Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 36

Morgunblaðið - 16.09.2009, Side 36
Gaukshreiðrið Jack Nicholson í hlutverki sínu í One Flew Over the Cuckoo’s Nest eftir Milos Forman sem verður viðstaddur hátíðarsýningu á myndinni. Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is „ÉG tel að við séum með dagskrá á heimsmælikvarða. Það er verið að sýna það besta, nýjasta og fram- sæknasta í kvikmyndaheiminum nú um stundir,“ segir Hrönn Mar- inósdóttir, stjórn- andi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíð- ar í Reykjavík, um hátíðina í ár. „Það verða um 120 myndir sýnd- ar og áherslan er á verk sem kveikja áhuga hjá hinum ýmsu þjóðfélags- hópum,“ segir Hrönn og er ekki á því að hátíðin sé orðin of umfangs- mikil. „Það er skárra að hafa of mik- ið en of lítið. Auðvitað eru þetta margar myndir en það er svo of- boðslega mikið að gerast í kvik- myndaheiminum í dag. Við erum búin að leggja allt í það að velja góðar, vandaðar og skemmtilegar myndir eftir þekkta jafnt sem minna þekkta leikstjóra. Við viljum bjóða upp á það athygl- isverðasta sem er að gerast í al- þjóðlegri kvikmyndagerð og vekja athygli á Reykjavík sem kvik- myndahátíðarborg í leiðinni.“ Sextíu leikstjórar á leiðinni Hátíðin er meira en bíósýningar því í tengslum við hana eru tón- leikar, málþing, stór ráðstefna í samvinnu við Imax, vídeókvöld hjá leikstjórum og bílabíó svo eitthvað sé nefnt. „Það koma sextíu leik- stjórar hingað til lands til að kynna myndir sínar og spjalla við áhorf- endur og um tuttugu blaðamenn víðsvegar að úr heiminum hafa boð- að komu sína, það hefur aldrei verið jafn mikill áhugi á hátíðinni og í ár. Fyrir utan alla ferðamennina sem sækja hátíðina, það er t.d. að koma fjórða árið í röð stór kvikmynda- klúbbur frá Bandaríkjunum,“ segir Hrönn. „Við höfum alla burði til að fara lengra með þessa hátíð. Reykjavík hentar vel og við erum með rétta fólkið og réttu samböndin. Hátíðin hefur stækkað hratt á þess- um sex árum og við erum á réttri leið,“ bætir hún við. Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefur ekki farið varhluta af efnahagslægðinni og hefur misst marga helstu styrktaraðila sína, en aðrir koma í staðinn svo Hrönn læt- ur ekki deigan síga. „Það eru rosa- lega margir tilbúnir að leggja mikið á sig til þess að þetta takist hjá okk- ur. T.d. erum við með yfir 150 sjál- boðaliða, fáum styrki frá ríki og borg og í fyrsta skipti fengum við styrk frá Media, sem er styrktar- sjóður Evrópusambandsins. Þrátt fyrir erfitt ástand hafa nokkur fyr- irtæki séð sér hag í að vera okkar bakhjarlar.“ Hrönn hefur séð hverja einustu mynd sem sýnd verður á hátíðinni en er þó spennt fyrir mörgum við- burðum. „Persónulega er ég spennt- ust fyrir að hitta Milos Forman, sem er einn fremsti kvikmyndaleikstjóri heimsins í dag. Hann verður með viðhafnarsýningu á Gaukshreiðrinu í Háskólabíói 23. september og mætti segja það einn af hápunktum hátíðarinnar frá upphafi.“ Hátíð á heimsmælikvarða  Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík hefst á morgun og stendur yfir í tíu daga  Koma Milos Formans einn af hápunktum hátíðarinnar frá upphafi Hrönn Marinósdóttir www.riff.is 36 MenningFÓLK MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009  Hvað er það við leikhúsheiminn sem gerir það að verkum að leiksýn- ingum er „rústað“? Það virðist ann- aðhvort í ökkla eða eyra, annað hvort verður fólk fyrir guðlegum upplifunum eða þá að bókstaflega ekkert er hægt að tína til, sýningum til tekna. Sýningin Frida … Viva La Vida hefur heldur betur orðið fyrir barðinu á gagnrýnendum, en ekkert dagblaðanna, hvorki Morgunblaðið, Fréttablaðið né DV sér ljósa punkta í sýningunni. Þannig stígur sjálfur Jón Viðar fram af festu í dómi í DV, undir fyrirsögninni „Ekki meir – ekki meir!“ og segir sýninguna ekki bara rústir einar heldur íslenskt leikhúslíf eins og það leggur sig. Það sem hugsanlega gæti bjargað sýningunni nú er að fólk fari hrein- lega að flykkjast í Þjóðleikhúsið, ein- mitt vegna þessarar stórskotahríð- ar. Því að getur ein leiksýning mögulega verið svona rosalega slæm? Leiksýningu rústað … og rústað og rústað Fólk Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is DAVÍÐ Smári Harðarson er ekki maður einhamur. Hans varð fyrst vart fyrir frækilega frammistöðu í Idol- söngkeppninni, en haslaði sér síðar völl sem einka- þjálfari. Og nú er hann orðinn framkvæmda- og vefstjóri nýrrar körfuboltasíðu ofan á allt sam- an, sem er að finna á slóðinni korfubolti.is „Síðan er nýfarin í loftið, við ýttum henni úr vör fyrir viku,“ segir Davíð vígreifur. „Við höfum þegar fengið 2.000 heimsóknir, og það án þess að auglýsa neitt.“ Davíð segir að hann hafi fengið körfubolta- áhuga ungur að árum og hann æfði með Snæ- felli þegar hann bjó í Stykkishólmi. „Sá áhugi hélst fram að ca. sextán ára aldri en svo datt ég út. Þegar ég svo fer í líkamsræktina á fullt kviknar þessi áhugi aftur.“ Davíð segir síðunni ekki stefnt gegn karfan.is, annarri síðu sem veitir m.a. upplýsingar um íslenska körfuboltann. „Eins og er einbeitum við okkur að NBA-boltanum en ætlum að draga íslenska boltann inn þegar fram í sækir. Hjá okkur snýst þetta um gagnvirkni, og að koma vef- samfélagi á laggirnar. Fréttastjóri hjá okkur er Arnar F. Böðvarsson, sá maður hérlendis sem veit mest um NBA-boltann. Og við erum alltaf fyrstir með frétt- irnar á þeim vettvangi … ekki einu sinni mbl.is stenst okkur snúning þar!“ segir Davíð að lokum og hlær hrossahlátri. Úr karókí í kroppatamningu og loks í körfuna! Einbeittur Davíð Smári fer alla leið í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur.  Það stefnir allt í það að hin svo- kallaða Íslenska tískuvika verði með eftirminnilegri floppum ald- arinnar – þessarar og þeirrar næstu – ef marka má áframhald- andi skrif um málið. Nú hefur New York Magazine tekið málið upp og rekur þessa sorgarsögu alla í nokk- uð löngu máli. Vísað er m.a. í Gunn- ar Hilmarsson, formann Fatahönn- unarfélags Íslands, og segir hann Kolbrúnu Aðalsteinsdóttur, eig- anda viðburðarins, ekki vera í jafn- vægi, hún sé óskipulögð og hafi engan á bak við sig. Því er þá lýst hvernig þátttakendur voru keyrðir upp að sýningarpallinum „góða“ og þar hefði Kolbrún reynt að láta handtaka einn hönnuðinn sem mót- mælti aðbúnaðinum. Allt er sem- sagt dregið sundur og saman í háði og klykkt út með því að það sé ekki einu sinni hægt að kenna hérlendu efnahagshruni um þennan „brand- ara“. Frábært, þetta er einmitt það sem við þurftum … Íslenska tískuvikan: áframhaldandi martröð Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is PÉTUR Eyvindsson hefur um langa hríð verið einn af helstu koppunum í búri íslenskrar neðanjarðartónlist- ar, þá rafkyns, og hefur vettvang- urinn verið helstur í gegnum sveit hans Vindva Mei, auk þess sem hann hefur verið virkur í súpergrúppunni Evil Madness. Fyrir fimm árum sýndi hann þó á sér aðra – og heldur óvænta hlið – þegar platan My Friend is a Record Player kom út, en þar studdist hann við nafnið kerknislega DJ Musician. Þar var að finna dúndurhressa dans- tónlist, af þýskum og austurevr- ópskum meiði. Flestir myndu lýsa henni sem hallærislegri, sumir hreinlega úrkynjaðri en allir voru hins vegar sammála um að einstakur snúningur Péturs á geirann væri af- ar mettandi, hreinlega til fyrir- myndar. DJ Musician er nú snúinn aftur með nýja plötu, sem ber hið fróma nafn Sehr Gut Cocktail eða Harla gott hanastél. Pétur segir að DJ Musician hafi orðið til fyrir helbera tilviljun, varð óvart hluti af verkefni sem hann og þrír myndlistarmenn voru að vinna árið 2000. „Þá uppgötvaði ég stuðhliðina á mér … alveg óvart! Ég vissi ekki að ég ætti þetta til. En þetta fríaði mig að einhverju leyti frá „alvarlegu“ tónlistinni sem ég hafði verið að sinna og gaf mér aðra sýn. Ég hafði alltaf haft áhuga á þessari tónlist, á einhvern skrítinn hátt, og hafði verið að fíflast með að búa hana til á gam- alt forrit. Svo tók vinur minn, DJ Musician, einhvern veginn yfir. Og ég kvarta ekki yfir því …“ „Þá uppgötvaði ég stuðhlið- ina á mér … alveg óvart!“ Stuð Pétur Eyvindsson, a.k.a. DJ Musician, komst að því að hann væri stuðbolti inn við beinið þegar hann vann að verkefni nokkru árið 2000. Hinn ofurhressi DJ Musician snýr aftur með nýja plötu Það þarf ekki að fara í bíó til að upplifa Alþjóðlega kvik- myndahátíð í Reykjavík og á dagskrárliðurinn Hátíð um alla borg þar stóran hlut að máli. Stuttmyndir og efni úr dagskrá hátíðarinnar verður sýnt víða um bæ; í verslunum, á hár- greiðslustofum, líkamsrækt- arstöðvum og kaffihúsum. Fjöldi fyrirtækja og stofnana hefur komið upp sýning- artjöldum til að allir geti fengið að bragða á því sem hátíðin hefur upp á að bjóða. Hátíð um alla borg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.