Morgunblaðið - 16.09.2009, Blaðsíða 44
MIÐVIKUDAGUR 16. SEPTEMBER 259. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Hinir „útrásaróðu“
slagverksmenn í Para-
bólu-hópnum hafa ver-
ið beðnir að leika á
Carnegie-list-
verðlaunahátíðinni sem
fram fer í Kunsthal
Charlottenborg í Kaupmannahöfn á
morgun. Hópinn skipa þeir Sig-
tryggur Baldursson, Steingrímur
Guðmundsson og Guðmundur Vign-
ir Karlsson. Leika þeir á svokallaðar
endurvarps-parabólur, en tól þessi
eru í raun hlífar fyrir örbylgjudiska
sem hafa séð um að taka á móti og
senda örbylgjur yfir hálendi Íslands
síðustu ár, en eru nú komnir nokkuð
úr tísku sökum nýrrar tækni. Hóp-
urinn kom m.a. fram með eldorgeli
hins franska Michels Moglia á Aust-
urvelli á Vetrarhátíð árið 2007.
Íslenskar parabólur
í Kaupmannahöfn
!
"
# $
%
%
"
&' ("'
" )
*+,-./
+01-+,
**1-0+
+1-,0.
+0-2,3
*3-/3/
**2-,3
*-,433
*24-.+
*.0-21
5 675 *4# 89
6 +002
*+1-*/
+01-3,
**1-,4
+1-,32
+0-222
*3-3+.
**2-3
*-,/*3
*2/-1
*.*-14
+,,-3313
&:8
*+1-1/
+04-+,
**1-/.
+1-14
+*-0/*
*3-3.
*+0-0,
*-,/43
*2/-2.
*.*-2/
Heitast 13°C | Kaldast 6°C
Gengur í sunnan 8-
13 m/s með rigningu
og súld, fyrst SV-til en
lengst af þurrt um
landið norðaustanvert. »10
Bók Umbertos
Ecos, The Myster-
ious Flame of Queen
Loana, er skemmti-
leg að mati Árna
Matthíassonar. »38
BÓKMENNTIR»
Dularfulli
loginn
TÓNLIST»
Baggalútur fær þrjár
stjörnur af fimm. »39
Hrönn Marinós-
dóttir, stjórnandi
RIFF, segir hátíð-
ina vera á heims-
mælikvarða að
þessu sinni. »36
KVIKMYNDIR»
Það besta
og nýjasta
SJÓNVARP»
Viltu verða fangi í
Kringlunni? »40
KVIKMYNDIR»
Ekki er útlit fyrir
Mamma Mia 2. »41
Menning
VEÐUR»
1. Anna á Hesteyri látin
2. Forstöðuhjón Krossins að skilja
3. Patrick Swayze látinn
4. Bíræfnir búðarþjófar
Íslenska krónan styrktist um 0,2%
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Þótt Eiður Smári
Guðjohnsen sé fluttur
til furstadæmisins
Mónakó og byrjaður að
spila með liði þess í
frönsku 1. deildinni í
fótbolta er fjölskylda
hans enn í Barcelona. Eiður býr sem
stendur á hóteli í Mónakó, eins og
fleiri leikmenn liðsins, en Ragnhildur
Sveinsdóttir eiginkona hans og syn-
irnir Sveinn Aron, Andri Lucas og
Daníel Tristan eru í katalónsku
borginni. Eiður segir í ítarlegu við-
tali við Morgunblaðið í dag að þau
muni verða þar fram að jólum. Hann
á eftir að finna íbúð fyrir fjölskyld-
una í Mónakó. | Íþróttir
Fjölskylda Eiðs verður í
Barcelona fram að jólum
„Það er mikill kraft-
ur í fólki og hugur og
fyrir mig sem frétta-
fíkil sem hefur gaman
af spennu og hraða er
þetta draumastarf,“
sagði Elín Sveinsdóttir
útsendingarstjóri sem mun stýra út-
sendingum og hafa yfirumsjón með
framleiðslunni á nýjum fréttaþætti á
SkjáEinum. Elín hefur ríflega tutt-
ugu ára starfsreynslu í sjónvarpi og
stýrði fréttaútsendingum og kosn-
ingasjónvarpi Stöðvar 2 til margra
ára. Fréttirnar í nýja fréttatímanum
verða unnar á fréttastofu Morgun-
blaðsins en stefnt verður að því að
hefja útsendingar í þessum mánuði.
Reynslubolti og fréttafíkill
stýrir fréttatíma
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„MÉR líður betur og ég er byrjuð að borða pínu,“
segir Alexandra Líf Ólafsdóttir sem er nú óðum að
ná sér eftir beinmergsskiptaaðgerð sem hún
gekkst undir fyrir fjórum vikum vegna MDS-
krabbameins. „Ég fór út í fyrsta skipti í gær. Ég
hef ekki farið út í fjórar vikur en við fórum ekki
langt og vorum bara hérna fyrir utan,“ segir Alex-
andra Líf sem býr ásamt foreldrum og þremur
yngri systkinum í Danmörku.
„Ég má kannski aðeins fara heim á morgun en
litli bróðir minn og systir eru búin að vera með
kvef svo þau verða ekki heima,“ segir Alexandra
Líf.
Fara varlega vegna sýkingarhættu
Foreldrarnir, Ólafur Páll Birgisson og Kolbrún
Björnsdóttir, hafa skipst á að vera hjá Alexöndru
Líf en hún er nú laus úr algjörri einangrun. Slík
einangrun er nauðsynleg í kjölfar beinmergs-
skiptaaðgerða, þar sem ónæmiskerfi líkamans
verður óvirkt. „Hún varð svo glöð fyrir tveimur
dögum því þá mátti mamma hennar knúsa hana al-
mennilega og koma við hana án þess að vera með
hanska og grímu,“ segir Ólafur Páll, faðir Alex-
öndru Lífar.
Hann segir þau hjónin bjartsýn og að Alexandra
Líf hafi verið nokkuð hress undanfarna daga. Þó
verði að fara varlega vegna sýkingarhættu. „Þegar
hún fær að fara heim, vonandi eftir eina til tvær
vikur, verðum við að taka systkini hennar úr leik-
skólanum í tvær vikur því sýkingar berast svo auð-
veldlega þaðan. Svo förum við tvisvar eða þrisvar í
viku á spítalann í sex mánuði þar sem fylgst verður
vel með henni,“ segir Ólafur Páll.
Fékk að knúsa mömmu
Foreldrar Alexöndru Lífar eru bjartsýnir og hún hefur verið nokkuð hress
undanfarna daga Rúmlega fimm milljónir söfnuðust á styrktartónleikum
Í HNOTSKURN
»Alexandra Líf er með MDS-krabbameinog eina lækningin er beinmergsskipti.
»Tónleikar voru haldnir til styrktarAlexöndru Líf og fjölskyldu á mánudag-
inn og þar söfnuðust rúmlega fimm millj-
ónir.
»Alexandra Líf segir að tónleikarnir hafiverið teknir upp fyrir sig og að fjöl-
skyldan ætli að horfa á þá þegar hún verð-
ur komin heim af spítalanum. Systur Alexandra Líf fyrir aðgerðina ásamt litlu
systur sinni Ronju sem gaf beinmerginn.
NÝ og afar óvenjuleg tónleikaröð
hefur göngu sína í Fríkirkjunni í
Reykjavík kl. 12.15 í dag.
Það verður ekkert gefið upp hverj-
ir syngja eða spila, og ekki orð fæst
um það hvaða tónlist verður flutt.
„Í sumar var ég að hugsa um
ástandið á Íslandi og fór að velta því
fyrir mér hvað við tónlistarmenn
gætum gert. Þá datt mér í hug að
gaman væri að skipuleggja tónleika-
röð, þar sem engu máli skipti hver
syngi eða spilaði – það eina sem
skipti máli væri tónlistin,“ segir pí-
anóleikarinn og hljómsveitarstjórinn
Gerrit Schuil, stjórnandi tónleikarað-
arinnar, sem þegar er fullmótuð til
áramóta.
„Ég lofa þó einu, að það verður
okkar allra besta tónlistarfólk sem
kemur fram; fólk sem ég hef unnið
með gegnum árin.“ Tónleikaröðin
hefur fengið nafnið Ljáðu okkur
eyra, og er aðgangur að tónleikunum
ókeypis. | 35
Óvissuferð
á tónleika
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stjórnandinn Gerrit Schuil.
ENGAR sjósamgöngur voru milli lands og Eyja í gær.
Herjólfur er í slipp á Akureyri og ekki er gert ráð fyrir
að skipið komi til baka fyrr en 24. september. Ferjan
Baldur má ekki sigla fari ölduhæð yfir 3,5 m á Surts-
eyjardufli. Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmanna-
eyja, segir 4.100 manns ósátta við að ekki skuli fást
sambærilegt skip til þess að leysa Herjólf af. „Við höf-
um fullan skilning á efnahagsástandinu en það bætir
það ekki að leggja niður grundvallaratvinnugreinina í
nokkra daga. Þetta snýst ekki bara um þá sjálfsögðu
kröfu bæjarbúa að komast að heiman og heim. Þetta
snýst einnig um fyrirtækin.“ Að sögn Elliða mun til
dæmis vinna liggja niðri hjá einum stærsta vinnustaðn-
um, Godthaab, þar sem ekki var hægt að flytja ferska
fiskinn sem átti að vinna til Eyja. Ekki var heldur hægt
að flytja vörur frá Grími kokki til meginlandsins.
4.100 ÓSÁTTIR VIÐ EINANGRUN
Ljósmynd/Þorgeir