Morgunblaðið - 16.09.2009, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 16.09.2009, Qupperneq 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 MATTHÍAS Halldórsson landlæknir mun ásamt föruneyti frá Landlækn- isembættinu, funda með for- svarsmönnum Landspítala á morgun. Á fund- inum verður far- ið yfir þær sparnaðaraðgerðir sem ráðast þarf í á spítalanum vegna niðurskurðar í heilbrigðiskerfinu. Embættið mun einnig gera úttekt á þjónustu spítalans og fylgja eftir sparnaðartillögum hans með auknu eftirliti. andri@mbl.is Funda um niður- skurð á Landspítala Matthías Halldórsson Eftir Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „ÁHRIF kreppunnar hér á landi eiga eftir að koma betur í ljós á næstu árum. Kreppan í Finnlandi kom niður á öllum á endanum og mikilvægt er fyrir kirkjuna, stjórn- völd og alla aðra hagsmunaaðila að grípa inn í sem fyrst. Mestu skiptir að koma strax til móts við skuldug heimili og þá sem verst standa, áður en vandamálin fara að hrannast upp,“ segir Heikki Hiilamo, finnskur prestur og doktor í þjóðfélags- fræðum og heimspeki, sem kom hingað til lands í vikunni til að taka þátt í fundi fulltrúa frá norrænum kirkjum um kreppuna og viðbrögð við henni. Hiilamo hefur rannsakað viðbrögð við kreppunni í Finnlandi á níunda og tíunda áratug síðustu aldar út frá ýmsum hliðum, m.a. viðbrögð kirkj- unnar. Margvíslegu hjálparstarfi var komið á laggirnar á vegum finnsku kirkjunnar á þessum tíma, eins og með matarúthlutun, súpueld- húsum og fjárhagslegum stuðningi við fólk sem var með miklar skuldir. Þá stóðu safnaðarheimilin opin fólki og sums staðar urðu þau að fé- lagsmiðstöðvum fyrir atvinnulausa. Atvinnuleysi fór í 22% Hiilmao bendir á að fyrir krepp- una í Finnlandi hafi atvinnuleysi um nokkurn tíma ekki verið mikið, eða í kringum 3%. Á skömmum tíma fór það upp í 22% og fjöldi finnskra heimila lifði við fátæktarmörk. „Þetta varð mjög djúp kreppa og mér sýnist vera uppi mjög svipaðar aðstæður hér á landi og voru hjá okkur. Þegar kreppan skall á hjá okkur voru finnsk heimili mjög skuldsett og íbúðirnar veðsettar upp í topp. Síðan hrundi fast- eignaverðið og margar fasteignir fóru á uppboð. Fjöldi fólks missti allt sitt og þetta var nokkuð sem enginn bjóst við að gæti gerst í Finnlandi,“ segir Hiilamo, sem telur mikilvægast að taka á vanda þeirra sem skulda mest. Sá vandi geti fylgt fólki í mörg ár sé ekkert að gert. Fátæktin viðvarandi Kreppan í Finnlandi hafði þau nei- kvæðu áhrif til langs tíma að fátækt hefur verið viðvarandi vandi meðal stórs hóps. Atvinnuleysi og félagsleg aðstoð er þannig umfangsmeiri í dag en fyrir kreppuna. Að sögn Hiilamo er finnska kirkjan enn að úthluta mat og veita fólki fjárhagslega að- stoð. Hann segir íslensku þjóðkirkjuna og aðrar hjálparstofnanir margt geta lært af viðbrögðum finnsku kirkjunnar. Hún hafi fyrir kreppuna í Finnlandi ekki þurft að glíma við sambærileg verkefni; ekki staðið að matarúthlutun eða veitt fjárhags- lega aðstoð nema að takmörkuðu leyti, og þá helst til aldraðra. Kirkj- an hafi orðið að gjörbreyta starfs- háttum sínum á skömmum tíma og veita fleirum hjálp. Einnig kom hún á ráðgjöf til handa skuldsettum heimilum og síðar tóku sveitar- félögin upp sama fyrirkomulag. Að sögn Hiilamo breyttu finnsk stjórnvöld löggjöfinni þar í landi, þar sem hluti skulda fólks var lækkaður eða afskrifaður, og greiðslubyrðin aðlöguð getu hvers og eins. Íslensk stjórnvöld verði að gera slíkt hið sama til að koma fólki úr mestu skuldasúpunni. Kirkjan hafi einnig mikilvægu hlutverki að gegna og systurstofnanir á Norðurlöndum geti veitt þar margs konar aðstoð. Mestu áhrif kreppunnar eru eftir  Finnskur prestur ráðleggur Íslendingum að grípa strax í taumana hjá skuldsettustu heimilunum  Segir aðstæður á Íslandi í dag að mörgu leyti svipaðar og í kreppunni í Finnlandi kringum 1990 Heikki Hiilamo Heikki Hiilamo segir það hafa tekið finnsku þjóðina þrjú til fjögur ár að komast út úr verstu krepp- unni, þó að áhrifa hennar gæti enn sums staðar í dag. „Segja má að við höfum haft heppnina með okkur að nokkru leyti,“ segir hann og vísar til farsímabyltingarinnar á síðasta áratug. Nánast einn og sér hafi símarisinn Nokia reist finnskan efnahag við með framleiðslu sinni, þar sem fjöldi nýrra starfa skapaðist. „Vonandi upplifið þið svipað kraftaverk og Nokia-undrið var fyrir okkur,“ segir Heikki. Þarf Nokia-undur? Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is HJÖRDÍS Guðmundsdóttir segir að fyrir um tveimur árum hafi móðir sín 66 ára greinst með Alzheimer. Sjúkdómurinn hafi ágerst mjög hratt og síðastliðið vor hafi ástand hennar verið orðið þannig, að mati barna hennar, að hún gæti ekki búið ein. Þá hafi verið sótt um vistunar- mat fyrir hana vegna dvalar á sam- býli. „Við fengum neitun þar sem hún hafði ekki nýtt öll úrræði sem voru í boði á höfuðborgarsvæðinu,“ segir Hjördís. Móðir hennar hafi til dæmis ekki nýtt sér opinbera aðstoð eins og að- stoð við að fara í bað heldur hafi hún baðað sig sjálf. Hins vegar hafi hún nýtt sér heimaþjónustu og dag- þjálfun. „Sjúklingnum er refsað fyr- ir að reyna að bjarga sér sjálfur eða nýta sér aðstoð ættingja í stað úr- ræða sem kerfið býður upp á,“ segir Hjördís. Bjargvættur í Stykkishólmi Börnin fengu inni fyrir móður sína í svokallaðri hvíldarinnlögn á St. Franciskus-spítalanum í Stykk- ishólmi, en slík aðstoð fékkst ekki á höfuðborgarsvæðinu vegna pláss- leysis. Til stóð að hún yrði á spít- alanum í þrjár vikur en Hjördís seg- ir að þar sem læknir spítalans hafi snemma áttað sig á því að móðir hennar gæti ekki búið ein hafi hann ákveðið að framlengja dvöl hennar um viku í senn, allt þar til að einhver niðurstaða væri komin í hennar mál. Þá hafi næsta skref í stöðunni ver- ið að sækja um hið svokallaða vist- unarmat og hafi umsókn verið send inn um mitt sumar. Neikvætt svar hafi borist frá vistunarmatsnefnd höfuðborgarsvæðisins skömmu seinna og því hafi móðir hennar þurft að dvelja áfram á spítalanum á meðan annarra úrræða hafi verið leitað, en dvölin í Hólminum hafi staðið í þrjá mánuði í stað þriggja vikna. „Það er bara einstakri góðvild læknisins og hjúkrunarforstjórans að þakka að hún fékk nauðsynlega umönnun í sumar og starfsfólk spít- alans reyndist henni og okkur sér- staklega vel,“ segir Hjördís. Börnin mótmæltu mati vist- unarmatsnefndarinnar til nefnd- arinnar, sem hélt fast við sinn keip, og næsta skref var að kæra það til Landlæknisembættisins, eins og þeim var ráðlagt. Ítrekað var að móðir þeirra gæti ekki búið ein en í svarinu var sagt að bíða þyrfti leng- ur og sjá til þar sem hún hefði ekki nýtt öll úrræðin. Síðsumars komst móðir Hjördísar inn á Foldabæ, sambýli fyrir átta Alzheimers-sjúklinga. „Þetta er eini staðurinn á höfuðborgarsvæðinu þar sem ekki þarf vistunarmat, stórkost- legur staður og þar er unnið frábært starf,“ segir hún. Hjördís bætir við að allir séu settir undir sama hatt við framkvæmd vistunarmatsins og það gangi ekki. „Það er augljóst að sextug mann- eskja með heilabilun en fulla lík- amlega virkni hefur ekki sömu þarf- ir og getur ekki uppfyllt sömu skilyrði vistunarmats og níræður einstaklingur sem hefur óskerta andlega getu en er orðinn lélegur á skrokkinn. Vistunarmatsfyr- irkomulagið virðist ekki gera ráð fyrir fólki sem glímir við Alzheim- er.“ Morgunblaðið/RAX Galið kerfi Hjördís Guðmundsdóttir segir að móðir sín hafi alls staðar fengið góða aðhlynningu og börnin verið ánægð með hana en kerfið gangi ekki upp því ekki gangi að meta alzheimerssjúklinga á sama hátt og aldraða. Vistunarmatið ekki fyrir Alzheimers-sjúklinga Hjördís Guðmundsdóttir segir að ekki gangi að meta Alzheimers- sjúklinga á sama hátt og aldraða og sjúklingarnir og aðstandendur þeirra rekist víða á fyrirstöður í kerfinu. Gengur ekki upp að meta Alzheimers-sjúklinga á sama hátt og aldrað fólk „Samdrátturinn í heilbrigðiskerfinu mæðir mest á fólki með heilabilun sem getur ekki bjargað sér og staða þess fer versnandi,“ segir María Th. Jónsdóttir, formaður Fé- lags áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma. Félagið er með dagþjálfun á þremur stöðum, í Drafnarhúsi í Hafnarfirði og í Fríðuhúsi og Mar- íuhúsi í Reykjavík, þar sem boðið er upp á andlega og líkamlega þjálfun fyrir Alzheimers-sjúklinga alla virka daga. Biðlistar eru langir og María segir að sjúklingum fjölgi stöðugt og ekki sé staðið við loforð um fjölgun hjúkrunarrýma. Verði ekkert að gert sé hreinlega verið að búa til hóp niðursetninga eins og áður hafi þekkst. María bendir á að aðstandendur geti ekki séð um umönnunina nema í algerum undantekningartilvikum og ekki sé hægt að ætlast til þess. „Það er líka ljótt að ætlast til þess að aldraður einstaklingur annist sjúkling með heilabilun,“ segir hún. Mæðir mest á fólki með heilabilun SAMBAND lífeyrisþega ríkis og bæja, SLRB, lýsir áhyggjum sínum yfir fyrirhuguðum niðurskurði í heil- brigðis- og velferðarkerfinu. Ekki sé einungis um að ræða hvort skera skuli niður, heldur hvar innan vel- ferðarkerfisins skorið verði niður og hvernig staðið er að slíkum nið- urskurði. Einnig hvort nægilega góðar upplýsingar séu til staðar í kerfinu, hvort einhverskonar skipu- lagt áhættumat og/eða spár liggi fyrir um langtíma áhrif nið- urskurðar og samdráttar af því tagi sem stefnt er að. Þetta kemur fram í ályktun frá sambandinu. Skorar SLRB á heilbrigð- isráðherra að beita sér fyrir því að slíkt áhættumat fari fram áður en tekin verður ákvörðun um stór- felldan niðurskurð innan velferð- arkerfisins, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Þá fer sambandið fram á í ályktun að stjórnvöld beiti sér fyrir því að þingsályktunartillaga um að koma á fót embætti umboðs- manns aldraða, verði samþykkt svo fljótt sem auðið er. Áhættumat á undan niðurskurði

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.