Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 15

Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 Það er800 7000 • siminn.is E N N E M M /S ÍA /N M 38 91 8 INTERNET SÍMANS Internet Símans er annað og meira en venjuleg nettenging Leið 3: Þú hefur möguleika á hraðari nettengingu, meira gagnamagni, öruggri gagnageymslu, Sjónvarpi Símans með fjölda sjónvarpsstöðva og vídeóleigu heima í stofu. Auk þess fylgir Netvarinn öllum áskriftarleiðum. Skráðu þig í eina af nýju leiðunum. Hraði, 16 Mb/sek*. Gagnamagn, 120 GB. Verð 7.190 kr. * Hraði allt að 16 Mb/sek. ingsgeta til heimila ræðst af getu endabúnaðar en Gagnaveitan er í dag að setja upp endabúnað með flutn- ingsgetu sem er 100 Mb á sek. Birgir Rafn Þráinsson, fram- kvæmdastjóri Gagnaveitunnar, segir að fyrirtækið sé ekki að stilla sér upp í samkeppni við fjarskiptafyrirtækin, það sé aðallega í heildsölu. „Við erum að bjóða þjónustu yfir ljósleiðara, sem er ekki í boði hjá einkaaðilum. Við höfum fengið gríðarlega góðar viðtök- ur og viðskiptavinum okkar hefur fjölgað um hundrað prósent á þessu ári,“ segir Birgir. Hann segir að ljós- leiðarinn hafi þjónustað hundruð fyr- irtækja árum saman. „Eftirspurn eft- ir þessari flutningsleið er klárlega fyrir hendi.“ Birgir vísar til þess að hagnaður af almennum rekstri Gagnaveitunnar sé góður. Taprekst- ur í fyrra hafi verið vegna gengisá- hrifa. Á liðnum árum hefur verið fundin upp tækni sem eykur notkunar- og flutningsmöguleika koparsins (POTS). Því er hægt að ná miklum hraða á grundvelli þessarar gömlu tækni án þess að fara út í mjög kostn- aðarsamar framkvæmdir. Erfitt er að sjá að markaður sé fyr- ir sölu á Gagnaveitunni í dag þannig að viðunandi verð fáist. „Það stendur ekki til að selja Gagnaveituna eins og staðan er núna,“ segir Guðlaugur Gylfi Sverrisson, stjórnarformaður OR. Hann vildi ekki tjá sig um Gagna- veituna að öðru leyti. Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „MITT álit á þessu er ein- faldlega að þarna hefur al- mannafé um árabil verið sóað í uppbyggingu á neti sem byggt hefur verið upp með mjög óhag- kvæmum hætti,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Símans, um Gagnaveitu Reykjavíkur. Fyrirtækið, sem er í eigu Orkuveitu Reykjavíkur (OR) og þar með reykvískra skatt- greiðenda, tapaði þremur milljörðum króna á síðasta ári. Fyrirtækið hefur fengið 4,7 milljarða króna í formi eig- in fjár á sl. tveimur árum frá OR og skuldar OR í dag 6,2 milljarða króna. Gagnaveitan er í grunninn sama fyrirtæki og Lína.net, en uppbygging þess félags olli á sínum tíma miklum deilum í borgarstjórn Reykjavíkur. Hlutverk Gagnaveitunnar er að bjóða heimilum og fyrirtækjum aðgang að gagnaflutningskerfi. Í dag veitir fyr- irtækið t.d. Vodafone, Tali og Hring- iðunni aðgang að ljósleiðara. Fyrir- tækin selja síðan aðgang til sinna viðskiptavina. Óþörf uppbygging Að sögn Sævars býður Gagnaveit- an ekki neina þjónustu í dag sem einkaaðilar bjóða ekki. „Þarna er í raun óþörf uppbygging á kostnað borgaranna,“ segir hann. Að sögn Sævars eru líklega tólf milljarðar króna farnir í uppbyggingu á Gagna- veitunni, en fyrirtækið hefur náð að tengja rúmlega 26 þúsund heimili. Sævar segir að fyrir 500 milljónir króna geti Síminn tengt fjörutíu þús- und heimili með allt að 100 Mb hraða á sekúndu. Ljósleiðaraþráður Gagnaveitunnar getur flutt allt að 10 Gb á sekúndu, en ýmsir mismunandi staðlar ná yfir gagnaflutninga yfir ljósleiðara. Flutn- Segir Gagnaveitu „sóun á almannafé“ Guðlaugur Gylfi Sverrisson Sævar Freyr Þráinsson Birgir Rafn Þráinsson Eftir Björgvin Guðmundsson bjorgvin@mbl.is FJÁRFESTINGAR íslenska vogun- arsjóðsins Boreas Capital Fund hafa skilað 70 prósent ávöxtun það sem af er þessu ári. Í júlí var ávöxtunin 17,95, sem var besti mánuður sjóðsins frá upphafi, og 12,16% í ágúst. Boreas Capital Fund var nýlega skráður í vísitölu norrænna vogunar- sjóða, The Nordic Hedge Fund In- dex. Við uppfærðan lista lítur út fyrir að Boreas Capital hafi náð bestum ár- angri þeirra 125 sjóða sem skráðir eru á listann á árinu 2009. Vísitalan sem telur alla sjóðina hefur hækkað um 9,97% á árinu. Frank Pitt, einn stjórnenda sjóðs- ins, segir ekki annað hægt en að vera ánægður með þennan samanburð með svona mikla umframávöxtun í samanburði við 125 sjóði á Norður- löndunum. „Að geta farið á móti markaðnum eins og fara með honum gefur tækifæri á að fá góða ávöxtun í hvaða árferði sem er, svo lengi sem við ákveðum rétta stefnu í hvert skipti.“ Frank segir fjárfestingagetu sjóðs- ins vera um átta milljarða króna. Í kjölfar hrunsins á Íslandi þurfti að greiða stórum kjölfestufjárfestum, eins og Landsbankanum og Straumi, út. Því sé nú lokið og stefnt að því að stækka sjóðinn enn meir. Þeir horfi meðal annars til íslenskra lífeyris- sjóða sem geti fært fé, sem þeir þegar eiga í útlöndum, til sjóðsins. Eins sé til skoðunar að fá erlenda fjárfesta inn. „Það er ánægjulegt að tveir lífeyr- issjóðir með sextíu þúsund sjóðs- félaga hafa verið fjárfestar í sjóðnum frá byrjun. Við vonumst bara til að góður árangur sjóðsins geri það að verkum að fleiri lífeyrissjóðir setji eignir til okkar og gefi okkur tækifæri til að vinna í hag fleiri hluthafa,“ segir Frank. Hann telur miður hvernig íslenskir fjölmiðlar og jafnvel fræðimenn hafi talað um vogunarsjóði (Hedge Funds á ensku) og yfirleitt kallað þá áhættu- sjóði og gefið í skyn að þeir stundi ósiðleg viðskipti. „Þetta er röng alhæfing. Heimildir vogunarsjóða til að taka skortstöður gera þeim kleift að vera síður háðir sveiflum hlutabréfavísitalna,“ segir Frank. Efstur á lista vogunarsjóða Boreas Capital Fund skráður í vísitölu 125 norrænna vogunarsjóða Í HNOTSKURN »Boreas Capital Fund ermeð allar sínar fjárfest- ingar í evrum og utan Íslands. »Sjóðurinn leitar tækifæraá Norðurlöndum en horfir líka til Evrópu og BNA. »Nú er mikill hluti fjárfest-inga sjóðsins í Noregi enda veðja stjórnendur Boreas á styrkingu norsku krónunnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.