Morgunblaðið - 16.09.2009, Qupperneq 14
14 FréttirVIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Þetta helst ...
● ÚRVALSVÍSITALAN í Kauphöllinni á
Íslandi lækkaði í gær um 0,2%, og var
lokagildi hennar 796 stig. Mest lækkun
varð á hlutabréfum Bakkavarar, 6,3%.
Mest viðskipti voru með hlutabréf Öss-
urar, eða fyrir um 32 milljónir króna, og
hækkaði gengi þeirra um 0,4%.
Engin viðskipti voru á milli-
bankamarkaði með krónur í gær.
gretar@mbl.is
Lækkun í Kauphöllinni
● NORSKI eftir-
launasjóðurinn,
sem sér um að
ávaxta hagnað
Norðmanna af ol-
íuvinnslu og geng-
ur jafnan undir
heitinu olíu-
sjóðurinn, er stærri
en nokkru sinni
fyrr. Í sjóðnum eru nú 2.522 milljarðar
norskra króna, eða um 53.000 millj-
arðar íslenskra króna. Til samanburðar
má nefna að eignir íslensku lífeyrissjóð-
anna nema um 1.800 milljörðum ís-
lenskra króna.
Olíusjóðurinn jókst um 56 milljarða
norskra króna í ágúst, en hefur aukist
um 600 milljarða króna frá því staðan
á hlutabréfamörkuðum var erfiðust í
mars. gretar@mbl.is
Olíusjóðurinn stærri en
nokkru sinni fyrr
● BOTNI hefur ekki verið náð á
dönskum íbúðamarkaði. Verðið mun
halda áfram að lækka á þessu ári og
því næsta að mati sérfræðinga í svo-
nefndu efnahagsráði, Det Økon-
omiske Råd.
Á síðasta ári spáðu sérfræðingar
efnahagsráðsins að húsnæðisverð í
Danmörku myndi að jafnaði lækka um
22% á tímabilinu frá 2008 til 2011.
Verðið hefur nú þegar lækkað um
15%, samkvæmt frétt danska við-
skiptablaðsins Børsen. Hefur blaðið
eftir einum nefndarmanni efnahags-
ráðsins að verðið eigi væntanlega eftir
að falla um 7% til viðbótar. Það muni
því halda áfram að lækka á þessu ári
og einnig á því næsta.
Í danska efnahagsráðinu eiga sæti
fulltrúar stjórnvalda, seðlabankans og
atvinnulífsins í Danmörku. Ráðið kem-
ur saman tvisvar á ári til að meta að-
stæður í efnahagslífinu. gretar@mbl.is
Áfram lækkun á dönsk-
um íbúðamarkaði
unblaðið benda þeir á að þessi
gjörningur geti verið í andstöðu við
lög um hlutafélög.
Í 104. grein laga um hlutafélög
segir: „Hlutafélagi er hvorki heim-
ilt að veita hluthöfum, stjórnar-
mönnum eða framkvæmdastjórum
félagsins eða móðurfélags þess lán
né setja tryggingu fyrir þá.“ Í ann-
arri málsgrein segir: „Hlutafélag
má ekki veita lán til að fjármagna
kaup á hlutum í félaginu eða móð-
urfélagi þess hvort heldur móður-
félagið er hlutafélag eða einka-
hlutafélag.“
Milestone ltd. virðist ekki bara
hafa fengið peninga frá Milestone
til að greiða Ingunni 2,5 milljarða. Í
úttektinni kemur fram að sam-
kvæmt lánardrottnareikningi
skuldi Milestone ltd. til Milestone
6,1 milljarð króna 22. júní 2009.
Karl Wernersson kaus að svara
ekki spurningum um þetta mál.
Greiddu systur sinni
með fé frá Milestone
Kröfuhafar efast um lögmæti ráðstöfunar á peningum Milestone til tengdra aðila
Wernerssystkinin Karl og Steingrímur Wernerssynir keyptu Ingunni syst-
ur sína út úr Milestone. Tilkynnt var um brotthvarf hennar 26. apríl 2007.
Eftir Björgvin Guðmundsson
bjorgvin@mbl.is
KARL og Steingrímur Werners-
synir greiddu systur sinni 2,5 millj-
arða króna árið 2007 með pening-
um frá Milestone samkvæmt úttekt
Ernst & Young á félaginu.
Um var að ræða lokagreiðslu til
Ingunnar Wernersdóttur eftir að
hún seldi bræðrunum hlut sinn í
Milestone samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Jóhannes A. Sævarsson, hæsta-
réttarlögmaður og umsjónarmaður
með nauðasamningsumleitunum
Milestone, fékk endurskoðunarfyr-
irtækið Ernst & Young til að gera
úttekt á samningum og viðskiptum
Milestone 22. júní 2007 til 22. júní
2009. Áttu kröfuhafar meðal annars
að meta hvort einhverjar ráðstaf-
anir félagsins væru hugsanlega
riftanlegar.
Í úttektinni er bent á að Mile-
stone greiddi Ingunni Werners-
dóttur þessa 2,5 milljarða króna ár-
ið 2007. Þessi upphæð var færð sem
skuld Milestone ltd. við Milestone.
Milestone ltd. er félag í eigu Karls
og Steingríms. Samkvæmt þessu
fengu bræðurnir peninga frá Mile-
stone til að greiða fyrir hlut systur
sinnar í félaginu.
Vakti athygli kröfuhafa
Þetta er meðal þess sem hefur
vakið athygli kröfuhafa Milestone,
sem höfnuðu nauðasamningi félags-
ins í fyrradag. Í samtali við Morg-
Í HNOTSKURN
»Félag Karls og SteingrímsWernerssona, Milestone
ltd., skuldaði Milestone 6,1
milljarð króna 22. júní sl.
»Endurskoðandi ársreikn-ings 2007 var Sigurþór Ch.
Guðmundsson, einn eigandi
KPMG.
»Milestone verður tekið tilgjaldþrotaskipta.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ANNA Kristín Traustadóttir, löggiltur endurskoð-
andi og Erlendur Gíslason hæstaréttarlögmaður,
skiptastjórar þrotabús Baugs, kynntu í gær þá
ákvörðun fyrir kröfuhöfum að ákveðið hefði verið
að rifta sölunni á Högum til eignarhaldsfélagsins
1998 ehf.
Hagar, sem eru móðurfélag yfir Bónus, Hag-
kaupum, 10-11, Útilífi o.fl verslunum, voru seldir til
1998 ehf., sem er dótturfélag Gaums, í júlí á síðasta
ári fyrir þrjátíu milljarða króna með láni frá Kaup-
þingi. Um var að ræða viðskipti tengdra aðila, en
kaupandi og seljandi var í grunninn sami aðili.
Kaupverðið var síðan notað til þess að greiða til-
teknar skuldir Baugs Group við Kaupþing og
Glitni, en skiptastjórarnir telja að sú ráðstöfun hafi
falið í sér mismunun því hún hafi ívilnað þessum
tveimur kröfuhöfum Baugs á kostnað annarra.
Þýðir ekki að þrotabúið eignist Haga
Jón Ásgeir Jóhannesson, eigandi 1998 ehf., hafn-
ar alfarið ákvörðun skiptastjóranna. „Þegar Hagar
eru seldir er Kaupþing með fyrsta veðrétt í eign-
inni. Þeir halda sínum rétti þegar þetta færist yfir
til 1998 ehf. Skiptastjórinn getur ekki breytt því.
Það sem ruglar fólk í ríminu er að þetta er kallað
fjárhagsleg riftun. Þetta þýðir ekki að þrotabúið sé
að eignast Haga,“ segir hann jafnframt. „Ef við
komumst ekki að samkomulagi okkar á milli um
leiðréttingu kaupverðs verður þetta dómsmál,“
ar sem í hlut eiga lögðu fram greinargerðir í gær
þar sem frávísun var mótmælt. Að sögn Erlends
tefur óvissa um verðmæti undirliggjandi veða fyrir
búskiptunum.
Stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar
Óhætt er að fullyrða að gjaldþrot Baugs sé eitt
stærsta gjaldþrot Íslandssögunnar, en kröfur í
þrotabúið nema rúmlega 319 milljörðum króna. Að
sögn fulltrúa kröfuhafa sem rætt var við má búast
við að búskiptin taki nokkur ár. Almennt voru
menn vongóðir um að eitthvað myndi skila sér upp í
almennar kröfur, en allflest fjármálafyrirtæki og
lánastofnanir á Íslandi, lífs og liðin, eiga hagsmuna
að gæta.
segir hann. Að sögn Jóns Ásgeirs vill þrotabúið fá í
kringum fimm milljarða króna svo salan til 1998
ehf. haldi. Jón Ásgeir hafnar því en hann telur að
kaupverðið á Högum hafi verið eðlilegt.
Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaup-
þings, segir að það verði verkefni lögfræðinga að
greiða úr því sem snúi að bankanum ef af riftun
verði, en Nýja Kaupþing er með veð í 1998 ehf. og
þar með 95,7 prósent hlut í Högum.
Að sögn Erlends Gíslasonar var fundur með
kröfuhöfum í gær „tíðindalítill“ að mestu leyti.
Skiptastjórarnir vísuðu frá kröfum stærstu kröfu-
hafanna, sem eru skilanefndir föllnu bankanna,
með fyrirvörum þar sem kröfulýsingu var ýmist
ábótavant eða frekari gögn vantaði. Þeir kröfuhaf-
Skiptastjórar rifta sölu Haga
Telja að kröfuhöfum hafi verið mismunað með sölunni Jón Ásgeir segir að
dómsmál sé í uppsiglingu ef ekki næst sátt um leiðréttingu kaupverðs
Morgunblaðið/RAX
Kröfuhafafundur Skiptastjórar þrotabús Baugs Group funduðu með kröfuhöfum í húsakynnum Logos.
234%
234%
##
#
234%
%!4
%!!
#$
5&%6&
7 8
% $#
%#
!
9:/;
5,4
!%
!%
!
234%
234%! "
$#
"
● FJÁRFESTAR í Bandaríkjunum fyllt-
ust mikilli bjartsýni þegar birtar voru í
gær upplýsingar sem sýndu að sala á
neysluvörum hefði aukist um 2,7% í
ágúst í samanburði við mánuðinn á
undan. Þetta var mun meiri aukning en
sérfræðingar höfðu spáð. Til saman-
burðar þá dróst sala á neysluvörum
saman um 0,2% í júlímánuði í sam-
anburði við júní.
Aðgerðir ríkisstjórnar Baracks
Obama, Bandaríkjaforseta, um sér-
stakar greiðslur til þeirra sem keyptu
nýja bíla í stað eldri og eyðslufrekari
bíla, vógu þungt, að því er fram kemur í
frétt Bloomberg-fréttastofunnar.
Aukningin í neysluútgjöldunum í
ágúst er sú mesta sem mælst hefur á
milli mánaða í Bandaríkjunum í þrjú ár.
gretar@mbl.is
Neysla í Bandaríkjunum
jókst meira en spáð var