Morgunblaðið - 07.12.2009, Page 1
M Á N U D A G U R 7. D E S E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Jólase
ríur
Kviknar á öllum perum?
*Nánar um skilmála á flytjandi.is
PI
PAPAA
RR
\
TB
W
A
W
A
T
•••
SÍ
A
•
SÍ
A
•
9
8
81
91
8
«SÓDÓMA
ROKKABILLY OG HÚÐ-
FLÚR TRYLLIR LÝÐINN
«SAMFÉLAGSGJÖRNINGUR
Fátækrasúpa úti
fyrir almenning
6
LOFTSLAGSRÁÐSTEFNA Sam-
einuðu þjóðanna verður sett í
Kaupmannahöfn í dag. „Þetta er
stærsta einstaka verkefni sem
nokkur kynslóð hefur staðið
frammi fyrir,“ segir Svandís Svav-
arsdóttir umhverfisráðherra.
„Við einfaldlega verðum að snúa
við blaðinu og breyta lifnaðar-
háttum og lífsstíl, sérstaklega í
okkar hluta heimsins sem ber
stærstan hluta ábyrgðarinnar á því
sem hefur leitt til loftslagsbreyt-
inga. Hitt er í raun tæknileg
smáatriði ef maður horfir framan í
verkefnið og horfir framan í börnin
sín,“ segir Svandís.
Nú fari umræðan að snúast um
að horfa á almennar heimildir,
reglur og skorður frekar en að vera
að skoða sérstöðu hvers og eins. | 8
Vill sjá Ísland vera í
forystu í loftslagsmálum
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
VEFSÍÐAN Wikileaks birti í gær
tölvupóstsendingar milli Indriða H.
Þorlákssonar, aðstoðarmanns fjár-
málaráðherra, og Marks Flanagan,
fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í
málefnum Íslands. Í pósti Indriða bið-
ur hann Flanagan m.a. um að reyna að
hafa áhrif á bresk og hollensk stjórn-
völd í Icesave-deilunni.
Jafnframt upplýsir hann Flanagan um að það sé ekki
pólitískt mögulegt að ná samkomulagi um Icesave-skuld-
bindingarnar í samræmi við upphaflegar hugmyndir fyrir
alþingiskosningarnar 25. apríl og hugsanlega ekki í tals-
verðan tíma eftir það.
Fram kemur í skjali á upplýsingasíðunni island.is að
póstarnir eru partur af trúnaðargögnum sem lögð voru
fram þingmönnum til aflestrar er frumvarp var lagt fram
um heimild fjármálaráðherra til að ábyrgjast lán Trygg-
ingarsjóðs innstæðueigenda til að standa straum af
greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbankanum.
Þvingunartónn í Bretum og Hollendingum
Pósturinn frá Indriða er dagsettur 13. apríl og fjallar
meðal annars um nýja nálgun í Icesave-samningaviðræð-
unum við Breta og Hollendinga. Indriði segir Flanagan
að ekki hafi fengist ákveðin svör frá Bretum og Hollend-
ingum um þessa nálgun að öðru leyti en því að þeir séu til-
búnir að skoða hana. Hins vegar votti
fyrir þvingunartóni í athugasemdum
þeirra um að þeir kunni að að nota
væntanlega endurskoðun á áætlun Ís-
lands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum
til að knýja fram niðurstöðu sem sé
þeim hagfelld.
Flanagan svarar daginn eftir og
segir að sjóðurinn geti ekki blandað
sér í þær viðræður en muni að sjálf-
sögðu svara þeim spurningum sem
Bretar og Hollendingar kunni að
beina til hans. Hann segist vita að samningaviðræðurnar
séu afar viðkvæmt mál á Íslandi og það muni taka tíma að
ná niðurstöðu. Hins vegar skipti það máli fyrir endur-
skoðun efnahagsáætlunar Íslands og erfitt sé að þoka
henni áfram fyrr en eitthvert samkomulag liggi fyrir milli
Íslands annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar.
Átti að vera okkar á milli, segir Indriði
Indriði sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að um
fullkomlega eðlileg samskipti væri að ræða. „Ég er bara
að kynna fyrir honum stöðuna í viðræðunum og okkar
hugmyndir.“ Hann vildi ekki svara því hvort hann hefði
verið að reyna að fá AGS til að beita sér í Icesave-deil-
unni. „Þetta er bara skeyti sem fer okkar á milli og á bara
að vera okkar á milli.“
Bent er á það á vefsíðunni Wikileaks að Indriði biður
Flanagan um að hafa samband við sig á persónulegt net-
fang sitt en ekki netfang ráðuneytisins.
Trúnaðarpóstar
Indriða birtir
Wikileaks birtir tölvusamskipti um Icesave-deiluna
Indriði H.
Þorláksson
Mark
Flanagan
KVÓTI Íslendinga úr norsk-íslenska síldarstofn-
inum í ár er 238 þúsund tonn, en útgerðarmenn
hafa heimild til að veiða allt að 10% af kvóta næsta
árs. Margir munu hafa nýtt sér þá heimild því í ár
eru íslensk skip búin að veiða um 260 þúsund tonn
af norsk-íslenskri síld. Verðmæti afla upp úr sjó
gæti verið um átta milljarðar, en útflutnings-
verðmætið hátt í tvöfalt meira eða 14-15 milljarðar.
Hákon EA kom til Reykjavíkur í gær að lokinni
Tvö íslensk skip voru í gær á miðunum um 100
mílur suður af Bjarnarey. Á heimasíðu Guðmundar
VE er skrifað um myrkrið á þessum slóðum: „Þeg-
ar komið er svona langt inn í veturinn kemur sólin
ekkert upp hérna, heldur kemur rétt skíma á him-
ininn í hádeginu og svei mér þá ef það er ekki bara
jafn bjart eða bjartara í tunglskininu þegar máninn
er á fylliríi, eins og hann er búinn að vera síðustu
daga.“ aij@mbl.is | 6
síldarvertíð og ekki er ljós hvað tekur við hjá skip-
verjum. 24 manns eru um borð hverju sinni, en
tvær áhafnir eru ráðnar á skipið. Guðjón Jóhanns-
son skipstjóri gagnrýnir umræðu um sjómanna-
afsláttinn. „Hásetahlutur á þessu skipi er kannski í
kringum 20 milljónir miðað við heilsárshlut, en fjar-
vistirnar eru miklar og það er engin hætta á öðru
en að ríkið sæki skatta af þeirri upphæð,“ segir
Guðjón.
Morgunblaðið/Ómar
Norsk-íslenska síldin skilar 15 milljörðum
Fá skip eftir á miðunum fyrir norðan Noreg Nánast myrkur allan sólarhringinn
ERFIÐ fjárhagsstaða Orkuveit-
unnar hlýtur að hefta nýfjárfest-
ingar á næstunni og gera henni ill-
mögulegt að reiða af hendi háar
arðgreiðslur til eiganda síns,
Reykjavíkurborgar. Fyrirtækinu er
mjög þröngur stakkur skorinn á
næstunni, nema nýtt eigið fé verði
sett inn í fyrirtækið eða krónan
styrkist verulega. Þegar litið sé að-
eins fram í tímann hljóti slæm fjár-
hagsstaða fyrirtækisins að varpast
yfir í orkuverð til almennra notenda.
Þetta kemur fram í óbirtri grein-
ingu greiningardeildar Arion banka
á fjárhagsstöðu fyrirtækisins.
„Hvorugt virðist mjög líklegt til
skamms og meðallangs tíma. Að því
gefnu þarfnast það skýringa hvernig
félagið geti eitt og óstutt komið
metnaðarfullum áætlunum um ný-
fjárfestingar og áframhaldandi vöxt
í framkvæmd með aukinni skuld-
setningu. Aukinheldur er ómögulegt
að skilja hugmyndir um arðgreiðslu
frá fyrirtækinu til eigenda í ljósi
stöðu þess. Ekki verður annað séð
en að OR muni eiga fullt í fangi með
endurfjármögnun útistandandi lána,
hvað þá ef kemur til aukinnar lán-
töku,“ segir meðal annars í greining-
unni. ivarpall@mbl.is
OR þröng-
ur stakkur
skorinn
Búist við að slæm | 11
HAUKAR fögnuðu sigri í ótrúleg-
um tvíframlengdum spennuleik í 8
liða úrslitum Eimskipsbikarkeppn-
innar í handknattleik gegn Fim-
leikafélagi Hafnarfjarðar.
ÍÞRÓTTIR
Spenna í Hafnar-
fjarðarslagnum
STÓR hópur knattspyrnudómara
æfir af krafti undir stjórn sérfræð-
inga. Dómarar eiga að stefna að því
að vera íþróttamenn.
Knattspyrnudóm-
arar æfa af krafti