Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 8

Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 reiknum töluna frá í fyrra miðað við 38% hækkun kemur í ljós að með- altalsverðið hefur lækkað úr tæpum 1.400 krónum í 1.240. Þetta segir okkur nákvæmlega það sem við höfðum á tilfinningunni; að við- skiptavinir okkar eru að kaupa ódýrari vöru í dag en þeir gerðu fyr- ir ári,“ segir Gissur. Sala á rauðvíni í kössum hefur að- eins aukist um 2% en samdráttur í sölu rauðvíns í flöskum er 11% Það eru um 43 þúsund lítrar, eða 58 þús- und flöskur, fyrstu sex mánuði árs- ins. Uppreiknað meðaltalsverð rauðvínsflösku í fyrra var 1.496 krónur en 1.350 krónur í ár. Í rauð- víni eins og í hvítvíninu hafa ódýrari tegundir verið að færast upp í hóp söluhæstu tegunda. Sala á brenndum vínum hefur dregist verulega saman, eða um 11,4%. Þetta gera rétt um 22.700 flöskur eða um 17 þúsund lítrar. Aðeins ein tegund af brenndum drykkjum hefur tekið sölukipp, en það er hindberjaromm. Aukninguna tengir Gissur stórminnkaðri sölu á blönduðum drykkjum, sem almennt eru kallaðir „breezerar“. Um þetta segir Gissur: „Þannig teljum við að yngri kynslóð viðskiptavina sé nú farin að blanda sína drykki frá grunni.“ Bjórsala hefur aukist hratt og örugglega á síðustu árum og er langmest selda áfengistegundin í lítrum talið. Ein íslensk tegund, bjórinn Lager frá Víking, hefur tek- ið mikið stökk upp á við og er nú komin í annað sætið yfir bjór í 500 ml flöskum. „Kreppuvín“ vinnur á  Fólk kaupir minna af léttvíni í flöskum en áður  Ódýrari tegundir vinna á og kassavínið er hástökkvarinn í sölu  Unga fólkið byrjað að „blanda“ á nýjan leik Morgunblaðið/Heiddi Vínbúðirnar Gestir ÁTVR virðast velja ódýra vínið frekar en það dýra. Íslendingar virðast ekki hafa dregið úr áfengisdrykkju í kjölfar bankahrunsins. Hins vegar hefur neyslumynstrið breyst og fólk kaupir nú frekar ódýrari tegundir en það gerði áður. Sala áfengis fyrstu 8 mánuði þessa árs jókst um 0,3% í magni miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR. Á sama tímabili voru tekjur ÁTVR af sölu áfengis rúmir 13,8 milljarðar króna, samanborið við tæpa 11,3 milljarða króna sömu mánuði í fyrra. Nemur aukningin 2,5 milljörðum, eða 23%. Skýringin á auknum tekjum er fyrst og fremst hækkanir sem orðið hafa á útsöluverði áfengis í kjölfar bankahrunsins. Sala rauðvíns dróst saman um 1,4% fyrstu 8 mánuði ársins, sala hvítvíns jókst um 6,4%, en sala á brandí dróst saman um 21,5%. Sala á ókrydduðu brennivíni og vodka dróst sam- an um rúm 7% og aðrar bjórteg- undir en lagerbjór og öl um rúm 35%. Svipaður samdráttur er í blönduðum drykkjum eða 36,6%. Lagerbjór sem er tæp 79% af allri magnsölu Vínbúð- anna seldist í rúmlega 10,7 milljónum lítra fyrstu 8 mánuði ársins og jókst salan um 1,8%. Auknar tekjur VELTA í sölu á tóbaki fyrstu 8 mánuði ársins jókst um rúm 19%, fór úr 5,6 milljörðum í 6,6 milljarða, samkvæmt upplýsingum frá Áfeng- is og tóbaksverslun ríkisins. Sala vindlinga, sem eru tæplega 92% af veltu tóbaks, minnkaði hins vegar í magni á tímabilinu um tæp 6%. Seldust 1.011 þúsund karton á móti 1.072 þúsund kartonum sömu mánuði í fyrra. Sala vindla minnk- aði í magni um 2%. Hins vegar jókst sala á reyktób- aki umtalsvert milli ára, eða um 33%. Til reyktóbaks telst píputóbak og tóbak sem fólk notar til að vefja vindlinga. Þá jókst sala á neftóbaki um 19%, eða úr 12,8 tonnum í 15,2 tonn. sisi@mbl.is Sala á sígarettum dregst saman VÍSITALA íbúðaverðs á höfuð- borgarsvæðinu, sem Fasteignaskrá Íslands reiknar út, hækkaði í ágúst um 0,8% frá fyrra mánuði. Er þetta annar mánuðurinn í röð þar sem vísitala íbúðaverðs hækkar. Vísitalan, sem mælir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, hækkaði um 0,3% í júlí. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,7%, síðastliðna 6 mánuði hefur hún lækkað um 6,4% og lækkun síð- astliðna 12 mánuði var 10,3%. Fasteignaverð hækk- ar tvo mánuði í röð Morgunblaðið/Sverrir LANDSVIRKJUN hefur óskað eftir tilboðum í vinnubúðir og rofahús sem eru staðsett á virkjunarsvæði Kárahnjúka. Þetta kemur fram á vef Landsvirkjunar. Meðal þess sem verið er að selja er 259 m² þjónustumiðstöð, 111 m² skrifstofuhús, 297 m² svefnskáli, 14 stakir 11,7 m² svefnskúrar og fjög- ur rofahús, en hvert hús er 34 m². Fram kemur að vinnubúðirnar verði til sýnis í dag og á morgun, fimmtudag. Vinnubúðir til sölu! GERÐ verður ný aðkomuleið frá Fossaleyni inn á bílastæðin við Eg- ilshöll og er það í samræmi við ný- lega samþykkta breytingu á deili- skipulagi. Framkvæmdin við aðkomuleiðina er á vegum Reykja- víkurborgar og samþykkti fram- kvæmda- og eignaráð hana á fundi sínum nú í vikunni. Kostnaður við hlut borgarinnar er áætlaður um sjö milljónir króna og rúmast hann innan heildaráætlunar vegna gatnaframkvæmda á árinu 2009. Nýja aðkomuleiðin er hluti af end- anlegum frágangi á bílastæðum við Egilshöll. Önnur vinna við bílastæð- in fer fram á vegum skilanefndar Landsbankans og er samkvæmt sérstöku samkomulagi við Reykja- víkurborg. Nú þegar heimild fram- kvæmda- og eignaráðs liggur fyrir verður farið í að semja við verktaka með það að markmiði að ljúka verk- inu sem allra fyrst. Bæta aðgengi akandi að Egilshöll        !"  #$"%"%&'%& $ !  "% "($$" )'"*+" ,""%*+" ' " ,%-.' /                     ! " #  $ #!#  #   !"( '       %01%  " FRÉTTASKÝRING Eftir Sigtrygg Sigtryggsson sisi@mbl.is GISSUR Kristinsson vínráðgjafi hefur skoðað sölu áfengis fyrstu sex mánuði þessa árs og borið saman við sömu mánuði ársins 2008, skömmu áður en kreppan skall á. Greinir Gissur frá athugun sinni í nýjasta hefti Vínblaðsins, en blaðið fæst ókeypis í vínbúðum ÁTVR. Hvítvínið er sú tegund léttvíns, sem hefur aukist mest í sölu á und- anförnum árum. Það sem af er þessu ári hefur salan á hvítvíni auk- ist um 6,4% miðað við í fyrra. Gissur segir ómögulegt að segja hvers vegna þetta hafi þróast þannig. „Sumir vilja tengja það hlýnun und- anfarinna ára hér á landi og hún hafi ýtt undir það að fólk drekki frekar kælda drykki heldur en þá drykki sem við venjulega drekkum við stofuhita,“ segir Gissur. Meðaltalsverðið lækkar Þegar Gissur skoðar þróunina kemur í ljós að hvítvín í kössum er sá vöruflokkur sem hefur tekið stærsta stökkið í sölu milli ára. Nemur magnaukningin rúmlega 47 þúsund lítrum, eða 26,9%. Á sama tíma hefur sala á hvítvíni í flöskum dregist saman um tæplega fimm þúsund lítra, eða 2,12%. „Verðbreytingar hafa verið tíðar síðustu mánuði og ef við lítum á meðaltalsverð á selda flösku og upp- INNAN skamms lýkur framkvæmdum við nýtt hringtorg við norðurenda Álftanesvegar en hafist var handa í júlí. Þarna voru áður hefðbundin kross- gatnamót, nýja torgið er á núverandi vegi og snertir því ekki deilurnar sem verið hafa um nýtt vegstæði á nesinu. Að sögn hönnuðarins, Hilmars Finns- sonar, deildarstjóra á suðvestursvæði Vegagerðarinnar, er vonast til að hringtorgið dragi úr umferðarhraða á veginum sem sé verulegt vandamál. Frá torginu munu liggja þrjár leiðir, ein að Bessastöðum, sem sjást í baksýn, en einnig liggja frá því Norðurnesvegur og Suðurnesvegur. Morgunblaðið/RAX Nýtt hringtorg á Álftanesi

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.