Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 38

Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 2 VIKUR Á TOPPNUM Í BANDARÍKJUNUM! ÓTRÚLEG UPPLIFUN Í 3D ATH! EKKI SÝND Í 3D Í BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG REGNBOGANUM SÝNDUR Í ÍSLENSKU ÓPERUNNI ALLIR ÞEIR SEM FRAMVÍSA LEIKHÚSMIÐA FRÁ HELLISBÚANUM FÁ 25% AFSLÁTT Á BÍÓMYNDINA: theuglytruth FRUMSÝND 18. SEPTEMBER HHH “Með öllum líkindum frumlegasta ástarsaga sem hefur komið út síðustu misseri.” T.V. - Kvikmyndir.is SÝND Í REGNBOGANUM SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HÖRKUSPENNANDI MYND UM METNAÐARFULLAN BLAÐAMANN SEM TEKUR Á SIG SÖK Í MORÐMÁLI TIL ÞESS EINS AÐ UPPLJÓSTRA UM HINN SVIKULA SAKSÓKNARA MARTIN HUNTER(MICHEAL DOUGLAS) Síðus tu sý ninga r Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5% endurgreitt í Háskólabíó Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómið Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBOGANU M 750kr. SÝND Í HÁSKÓLABÍÓÍ OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI The Final Destination kl. 8 - 10 B.i.16 ára Inglorious Basterds kl. 10 B.i.16 ára Time Travelers Wife kl. 6 B.i.12 ára The Goods kl. 8 B.i.14 ára Stelpurnar okkar kl. 6 LEYFÐ Beyond Reason... kl. 5:45 - 8 - 10:20 LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 10 B.i.16 á. September issue kl. 6 - 8 LEYFÐ Inglorious Bastards kl. 6 - 9 B.i.16 á. Time Travelers w... kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.12 á. Beyond Reasonable.. kl. 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 750 kr. B.i.16 ára G.I. Joe kl. 5:40 - 8 - 10:20 750 kr B.i.12 ára Taking of Pelham kl. 5:30 - 8 - 10:30 750 kr. B.i.16 ára ÞAÐ hljóta að koma þær stundir í lífi hvers unnanda spennusagna að hann lítur upp frá spennusögunni sem hann er að lesa þá stundina og segir við sjálfan sig: „Af hverju þarf þetta að vera svona löng bók!“ The Mercedes Coffin er einmitt ein af þeim spennusögum sem eru alltof langar. Þrjú hundruð blaðsíður hefðu hentað ágætlega, tvö hundruð og fimmtíu blaðsíður hefðu verið jafnvel enn betri. Fjögur hundruð blaðsíður verða einungis til að skapa langdregna bók. Faye Kellerman hefur skrifað fjölda spennusagna og hefur komið bókum sínum á metsölulista New York Times. Að þessu sinni stendur höfundur sig afleitlega og spennan er víðsfjarri. Áhugaverðasta persóna The Mercedes Coffin, hin forríka Genoa Greeves, fær því miður lítið rými í bókinni þótt hún hafi áhrif á framvinduna. Áhugaleysi höfundar á þeirri persónu er furðulegt því hún er meira spennandi en flestir aðrir sem við sögu koma. Genoa þessi leggur alla áherslu á að fimmtán ára gamalt morð á uppáhalds- kennara hennar verði upplýst en hann var ein af fáum persónum sem sýndu henni hlýju og skilning á uppvaxtarárum hennar. Og sannarlega virðist ástæða til að kanna það mál nánar þegar Hollywood-framleið- andi er myrtur á svipaðan hátt. Morðgáturnar eru áhugaverðar en höf- undur er alltof margorður og teygir lopann hvenær sem tækifæri gefst til. Væmnis- fullar lýsingar á einkalífi lögreglumannsins og hetjunnar, Peter Decker, eru svo nánast óbærilegar. Þetta er bók sem hefði þurft að stytta og þétta og þá hefði hún orðið hin bærilegasta afþreying. En hún er of löng, of endurtekn- ingarsöm og á köflum skelfilega væmin. Leiðindi The Mercedes Coffin eftir Faye Kellerman. Har- per gefur út. 406 bls. Kilja. Kolbrún Bergþórsdóttir ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Associcate - John Grisham 2. The Girl Who Played With Fire - Stieg Larsson 3. The Girl With The Dragon Tattoo - Stieg Larsson 4. When You are Engulfed in Fla- mes - David Sedaris 5. The Brief Wondrous Life of Osc- ar Wao - Junot Diaz 6. Breaking Dawn - Stephenie Meyer 7. Paths of Glory - Jeffrey Archer 8. Tailspin - Catherine Coulter 9. Divisadero - Michael Ondaatje 10. Eclipse - Stephenie Meyer Eymundsson 1. Dark Slayer - Christine Feehan 2. Alex Cross’s ‘Trial - James Pat- terson og Richard DiLallo 3. South of Broad - Pat Conroy 4. Spartan Gold - Clive Cussler 5. The Help - Kathryn Stockett 6. The White Queen - Philippa Gregory 7. Homer & Langley - E.L. Docto- row 8. 206 Bones - Kathy Reichs 9. The Girl Who Played With Fire - Stieg Larsson 10. A Gate at the Stairs - Lorrie Moore New York Times 1. The Lost Symbol - Dan Brown 2. The Year of the Flood - Marg- aret Atwood 3. The Death of Bunny Munro - Nick Cave 4. The Time Traveler’s Wife - Audrey Niffenegger 5. A Week in December - Sebast- ian Faulks 6. The Other Hand - Chris Cleave 7. Starting Over - Tony Parsons 8. The Secret Scripture - Sebast- ian Barry 9. The White Queen - Philippa Gregory 10. The Alchemist Secret - Ben Hope Waterstone’s Eftir Árna Matthíasson arnim@mbl.is ÍTALSKA rithöfundinum Um- berto Eco er texti hugleikinn, eða réttara sagt það sem er á milli lín- anna og á bak við textann. Í skáld- sögum hefur hann velt textanum fyrir sér og tilurð hans, leikið sér með tilgátur um uppruna hug- mynda og líf þeirra og fléttað sam- an við bækurnar vísunum í bók- menntir og sögu. Eco leitar oft fanga langt aftur í aldir, en í síðustu skáldsögu sinni, sem heitir The Mysterious Flame of Queen Loana í enskri útgáfu, færir hann sig nær nútímanum. Bókin segir frá fornbóksalanum Gi- ambattista „Yambo“ Bodoni sem missir atburðaminni í kjölfar heila- blæðingar. Fyrir vikið man Yambo ekki hvað hann heitir, ekki eftir eiginkonu sinni eða börnum og barnabörnum og stærstum hluta ævi sinnar, en hann er rétt innan við sextugt. Aftur á móti er stað- reyndarminni hans nokkuð heillegt að því leyti að hann man að segja allar bækur sem hann hefur lesið, ljóð, skáldsögur og fræðibækur. Þessar lestrarminningar taka smám saman að troða sér inn í tómarúmið sem eftir er í kollinum á honum og hann á erfitt með að greiða á milli raunverulegra at- burða og þess sem hann hefur lesið. Til þess að reyna að grafa fram týndu minningarnar snýr hann aft- ur heim á æskuslóðir, í gamlan sveitabæ sem hann erfði eftir for- eldra sína, og tekur að róta í gömlu dóti, reyfurum, grammófónplötum, tímaritum, dagblöðum og has- arblöðum í leit að sjálfum sér. Sú leit gengur þó ekki nema miðlungi vel því hann missir frekar sjónar á sjálfinu í öllum smáatriðunum. Steininn tekur úr er hann rekst á frumútgáfu leikrita Shakespeares – þá fyrst hverfur hann aftur til æsk- unnar og á þaðan ekki afturkvæmt nema honum takist að finna í minn- ingahafinu andlit fyrstu stúlkunnar sem hann elskaði. Saga heillar kynslóðar Í þessari bráðskemmtilegu sögu er Eco að leika sér með ýmis minni, meðal annars með hlutverk bók- mennta og þá ekki síst það hvernig „ruslbókmenntir“, sem gjarnan eru í litlum metum, eru mikilvægar í að móta smekk okkar og lífsskoðanir. Hann veltir líka bókum almennt og inntaki þeirra fyrir sér og dregur einnig upp mynd af því hvernig það var að vera ungmenni á dögum þeirrar sérkennilegu hópsefjunar sem fasisminn var á Ítalíu. Ekki er það þó svo að Eco sé að segja eigin ævisögu þó að hann hafi einmitt lif- að þá tíma, fæddur 1932, heldur hefur hann látið þau orð falla í við- tali að hann sé að segja sögu heillar kynslóðar og þó að hann sæki í æskuminningar sínar hvað varðar hasarblöð, reyfara og lakkplötur þá sæki hann líka minningar til annarra og skáldi upp eftir þörfum til að sagan hafi sem víðasta skír- skotun. Forvitnilegar bækur: Hvað er á milli línanna? Texti og tilurð hans Minningar The Mysterious Flame of Queen Loana er ríkulega skreytt myndum úr æskubókmenntum skáldsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.