Morgunblaðið - 16.09.2009, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009
44.000 manns í aðsókn!
SÝND Í SMÁRABÍÓI
FRÁ LEIKSTJÓRA
QUENTIN TARANTINO
KEMUR HANS MAGNAÐASTA,
VILLTASTA OG STÓRKOSTLEGASTA
ÆVINTÝRI TIL ÞESSA.
HHHHH
- H.G.G,
Poppland/Rás 2
HHHHH
“Besta Tarantino-myndin
síðan Pulp Fiction og
klárlega ein af betri
myndum ársins”
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHHH
“ein eftirminnilegasta
mynd ársins og ein
sú skemmtilegasta”
S.V. - MBL
HHHH
„Gargandi snilld
allt saman bara.“
Þ.Þ – DV
Stranglega bönnuð
börnum innan 16 ára
ÓTRÚLEG UPPLIFUN Í 3D
POWER
SÝNIN
G
Á STÆ
RSTA D
IGITAL
TJALD
I LAND
SINS
KL. 10
:00
2 VIKUR
Á TOPPNUM
Í BANDARÍKJUNUM!
„Á ÉG AÐ GÆTA
SYSTUR MINNAR“
Sýnd kl. 6 og 9
Sýnd kl. 6 og 10 (Powersýning)
Sýnd kl. 5:50 og 10:10 Sýnd kl. 8
Stranglega bönnuð börnum innan 16 ára
SÝND Í SMÁRABÍÓI
SÝND Í REGNBOGANUM
Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónumwww.laugarasbio.is
Þú færð 5%
endurgreitt
í Smárabíó
ðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!
50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á
-bara lúxus
Sími 553 2075
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓÍ OG BORGARBÍÓI
Final Destination 3–D kl. 6 - 8 - 10 B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 5 - 8 B.i.16 ára
Halloween 2 kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i.16 ára Ísöld 3 3–D (ísl. tal) kl. 3:45 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 B.i.16 ára Ísöld 3 (ísl. tal) kl. 3:40 LEYFÐ
Inglorious Bastards kl. 5 - 8 Lúxus
Hinir kátu piltar semkenna sig við Baggalúthafa farið talsverðan ítónlistarflutningi og -út-
gáfu undanfarin misseri og hefur
framlag þeirra jafnan verið með
þakklátasta móti
enda strákarnir
með afbrigðum
orðsnjallir. Gleði
sú og hárbeitta
glettni sem þeir
hafa á hraðbergi
er enda vel þegin
þegar hart er í ári – eins og nú – og
því er vel til fundið að þeir taki sig
til og gefi út akkúrat þessa plötu,
akkúrat núna. Þegar við blasa
brottflutningar af Fróni vegna
þeirrar óáranar sem yfir liggur, af
stærðargráðu sem vart hefur sést
síðan seint á 19. öld er landinn flúði
hallæri hérlendis í stórum stíl vest-
ur um haf, er vel við hæfi að
Baggalútur minnist þeirra sem
lögðu á sig langa ferð í leit að betra
lífi.
Það er ekki síður við hæfi að
Baggalútsmenn sæki í hirzlur Vest-
urfarans Káins (sem skírður var
Kristján Níels Jónsson, og þar af
með upphafsstafina K.N.) í tilefni
þessarar útgáfu en Káinn hjó einatt
í áþekkan knérunn og téðir Bagga-
lútsbræður; hans aðal var kímni-
kveðskapur, oft með hárbeittri
ádeilu í bland, og hann hefði án
nokkurs vafa sómt sér hið besta í
félagsskap piltanna. Nafn plöt-
unnar, Sólskinið í Dakóta, er ein-
mitt fengið úr samnefndu kvæði
eftir skáldið, en þar bjó Káinn í ein
sextíu ár og til dauðadags.
Er þá ótalið þriðja trompið
þeirra Baggalúta, á eftir tímasetn-
ingunni og efniviðnum, en það er að
hafa fengið Megas í lið með sér við
flutninginn. Undirritaður hefur
aldrei talist til hins harða aðdá-
endahóps hans en það verður að
segjast að þessi skífa hrekkur í
talsvert annan og veigameiri gír
þegar hans er orðið. Hin rúnum
rista rödd Megasar hæfir fortíð-
arstemningunni aldeilis frábærlega
og maður spyr sig hvers vegna í
veröldinni platan var ekki lögð upp
sem samstarfsverkefni Baggalúts
og Megasar frá a til ö, í stað þess
að hafa hann bara með í þremur
lögum af ellefu. Slíkt fyrirkomulag
hefði boðið upp á galopinn glugga
til hinna gömlu daga og tilhugsunin
um hvað hefði getað orðið gerir
mann hálfspældan. Aðrir söngvarar
komast þokkalega frá sínu, það
vantar ekki, en samanburðurinn við
Megas er þeim ekki í hag. Gylfi
Ægisson syngur eitt lag og ljær því
sinn alkunna „Sjúddirarirei“-blæ,
en hann á einhvern veginn ekkert
sérstaklega vel heima í samhengi
plötunnar.
En ekki þýðir að fást um það
sem ekki fæst. Lagasmíðarnar við
kvæði Káins eru í flestum tilfellum
fínar, utan þriggja gripa þunnildið
sem Gylfi Ægis fær að moða úr, og
kvæðin sjálf eru klassík út af fyrir
sig. Fyrir utan þau þrjú sem Megas
fær til flutnings verður að nefna tit-
illagið sem er aldeilis frábært og
svo lokalagið sem er alfarið Bagga-
lúts. Þar er klykkt út með dýrt
kveðnum ástaróði til ættjarðarinnar
og hlustendum blásinn í brjóst bar-
áttuandi og hvatning að hopa ekki
af hólmi nú þegar spjót standa á
Ísafold heldur standa vörðinn í
þetta sinn, sama hvað. Lagið er
reyndar poppað upp með trommu-
leik sem er illa séður á þessum bæ
og hefði farið betur sem kórsöngur,
en það er enn önnur saga. Platan er
í heildina skemmtileg, albúmið
huggulegt og skífan mun vafalaust
og réttilega rokseljast.
Baggalútur – Sólskinið í Dakóta
bbbnn
JÓN AGNAR
ÓLASON
TÓNLIST
Ljósmynd/Gúndi
Baggalútur í Kanada Baggalúts-menn hvíla lúin bein á ónefndum stað.
Vesturheims káti kveðskapur
BÍTILSSONURINN Sean Lennon
fetar í fótspor föður síns, Johns Len-
nons, og móður, Yoko Ono, á forsíðu
nýjasta tölublaðs franska tímaritsins
Purple.
Þar birtist hann í endurgerð á
frægri mynd af foreldrum sínum
sem var á forsíðu tímaritsins Rolling
Stone árið 1981. Myndin var tekin af
Annie Leibovitz og sýnir Ono liggja
fullklædda á rúmi og John Lennon
vefur sig nakinn utan um hana.
Nýja myndin er tekin af Terry
Richardson og er nokkuð frábrugð-
in fyrirmyndinni. Þar er Sean í stað
móður sinnar meðan unnusta hans,
fyrirsætan Kemp Muhl, er í stöðu
Johns Lennons.
Skiptar skoðanir eru um uppá-
tækið enda upprunalega myndin í
uppáhaldi hjá mörgum. Hún þykir
mjög sterk sérstaklega með tilliti til
hlutverka kynjanna.
Myndin þykir líka sýna sanna ást
og nándina sem var á milli Ono og
Lennons.
Eftirmyndin af Sean Lennon þyk-
ir aftur á móti vera afturför þar sem
kvenlíkaminn er notaður til að selja
og hlutverk kynjanna sett í staðlaða
mynd. Orð hefur líka verið haft á því
að myndirnar sýni muninn á sannri
ást og girnd.
Sean Lennon er fæddur á 35 ára
afmælisdegi föður síns 9. október
1975. Hann starfar aðallega sem
tónlistarmaður en við litla farsæld.
Segja þeir sem gagnrýna ljósmynd-
ina að Sean Lennon eyði öllu sínu lífi
í að reyna að feta í fótspor föður síns
en misheppnist alltaf.
ingveldur@mbl.is
Lennon fetar í fót-
spor foreldranna
Gamalt og nýtt Yoko Ono og John Lennon t.v. á forsíðu Rolling Stone,
Sean Lennon og unnusta hans, fyrirsætan Kemp Muhl, á forsíðu Purple.