Morgunblaðið - 16.09.2009, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 16.09.2009, Qupperneq 18
Girnileg Hún er jafnt falleg að innan sem utan þessi glæsilega kaka. Og gómsæt á bragðið! Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur vala@simenntun.is E f þig vantar hugmyndir fyrir afmælisveislu, boðskort, uppskriftir, leiki, já eða annað sem tengist veislu- haldi, þá veita mömmurnar svörin. Systurnar Hjördís Dögg og Tinna Ósk Grímarsdætur ásamt móður sinni Petrúnu Berglindi Sveins- dóttur á Akranesi standa að vefnum www.mommur.is, en þar er einmitt allt þetta að finna. Mömmurnar opnuðu síðuna um miðjan nóvember 2008, og höfðu þá unnið allt sumarið áður að vefnum. En hvernig varð þessi vefur til og hvers vegna? Sagan byrjar í raun á Barnalandi þar sem Hjördís var með síðu fyrir syni sína. Á síðunni deildi hún myndum af kökum. Við- brögðin létu ekki á sér standa. Hjördís segir að eftir árið hafi þær systurnar fengið hugmynd um að gera eitthvað meira úr þessu af- mælisþema og gefa út bækling. Tinna, sem er menntaður graf- ískur hönnuður, tók að sér hönn- unina en í ljós kom að slík útgáfa yrði mjög kostnaðarsöm. „Þá datt okkur í hug að setja upp vef og eyddum við sumrinu í að vinna efni inn á vefinn. Það fór einnig mikill tími í að finna hvaða nafn við ætl- uðum að nota fyrir vefinn en við vildum nafn sem gæti höfðað til sem flestra,“ segir Tinna. Fáum stundum álit hjá pabba Vefurinn á að höfða til sem flestra, ekki bara metnaðarfullra mæðra heldur til allra sem vilja gera hlutina sjálfir. ,,Pabbarnir eru farnir að fara inn á vefinn okkar líka,“ segir Petrún. „Við höfum fengið það staðfest.“ Þær segja vinnuna á bak við vef- inn gífurlega mikla. Tinna er hönn- unarmeistarinn þegar kemur að vefnum, kortunum og slíku en þær Petrún og Hjördís eru kökumeist- ararnir og sjá um allan texta. „Verkaskiptingin er skýr,“ segir Hjördís. „Við mamma bökum og Tinna er með vefinn. Ég hanna kök- una, á meðan gerir mamma kremið og samvinnan er frábær. Við köllum á Tinnu til að fá athugasemdir og svo fáum við stundum álit hjá pabba, hann er góður að benda okk- ur á hlutföll og halla og ef eitthvað vantar á bílakökurnar.“ Á síðunni er fjöldi uppskrifta, allt frá kökum til léttra rétta. Krakka muffins Þessi uppskrift hefur þótt rosa góð. 2 1/2 bolli hveiti 2 bollar sykur 125 g brætt smjörlíki 3 egg 1/2 tsk. matarsódi 1/2 tsk. salt 1 tsk. vanilludropar 1 dós jógúrt (best að setja til helminga jarðarberjajógúrt og karamellujógúrt) 1 bolli brytjað súkkulaði Aðferð: Allt hrært saman. Látið í pappírsform. Bak- að í u.þ.b. 15 mín. við 200°C. Þrátt fyrir margar fyr- irspurnir segjast þær ekki hafa tekið að sér að baka kökur fyrir fólk en vinir og ættingjar hafa þó fengið að njóta þess. „Með því fáum við meira efni inn á vefinn. Það væri gaman að geta bakað fyrir fleiri en það verður vonandi seinna,“ segja mæðgurnar. Þær segja áhugann á bakstri kennari í Grundaskóla, segir að í skólanum hafi alltaf verið lögð mikil áhersla á heimilisfræði sem hafi skilað sér í auknum áhuga á bakstri. Hún hefur vakið áhuga á bakstri meðal nemenda sinna og þeir hafa bakað fyrir bekkjarfélagana á hátíðlegum stundum. Þegar vefurinn var kominn á netið sáu þær fram á að hann byði upp á miklu fleira, hann gæti orðið nokkurs kon- ar veisluvefur sem gagnaðist í alls konar veislum. „Við getum tengt at- burði við boðskort, tækifæriskort, jólakort, og nú erum við komnar með góða prentara og prentum allt hér,“ segir Tinna. Vefurinn rekinn á hugsjóninni Á næstu dögum verður opnuð vefverslun á www.mommur.is þar sem kortin verða seld. „Draum- urinn er að koma á fót samvinnu við aðra og hafa auglýsingar á síðunni, við erum líka að sýna skreytingar og þetta hefur auðvitað kostað okk- ur ógrynni fjár. Þess vegna væri það vel þegið að fá styrki, auglýs- ingar eða komast í samstarf. Við fáum fjölmargar fyrirspurnir og svörum öllum, en það er oft spurt um hvar hægt sé að kaupa þetta eða hitt, og um leið og við svörum því, hefur ákveðið fyrirtæki eða verslun fengið auglýsingu,“ segir Hjördís. Þær segja umferðina á vefsíðunni mjög mikla, að meðaltali eru heim- sóknir á bilinu 3-500 á dag og stundum hafa þær farið upp í 1.200. „Þetta þykir gott fyrir síðu sem hefur ekkert hefur verið auglýst.“ Svo er auðvitað draumurinn að koma síðunni yfir á ensku og verða alþjóðleg. „Við höfum rekið þetta á hugsjóninni en margt hefur gerst á einu ári. Við vildum gjarnan hafa atvinnu af þessu og höfum tvisvar sótt um styrk í Atvinnumál kvenna án árangurs,“ segja mæðgurnar. Tinna missti vinnuna fyrr á árinu og í framhaldinu fékk hún styrk í sex mánuði frá Vinnumálastofnun til að þróa viðskiptahugmynd á mommur.is. Sá styrkur hefur hjálp- að til við þróun vefsins. „Við höfum haft trú á þessu frá upphafi, við er- um vissar um að vefurinn á eftir að leiða af sér eitthvað meira. Við er- um líka mjög ánægðar þegar við fréttum af því að notendur momm- ur.is séu að nota hugmyndirnar okkar og við erum vissar um að sal- an á sykurpúðum hefur aukist en þeir eru einmitt uppistaðan í syk- urmassanum sem hylur kökurnar.“ Mömmurnar slá í gegn á netinu Morgunblaðið/Guðrún Vala Mömmur.is F.v. Hjördís Dögg, Tinna Ósk og Petrún Berglind ásamt sýnishornum af vinnunni. 18 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 FRYSTING er hentug leið til að geyma afganga, uppskeru úr berja- mó eða elda í stórum stíl og eiga til- búna rétti í frystinum að grípa til. Ef til stendur að taka slátur í haust er góður frystir nauðsynlegur. Flest matvæli er hægt að frysta en und- antekningar eru m.a. kál, egg í skel, majónes og feitar sósur. Flest græn- meti þarf að forsjóða áður en það er fryst. Frystið aðeins ný og fersk mat- væli. Ef vara sem komin er að síð- asta neysludegi er sett í frysti er geymsluþol hennar búið þegar hún er tekin úr frysti og gæði og öryggi eftir því. Gamalt brauð sem er sett í frysti er ennþá gamalt þegar það er tekið út. Merkið allt sem fer í fryst- inn með vöruheiti og dagsetningu. Helstu óvinir frosna matarins eru lélegar umbúðir og hitasveiflur í frystinum. Notið þar til gerða frystipoka eða ílát sem merkt eru þannig að þau þoli frost. Einnig er hægt að endur- nýta umbúðir undan frystivöru, t.d. ís. Pakkið vörunni í hæfilegar ein- ingar í eina máltíð og lofttæmið um- búðirnar eins og hægt er. Reynið að hafa einingarnar frekar flatar svo frostið nái fljótt inn að kjarna, þá tekur uppþíðing líka styttri tíma. Ef í frystinum þínum er hraðfrystihilla eða -hólf skaltu endilega nota það. Ef frostið helst stöðugt undir -18°C geymist matur lengi í frysti. Miklar hitasveiflur valda hrím- myndun innan á frystinum og einnig myndast stórir ískristallar í matnum sem hafa slæm áhrif á gæði hans. Eldaður matur eins og pottréttir og lasagna geymist vel í 3-4 mánuði við -18°C. Gott er að frysta ber í einföldu lagi á smjörpappír á bakka. Þegar þau eru frosin í gegn er þeim hellt í annað ílát. Þannig er komið í veg fyrir að þau frjósi í klump og auð- velt er að fá sér eina skeið út á skyr eða ís. Þetta er líka gott að gera við litlar fisk- eða kjötbollur. Skerið brauð í sneiðar áður en það er fryst, þá er handhægt að taka út þann fjölda sneiða sem nota á og afþíða í brauðrist. Sama á við um brauðbollur og beyglur. Notið plast eða smjörpappír til að aðskilja t.d. kjötsneiðar. Þá er auð- veldara að ná þeim í sundur og þíða. Örugg matvæli – allra hagur! Nýtum frystinn betur Morgunblaðið/Sverrir Ber Ekki er sama hvernig ber og grænmeti er fryst. Ingibjörg Jónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun. klárlega koma frá móður sinni. „Við þekktum marga sem áttu mörg börn og því var aldrei fámennt í afmælisboðunum hjá okkur.“ Hjör- dís, sem áður var nemandi en núna www.mommur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.