Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 31

Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 31
Minningar 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 ✝ Signý SigurlaugMargrét Þor- valdsdóttir fæddist 27. des. 1916 á Hrol- laugsstöðum á Langanesströnd. Hún lést 7. september 2009 á Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja. Foreldrar hennar voru Þorvaldur Kristjánsson, f. 14.1. 1892, d. 21.3. 1979, sjómaður og báta- smiður, og Hallbjörg Daníelsdóttir, hús- móðir, f. 9.6. 1892, d. 12.4. 1946. Signý var í sambúð með Hall- grími Kristinssyni, f. 6.7. 1906, d. 9.3. 1980, og eignaðist með honum tvö börn: a) Ara Guðmar, f. 24.11. 1938 í Syðri-Haga í Eyjafirði. Hann er kvæntur Kristínu Ingólfs- dóttur, f. 5.10. 1941, frá Vatnsdals- gerði í Vopnafirði og eiga þau fjögur börn. Þau eru: Margrét Arna, f. 22.11. 1961, Ingólfur Bragi, f. 3.8. 1963, Stefanía Hall- björg, f. 18.12. 1969, og Guð- mundur Ari, f. 4.1. 1977, b) Dórót- heu, f. 8.5. 1940 í Heiðarhöfn, d. 17.10. 2004, var hún ung tekin í Hermann Jónsson, f. 5.9. 1943 á Þórshöfn, börn hans með Dís Guð- björgu Óskarsdóttur, f. 10.10. 1943: Signý, f. 5.5. 1965, Hafrún, f. 31.6. 1966. Kona hans Júlíana Kristín Gestsdóttir, f. 19.6. 1949, hennar barn: Rúnar Örn Jónsson, f. 5.10. 1967, barn Hermanns og Júlíönu: Dagný Ósk, f. 26.7. 1972, e) Ágúst Þorvaldur, f. 26.2. 1948, kona Ólína Alda Karlsdóttir, f. 16.3. 1955. Þau skildu. Börn þeirra: Gréta, f. 5.12. 1976, Jón Karl, f. 8.12. 1978, f) Vilhjálmur Hallbjörn, 4.2. 1954, kona Fjóla Berglind Helgadóttir, f. 21.11. 1959. Þau skildu. Börn þeirra: Gréta Björg, f. 27.6. 1983, Bragi Freyr, f. 21.10. 1986. Afkomendur Signýjar eru farnir að nálgast hundrað. Signý ólst að mestu upp á Skál- um og Heiðarhöfn á Langanesi. Stundaði vinnu og kaupakonustörf á Vopnafirði og víðar. Hún bjó í Neskaupstað með Braga þar til þau fluttust búferlum í Garðinn á sjötta áratugnum. Þar stundaði hún fiskvinnslustörf og var mat- ráðskona á ýmsum stöðum. Hún flutti til Keflavíkur um 1990 og bjó síðustu æviárin á Suðurgötu 15. Stundaði hún ýmis félagsstörf, s.s. söng í kór eldri borgara, Eldey, og var lengi í kvenfélaginu Gefn í Garði og var þar heiðursfélagi. Útför hennar fer fram frá Kefla- víkurkirkju miðvikudaginn 16. september kl. 11. fóstur og alin upp af systkinunum Jósef H. Jónssyni og Sigríði A. Jónsdóttur, Skóg- um, Vopnafirði. Hún var gift Sigurði Magnússyni, d. 2.8. 2002. Börn þeirra: Jósef Hjálmar, f. 5.8. 1961, Magnús Elías, f. 17.7. 1962, Sigríður Aðalborg, f. 1.7. 1963, Hjörtur Þór- arinn, f. 9.6. 1965, Rósa, f. 24. 8. 1967, Kolbeinn, f. 6.6. 1972, Hugrún, f. 28.7. 1973. Signý giftist 12. okt. 1941 Braga Jónssyni verkamanni, f. 26.1. 1914, d. 26.11. 1994. Þau skildu. Þeirra börn: c) Margrét, f. 22.5. 1942 á Þórshöfn, maki Einar Sigurður Sigurfinnsson f. 14.2. 1940, d. 19. maí 2004. Þau skildu, þeirra barn Bragi, f. 7.6. 1960. Barn hennar með Doil Miller: Grétar Sig- urbjörn, f. 4.10. 1963. Margrét giftist Kristjáni Arilíussyni, f. 12.6. 1946, Stóra-Hrauni í Kolbeins- staðahreppi. Börn þeirra: Arilíus, f. 24.12. 1973, Kristín, f. 22.5. 1981, Jón Þór, f. 8.10. 1982. d) Í dag verður til moldar borin ást- kær móðuramma mín, Signý Þor- valdsdóttir, sem lést á Heilbigðis- stofnun Suðurnesja mánudaginn 7. september sl. Það er óhætt að segja að þeim degi er amma mundi kveðja er ég búinn að kvíða mikið fyrir eða frá því að ég var lítill gutti. Amma tók mig undir sinn verndarvæng frá fyrsta degi og undir þeim væng var ég nánast óslitið þar til ég flutti að heiman 23 ára gamall. Það eru fjölmargar minningar sem koma upp í hugann á þessari stundu og óhætt að segja að sökn- uðurinn sé mikill. Amma greindist fyrir stuttu með illvígan sjúkdóm og fannst mér það ósanngjarnt að kona á hennar aldri þyrfti að eiga í bar- áttu við hann á síðustu ævidögum sínum. Sem betur fer kvaldist hún ekki og var vel hugsað um hana af starfsfólki HSS sem reyndist henni vel á þeim tímum sem hún þurfti að dvelja þar vegna veikinda. Ég gat því miður ekki verið hjá henni síðustu andartökin og þykir mér það bæði sárt og erfitt. Ég átti þó gott símtal við hana tveimur dög- um fyrir andlátið og þykir mér það huggun gegn harmi en hún var þá enn mjög hress og skýr. Ég held í þá minningu. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í bili, amma mín, en vil enda þetta á texta sem mér finnst eiga vel við: Sólin er hnigin sest bakvið skýin og ég hugsa til þín næturlangt. Baráttuknúin, boðin og búin tókst mig upp á þína arma á ögur- stundu. Þú varst alltaf þar í blíðu og stríðu og hjá þér átti ég skjólið mitt. Alltaf gat ég treyst á þína þíðu og ég þakka þér alla mína ævidaga hve oft þú huggaðir og þerraðir tárin mín. Hve oft þau hughreystu mig orðin þín studdir við bakið stóðst með mér alla leið. (Stefán Hilmarsson) Ég þakka þér, elsku amma, fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig. Ég mun ávallt hugsa um þig með þakk- læti í hjarta. Guð blessi minningu þína. Þinn dóttursonur, Grétar Miller. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Elsku amma og langamma okkar, takk fyrir samfylgdina í lífinu. Minning þín mun lifa í hjörtum okkar. Ástarkveðja Dagný Ósk, Hermann Örn og Melkorka Líf. Nú er Signý amma farin. Signý amma var reyndar amma mannsins míns og langamma barnanna minna en var alltaf kölluð Signý amma af fjölskyldunni. Hún var fædd í des- ember árið 1916 þannig að hún hafði lifað í tæp 93 ár og séð margt á langri ævi. Við eigum margar góð- ar minningar um hana. Hún hafði gaman af að segja ömmubörnunum og langömmubörn- unum frá hvernig lífið var fyrr á ár- um. Þegar börnin voru yngri voru ófá vettlinga- og sokkapörin sem börnin fengu frá henni enda hætti ég alveg að prjóna eftir að þau fæddust. Hún kom í öll afmæli og var oft hjá okkur um jólin meðan hún hafði heilsu til. Hún hafði lengi vel gaman af því að fara í kertaleið- angur fyrir jólin og fórum við þá í dagsferð til Reykjavíkur, ýmislegt skoðað en yfirleitt endað í Rúmfata- lagernum og keypt kerti sem dugðu fram að næstu jólum. Signý var mikil félagsvera og söng með kór eldri borgara meðan hún hafði heilsu til. Hún starfaði líka lengi með Kvenfélaginu Gefn í Garði og fór í margar ferðir með þeim bæði innanlands og utan. Seinni árin tók ég hana oft með á fundi félagsins hér í Garði. Hún var gerð að heiðursfélaga kvenfélagsins árið 1997. Hún var nokkuð ern fram í andlátið þótt líkaminn hafi verið farinn að gefa sig. Hún fylgdist með fram á síðasta dag og spurði eftir fólkinu sínu. Afkomendur hennar eru farnir að nálgast hundraðið og mikið var hún ánægð að fá litla nöfnu, Margéti Signýju, núna í ágúst og náði hún að sjá hana en allra nýjasta lang- ömmubarnið sem fæddist í lok ágúst auðnaðist henni ekki að sjá. Ég kveð Signýju með söknuði. Guðrún Filippía Stefánsdóttir. Signý Sigurlaug Margrét Þorvaldsdóttir ✝ Móðir mín, stjúpmóðir okkar, systir, amma og langamma, INGIBJÖRG ELÍN AÐALSTEINSDÓTTIR, Hraunvangi 1, Hafnarfirði, áður Granaskjóli 24, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 10. september, verður jarðsungin frá Neskirkju fimmtudaginn 17. september kl. 15.00. Hallgrímur Sigurðsson, Rannveig Sigurðardóttir, María Sigurðardóttir, Össur Aðalsteinsson, Guðbjörg A. Finsen, Jónas A. Aðalsteinsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, ERLU SVEINU JÓRMUNDS, Jökulgrunni 25, Reykjavík. Bogi Jóhann Bjarnason, Bjarni Jóhann Bogason, Kolbrún J. Snæfeld, Guðný Bogadóttir, Þórður Bogason, Elín H. Ástráðsdóttir og barnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ODDGEIRS GUÐJÓNSSONAR bónda og hreppstjóra frá Tungu í Fljótshlíð, Dalsbakka 14, Hvolsvelli. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra, Kirkjuhvoli á Hvolsvelli, fyrir alúð og umhyggju. Guðlaug Oddgeirsdóttir, Sigurður Sigurðsson, Ólafur Sv. Oddgeirsson, Fiona MacTavish, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, RAGNHEIÐUR HANNESDÓTTIR, áður til heimilis Löngubrekku 22, Kópavogi, sem lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð föstudaginn 4. september, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 17. september kl. 13.00. Ólöf Jónsdóttir, Kristinn Ástvaldsson, Hafdís Jónsdóttir, Jens Gíslason, Hrönn Jónsdóttir, Halldór Ingólfsson, Sigrún Ragna Jónsdóttir, Hörður Tómasson, Sigurður Fjalar Jónsson, Agnes Jónsdóttir, Brynjar Jónsson, Hólmfríður Þóra Óskarsdóttir, barnabörn og fjölskyldur þeirra. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, RAGNAR LÁRUS SÓLONSSON, Rjúpnasölum 10, Kópavogi, sem lést á heimili sínu föstudaginn 11. september, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju föstudaginn 18. september kl. 11.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á að styðja líknardeild Landspítalans í Kópavogi, s. 543 1159. Louisa Sampsted, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Ólafur Birgir Bjarnason, Ingvi Þór Ragnarsson, Guðrún Guðmundsdóttir, Sólon Lárus Ragnarsson, Arnar Ragnarsson, afa- og langafabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, GUNNARS HAUKSSONAR, Norðurfelli 5, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi fyrir góða umönnun. Jóhanna Geirsdóttir, Aðalbjörg Gunnarsdóttir, Haukur Gunnarsson, Rakel Svansdóttir, Valur Gunnarsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og barnabörn.Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Engin lengd- armörk eru á greinum sem birtast á vefnum. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hve- nær hann lést og loks hvaðan og klukkan hvað útförin fer fram. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.