Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 13

Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 Hraði, 2 Mb/sek*. Gagnamagn, 10 GB. Verð 4.190 kr. Það er800 7000 • siminn.is E N N E M M /S ÍA /N M 38 91 6 Leið 1: INTERNET SÍMANS Internet Símans er annað og meira en venjuleg nettenging Þú hefur möguleika á hraðari nettengingu, meira gagnamagni, öruggri gagnageymslu, Sjónvarpi Símans með fjölda sjónvarpsstöðva og vídeóleigu heima í stofu. Auk þess fylgir Netvarinn öllum áskriftarleiðum. Skráðu þig í eina af nýju leiðunum. * Hraði allt að 2 Mb/sek. Eftir Andrés Skúlason Djúpivogur | Þrátt fyrir að nafn Ástu Birnu Magnúsdóttir sé orðið vel þekkt í golfíþróttinni hér á landi eru kannski færri sem vita að stúlkan er frá Djúpavogi og tók sínar fyrstu sveiflur þar við æfingar og keppni ung að árum með dyggum stuðningi frænda síns, Jóns Rúnars Björns- sonar, en segja má að hann hafi öðr- um fremur átt heiðurinn af þeirri uppbygginu sem varð í golfíþróttinni á Djúpavogi á sínum tíma. Ásta Birna, sem hefur æft á síðustu árum með Golfklúbbnum Keili, hefur stimplað sig inn sem ein af þeim bestu hér á landi og það hefur hún sann- arlega undirstrikað með góðum ár- angri á síðustu tveimur árum. Á árinu 2008 náði Ásta Birna frá- bærum árangri en þá varð hún í 2. sæti í stigamótaröðinni og vann þar af eitt stigamótið, þá varð hún Íslands- meistari í holukeppni sama ár og þar að auki varð hún Íslandsmeistari í sveitakeppninni með Golfklúbbnum Keili. Þá tók Ásta Birna sömuleiðis þátt með Keili í Evrópumóti fé- lagsliða í fyrra og þar urðu þær í 8. sæti af 15 liðum. Í ár var árangurinn sömuleiðis frá- bær en þá varð Ásta Birna í þriðja sæti í stigamótaröðinni og í öðru sæti í holukeppninni og vann síðan annað árið í röð sveitakeppnina með Keili. Þann 20. sept. næstkomandi tekur Ásta Birna svo þátt í Evrópumóti fé- lagsliða annað árið í röð. Æfir í Þýskalandi Þegar Ásta Birna var á ferð á heimaslóðum sínum á Djúpavogi fyr- ir skemmstu þótti forsvarsmönnum sveitarfélagsins Djúpavogshrepps tilhlýðilegt að veita Ástu Birnu sér- staka viðurkenningu frá íbúum sveit- arfélagsins fyrir árangurinn, auk þess sem Ásta Birna er góð hvatning fyrir ungt íþróttafólk á Djúpavogi sem er að stíga sín fyrstu spor á vell- inum. Ásta er góð fyrirmynd innan sem utan vallar og ber mikla virðingu fyrir leikreglum golfíþróttarinnar. Ásta Birna sem er mikil keppnis- manneskja og stefnir hátt. Hún er á förum til Lippstadt í Þýskalandi þar sem hún mun dvelja næstu þrjú árin við æfingar og keppni ásamt því að stunda nám í sjúkraþjálfun. Hvað framtíðarmarkmiðin varðar segist Ásta Birna stefna á úrtökumót í desember á næsta ári fyrir Evr- ópsku mótaröðina. Það verður því gaman að fylgjast með Ástu Birnu Magnúsdóttir á næstu árum með þau metnaðarfullu markmið sem hún hef- ur sett sér í golfíþróttinni. Morgunblaðið/Andrés Skúlason Golfari Ásta Birna hefur náð miklum árangri í golfíþróttinni. Hún heimsótti heimahagana á Djúpavogi á dögunum, en hún æfir golf í Þýskalandi. Ásta Birna heiðruð á heimavelli „STEFNAN er að veita eins mörg- um erlendum fjölmiðlum viðtöl og þess óska og hægt er. Það er mik- ilvægt að tala við þá sem sýna því áhuga, til að koma því á framfæri sem verið er að gera hérna til þess að takast á við afleiðingar kreppunnar,“ segir Urður Gunnarsdóttir, fjöl- miðlafulltrúi utanríkisráðuneytisins. Haft var eftir Hughes Beaudouin, fréttaritara TF1, stærstu sjónvarps- stöðvar Frakklands, í Morgun- blaðinu í gær að hann hefði í tvígang óskað eftir viðtali við Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra en án árangurs Urður segir gagnrýnina aðeins segja hálfa söguna. Áðurnefndur Beaudouin hafi kom- ið í maílok og þá tekið viðtal við Öss- ur Skarphéðinsson utanríkisráð- herra og svo aftur í lok ágúst. Síðara viðtalið hafi verið um 15 mínútur og sýnt í þættinum Gestur vikunnar, sem svo má þýða á íslensku. Með líku lagi hafi fréttamenn France24 ný- lega tekið um 13 mínútna viðtal við Össur sem hafi verið sýnt í síðustu viku, auk innslags í fréttaskýringa- þátt um síðustu helgi. Urður segir þá Gylfa Magnússon viðskiptaráðherra og Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra einnig hafa farið í fjölda viðtala við erlent fjölmiðlafólk, enda sé stefnan sem fyrr segir að anna því sem hægt er. Yfir 20 viðtöl Hjá Elíasi Guðjónssyni, upplýs- ingafulltrúa fjármálaráðuneytisins, fengust þær upplýsingar að Stein- grímur hefði sennilega farið í á milli 20 og 30 viðtöl við erlenda fjölmiðla á síðustu tveim mánuðum, m.a. frá Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finn- landi, Bretlandi, Bandaríkjunum, Þýskalandi, Ástralíu og Hollandi. baldura@mbl.is Fóru ekki tóm- hentir heim Steingrímur J. Sigfússon Össur Skarphéðinsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.