Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Fjölmiðlum barst í fyrradag tölvu-póstur frá Silju Báru Ómars-
dóttur, stjórnmálafræðingi, með yf-
irskriftinni „fréttatilkynning frá
nefnd um erlendar fjárfestingar“.
Silja var ásamt fjórum öðrum kjör-
in í nefndina af Alþingi 11. ágúst
síðastliðinn.
Í fréttatilkynn-ingunni stóð
m.a.: „Nefndin
hefur fengið
spurningar um
það hvort
Magma Energy
Sweden AB, sem
virðist uppfylla
skilyrði laganna
að forminu til, uppfylli efnisleg skil-
yrði laganna. Nefndin mun fjalla
um það á næsta fundi sínum. Nefnd-
in telur að skoða þurfi aðkomu er-
lendra aðila að fjárfestingum hér-
lendis í nýju ljósi vegna þeirra
aðstæðna sem nú eru í íslensku
samfélagi.“
Nú skyldi ætla af þessum texta aðnefndin hefði komið saman og
sammælzt um þetta álit. Annað
kemur þó í ljós.
Viðskiptaráðherra ber að skipaformann og varaformann úr
hópi nefndarmanna, skv. 12. grein
laga um fjárfestingu erlendra aðila
í atvinnurekstri.
Viðskiptaráðherrann skipaði hinsvegar engan formann fyrr en í
gær og þá vandast málið, því að
samkvæmt sömu lagagrein er for-
maðurinn sá eini, sem getur kallað
nefndina saman til funda.
Tilkynningin, sem var fréttaefnimargra fjölmiðla, var með öðr-
um orðum send frá formannslausri
nefnd, sem hafði aldrei hitzt.
Dregur það hugsanlega úr vægitextans? Hvað segir stjórn-
málafræðingurinn?
Silja Bára
Ómarsdóttir
Nefndin sem aldrei hefur fundað
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 10 léttskýjað Lúxemborg 16 skýjað Algarve 24 léttskýjað
Bolungarvík 6 rigning Brussel 18 léttskýjað Madríd 22 léttskýjað
Akureyri 12 skýjað Dublin 15 léttskýjað Barcelona 19 léttskýjað
Egilsstaðir 13 léttskýjað Glasgow 17 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað London 16 skúrir Róm 26 léttskýjað
Nuuk 4 léttskýjað París 17 léttskýjað Aþena 26 léttskýjað
Þórshöfn 11 léttskýjað Amsterdam 17 skýjað Winnipeg 22 léttskýjað
Ósló 16 heiðskírt Hamborg 18 skýjað Montreal 17 alskýjað
Kaupmannahöfn 18 léttskýjað Berlín 20 skýjað New York 23 heiðskírt
Stokkhólmur 19 heiðskírt Vín 22 skýjað Chicago 27 skýjað
Helsinki 16 heiðskírt Moskva 17 heiðskírt Orlando 29 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
16. september Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4.22 3,4 10.30 0,7 16.40 3,9 23.03 0,5 6:55 19:51
ÍSAFJÖRÐUR 0.28 0,4 6.32 1,9 12.35 0,4 18.37 2,3 6:57 19:59
SIGLUFJÖRÐUR 2.24 0,3 8.47 1,3 14.33 0,4 20.48 1,4 6:40 19:42
DJÚPIVOGUR 1.25 1,8 7.30 0,5 13.57 2,1 20.11 0,6 6:24 19:21
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á fimmtudag
Suðvestan 8-13 m/s, rigning og
síðar skúrir, en léttir til aust-
anlands um kvöldið. Hiti 10 til
17 stig, hlýjast norðaustantil.
Á föstudag og laugardag
Suðvestan 5-10 m/s og skúrir,
en bjartviðri um landið norð-
austanvert. Hiti 7 til 13 stig,
hlýjast A-lands.
Á sunnudag og mánudag
Útlit fyrir suðlæga átt með
rigningu, einkum um landið
sunnanvert. Hiti 6 til 12 stig.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Gengur í sunnan 8-13 m/s með
rigningu og súld, fyrst suðvest-
antil en lengst af þurrt um
landið norðaustanvert. Kólnar
heldur í veðri.
MEÐALGRUNNLAUN SFR-
félaga í febrúar 2009 voru 266 þúsund
og meðalheildarlaunin 320 þúsund
krónur. Grunnlaun félagsmanna
hækkuðu að meðaltali um 6% frá
fyrra ári og heildarlaunin um 5%.
Lægstu laun hækkuðu hlutfallslega
mest en launahæstu SFR-félagar
lækkuðu að meðaltali um 2% frá
fyrra ári. Töluvert dregur úr kyn-
bundnum launamun en hann mælist
nú 11,8% borið saman við 17,2% í
fyrra.
Þetta kemur fram í launakönnun
SFR stéttarfélags, en þetta er þriðja
árið í röð sem félagið birtir slíka
könnun. Niðurstöðurnar í ár bera
þess merki að það er annað ástand í
þjóðfélaginu nú en fyrir ári. Könnun
SFR gefur m.a. vísbendingar um það
hvernig laun eru að breytast í krepp-
unni.
Athygli vekur að lægstu launin
hækka meira á milli ára í prósentum
talið en hærri launin. Þetta skýrist
m.a. af því að samningsbundin launa-
hækkun á síðasta ári var í formi fastr-
ar krónutöluhækkunar sem kom
hlutfallslega betur út fyrir lægri laun.
Könnun SFR sýnir að það dregur
úr launamun kynjanna frá fyrra ári.
Kynbundinn launamunur mælist nú
11,8%, þegar tillit hefur verið tekið til
aldurs, starfsaldurs, vinnutíma,
vaktaálags, starfsstéttar og mennt-
unar. Í fyrra var kynbundni launa-
munurinn 17,2%.
Lægstu laun hækkuð meira en hærri laun
Dregur úr kynbundnum launamun
Mælist núna 11,8%, en var 17,2%
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Könnun Minni launamunur kynja.
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | Ragnheiður Skúla-
dóttir er listamaður Reykjanesbæjar
2009-2013. Heiðursnafnbótin er veitt
á fjögurra ára fresti og tekur Ragn-
heiður við af Rúnari heitnum Júl-
íussyni en hann var listamaður
Reykjanesbæjar þegar hann lést. Sá
sem hlýtur nafnbótina Listamaður
Reykjanesbæjar fær styrk til að auð-
velda viðkomandi að stunda list sína,
viðurkenningarspjald og grip til
minningar um atburðinn. Gripurinn
er afsteypa af verki Erlings Jóns-
sonar „Hvorki fugl né fiskur“. Jafn-
framt er nafn listamannsins skráð á
stall listaverksins, sem stendur í
skrúðgarðinum við Tjarnargötu.
Ragnheiður tók á móti heiðurs-
nafnbótinni úr hendi Böðvars Jóns-
sonar, formanns bæjarráðs, á hátíð-
artónleikum nýverið. Þar kom fram
tónlistarfólk af Suðurnesjum og
flutti hverja söngperluna á fætur
annarri.
„Ragnheiður hefur verið virkur
þátttakandi í tónlistarlífi Keflavíkur
og Njarðvíkur, síðar Reykjanes-
bæjar, í um 50 ár, bæði sem píanó-
leikari og tónlistarkennari. Hún er
sérlega næm á listræna túlkun tón-
listar og hefur leiðbeint mörgum
nemendum, sem og fullburða lista-
mönnum, á því sviði, í hlutverki und-
irleikarans,“ segir í áliti bæjarráðs.
Morgunblaðið/Svanhildur Eirík
„Hún er sérlega næm
á listræna túlkun“