri kynnti
málið. Hún sagði það ekki snúast
um að verið væri að selja auðlindir,
heldur einfaldlega að selja hlut
Orkuveitunnar í HS orku og gæta
hagsmuna eigenda fyrirtækisins;
borgarbúa, í erfiðri fjárhagsstöðu
þess. Auðlindirnar væru í eigu
Reykjanesbæjar, ekki Reykjavík-
urborgar eða OR.
„Auðvitað hefði verið betra að
selja þennan hlut við aðrar að-
stæður. En aðrar aðstæður eru ekki
fyrir hendi og ekkert okkar veit
hvenær svo verður,“ sagði Hanna
Birna meðal annars.
Fulltrúar minnihlutans gagn-
rýndu samninginn við Magma harð-
lega í sínum ræðum. Ekki væri verið
að huga að hagsmunum almennings
heldur hagsmunum einkaaðila og
fjármagnseigenda. Þannig sagði
Dagur B. Eggertsson, oddviti Sam-
fylkingar, áhættuna í sölunni alla
vera almennings megin, mögulegur
gróði myndi lenda í höndum einka-
aðila.
Sala samþykkt á hitafundi
Hróp gerð að meirihluta borgarstjórnar og þrír handteknir í ólátum á pöllunum
Borgarstjórn staðfesti sölu á hlut OR í HS orku til Magma Energy
Morgunblaðið/Heiddi
Hróp á pöllum Fjölmargir voru viðstaddir borgarstjórnarfund þegar rætt var um söluna á hlut OR og gerðu hróp að borgarfulltrúum meirihlutans.
Meira á www.mbl.is/sjonvarp
Heitt og rafmagnað í Ráðhúsinu
ÓSKAR Bergs-
son, borgar-
fulltrúi Fram-
sóknarflokks,
velti því upp í
borgarstjórn í
gær hvort raun-
verulegur meiri-
hluti í HS orku
hefði farið í
hendur erlendra kröfuhafa, þegar
Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra skrifaði undir samning
við skilanefnd Glitnis. Vísaði hann
þar til þess að Íslandsbanki er einn
helsti lánardrottinn Atorku en fé-
lagið, sem er í greiðslustöðvun, á
stóran hlut í HS orku gegnum Geysi
Green Energy. „Hvað var formaður
ykkar flokks að gera?“ spurði Ósk-
ar borgarfulltrúa VG.
Þegar í eigu
erlendra aðila?
ÞORLEIFUR
Gunnlaugsson,
borgarfulltrúi
VG, sagðist ekki
skilja orð Óskars
Bergssonar og
það væru út-
úrsnúningar að
tala um að meiri-
hlutinn í HS orku
hefði farið til útlendinga með samn-
ingi við skilanefnd Glitnis. Vildi
Þorleifur vekja athygli Óskars á því
að Geysir Green væri ekki gjald-
þrota og hið opinbera, ásamt inn-
lendum fjárfestum, væri að und-
irbúa yfirtöku á fyrirtækinu.
Innlendir aðilar að
kaupa Geysi Green
SIGRÚN Elsa
Smáradóttir,
borgarfulltrúi
Samfylking-
arinnar, kynnti í
ræðu sinni í gær
mat ALM fjár-
málaráðgjafar,
sem Samfylk-
ingin óskaði eftir
á skuldabréfinu sem kemur til
greiðslu á 70% söluandvirðisins í
HS orku. Í minnisblaðinu komi
fram að núvirt virði skuldabréfsins
sé að teknu tilliti til skuldaálags að
hámarki um 70% af nafnverði höf-
uðstóls bréfsins, eða um 5,9 millj-
arðar af 8,4 milljarða höfuðstól.
Með 3,6 milljarða útborgun Magma
sé heildarvirði samningsins því að
hámarki 9,5 milljarðar. OR hafi
greitt alls 15,7 milljarða fyrir hlut-
inn í HS orku og því sé tapið á söl-
unni 6,2 milljarðar króna.
Sex milljarða tap á
sölunni til Magma?
Hvað er Orkuveitan að fara að
selja Magma Energy?
Um er að ræða 32% hlut OR í HS
orku, áður Hitaveitu Suðurnesja, en
þar af er tæplega 15% hlutur Hafn-
arfjarðarbæjar sem deilt hafði verið
um í viðskiptum við OR. Með sölunni
til Magma Energy verða þau viðskipti
gerð upp og endi bundinn á tveggja
ára ágreining fyrir dómstólum.
Hver er kaupandinn?
Magma Energy er kanadískt orkufyr-
irtæki, sem stofnaði sænskt dóttur-
félag um kaupin í HS orku vegna tak-
markana á íslenskum lögum, sem
heimila ekki fjárfestingar aðila utan
EES-svæðisins í orkugeiranum.
Hvert er söluverðið?
Hluturinn í HS orku er seldur Magma
á rúma 12 milljarða króna á genginu
6,31. Magma staðgreiðir um 30%,
eða um 3,6 milljarða króna. Afgang-
urinn, 70%, er á skuldabréfum frá
OR sem Magma á að greiða af eftir
sjö ár. OR hafði áður keypt hlutina í
OR á genginu 7.
S&S