Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 9

Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 9
Fréttir 9INNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Þormóð Dagsson thorri@mbl.is ÁR ER liðið síðan að íslensk stjórn- völd og Mitusbishi Motors og Mitsu- bishi Heavy Industries undirrituðu viljayfirlýsingu um prófanir á i-MiEV- rafbílnum hérlendis. Á sama tíma var undirrituð viljayfirlýsing um þróun þjónustunets fyrir rafbíla á Íslandi. Einn helsti hvatamaður þessa verk- efnis er Ichiro Fukue, aðstoðarfor- stjóri Mitsubishi Heavy Industries í Japan. Hann var á meðal fyrirlesara á þriðju alþjóðlegu ráðstefnunni, Dri- ving Stustainability sem lauk í gær á Hilton Nordica. Af fyrirlestrinum að dæma er verk- efnið gífurlega viðamikið en fyrstu til- raunarbílarnir eru væntanlegir til landsins á næstu misserum. Tilraunastöðin Ísland „Verkefnið fór af stað á síðasta ári og nú erum við að fara yfir ákveðin smáatriði og athuganir í tengslum við innleiðingu þjónustunets fyrir raf- magnsbíla og dreifingu rafmagns,“ segir Fukue. Hann bætir við að Ís- land sé hin fullkomna tilraunastöð fyrir prófanir á rafmagnsbílum og þjónustuneti fyrir bílana. „Yfir 80% af orkunotkuninni hér á landi samanstendur af hreinni og endurnýjanlegri orku. Stóri kostur- inn er auðvitað hversu ódýr orkan er á Íslandi.“ segir Fukue. Hann segir auk þess að Íslendingar myndi vinna stóran sigur ef hægt yrði að knýja af- ganginn, þ.e. bílaflotann og skipaút- gerðina, með hreinni orku. En hvenær megum við búast við að sjá ávinning af verkefninu? „Innan tveggja ára vonumst við til að geta samið um einhvers konar framkvæmdir á tilrauna-þjónustuneti á höfuðborgarsvæðinu.“ Fyrstu bílanna er sem fyrr segir að vænta öðruhvorumegin við næstu áramót til Heklu sem hefur umboð fyrir Mitsubishi á Íslandi og er Fukue bjartsýnn á framhaldið. „Ef prófanirnar ganga að óskum þá munu fleiri bílar verða sendir til landsins í lok næsta árs og þá í al- menna sölu,“ útskýrir Fukue. Þáttur stjórnvalda er mjög mik- ilvægur í þessu verkefni en hvers kyns ívilnanir af hálfu ríkisins til að greiða veg rafmagnsbílsins á Íslandi, t.d. með afnámi virðisaukaskatts á slíka bíla, eru í rauninni lykilþáttur í því að verkefnið gangi eftir. Og að er ekki síst mikilvægt fyrir næstu skref í átt að rafbílavæðingu á Íslandi. Nýir rafbílar í árslok Ichima Fukue, aðstoðarforstjóri Mitsubishi Heavy Industr- ies, bindur miklar vonir við íslenskt samstarf með rafbíla LAUSNIR í kerfisinnleiðingu sjálfbærrar orku í samgöngur voru á meðal helstu viðfanga þriðju alþjóðlegu ráðstefnunnar Driving Sustainability sem lauk í gær í Nordica Reykjavík. Í ár var sérstök áhersla lögð á norrænt sam- starf og var fjallað um ýmsar aðferðir sem stjórnvöld og fyrirtæki annars staðar á Norðurlöndunum hafa beitt á síðustu árum til að efla framþróun sjálfbærra samganga annars vegar og hinsvegar til að hvetja almenning til að skipta yfir í „grænni“ samgöngumáta. Var það almennt álit fyrirlesara að oft hefði verði þörf en nú væri nauðsyn fyrir kerfisinnleiðingu sjálfbærra orkugjafa á Íslandi, bæði í efnahagslegu og umhverfislegu tilliti. Spurningin er ekki lengur hvort umskiptin munu eiga sér stað heldur hvenær. Norræn samvinna í öndvegi Morgunblaðið/Heiddi Framsýnn Ichima Fukue, aðtoðarforstjóri hjá Mitsubishi Heavy Industries, segir að Íslendingar eigi góða mögu- leika á að verða fyrsta þjóðin í heiminum til að neyta eingöngu hreinnar og endurnýjanlegrar orku. Morgunblaðið/Árni Sæberg Sjálfbærar lausnir Ráðstefnunni Driving Sustainability lauk í gær. Fyrstu rafbílarnir frá Mitsubishi Motors, sem ætlaðir eru til próf- unar hér á landi, eru væntanlegir um áramótin. Gangi prófanir að óskum má búast við bílunum í al- menna sölu á Íslandi á næsta ári. DRÖG að lagafrumvarpi um nýskip- an á rannsókn samgönguslysa eru nú til umsagnar hjá samgönguráðu- neytinu. Frumvarpið felur í sér sam- einingu laga um rannsókn sjóslysa, laga um rannsókn flugslysa og laga um rannsóknarnefnd umferðarslysa, í heildstæða löggjöf um slysarann- sóknir í samgöngum. Gert er ráð fyr- ir að nefndirnar verði sameinaðar í eina fimm manna rannsóknarnefnd. Hin nýja nefnd, rannsóknarnefnd samgönguslysa, mun heyra undir ráðherra samgöngumála. Markmið frumvarpsins er að auka öryggi í samgöngum með því að efla og bæta slysarannsóknir á Íslandi. Einn megintilgangurinn með sam- einingu nefndanna í eina nefnd er að leitast við að ná fram hagræðingu og efla um leið rannsókn samgöngu- slysa og styrkja starfsmenn annars mjög fámennra nefnda í einstökum slysaflokkum svo þeir hafi stuðning og styrk hver af öðrum við umfangs- miklar rannsóknir. Ekki beitt sem sönnunar- gögnum í sakamálum Þá er ráðgert að mögulegt verði að fela nefndinni aukin verkefni er lúta að skráningu og greiningu sam- gönguslysa. Skýrslum nefndarinnar um rannsókn einstakra slysa skal ekki beitt sem sönnunargögnum í sakamálum og skal ekki leitast við að skipta sök eða ábyrgð. Í júní 2007 kom samgönguráð- herra á fót starfshópi með þátttöku forstöðumanna rannsóknarnefnd- anna til að vinna að þessu verkefni. Andri Árnason hæstaréttarlögmað- ur var ráðinn til að vinna með starfs- hópnum og að semja drögin. Í upp- hafi árs 2009 voru frumvarpsdrögin endurskoðuð í samgönguráðuneyt- inu. Frumvarpið var sent til umsagnar hagsmunaaðila seint í febrúar. Komu fram fjölmargar athugasemd- ir sem tekið var tillit til og frumvarp- inu breytt í samræmi við þær, segir á heimasíðu ráðuneytisins. Unnt er að senda inn umsögn um drögin til og með miðvikudagsins 23. september næstkomandi á netfangið postur- @sam.stjr.is. aij@mbl.is Ein nefnd rann- saki öll slys í samgöngum Fimm manna nefnd komi í stað þriggja Í HNOTSKURN »Víða var leitað fanga ogvar m.a. gerð greining á fyrirkomulagi slíkra rann- sókna í nokkrum löndum, t.d. á Norðurlöndunum, Bretlandi, Bandaríkjunum og Kanada. »Við endurskoðun á drög-unum var bætt nokkrum ákvæðum að teknu tilliti til þjóðréttarlegra skuldbind- inga. ANNA Marta Guð- mundsdóttir, bóndi á Hesteyri við Mjóafjörð, lést á sunnudag á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað, tæplega áttræð að aldri. Anna fæddist á Hesteyri, hún bjó ein en varð lands- þekkt fyrir að taka öðru hverju að sér drykk- fellda útigangsmenn. Anna var mikill skör- ungur og sagði eitt sinn í sjónvarpsviðtali að hún væri fegin að hafa ekki gefið karlmanni færi á að stjórna sér. Ævisaga hennar, Ég hef nú sjald- an verið algild, kom út í fyrra og var það Rannveig Þórhallsdóttir sem rit- aði hana. Jón Kalman Stefánsson rithöf- undur segir í grein í Morgunblaðinu 1995 frá Önnu en hann heimsótti þá Mjóafjörð með Ragnari Axelssyni ljósmyndara. Anna seg- ist helst vilja bera bein- in í kirkjugarði stað- arins. „Mér þætti ósköp viðfelldið að hvíla í garðinum, loka graf- reitnum með því að vera síðasta manneskjan í honum,“ sagði hún. „En ef ég myndi deyja í öðr- um landshluta, þætti mér rangt að eyða pen- ingum í að láta flytja mig hingað, peningum sem gætu orð- ið lifandi fólki að liði,“ sagði hún. Anna var mikill dýravinur, hún ól endur, gæsir og dúfur og geymdi fuglafóðrið í aftursætinu á gömlum og vélarlausum Skóda við bæinn, segir í greininni. kjon@mbl.is Andlát Anna Marta Guðmunds- dóttir á Hesteyri MAÐURINN sem klemmdist millidráttarvélar og veggjar í Gríms- staðarétt á Mýrum upp úr hádegi í gær rifbeinsbrotnaði og hlaut minni- háttar innvortis áverka, að sögn læknis á slysadeild Landspítalans. Maðurinn var fluttur á Landspít- alann eftir rannsókn á sjúkrahúsinu á Akranesi. Rifbeinsbrot og innvortis áverkar í slysi í réttum FRÆÐSLUFUNDIR fyrir karl- menn sem greinst hafa með krabba- mein hefjast að nýju í dag, miðviku- dag, á vegum Ljóssins, endur- hæfingar- og stuðningsmiðstöðvar, á Langholtsvegi 43. Haldnir verða átta sérhæfðir fundir en líkt og síð- ast stýrir Matti Ósvald heilsufræð- ingur fundunum. Meðal fyrirlesara eru Helgi Sigurðsson krabbameins- sérfræðingur og Högni Óskarsson geðlæknir. Fræðsla fyrir karla með krabbamein Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigur 5 • Sími 581 2141 • www.hjahrafnhildi.is Dragtir Svartar – bláar – gráar – brúnar FRÁBÆR BUXNASNIÐ NÝKOMIÐ – SVARTAR KVARTBUXUR OG GALLABUXUR EINNIG KLASSÍSKAR SVARTAR OG BRÚNAR, SPARI- OG VINNUBUXUR MÖRG SNIÐ – 2 SÍDDIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.