Skólablaðið - 12.11.1935, Blaðsíða 7
-7-
í TRJÁGAKÐI HRESSINGASSKALAMS.
Ég sit við lund í litlum, fögruv garði
og ljúfir vindar strjúka hægt um kinn,
og ljósin flökta fegri’en nokkurt sinn.
er fellur sunna’ a Þoku’ í Vonarskarði.
Hér sitja menn og minnast fomra kvelda.
Hér muna fæstir dagsins böl og strit.
Hér gleypir Mammon vell en Baccus vit.
Og vonir mæðra hverfa> í sorgarelda.
A. L.
KOSNING- Á UMSJCWARMAMNI SKÓLANS.
Að Þessu sinni fóru umsjónarmannskosn-
ingar, eins og kunnugt er, á Þann hatt, aó
Sigurður Ólafsson var kosinn með 78 atkvæð-
um, en Gylfi Þ. Gíslason fékk 62 atkvæði.
Ef til vill er Þetta hið mesta asnastrik,
sem nemendur Þessa skóla, sem slxkir, hafa
framið. Hefðu nemendur athugað hvað Þeir
voru að gjöra, en ekki latið pólitíska lodd-
ara og gönuhlaupsmenn spila með sig, hefði
öðruvxsi farið. Mér dettur ekki í hug að
fara að gera samanburð á Þeim tvein mönnum,
sem Þarna var um að velja, til Þess er mun-
urinn allt of mikill. Dugnað og framkvæmda-
semiGylfa Þekkja allir, sem honum hafa
kynnst, og var Því eigi á öðrum betri manni
kostur í Þetta sæti en honum. Með Því að
láta kosningarnar fara eins og teer fóru,
hafa nemendur grafið að fullu cg öllu fjölda
nýiæela merkra og gagnlegar- fyrir Þennan
skóla. Maður eins og Gylfi, sem að Þvi er
eftir Þessari kosningu að dæma, hefir
ekki meira en Þetta fylgi á balc við sig,
Þó að hinu leytinu, ef rétt væri að farið,
ætti að hafa alla nemendur undantekningar-
laust á bak við sig, getur alls ekki, sem
skiljanlegt er verið að koma fram með éhuga-
mél sín, vitandi Það, að hinir sörau loddar-
ar gætu ef til vill komið Því Þannig fyrir,
að Þau næðu eigi fram að ganga. Þetta hafa
nemendur eflaust ekki athugað. Því ólxklegt
er, að Þeir að Þessu athuguðu, og fleiru
er Gylfi hefði getað látið af sér leiða,
hefðu Þá ekki kosið hann. Það var sérstak-
lega eitt, sem mér kom undarlega fyrir sjón-
ir við Þessar kosningar. Ýmsir loddarar og
sjálfbirgingar hér í skóla gengu um fyrir
kosningemar og breiddu Það út mjög atakan-
lega hvað Gylfi Þ. Gíslason væri mikill krati,
Það út af fyrir sig að maðurinn sé krati,
get ég alls ekki fundið honum til lasts,
heldur Þvert é móti. En Það, sem nemendur
ekki hafa. a thugað, var að, Þó að Gylfi væri
krati, Þá hefði hann á engan hétt getað unnið
gegn neinni stjórnmélastefnu í Þessu embeetti,
frekar en hver annar nemandi skólans. Einnig
virðist, sem nemendur séu nú fyrst að veita
Því oftjLrbekt, hvílíkan skaða Þeir sér unnið
hafa, með Því að fella Gylfa, og greiða nú
loddurunum, eða minnsta kosti einum Þeirra,
lsun moldvörpustarfsemi sinnar, með Því að
greiÆ^niéicki ei'tt einasta atkvæði í nefndar-
kosningu á skólafundi. Nemendur varið ykkur
é Þeim, Þeir koma til ykkar í sauðargæru.
Menn, sem af einhverjum óviðráðanlegum hvctum,
virðast neyddir til að útbreiða í meira eða .
minna mæli róg um néungann, eru hættulegir,
bæði hér í skóla og annarsstaðar. Það hefir
og kcmið í ljóst Þegar, að Þeir hafa hér sem
annarsstaðar verið harla óÞarfir. Eg leyfi
mér að efast um, í fullri vii'ðingu fyrir
Sigurði Ólafssyni sem manni, að hann reynist
vaxinn Því starfi, sem hann hér hefir tekist
é hendur. Mér hefir Þótt Sigurður alltaf
frekar da.ufgerður, og held ég, að Það hafi
lxtið bastt hann í Því tilliti, að verða
inspector ccholae.
Ég ætla svo elcki að orðlengja um Þetta
frekar. en vona að Þeir menn, sem unnu mest
að Því, að fella Gylfa, en koma Sigurði að,
geri á einhvem skiljanlegan hátt grein fyrir
Því hér í blaðinu, hvað legið hafi til grund-
vallar starfsemi Þeirra.
Ef Þeir segðu samvizkusamlega frá, gæti ég
trúað, að eitthvað einkennilegt kæmi ef til
vill é daginn.
Gunnar Stefánz.
Svargrein kemur í næsta blaði.