Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 41

Morgunblaðið - 16.09.2009, Síða 41
» Leirkerasmíð hefurekki verið talin til kynæsandi verka en var það svo sannarlega í Ghost. Leikarinn vingjarnlegi, Pat-cick Swayze, lést í fyrradag,57 ára að aldri. Swayze var sjarmatröll mikið og kyntákn á 9. og 10. áratugnum, góður gæi sem þó gat látið hnefana tala tilneyddur, þ.e.a.s. í kvikmyndum. Swayze nam listdans ungur að árum og það kom sér sannarlega vel fyrir hann á leik- araferlinum. Hann vakti gífurlega athygli (þá einkum kvenna) fyrir limaburð sinn í költ-myndinni Dirty Dancing. Já, költ segi ég og skrifa því ég veit fyrir víst að hjartsláttur kvenna fór upp í a.m.k. 140 slög á mínútu þegar Swayze tók mótleik- konu sína, Jennifer Grey, trausta- taki og steig með henni djarfan dans. Dirty Dancing, nefnd Í djörf- um dansi á Íslandi, ef ég man rétt, skaut Swayze upp á stjörnuhim- ininn og það langt upp. Föngulegir karlmenn sem dansa vel hafa enda lengi kveikt í kvenþjóðinni, sam- anber John Travolta. Líkt og Tra- volta í Saturday Night Fever var Swayze óheflaður á yfirborðinu, óþekkur strákur, en mjúkur hið innra. Hin fullkomna formúla fyrir ungar konur, svo að segja.    En Swayze var ekki aðeinssnoppufríður danskroppur, hann brá sér einnig í hlutverk hörkutóla og slagsmálahunda. Árið 1989 var strákamyndin Road House frumsýnd, en þar lék Swayze hörkutól mikið og slagsmálameist- ara, Dalton, sem reynir að forðast vandræði en endar með því að lim- lesta og drepa bófagengi nágranna síns. Myndin verður seint talin til meistaraverka en Swayze sýndi mikil tilþrif í slagsmálalistum. Árið 1990 var svo kvikmyndin Ghost frumsýnd, sjálfsagt sú mynda hans sem hvað mestra vinsælda hefur notið. Vakti þar einkum athygli eld- heitt ástaratriði þar sem Swayze og Demi Moore stunduðu ástarleiki og leirkerasmíð samstundis. Leirkera- smíð hefur ekki verið talin til kyn- æsandi verka en var það svo sann- arlega í Ghost. Enn og aftur var kappinn í hlutverki hins mjúka en þó harða karlmanns. Og ekki olli hann kvenkyns aðdá- endum sínum vonbrigðum ári síðar þegar hann brá sér í gervi brim- brettakappa í Point Break. Reynd- ar var hann þar í hlutverki vonda gaursins en þó alltaf jafn viðkunn- anlegur. Sjálfsagt hefur Swayze verið þessi góði gæi í sínu daglega lífi og því átt erfitt með að túlka vonda gæja. Annar kvennaljómi, Keanu Reeves, lék í þeirri ágætu hasarmynd og jók testósteron- magnið þónokkuð. Önnur ræma sem ungar meyjar víða um lönd horfðu dáleiddar á. Eftir þetta lá leiðin niður á við hjá Swayze, fjöldi slakra kvikmynda dró hann niður af stjörnuhimninum. Það var þó helst að prýðileg frammistaða hans í hinni stórgóðu Donnie Darko frá árinu 2001 hafi minnt fólk á hann.    Leikarinn vin-gjarnlegi greindist svo með krabbamein í brisi í fyrra en þó virtist sem hann myndi ná sér af þeim veikindum, miðað við fréttaflutning í byrjun árs. Í október í fyrra sannaðist svo að Swayze var sú hetja sem hann túlkaði svo oft í kvikmyndum. Hann sagði þá í samtali við fjölmiðla að hann hefði jákvætt viðhorf til lífsins og væri staðráðinn í því að halda áfram störfum, þrátt fyrir að rann- sóknir sýndu að lífslíkur hans væru litlar. Hann gagnrýndi einnig fjöl- miðla fyrir að færa fréttir af því að hann væri við dauðans dyr, sagði slíkar fréttir grimmilegar því vonin væri mönnum afar dýrmæt í slíkri baráttu. Swayze barðist við krabba- meinið í 20 mánuði en vann ekki sigur á þeim skæða fjanda. Hann lést í faðmi fjölskyldunnar í fyrra- dag. helgisnaer@mbl.is AF LISTUM Helgi Snær Sigurðsson Í djörfum dansi Swayze og Grey í Dirty Dancing. Leirker og ást Swayze og Moore í ástarmyndinni Ghost sem naut gríðarlegra vinsælda á sínum tíma. Reuters Hvíl í friði, djarfi dansari HERE COMES THE BRIBE ... BÓNORÐIÐ THE PROPOSAL „EKKI FYRIRHÚMORSLAUSA“ HHH ÓTRÚLEGA VEL UNNIN OG SKEMMTILEGUR SVARTUR HÚMOR” T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHH „...MARKAR NÝJA SLÓÐ Í ÍSLENSKRI KVIKMYNDAGERГ ÓHT RÁS 2. HHH “ONE PERFORMANCE BLEW ALL OF THE OTHERS OUT OF THE WATER ... HELGI BJÖRNSSON” AO ICELAND REVIEW SÝND Í ÁLFABAKKA „DAZZLINGLY WELL MADE...“ VARIETY - 90/100 „HÚN VAR FRÁBÆR!“ NEW YORK MAGAZINE – 90/100 Venjulegt verð – 1050 kr. EIN ALLRA BES TA DISNEY-PIXAR MYND TIL ÞES SA HHHH - T.V. KVIKMYNDIR.IS HHHH - ROGER EBERT HHHH – H.S. MBL HHHH RÁS 2-HGG HHHH Ó.H.T. RÁS 2 100/100 – VARIETY 100/100 – THE HOLLYWOOD REPORTER Í REYKJAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNN SÝND MEÐÍSLENSKU OGENSKU TALI TVÆR ÓLÍKLEGAR HETJUR MUNU FINNA TÝNDA VERÖLD, EN STÆRSTA ÆVINTÝRIÐ VERÐUR AÐ KOMAST AFTUR HEIM STÓRKOSTLEGT ÆVINTÝRI SEM ENGIN FJÖLSKYLDA MÁ MISSA AF GAGNRÝNENDUR ERU Á EINU MÁLI “BESTA MYND ÁRSINS” / AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI BANDSLAM kl. 8 - 10:10 L REYKJAVÍK WHALE WAT.. kl. 8 - 10:10 16 REYKJAVÍK WHALE WAT... kl. 8 - 10:10 16 THE TAKING OF PELHAM... kl. 8 16 KARLAR SEM HATA KON... kl. 10:10 16 REYKJAVÍK WHALE WATCHING kl. 8 - 10:20 16 DRAG ME TO HELL kl. 8 16 INGLOURIOUS BASTERDS kl. 10 16 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 2009 BENNY Andersson, einn fjórmenninganna sem skipuðu ABBA, segir í samtali við dag- blaðið Sunday Telegraph að ekkert verði af framhaldi á söngvamyndinni Mamma Mia! sem byggðist á samnefndum söngleik sem unninn var upp úr lögum kvartettsins. Aðdá- endur kvikmyndarinnar eru væntanlega vonsviknir yfir þessum ummælum And- erssons og þá Íslendingar m.a., en myndin var gríðarlega vinsæl hér á landi. Orðrómur um framhaldsmynd komst á kreik þegar að- alstjarna myndarinnar, Meryl Streep, sagð- ist ekkert hafa á móti því að leika í fram- haldsmynd Mamma Mia! Myndin er sú vinsælasta á Bretlandseyjum fyrr og síðar, tekjur af miðasölu af henni voru meiri en af Titanic. Þrátt fyrir miklar vinsældir myndarinnar víða um heim vill Andersson ekki veita leyfi fyrir því að lögin hans með ABBA verði not- uð í framhaldsmynd, þ.e. þau sem ekki voru notuð í Mamma Mia! Andersson útilokar þó ekki að framleiðendur mögulegrar fram- haldsmyndar ráði tónskáld í að semja tónlist fyrir myndina. Handritshöfundur Mamma Mia!, Catherine Johnson, ku vinna að fram- haldsmynd en þó ekki með ABBA-lögum, að sögn Anderssons. Andersson mun koma fram á sérstökum tónleikum BBC í Hyde Park í Lundúnum á sunnudaginn, þar sem ABBA verður heiðr- uð. Þar munu þau Lulu, Chaka Khan, Jamie Cullum, Elaine Paige og Marti Pellow úr Wet, Wet, Wet flytja slagara kvartettsins. Mamma Mia 2? Nei, takk! ABBA Benny lengst til hægri. Hann vill ekki að lög hans með kvartettnum verði notuð í framhaldsmynd. Mamma mía! Íslendingar sungu með og dönsuðu á Mamma Mia! í fyrra.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.