Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 16
16 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Viltu hætta að reykja?
Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur um árabil haldið námskeið fyrir
einstaklinga eða hópa sem vilja hætta að reykja.
Næsta námskeið hefst mánudaginn 21. september 2009.
Hægt er að skrá sig í síma 540 1900 eða á netfangið reykleysi@krabb.is
Nánari upplýsingar á www.krabb.is/reykleysi
Eftir Svein
Sigurðsson
svs@mbl.is
JENS Stolten-
berg forsætisráð-
herra og Verka-
mannaflokkurinn
eru óumdeildir
sigurvegarar
þingkosninganna
í Noregi. Í þeim hélt hin rauð-græna
ríkisstjórn þriggja flokka, Verka-
mannaflokksins, Sósíalíska vinstri-
flokksins og Miðflokksins, velli með
þriggja sæta meirihluta, 86 þing-
menn gegn 83 borgaraflokkanna.
Hægriflokkurinn jók einnig fylgi
sitt verulega og Framfaraflokkurinn
bætti aðeins við sig frá síðustu kosn-
ingum.
Talið er, að nokkrir dagar hið
minnsta muni líða þar til ný ríkis-
stjórn sömu flokka tekur formlega
við, Soria Moria II, en fráfarandi
stjórn var kölluð Soria Moria eftir
kunnu, norsku ævintýri. Búast fæst-
ir við miklum breytingum á ráð-
herraliðinu þótt töluverð breyting
hafi orðið á styrkleikahlutfalli ríkis-
stjórnarflokkanna innbyrðis.
Ólga og ágreiningur innan SV
Þótt SV fagni því, að stjórnin
skuli halda velli er niðurstaða kosn-
inganna mikil vonbrigði fyrir flokk-
inn. Tapaði hann miklu, fjórum
þingmönnum, og er nú með 11 eins
og Miðflokkurinn, sem hélt að
mestu sínu. Er því spáð, að heitar
umræður verði innan SV á næstu
dögum og vikum um útkomuna og
stöðu flokksins og mikill áhrifamað-
ur innan hans, Rolf Reikvam, sem
lætur nú af þingmennsku eftir 12 ár,
vill, að flokkurinn hætti stjórnar-
samstarfinu. Segir hann, að kjós-
endur hafi einfaldlega hafnað helstu
stefnumálum hans í þessum kosn-
ingum, mildari afstöðu til hælisleit-
enda og brottflutningi norskra her-
manna frá Afganistan.
Þrátt fyrir fylgistapið er ekki tal-
ið, að staða Kristínar Halvorsen sem
flokksformanns sé í hættu en búist
er við aukinni kröfu um, að Audun
Lysbakken fái ráðherraembætti.
Líta margir á hann sem eftirmann
Halvorsen þegar þar að kemur en
hann tilheyrir vinstriarminum í SV.
Auk Verkamannaflokksins er
hinn sigurvegari kosninganna
Hægriflokkurinn og leiðtogi hans,
Erna Solberg. Bætti hann við sig
átta þingsætum og hefur nú að
nokkru leyti endurheimt sinn fyrri
styrk. Siv Jensen, leiðtogi Fram-
faraflokksins, er líka ánægð með ár-
angurinn, sem er sá besti frá upp-
hafi, en samt er ljóst, að flokkurinn,
sem stundum hefur mælst sá
stærsti í könnunum, tapaði kosn-
ingabaráttunni og slagnum um nýja
kjósendur.
Afdrifaríkt afhroð Venstre
Af borgaraflokkunum tapaði
Venstre langmestu. Fór fylgi hans
úr 5,9% í 3,8% eða undir 4%-mörkin,
sem geta skilið á milli feigs og
ófeigs. Það þýddi, að flokkurinn
fékk engan af uppbótarþingmönn-
unum 19. Hann missti átta þing-
menn og fékk aðeins tvo. Hefur
Lars Sponheim, leiðtogi flokksins,
ákveðið að segja af sér. Telja sumir
stjórnmálaskýrendur, að Venstre sé
jafnvel búinn að vera og ýmsir setja
líka spurningarmerki við framtíð
SV.
Þetta afhroð Venstre var af-
drifaríkt fyrir borgaraflokkana, sem
raunar virðast hafa fengið heldur
fleiri atkvæði en stjórnarflokkarnir.
Hefði Venstre fengið þau 0,2%, sem
vantaði upp 4%-mörkin, hefðu borg-
araflokkarnir fengið þingmeirihluta.
Miðjufylgið á flótta
Sigurvegarar í kosningunum í
Noregi voru stóru flokkarnir þrír,
Verkamannaflokkurinn, Framfara-
flokkurinn og Hægriflokkurinn.
Aðrir töpuðu fylgi. Vandi borg-
araflokkanna er sá, að þeir geta ekki
komið sér saman um stjórn með
Framfaraflokknum. Hægriflokk-
urinn ljær að vísu máls á samstarfi
við hann en Kristilegi þjóðarflokk-
urinn og Venstre taka það ekki í
mál. Framfaraflokkurinn og stefna
hans eru mjög umdeild og upp-
gangur hans hefur orðið til þess að
ýta miðjufylginu yfir á Verka-
mannaflokkinn og Hægriflokkinn.
Í viðbrögðum í Danmörku og Sví-
þjóð við úrslitunum í Noregi er
þetta líka eitt stefið: Að Framfara-
flokkurinn sé orðinn það stór, að af-
staðan til hans sé farin að hafa veru-
leg áhrif á norsku
stjórnmálaflóruna.
Úrslit kosninganna voru
sigur fyrir stóru flokkana
Norska ríkisstjórnin hélt velli en ólga
er innan SV vegna mikils fylgistaps
Reuters
Sigurgleði Jens Stoltenberg forsætisráðherra og mesti sigurvegari kosninganna fagnar úrslitunum á kosningavöku í Ósló.
Samsteypustjórn Jens Stoltenbergs heldur velli eftir harða
kosningabaráttu undanfarnar vikur. Verkamannaflokkurinn vann
góðan sigur í kosningunum, Hægriflokkurinn jók fylgi sitt
verulega og Framfaraflokkurinn bætti aðeins við sig.
NIÐURSTÖÐUR NORSKU ÞINGKOSNINGANNA
Heimild: regjeringen.no *engin fylgisbreyting
Sósíal. vinstriflokkurinn
(- 4)
Framfara-
flokkurinn
(+ 3)
Verkamanna-
flokkurinn
(+ 3)
Miðflokkurinn *
Vinstriflokkurinn (- 8)
Hægriflokkurinn (+ 7)
Kristilegi
þjóðarflokkurinn (-1)
20052009
64
11 11 10
2
30
41
Skipting sæta (169) er 99,9% atkvæða höfðu verið talin.
Siv Jensen Kristin HalvorsenErna Solberg
Næststærsti flokkurinn í Nor-
egi er sá, sem hafði ekki fyrir
því að fara á kjörstað og greiða
atkvæði, heil 26% og rúmlega
það því að kjörsóknin var ekki
nema 73,7%.
Samkvæmt þessu er það að-
eins Verkamannaflokkurinn
með sín 35,4%, sem er stærri
en flokkurinn, sem lét sig þing-
kosningarnar engu varða. Í
þriðja sæti er síðan Framfara-
flokkurinn með 22,9%.
Í þingkosningunum 2001 var
kjörsóknin 75,5% og 77,4%
2005 en nú er hún sú minnsta
frá 1927. Þá var hún 68,1%.
Þessar tölur eiga við um
kosningar til Stórþingsins en í
sveitarstjórnarkosningum og í
kosningum til fylkisþinganna er
kjörsóknin minni og oft miklu
minni. Í sveitarstjórnar-
kosningunum 2007 var kjör-
sóknin aðeins 61,2% og 57,4% í
fylkisþingskosningunum.
Mesta kjörsókn í þingkosn-
ingum var árið 1965, 85,4%, og
næstmest 1985, 84%. Í þjóðar-
atkvæðagreiðslunni um Evr-
ópusambandsaðild 1994 var
kjörsóknin hins vegar 88,6%.
Lítil kjörsókn veldur áhyggj-
um en margir segja skýringuna
þá, að engin raunveruleg átaka-
mál séu uppi nema kannski af-
staðan til hælisleitenda.
Mjög lítil kjörsókn
BARÁTTA stjórnvalda í mörgum
Evrópuríkjum gegn reykingum
harðnar stöðugt en Svíar, sem eru
forystuþjóð Evrópusambandsins
þetta misserið, vilja að aflétt verði
banni við snúsi, þ.e. fíngerðu munn-
tóbaki, í sambandinu. Er Svíar
gengu í ESB fengu þeir undanþágu
frá banninu en snús hefur lengi verið
afar vinsælt í landinu.
Snúsi er komið fyrir undir tung-
unni, það er dálítið rakt og skilur eft-
ir sig keim af salti og kryddi en nikó-
tínáhrifin berast hratt út í
blóðrásina. Sala á sígarettum hefur
minnkað um 50% í Svíþjóð und-
anfarin 30 ár en
sala á snúsi jókst
úr 2.500 tonnum
árlega á áttunda
áratugnum í nær
7.500 tonn árið
2008. Efnið er
einnig vinsælt í
Noregi, fram
kemur í frétt
AFP að um 400.000 manns noti
reglulega snús þar í landi. Notendur
eru um 100.000 í Finnlandi og fara
Finnar til Svíþjóðar til að birgja sig
upp. Stærsta snúsframleiðslufyr-
irtæki Svía, Swedish Match, seldi
snús fyrir sem svarar 965 milljónum
dollara eða liðlega 125 milljarða ísl.
kr. árið 2008.
kjon@mbl.is
Svíar vilja leyfa snús
í Evrópusambandinu
Milljarðavelta í
framleiðslunni