Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 35
Menning 35FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
Brown Eftirvænting og spenna hefur
einkennt biðina eftir nýju sögunni,
Týnda tákninu, sem kom út í gær.
„DAN Brown
notaði óhemju
litríkt mynd-
mál í bókum
sínum, löngu
áður en farið
var að gera
kvikmyndir
eftir þeim. Í
Týnda tákn-
inu lifir hann
sögu sína enn
á ný á stór-
kostlega sjónrænan máta,“ sagði
Janet Maslin, bókagagnrýnandi The
New York Times, þar sem hún róm-
ar Týnda táknið, nýjustu bók Dans
Browns, sem kom út í gær.
Gríðarleg eftirvænting hefur ver-
ið eftir bókinni, og fáir eða engir
rithöfundar eiga jafn stórt og breitt
fylgi aðdáenda.
Talar eins og alfræðirit
Margir virðast gagnrýnendur
mjög ánægðir en það er þó ekki ein-
hlítt. Gagnrýnandi Los Angeles
Times, Nick Owchar, er ekki alveg
jafnhrifinn.
„Framvinda sögunnar er hröð,
nema á þeim klaufalegu stöðum þar
sem fólk talar eins og alfræðirit.
Spurningin er þó hvort nokkur lesi
Dan Brown fyrir stílinn. Fólk les
þessar bækur til að fylgjast með því
sem hendir sögupersónuna, Lang-
don. Það er erfitt að ímynda sér
nokkurn þann sem lesið hefur
Týnda táknið rökræða um frímúr-
araregluna í Washington D.C. af
sömu ástríðu og fólk talaði um bylt-
ingarkennda sýn Browns á Jesú og
Maríu mey í Da Vinci-lyklinum. Sú
bók snerti djúpa mennningarlega
taug af augljósum ástæðum. Týnda
táknið er eins og reynsla úr hverj-
um öðrum rússíbana, unaðshrollur,
en svo er hún líka búin.“
Eins og X-Files
Mette Strømfeldt, gagnrýnandi
Berlingske Tidende, veltir því fyrir
sér hvort biðin, spennan og lofsöng-
urinn sem hafi skapast í kringum
Týnda táknið, áður en bókin kom
út, standi undir útkominni bókinni.
Hún svarar bæði já og nei, og að
þeim sem líki frásagnarstíll og upp-
bygging sagna Dans Browns ætti
að líka þessi bók. Þó hafi Týnda
táknið ekki burði til að vekja jafn
áhugaverða umræðu og Da Vinci-
lykillinn og að sagan beri frekar
með sér andblæ sjónvarpsþáttanna
X-Files.
Dómar um Týnda
táknið, nýja bók Dans
Browns, eru misjafnir
Snilld eða
rússíbani
DR. Alaric Hall flytur erindið
The Earliest History of Elves
á málfundi Félags þjóðfræð-
inga í stofu 101 í Odda á morg-
un kl. 17.50. Þar fjallar hann
um elstu heimildir sem til eru
um álfatrú hjá germönskum og
norrænum þjóðum og skoðar
bæði enskar og norrænar
heimildir sem tengjast álfatrú
til forna. Í fyrirlestrinum mun
hann fjalla um birtingarmyndir álfanna í heiðinni
trú og fara yfir hvaða áhrif kristnitakan hafði á
viðhorf til álfanna. Einnig mun hann útskýra hvað
rannsóknir á álfatrú geta sagt okkur almennt um
forn samfélög og horfna menningarheima. Allir
velkomnir og frítt inn.
Hugvísindi
Fyrirlestur um
uppruna álfa
Dr. Alaric Hall
DAGANA 1.-4. október heldur
Jón Þorsteinsson tenórsöngv-
ari og söngkennari í Utrecht
söngnámskeið í Skálholtsskóla.
Í kennslu sinni styðst Jón við
svokallaða Lichtenberger-
aðferðafræði um uppruna
hljóms í mannslíkamanum.
Þetta er starfræn aðferð sem
þróuð hefur verið í Lichten-
berg í Þýskalandi. Aðferðin
gengur út á algjöra og eðlislæga þróun radd-
arinnar sem hljóms og aðgreiningu hljóms og tóns
án þess að utanaðkomandi truflun hafi of mikil
áhrif. Kennsla fer fram í hóptímum, með fyr-
irlestrum og þjálfun. Nánari upplýsingar og
skráning eru á vefnum skalholt.is.
Tónlist
Lichtenberger-
söngnámskeið
Jón Þorsteinsson
LEIKRITIÐ Augu þín sáu
mig í flutningi Útvarpsleik-
hússins hefur verið tilnefnt til
verðlauna á stærstu og virt-
ustu ljósvakahátíð Evrópu,
Prix Europa. Útvarpsleik-
húsið á Rás 1 sendi inn upp-
töku af uppsetningu sinni og
kom í ljós í gærmorgun að af
118 útvarpsverkum sem send
voru í keppnina, var leikritið
eitt þeirra 40 verka sem hlutu náð fyrir eyrum
valnefndar og keppir því við útvarpsleikrit frá 35
löndum Evrópu til verðlauna sem besta leikna út-
varpsverk Evrópu í ár. Augu mín sáu þig er leik-
gerð Bjarna Jónssonar á samnefndri skáldsögu
eftir Sjón.
Leiklist
Augu þín sáu mig
keppir um verðlaun
Bjarni Jónsson
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
„Í SUMAR var ég að hugsa um
ástandið á Íslandi og fór að velta því
fyrir mér hvað við tónlistarmenn
gætum gert. Þá datt mér í hug að
gaman væri að skipuleggja tónleika-
röð, þar sem engu máli skipti hver
syngi eða spilaði – það eina sem
skipti máli væri tónlistin.“
Svo mælir Gerrit Schuil, píanó-
leikari og hljómsveitarstjóri, sem
efnir til fyrstu tónleikanna í tón-
leikaröðinni Ljáðu okkur eyra, í Frí-
kirkjunni í Reykjavík kl. 12.15 í dag.
En Gerrit ætlar ekki að spila einn.
„Ég bar hugmyndina undir nokkra
vini mína í tónlistinni og þeim fannst
hún frábær. Það vildu allir vera með
og spila og syngja. Staðarvalið var
auðvelt, Fríkirkjan er í miðbænum
og andrúmsloftið þar er mjög gott.“
Óvissuferð til móts við tónlist
Það sem gerir tónleikaröð Gerrits
sérstaka er, að það verður ekki
kynnt fyrirfram hverjir koma fram á
tónleikunum, og ekki heldur hvaða
tónlist verður flutt. Tónleikarnir
verða því spennandi óvissuferð.
„Ég lofa þó einu, að það verður
okkar allra besta tónlistarfólk sem
kemur fram; fólk sem ég hef unnið
með gegnum árin. Allir sem ég talaði
við sögðu strax já og leist vel á hug-
myndina sem liggur að baki.“
Gerrit er þegar búinn að skipu-
leggja tónleika í hádeginu á mið-
vikudögum út árið, og ef vel gengur,
verður haldið áfram eftir áramót.
Allir tónlistarmennirnir gefa vinnu
sína, og aðgangur verður ókeypis, en
eftir tónleika geta gestir lagt pen-
inga í bauk ef þeir vilja. „Við erum
öll á sama báti í þessu ástandi.
Fólk fer á tónleika til að heyra
uppáhaldssöngvara eða uppáhalds-
verk. Á þessa tónleika getur fólk
komið til að gleyma áhyggjum og
erfiðleikum; tónlistin sér um það.“
Tónleikaröðin Ljáðu okkur eyra sem hefst í Fríkirkjunni í dag er ólík öllum öðrum
Að láta óvissuna feykja sér
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gerrit Schuil „Ég lofa þó einu, að það verður okkar allra besta tónlistarfólk
sem kemur fram; fólk sem ég hef unnið með gegnum árin.“
ÞAÐ gæti verið
áhættusamt að
leggja upp í ferð
án fyrirheits. En
ef til vill á það
alls ekki við um
tónleikaröðina
Ljáðu okkur
eyra, því þar er
fyrirheitið tón-
listin sjálf, og
ekkert annað.
Óvissuþátturinn felst auðvitað í því
að láta koma sér á óvart – vita ekki
hvort maður er að fara að hlusta á
angurværan Svan eftir Saint-Saëns,
reiðikast Næturdrottningarinnar
eða ástríðufullar Sígaunavísur.
Bráðsmitandi andskoti
Þórunn Elísabet Sveinsdóttir
myndlistarkona er í þeim hópi fólks
sem duglegast er að sækja tónleika,
en væri hún nægilega hugrökk til
að vita ekkert hvert ferðinni er
heitið?
„Já. Mér finnst það ótrúlega
freistandi. Maður þarf að vera mjög
illa á sig kominn að vita ekki alla
vega pínulítið um tónlist, því þetta
er bráðsmitandi andskoti. Svo er ég
kannski tækifærissinni og finnst
ástæða til að grípa tækifærið þegar
það er frítt inn á tónleika. Það kem-
ur líka vel á vondan þegar þú spyrð,
því ég á heima í næsta húsi við Frí-
kirkjuna.
Að hugsa til þess að maður geti
hoppað inn í hádeginu, sest niður
og þegið það að láta feykja sér og
lyfta andanum, er auðvitað í hönd-
um hvers og eins. Það er gott, en
kannski of sjaldgæft að maður lyfti
sér úr sjálfum sér, næri sig á tón-
listinni og gleymi stað og stund.“
Hoppað inn
í hádeginu
Þórunn Elísabet
Sveinsdóttir
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
BÓKAVERSLUN Máls og menningar á Lauga-
vegi 18 var lokað um þarsíðustu mánaðamót, en
Penninn, sem rak verslunina, opnaði nýja bóka-
búð á Skólavörðustíg 11 undir nafninu Ey-
mundsson. Ný bókabúð hefur verið opnuð í hús-
næðinu á Laugavegi, en óljóst er hverjir munu
reka hana.
Verslunarhúsnæðið var upphaflega í eigu
stuðningsfyrirtækis Máls og menningar, en eign-
arhaldsfélagið Kaupangur keypti það fyrir
tveimur árum. Bókaverslun Máls og menningar
var í húsinu áratugum saman, en Penninn keypti
reksturinn árið 2000 af Bókmenntafélagi Máls
og menningar og rak búðina þar til hún flutti
upp á Skólavörðustíg. Nafnið, Bókabúð Máls og
menningar, varð þó eftir því Kaupangur keypti
það af Pennanum, enda stóð til að opna bókabúð
að nýju á Laugaveginum.
Í frétt Morgunblaðsins 20. júní kom fram að
Bókmenntafélag Máls og menningar myndi taka
þátt í að reka búðina í gegnum hlutafélag sem
yrði til helminga í eigu félagsins og Iðu, sem
rekur bókaverslun í Lækjargötu, og að samn-
ingur við Kaupang lægi fyrir um leigu á húsnæð-
inu. Iða er aftur á móti gengin úr skaftinu og
viðræður standa milli Bókmenntafélagsins og
Kaupangs um framtíðarskipan mála, m.a. hvort
hlutafélag um reksturinn yrði að öllu leyti í eigu
félagsins eða að það komi að rekstrinum með
öðrum hætti. Að sögn viðmælenda skýrast mál
væntanlega öðru hvoru megin við næstu helgi.
Bókabúð á vegamótum
Morgunblaðið/Ómar
Bóksölustríð Frá Eymundsson. Skammt verður
á milli tveggja af stærstu bókabúðum landsins.
Ósamið um rekstur Bóka-
verslunar á Laugavegi 18
Þá uppgötvaði ég
stuðhliðina á mér –
alveg óvart! Ég vissi ekki
að ég ætti þetta til … 36
»