Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Samgöngu-
ráðuneytið hefur
fallist á nýjar
samþykktir um
fundarsköp
Reykjavíkur-
borgar. Í frétta-
tilkynningu frá
borginni segir að
það eyði vafa um
hæfi Guðlaugs
Sverrissonar,
stjórnarformanns OR, sem vara-
manns í borgarráði. Fulltrúar
minnihlutans gerðu ágreining um
kjör Guðlaugs og til að eyða óvissu
um kjörgengi breytti meirihlutinn
samþykktum borgarinnar.
Guðlaugur hæfur
til setu í borgarráði
Guðlaugur
Sverrisson
LÖGREGLAN í Borgarfirði og Döl-
um lýsir eftir vitnum að umferðar-
óhappi rétt norðan við Borgarnes
rétt fyrir kl. 21:00 á sunnudag sl.
Þá mun ljósum fólksbíl hafa verið
ekið í suður, eða í átt að Borg-
arnesi, og fram úr bílaröð. Þessum
bíl mun svo hafa verið ekið utan í
bíl sem kom úr gagnstæðri átt.
Leitað að vitnum
UNDIRRITAÐUR hefur verið sam-
starfssamningur milli Landhelgis-
gæslunnar og slysa- og bráðasviðs
Landspítalans, um gagnkvæma
þjálfun áhafna þyrlu Landhelgis-
gæslunnar og hjúkrunarfræðinga á
slysa- og bráðasviði Landspítalans,
til að auka þjálfun þeirra sem sinna
sjúkraflutningi á þyrlum Landhelg-
isgæslunnar.
Þjálfun Samningur undirritaður
milli Landhelgisgæslunnar og LSH.
Samstarf um þjálf-
un í flutningum
ÓLAFUR Ragn-
ar Grímsson, for-
seti Íslands, var
nefndur sem
sameiningartákn
þjóðarinnar af
1% þeirra sem
tóku þátt í skoð-
anakönnun
MMR. 72,1% taldi
sig ekki geta
nefnt neinn ein-
stakling í samfélaginu sem sé eða
geti orðið sameiningartákn fyrir ís-
lensku þjóðina.
Af þeim sem nefndir voru fékk
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands, flestar tilnefningar
(4,5%) og Davíð Oddsson, fyrrver-
andi ráðherra og seðlabankastjóri,
næstflestar (3,8%). Þar á eftir komu
þau Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra og Jóhanna Sigurð-
ardóttir forsætisráðherra með ríf-
lega 2%.
Forsetinn ekki
sameiningartákn
Ólafur Ragnar
Grímsson
LANDSFUNDUR jafnréttisnefnda
sveitarfélaga, sem fram fór á Ísa-
firði, samþykkti ályktun þar sem
skorað er á stjórnmálaflokka og
önnur framboð að tryggja jöfn
kynjahlutföll í efstu sætum á fram-
boðslistum fyrir sveitarstjórnar-
kosningarnar á næsta ári. „Það er á
ábyrgð þeirra sem bjóða fram lista
við kosningar að jafna hlutdeild
kynja við ákvarðanatöku í stjórn-
málum,“ segir í ályktuninni.
Jöfn kynjahlutföll
STUTT
ÍSLENSKIR aðalverktakar, ÍAV,
hafa náð þeim áfanga að hljóta ISO-
gæðavottun samkvæmt staðlinum
9001:2008, fyrstir íslenskra verk-
takafyrirtækja í alhliða verktaka-
starfsemi. Vottunin nær yfir alla
starfsemi fyrirtækisins, þar með tal-
ið þróunar-, hönnunar- og verkefna-
stýringar í bygginga- og mann-
virkjagerð. Er þá átt við allar gerðir
húsbygginga, lagningu vega, hafnar-
gerð, jarðgangagerð, byggingu
virkjana o.fl. ÍAV hafa í um 15 ár
unnið samkvæmt gæðakerfi sem
byggt var upp af fyrirtækinu sjálfu.
Fyrir um tveimur og hálfu ári tók
stjórn og framkvæmdastjórn fyrir-
tækisins ákvörðun um að endur-
skoða gæðakerfið og aðlaga það að
kröfum staðalsins ISO 9001.
BSI á Íslandi annaðist vottunina
en forúttekt á gæðakerfinu fór fram í
febrúar á þessu ári og sjálf úttektin í
júní síðastliðnum.
Öll starfsemi ÍAV
fær gæðavottun
Ljósmynd/ÍAV
Starfsmenn Afhending á gæðavottunarskírteini fór fram í Tónlistar- og
ráðstefnuhúsinu við Austurhöfn þar sem allir starfsmenn ÍAV komu saman.
Fyrstir alhliða verktaka til að fá vottun
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti Húsgögn
Landsins mesta úrval af sófasettum
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
DL-634 3+1+1
Aspen-lux NICE
man-8356 3+1+1
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
Roma Aspen
Tungusófar
Sófasett
Stakir sófar
Hornsófar
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
Bonn
Man 8279 Tau bogasófi
199.90
0 kr
verð á
ður
399.90
0 kr
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
SWS horn
takma
rkað m
agn ef
tir
149.90
0 kr
verð á
ður
399.90
0 kr
ísle
nsk
fra
mle
iðsl
a
Bonn horn
269.90
0 kr
verð á
ður
319.90
0 kr