Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 25

Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 25
Umræðan 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 ÞAÐ AÐ hafa áhyggjur heimsins á herðum sér eru mikl- ar byrðar og það er hverjum manni hollt að varpa þeim af sér og njóta hvers augna- bliks með kærleika í brjósti og góðvild í garð sérhvers manns, burtséð frá því hvaða stjórnmálaskoðanir eða trúarbrögð maðurinn hefur. Því eins og maðurinn sagði „Þótt ég talaði tungum manna og engla, en hefði ekki kærleika, væri ég hljóm- andi málmur eða hvellandi bjalla“. Hvernig samfélagi viljum við lifa í? Svarið við þessari spurningu er ekki einfalt, en flest erum við sam- mála um það að einfaldar og sann- gjarnar leikreglur hjálpi til þess að sátt ríki á milli manna. Skoðanaskipti milli fólks er eðli- legur þáttur í samskiptum manna á milli og vissulega er það ekki alltaf kærleikurinn sem ræður ríkjum. Nokkuð hefur borið á því að fjöl- miðlar móti umræðu og skoðanir fólks. Ekkert er að því að fjölmiðlar séu sterkir ef rætur umræðunnar eru heilbrigðar. faglegar og sprottnar af hugmyndum fólks sem hefur mótast og þroskast af þekk- ingu og innsæi. Það getur þá kall- ast skapandi umræða og getur ver- ið ljómandi skemmtileg og gefandi. Þetta á við umræðu sem er sprottin af lífinu sjálfu eins og listin. Það er oft styttra á milli stjórnmála og lista en menn ætla við fyrstu sýn. Undanfarin ár hefur ný tegund umræðu komið fram, svokölluð samræðu- eða umræðupólitík. Þetta er varasöm grein sem má ekki ná yfirhöndinni í samskiptum fólks á milli og er sérstaklega hættuleg þegar stjórnmálaflokkur sérhæfir sig í henni með hjálp fjöl- miðla sem svífast einskis vegna hagsmunatengsla. og einok- unartilburða. Afar vont var að fjölmiðlalögin náðu ekki fram að ganga þegar þau voru samþykkt á Alþingi en stöðv- uð af forseta Íslands sem neitaði að skrifa undir þau. Síðan hefur þróast óheilbrigt fjölmiðlaumhverfi sem virðist grímulaust nýtt af Samfylkingunni og VG í skjóli auð- manna auk valinkunnra auðmanna. Þegar málið er skoð- að lítur helst út fyrir að Samfylkingin hafi alist upp í hreiðri nýrrar borgarastéttar og fremstir þar í flokki voru útrásarvíking- arnir. Til að þóknast hinni nýju borgarastétt útrásarvíkinga og launa þeim stuðninginn í kosn- ingasjóði þróaðist t.d. hjá Reykja- víkurborg í tíð Samfylkingarinnar aðferð til að þóknast útrásarvíking- unum. Hver skyldi aðferð Samfylking- arinnar hafa verið? Jú, að rækta samræðupólitík og standa að því að koma á svokölluðu „íbúalýðræði“. Með því kemst nefnilega stjórn- málamaðurinn upp með það að segja eitt en gera annað. Hver er afleiðing þessa? Upplausn og glundroði er ein birtingarmyndin sem lýsir sér t.d. í því að á árunum 2002 til 2009 hafa verið starfandi sjö borgarstjórar í Reykjavík. Með íbúalýðræði og samræðu- pólitík gat Samfylkingin þvegið hendur sínar af framkvæmdum og ákvörðunum sem teknar voru og til stuðnings við útrásarbaklandið. Svo „game planið“ gengi upp gat fjölmiðlaveldið tryggt rétta um- fjöllun. Þessi aðferð við að deila og drottna virðist hafa fylgt fyrrver- andi borgarstjóra Samfylking- arinnar yfir í landsmálapólitíkina á sínum tíma. Fjölmiðlalagamálið er gott dæmi um samverkandi þætti í umræðu og áhrif fjölmiðla á umræðuna. Annað mál sem má nefna er stækkun ál- versins í Straumsvík, þar átti sér stað illkynjað íbúalýðræði þegar bæjarstjóri Samfylkingarinnar í Hafnarfirði gaf ekki upp skoðun sína á málinu. Hástig íbúalýðræðisins varð svo í vetur í kringum bankahrunið þegar öfl innan VG og Samfylkingarinnar nýttu sér ástandið og úr varð upp- reisn þegnanna sem létu glepjast, drifnir áfram af reiði og hatri af slóttugri áróðursmaskínu vinstri flokkanna. Icesave-málið sýndi nýj- ar hliðar á samræðupólitíkinni og úr varð einhvers konar einræð- upólitík þar sem jafnvel þingmönn- um var meinaður aðgangur að samningnum. Enginn fékk að sjá samninginn fyrr en hann lak á net- ið. Icesave-samningurinn var á ensku og því vandasamt að setja hann á umræðustig í 101 Reykja- vík. Því hentaði einræðupólitíkin. Hver er afleiðingin? Hver höndin var upp á móti annarri og menn göptu hver upp í annan, allt frá bakherbergjum upp í glansandi út- sendingar sjónvarpsstöðva. Ice- save-málið fór ekki að taka á sig mynd fyrr en þingmenn Sjálfstæð- isflokksins settu sitt mark á það. Samræðupólitísk mál eru nú í sumar á miklu flugi og ESB- áróðursmaskínan sem fóðruð hefur verið af háskólasamfélaginu af mik- illi kúnst mun nota hvert minnsta tækifæri til að breiða út ESB- boðskapinn. Það nýjasta er að nú á að opna sendiráð ESB í Reykjavík. Við er að búast að öll tiltæk ráð verði notuð til þess að beina okkur inn í ESB. Verum þess minnug að íbúa- lýðræði og samræðupólitík eru var- hugaverð vegna þess að þau kljúfa samfélagið í fylkingar og rækta upp neikvæðni, ólgu og óöryggiskennd meðal þegnanna. Fylgifiskur þessa er reiðin og heiftin. Sem sagt íbúa- lýðræði vekur upp og magnar nei- kvæðan jarðveg sem móttækilegur er fyrir áróðri fjölmiðla. Við þessar kringumstæður er gott að eiga fjöl- miðil eða fjölmiðlahring fyrir þann sem þarf að ná hagsmunum og hug- myndum sínum fram. Fólk verður að fá heiðarlega, sanngjarna og upplýsta fjölmiðla- umfjöllun um ESB-málið. Af samræðupólitík Eftir Pjetur Stefánsson Pjetur Stefánsson » Við þessar kring- umstæður er gott að eiga fjölmiðil eða fjöl- miðlahring fyrir þann sem þarf að ná hags- munum og hugmyndum sínum fram. Höfundur er mynd- og tónlistarmaður. Markmið Göngum í skólann eru meðal annars:  Að hvetja til aukinnar hreyfingar, með því að gera börnin færari um að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyf- ingar.  Að draga úr um- ferðarþunga, mengun og hrað- akstri nálægt skólum.  Vitundarvakning um hversu „gönguvænt“ nánasta umhverfi er og hvar úrbóta er þörf.  Vitundarvakning um ferða- máta og umhverfismál. Á síðasta ári tóku milljónir barna, í yfir fjörutíu löndum víðs vegar um heiminn, þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Ísland er nú að taka þátt í verkefninu í þriðja sinn. Bak- hjarlar verkefnisins eru Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Lýð- heilsustöð, Umferðarstofa, rík- islögreglustjórinn, mennta- málaráðuneytið, slysavarnafélagið Landsbjörg og Heimili og skóli. Heilsusamlegt og vistvænt Eins og markmið verkefnisins bera með sér eru fjölmörg góð rök fyrir því að velja virkan ferðamáta, svo sem göngu eða hjólreiðar. Þannig má með einföldum hætti auka hreyfingu í daglegu lífi og njóta þess fjölþætta ávinnings sem því fylgir fyrir heilsu og vellíðan. Til dæmis getur regluleg hreyfing minnkað líkurnar á hjarta- og æða- sjúkdómum, sykursýki af tegund 2, offitu, ýmsum stoðkerfisvanda- málum og umfram allt veitir hreyf- ing andlega orku og líkamlegan styrk til að takast á við verkefni daglegs lífs. Mikilvægur liður í því að hvetja börn og unglinga til að nota virkan ferðamáta er að það eykur líkurnar á að þau geri það einnig þegar komið er fram á full- orðinsár. Ávinningur þess að velja virkan ferðamáta er ekki aðeins bundinn við einstaklinginn heldur nýtur samfélagið í heild góðs af. Meðal annars geta útgjöld heilbrigð- iskerfisins lækkað, loftmengun minnkað auk þess sem draga má úr ýmsum öðrum vandamálum, s.s. slysum, sem fylgja mikilli bílaum- ferð. Þægilegur klæðnaður í samræmi við veður getur haft mikið að segja um það hversu viljugt barnið er að ganga í skólann og hreyfa sig al- mennt í tengslum við skólastarfið. Allir ættu að nota endurskins- merki, óháð aldri, og þekkja þá þætti sem hafa áhrif á öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Öryggið í fyrirrúmi Þroski barnsins segir til um það hvenær barnið er tilbúið til að ganga sjálft í skólann. Mikilvægt er að fullorðnir fylgi yngri börnum á meðan þau eru að læra umferð- arreglurnar og auka færni sína í að takast, með öruggum hætti, á við nýtt umhverfi. Til að sameina kraftana geta foreldrar til dæmis skipulagt svonefndan göngustrætó, þ.e. skipst á að fylgja börnum sem búa á sama svæði í skólann. Gönguleiðin sjálf ætti að vera eins örugg og kostur er. Umferðarþungi í ná- munda við skóla er til dæmis algeng ástæða fyrir því að foreldrar telja að öryggi barns sé ógnað og velja því að keyra það í skól- ann. Við slíkar að- stæður skapast víta- hringur; aukin bílaumferð eykur enn á vandann og minnkar líkurnar á að virkur ferðamáti sé valinn. Auk umferð- arþunga og hraðaksturs eru af- mörkun gönguleiða, merkingar og lýsing dæmi um þætti sem hafa áhrif á öryggi þeirra. Á heimasíðu Göngum í skólann er gátlisti sem hægt er að nota til að meta hversu „gönguvænt“ umhverfið er. Sé úr- bóta þörf, gefur gátlistinn einnig hugmyndir að úrlausnum. Kannanir benda til að um helm- ingur íslenskra barna og unglinga gangi eða hjóli til og frá skóla. Með samstilltu átaki foreldra, skóla og yfirvalda er mögulegt að fjölga í hópnum. Göngum í skólann verkefninu er þar ætlað að vera lóð á vogarskálarnar og vonast að- standendur verkefnisins til að sem flest börn og unglingar noti virkan ferðamáta, með öruggum hætti, sem oftast og þá ekki aðeins með- an á átakinu stendur heldur allan ársins hring. Frekari upplýsingar eru á heimasíðu verkefnisins, www.gong- umiskolann.is. Göngum í skólann allan ársins hring Eftir Ólaf Rafnsson Ólafur Rafnsson » Göngum í skólann var sett í þriðja sinn hér á landi þann 9. sept- ember og lýkur form- lega á Alþjóðlega Göng- um í skólann-deginum 9. október n.k. Höfundur er forseti ÍSÍ. NÝLEGA kom fram í fréttum að um 80% fleiri eru nú metnir ör- yrkjar en fyrir 10 ár- um. Stór hluti þeirra sem hafa skerta starfshæfni, kljáist við geð- og/eða sál- félagsleg vandkvæði. Eftir að rannsakendur fóru að spyrja þá sem náðu bata hver þeirra reynsla væri, hefur komið í ljós að bati næst í fé- lagslegu samhengi. Í hversdagslífi, í samskiptum, í tækifærum sem fólk hefur fengið og með því að hafa ekki misst vonina. Það sem skiptir máli hjá þeim sem hafa náð árangri er möguleikinn að geta lifa „eðlilegu lífi“. Stefna stjórnvalda er því að færa aðstoðina í meira mæli í nær- umhverfi fólks, þar sem það býr, starfar, nemur eða bregður á leik. Sjúkdómsgreining er mikilvægt sjónarhorn en er aðeins lítill hluti af heildarmyndinni. Bata er erfitt að skipuleggja og miðað við nið- urstöður batarannsókna er árang- ursríkast að aðstoða fólk við að halda áfram að gera það sem það þarf, eða langar til, á degi hverjum, þrátt fyrir ýmis geðræn einkenni. Árangur næst með ótal tilraunum og þrautseigju við að komast yfir hindranir og finna aðferðir sem t.d. einfalda lífið. Staðalímynd geð- sjúkra er að þeir séu yfirleitt stjórnlausir og líf þeirra í uppnámi. Líf þeirra er hins vegar oftast „venjulegt“ og gengur sinn vanagang. Viðkomandi getur ver- ið sterkur á ákveðnu sviði þótt hann kunni að vera óstarfhæfur á öðru. Að mati þeirra sem náð hafa tökum á lífinu eru leiðirnar að bata misjafnar, en ekki endilega flóknar eða sérhæfðar eins og ætla mætti. Fólk finnur oft- ast sjálft lausnir, eða í samvinnu við samferðamenn sína. Þeir sem kljást við geðtruflanir þurfa hins vegar oft að yfirstíga fordóma, mismunun, aukaverkanir af lyfjum, ofþyngd, stundum röddum eða hugmyndum sem trufla, svefnleysi, þreytu, ein- beitingarskort og fátækt. Hvort sem hindranir koma innan frá eða eru vegna umhverfisþátta þá hafa þær afgerandi áhrif á líf og stöðu þeirra, menntunarmöguleika, at- vinnumöguleika, og það að geta skipulagt líf sitt og notið þess. Enn vantar mikið upp á að við skiljum samspil geðrænna einkenna og þátttöku í athöfnum daglegs lífs. Mesta ögrunin er í daglegu lífi, dag- legri færni, samskiptum og tengslum. Venjulegt líf hefur ekki þótt nógu spennandi og verðugt við- fangsefni til að rannsaka. Batatæki- færin leynast hins vegar oft í þess- um hversdagslegu hlutum sem eru svo sjálfsagðir að þeir eru orðnir ósýnilegir. Bati tengist mannrétt- indum, að halda hlutverkum, að samferðamenn gefist ekki upp og hafi væntingar til manneskjunnar. Hvernig viðhalda eigi góðri geð- heilsu, hvernig samskipti, jöfnuður og völd hafa áhrif á líðan og sjálfs- traust, á erindi við alla. Færustu geðheilbrigðisstarfsmenn framtíð- arinnar verða þeir sem geta að- stoðað fólk sem á í vandræðum með geðheilsuna, við að halda áfram að takast á við daglegar kröfur og fyr- ir þá sem hafa einangrast að nýta tækifæri til frekari samfélagsþátt- töku. Ef atvinnuleysi verður viðvar- andi hér á landi mun eftirspurnin eftir slíkri þekkingu aukast enn frekar. Samkvæmt stefnumótun Félags- og tryggingamálaráðuneytisins frá 2006 er, auk fjölgunar búsetuúr- ræða fyrir geðfatlaða, stefnan sett á aukna virkni og samfélagslega þátt- töku. Einnig að þjónustan byggist á þekkingu og reynslu þeirra sem þurfa á henni að halda. Til að fram- fylgja stefnunni hefur ráðuneytið m.a. gert þjónustusamning við Hlutverkasetur, um gæðaþróun- arverkefnið Notandi spyr Notanda (NsN). Meginmarkmið NsN verk- efnisins er að safna reynslu og þekkingu notenda á skipulagðan hátt og kanna mat þeirra á þjónust- unni og hvaða sýn þeir hafa á eigin stöðu, virkni og hlutdeild í sam- félaginu. Verkefnið hefur skapað atvinnu fyrir notendur og bætt ímynd og stöðu þeirra einstaklinga sem tekið hafa þátt. Á tímum að- haldsaðgerða og sparnaðar er mik- ilvægt að skoðanir og reynsla þeirra sem nota þjónustuna sé gerð sýnileg. Stjórnvöld geta þannig staðið vörð um þá þjónustu og að- gerðir sem notendur kunna að meta og fengið leiðbeiningar um hvar skórinn kreppir og hugmyndir til nýsköpunarverkefna. Á vegum ráðuneytisins hafa einnig verið haldin málþing víða um land þar sem kynnt er m.a. hugmyndafræði valdeflingar, gagnreynd þjónusta, stefnumótun, baráttumál og helstu hindranir að nýsköpun. Einstaklingar sem og ýmis fé- lagasamtök hafa síðustu misserin verið að nýta þann kraft og hug- myndir sem býr í fólkinu sjálfu. Mikilvægt er að fjölmiðlar taki enn frekar þátt í að gera þessar hug- myndir sýnilegar. Það er ein leið til að hvetja menn áfram til dáða og getur skapað tækifæri fyrir fleiri við að leggja sitt að mörkum í upp- byggingu á íslensku samfélagi. Við getum öll haft áhrif Eftir Elínu Ebbu Ásmundsdóttur »Hvernig viðhalda á góðri geðheilsu, hvernig samskipti, jöfn- uður og völd hafa áhrif á líðan og sjálfstraust, á erindi við alla. Elín Ebba Ásmundsdóttir Höfundur er iðjuþjálfi/dósent við HA og framkvæmdastýra Hlutverka- seturs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.