Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 12.11.1935, Síða 12

Skólablaðið - 12.11.1935, Síða 12
12- VERELAUNASAMKEPEWI SKÓLA3LAÐSINS. Ritnefnd Skólablaðsins hefir afchugað möguleik8 fyrir Því, að efna til verðlauna- samkeppni innan skólans, og eftir nakvjsma yfirvegun, hefir hún ákveðið að veita Þrenn verðlaun, 15 kr. , 10 kr. og 5 kr. fyrir Þá beztu skáldsögu, sem henni berst í hendur fyrir lok nóvembermánaðar. Öllum nemendum Menntaskólans í Reykja- vík er heimil Þátttaka. Tekur ritnefnd sögumar til íhugunar og ákveður í samráði við hina 3 íslenzkukennara skólans, Þá Sv. Sig. , Bj, Guð. og St. P. hverjar Þrjár hljóti verðlaun. Sögunum skal koma til einhvers ritnefndamanna fyr- ir nóvemberlok. Þssr mega vera undir dul- nefni, Þó Þannig að viðkomandi ritnefndar- maður viti nafn hlutaðeiganda. Sögunum, hverri fyrir sig, er ætlað 3 blaðsíðna pláss í blaðinu, Þó er eigi fastbundið við Það, mege vera lengri eða styttri eftir ástæðum. Ritnefndin áskilur sér rétt til að birta Þrjár Þær sögur, sem verðlaun hljóta,í blaðinu, og ef til vill fleiri, ef rétt Þykir. Ritnefndin. L Á T í N A. Hér sit ég og grúska í gauðrifnum skræöum með gömlum og ómerkum latneskum ræðum. En hljóðlega út í húminu blæinn ég heyri nú Þjóta um upplýstan bæinn. Að hýrast nú inni með hugann við lestur er hreinasta plága Því vilja mig brestur. Eg lifi í trú um að lítið við græðum á latneskum "syntaks" og álíka fræðum. Min löngun er aðeins að lifa og njóta en lamandi hlekki af sjálfum mér brjóta, og helvizkum skruddunum hendi ég frá mér. og hleyp út á götu,nú liggur vel á mér. Hér ólgar Þó lífið x freyðandi flaumi og fólksmergðin bærist í taumlausum straumi, Því hér er Það gleðin, sem ríkir og ræður nú- rjúk8 úr huganum latneskar skræður. H.K. SKÓLASK'RÍLL. Það er oftast ljótt um að litast í fata- geymslunni Þegar maður kemur til Þess að ná í fötin sín, Þegar skólinn er úti. Það er engu líkara en að viðbjóðslegur skríll hafi gert sér Það að leik, að rxfa niður fötin og kesta Þeim í sllar áttir, hattarnir eru troðn- ir í gólfið, Þeim er snúið við eða eyðilagðir á annan hátt, skóhlífarnar faldar og ýmsar aðrar hundakúnstir hafðar í frammi. Mað\ir á bágt með að trúa að Þetta séu félagar okkar í skólanum, sem haga sér Þannig, Því jafn- vel verstu götustrákar myndu veigra sér við slíku athæfi. Þarna eru menntamennimir að verki.'.' J Óskil janlegt skrílsæðij Fötm\jm er misÞyrmtJ Það er eins og Þessir náungar Þjáist af sa>disma. Og hann bitnar á fötunmi í! Hlægilegt, óskiljanlegtj Jé, sannarlega eru Þessir náungar hlægilegir og brjóstumkennan- legir. Skólablaðið varar Þessa menn við slíku athæfi. Ef umgengnin í fatageymslunni batnar ekki Þegar í stað, mun Það birta nöfn Þess- ara. manna, ef kostur gefst á. Munu Þeir Þá verða að athlægi og ávinna sér lítilsvirð- ingu allra siðaðra nemenda. H. J. DANZLEIKUR "FJÖLNI S". Hinn árlegi danzleikur mádfundafélagsins "Fjölnis", verður haldinn í húsi Oddfellowa laugarda.ginn 16. nóv. kl. 9^ e. h, Danzleikir "Fjölnis" hafa alltaf Þótt einhver bezta skemmtun ársins, sú er nemendur hafa haft að- gang að. Fullyrðir skemmtinefndin að svo muni einnig verða í ár. Skoror Skólablaðið á nemendur oð fjöl- menna,svo Þessi skemmtun Gagnfræða-deildar- innar geti farið sem bezt from.

x

Skólablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.