Morgunblaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 19
Daglegt líf 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Sameining sveitarfélaga á Snæfellsnesi er aftur
komin í umræðu eftir að bæjarstjórn Grund-
arfjarðarbæjar samþykkti samhljóða þann 10.
september sl. að óska eftir viðræðum við sveit-
arfélög á Snæfellsnesi um sameiningu sveitarfé-
laganna. Í greinargerðinni kemur fram að breytt-
ar aðstæður í samfélaginu ýta á eftir
sveitarstjórnarmönnum að leita leiða til þess að
ná sem mestri hagkvæmni í rekstrinum en það
hefur einnig sýnt sig að samstarf milli sveitarfé-
laganna um einstaka málaflokka eins og rekstur
Skólaskrifstofu Snæfellinga hefur tekist vel svo
það ætti að gefa tóninn fyrir umræðu um samein-
ingu.
Ferðamenn hafa aldrei verið fleiri í Grundarfirði
en í sumar, í Sögumiðstöðina komu yfir tíu þúsund
gestir, tjaldsvæðin voru þétt setin allar helgar
bæði þau sem einkaaðilar reka í næsta nágrenni
við Grundarfjörð sem og tjaldsvæðið inni í kaup-
túninu en rekstur þess var leigður út í fyrsta sinn í
sumar. Á Hótel Framnesi var nær 100% nýting
gistirýma sumarmánuðina þrjá og enn er þar góð
nýting fram á haustið. Farfuglaheimilið var sömu-
leiðis fullbókað í allt sumar og þar hefur verið
mjög mikil aðsókn yfir vetrarmánuðina líka. Í
matvöruverslun Samkaupa hefur verið mikil ör-
tröð ferðamanna í sumar og eftir því tekið hversu
mikið fer af íslenskri unninni mjólkurvöru. Aðrar
verslanir hafa líka notið góðs af þessari fjölgun en
topparnir hafa verið í ferðamennskunni þegar
skemmtiferðaskipin hafa lagt hingað leið sína og
ferðalangarnir hafa spókað sig um götur Grund-
arfjarðar og notið skipulagðrar leiðsagnar og
hlýtt á móttökusveit grundfirskra ungmenna
flytja íslenska tónlist. Óli Ólason, veitingamaður í
Kaffi Emil í Sögumiðstöð, segir það eftirtekt-
arvert hve fólk sem þar kom við hafi verið glatt og
ánægt og varla átt orð til að lýsa hrifingu sinni á
snyrtilegum bæ og fallegu umhverfi.
þeim bæjum sem næstir standa smalalöndunum
sem skiptast í þrjá hluta. Það eru ekki mörg
hundruð fjár sem sótt eru í sumarlöndin og nokk-
uð annar bragur en hjá þeim sem fara um heið-
arlönd í margra daga göngur með tilheyrandi
samfélagi og söng í fjallaskálum í lok hvers dags.
Bryggjulífið er gengið í endurnýjun lífdaga eftir
að nýtt kvótaár rann upp um síðustu mánaðamót,
skipin sækja á miðin og færa afla að landi og fisk-
vinnslurnar eru komnar á fullt skrið á ný eftir
sumarfrí en þar vantar þó enn fólk til starfa, sér-
staklega hefur verið auglýst eftir fólki í salt-
fiskvinnlu og vinnslu á sæbjúgum. Við höfnina er
búið að ljúka við frágang á vandlega hlöðnum
öldubrjóti og koma fyrir festingum fyrir flot-
bryggju fyrir ferðalanga á skemmtiferðaskipum
sem leggja munu leið sína hingað á næsta sumri
en þeirri framkvæmd tókst ekki að ljúka í sumar
eins og til stóð.
Veðrið átti líka sinn þátt í að taka vel á móti ferða-
mönnum og gera þá ánægða og upplitsdjarfa því
varla féll regndropi úr lofti í allt sumar og þá var
vindhraði ekki heldur að plaga menn. Til er saga
af aldinni kempu hér í bæ sem hafði það gjarnan á
orði þegar veður hafði verið einstaklega gott í
samfelldan tíma að þetta ætti nú eftir að hefna sín
og er ekki örgrannt um að sumir hugsi til orða
hans nú þegar sunnanrok og rigning hefur lamið á
Grundfirðingum í nokkra daga samfellt en þó
segjast aðrir frekar vilja hafa gott sumar og taka
blautviðrinu með stillingu.
Göngur og réttir standa nú yfir um land allt en í
sveitinni sem umlykur Grundarfjörð er orðið fátt
um fé og nokkur ár síðan hætt var að reka til rétt-
ar í Grundarrétt, hlaðna steinrétt sem varð 100
ára á síðasta ári og stendur innst á Grundarbotni.
Þess í stað er nú fjalllendið smalað og rekið inn á
Morgunblaðið/Gunnar Kristjánsson
Skip Queen Victoria var meðal þeirra skemmtiferðaskipa sem heimsóttu Grundarfjörð í sumar.
GRUNDARFJÖRÐUR
Gunnar Kristjánsson fréttaritari
Hörður Þorleifsson varð á vegiMammons og orti vísu af því
tilefni, en geymdi þessa til betri
tíma:
Mammon var hér með í ferð
mikil virðing fokin.
Dularklæðin dável gerð
duttu af í lokin.
Rúnar Kristjánsson veltir
útrásarmálum fyrir sér:
Í myndum daganna er margt að sjá
sem mælist við skilin þungu.
Því margir hlupu nú fljótt því frá
sem fyrr lá þeim sætt á tungu.
Og í framhaldi af því:
Sem jólasveinninn á stökki um stromp
með stóreflis bros á fésinu,
var útrásargreifanna „gullna tromp“,
Glókollurinn á Nesinu!
Jónas Frímannsson yrkir um
útreiðartúr Ólafs Ragnars
Grímssonar forseta:
Stefnir nú í þjóðar þrot,
en það er vandinn mesti,
að Ólafur hlaut axlarbrot,
er hann datt af hesti.
Ingólfur Ómar Ármannsson
sendir haustvísu á torg:
Falla lauf og fölna blóm,
föl á brá er jörðin,
norðangjóstur nöprum róm
nístir gróðursvörðinn.
VÍSNAHORN pebl@mbl.is
Af útrás
og hausti