Morgunblaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 17
Fréttir 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eft-
irtalinna gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi
innan 40 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds sem fallið hefur í eindaga til
og með 15. september 2009, virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 7. sept-
ember 2009 og önnur gjaldfallin álögð gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til
og með 15. september 2009, á staðgreiðslu tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds, virðis-
aukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, vanskilum launagreiðenda á gjöldum í og utan stað-
greiðslu, fjármagnstekjuskatti á skilaskylda aðila, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úr-
vinnslugjaldi, olíugjaldi, kílómetragjaldi, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri
tímabila, skráningargjaldi vegna lögskráningar sjómanna, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af
innlendri framleiðslu, vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum, skila-
gjaldi á umbúðir, fasteignagjöldum, skipulagsgjaldi, skipagjöldum, fisksjúkdómagjaldi, jarð-
arafgjaldi, sektum skattrannsóknarstjóra, ofgreiddri uppbót á eftirlaun og álögðum þing- og
sveitarsjóðsgjöldum, sem eru:
Tekjuskattur og útsvar ásamt verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og útsvar, sérstakur tekju-
skattur manna, eignarskattur, sérstakur eignarskattur, fjármagnstekjuskattur, slysatrygg-
ingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, búnaðargjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðar-
málagjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og skattur af verslunar- og
skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur og ofgreiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftir-
stöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar
kann að leiða, á kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir
gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 12.700 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingar-
gjald er 1.350 kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvik-
um. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, af-
dreginn fjármagnstekjuskatt, áfengisgjald og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra
verði stöðvuð án frekari fyrirvara, þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt mega
eiga von á að skráningarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara og þeir
gjaldendur sem skulda gjöld þar sem lögveð fylgir mega búast við að send verði út sérstök
greiðsluáskorun fyrir gjaldföllnum kröfum. Greiðsluáskorunin hefur ekki áhrif á þessi inn-
heimtuúrræði þannig að fyrrgreindur 40 daga frestur frá dagsetningu áskorunar þessarar gild-
ir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 16. september 2009.
Tollstjóri
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í
Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
ÁR er liðið frá falli bandaríska bankans Lehman Brothers og í tilefni af því
efndu nokkrir smáir fjárfestar, sem töpuðu fé sínu í gjaldþrotinu, til uppá-
komu í Berlín. Er einn þeirra í líki fórnarlambsins en að honum þjarma síð-
an tveir „ráðgjafar“ Citibank og Dresdner Bank en þeir eru sakaðir um að
hafa vitað af en þagað um bágt ástand Lehman Brothers. Á borðanum
stendur: „Treystið engum banka. Þeir uppræta sparnaðinn. Bankaráðgjöf
– svikaráðgjöf.“ svs@mbl.is
Reuters
FÓRNARLAMB LEHMAN
HÓPUR breskra og bandarískra vísindamanna, sem
rannsakað hafa forn setlög í Afríku, telur sig hafa upp-
götvað bein tengsl á milli ísmyndunar á heimskautunum
og minna koltvísýringsinnihalds í andrúmslofti fyrir 34
milljónum ára. Er uppgötvunin í góðu samræmi við
tölvulíkön, sem segja fyrir um myndun ísskjaldanna þeg-
ar koltvísýringurinn, CO2, minnkar og um bráðnun
þeirra þegar hann eykst.
Fyrir 34 milljónum ára minnkaði CO2 í andrúmslofti
mjög skyndilega og er sá atburður kenndur við jarð-
söguskeiðið og kallaður eósen-óligósen-loftslagsbreyt-
ingin.
Mesta loftslagsbreyting frá tíma risaeðlnanna
„Loftslagsbreytingin var sú mesta frá því risaeðlurnar
liðu undir lok fyrir 65 milljónum ára,“ sagði Bridget
Wade við Texas A&M University en vísindamennirnir
unnu við rannsóknir sínar í Tansaníu. Paul Pearson við
háskólann í Cardiff sagði að ekki væru til nein sýnishorn
af andúmsloftinu fyrir 34 millj. ára og því hefði orðið að
leita að einhverju öðru, sem sýndi CO2-innihaldið á þess-
um tíma. Þar hefðu setlögin komið til sögunnar en af
þeim má ráða, að fyrir loftslagsbreytinguna og myndun
heimskautaíssins, einkum á suðurskautinu, hafi CO2-
innihaldið verið 750 hlutar af milljón eða helmingi meira
en það er nú.
Í setlögunum í Tansaníu er að finna steingerðar ör-
veruleifar og af þeim má ráða hvert sýrustigið í sjónum
var fyrir 34 milljónum ára en sjórinn gleypir í sig mikið af
koltvísýringi. Frá þessu segja vísindamennirnir í grein í
vísindatímaritinu Nature en Pearson telur, að bráðnun
heimskautaíssins hefjist fyrir alvöru þegar CO2 verður
komið í 900 hluta af millj. síðar á þessari öld. svs@mbl.is
Minna CO2-innihald olli
myndun heimskautaíssins
Suðurskautslandið Koltvísýringsmengunin hrundi fyrir
34 milljónum ára og þá myndaðist heimskautaísinn.
Bráðnunin gæti hafist fyrir alvöru síðar á þessari öld
KÚBVERJAR kljást við mörg erfið
vandamál, efnahagsástandið er afar
slæmt, erfiðlega gengur að tryggja
nægilega framleiðslu á mat og dreif-
ingu á honum. Nú hefur hinn 78 ára
gamli leiðtogi landsins, Raul Castro,
skipað kommúnistahópum í skólum,
á vinnustöðum og í borgarhverfum
að leggja fram tillögur að lausn á
vandamálum eins og spillingu og lít-
illi framleiðni.
Hóparnir munu halda fund 15.
október og eiga þar að segja skoðun
sína á því hvernig hægt sé að hleypa
nýjum krafti í eina kommúnistaríkið
á vesturhveli jarðar.
Ekki stendur þó til að setja spurn-
ingarmerki við sjálft flokkseinræðið
sem nú hefur staðið yfir í 60 ár og
stjórnarandstöðuhópar verða ekki
spurðir álits. En stjórnvöld eru þó
sögð leggja sig fram um að ýta nokk-
uð undir gagnrýni en skilyrðið er að
þeir sem beri hana á borð lýsi að
öðru leyti fullum stuðningi við
kommúnistaflokkinn.
Fjölmiðlarnir hafa ekki enn skýrt
frá skipun forsetans en tíðindin ber-
ast nú manna á milli í landinu. Svip-
uð skipun forsetans fyrir tveim árum
virtist engin áhrif hafa á stöðu mála
og því eru margir vondaufir um ár-
angur að þessu sinni. En ekki allir.
„Fólk ræðir málin, menn hafa ekki
verið hræddir að undanförnu og
núna er þetta öðruvísi af því að
fjallað er um mál sem snerta nánasta
umhverfi hvers og eins,“ segir
flokksfélagi sem hefur tekið þátt í
umræðum hópanna. kjon@mbl.is
Kúbuforseti heimtar
umbótatillögur
MÖRG þekkt fjölskyldufyrirtæki á
Ítalíu, ekki síst tískuvörufyrirtæki
eins og Armani, Zegna og Furla,
hafa staðist vel áföllin í alþjóðlegu
fjármálakreppunni. Er ástæðan m.a.
sögð vera sú að ráðamenn þeirra
hafi á sínum tíma staðist þá freist-
ingu að afla sér fjár til útþenslu með
skráningu á markaði.
„Þau hafa vaxið hægt og rólega,
þau hafa ekki keypt upp of mörg fyr-
irtæki og halda sig oft fjarri hluta-
bréfamarkaði til að hafa öruggari
stjórn á eigin málum,“ segir Stefania
Saviolo, prófessor í hagfræði við
Bocconi-háskóla í Mílanó.
Furla er þekkt fyrir handtöskur
og er mjög sterkt í framleiðslu á
dýrum gæðatöskum. Það var stofnað
1927 og stjórn-
arformaður þess
er Giovanna
Furlanetto, dóttir
stofnandans.
„Faðir minn
kenndi mér auð-
mýkt, virðingu,
að vera ekki
hrokafull,“ segir
hún; þessi gildi minni á hugs-
unarhátt trúarleiðtogans Kalvíns.
Armando Branchini, sem fer fyrir
sjóði stórra fyrirtækja í mun-
aðarvöru- og tískugeiranum, segir
fjölskyldufyrirtæki geta haft marga
kosti. Eigendurnir herði oft mittisól-
ina þegar illa ári og vinni jafnvel
kauplaust. kjon@mbl.is
„Faðir minn kenndi
mér auðmýkt“