Morgunblaðið - 07.12.2009, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjóri Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri,
ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport-
@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
MIKLAR framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar á Hrafnistu í Reykjavík í
byrjun næsta árs, sem munu meðal
annars hafa í för með sér að rýmum
fækkar um 30 og stöðugildum í sam-
ræmi við það.
Framkvæmdirnar eru stærsti ein-
staki áfangi breytinga sem hafa átt
sér stað á Hrafnistu í Reykjavík frá
árinu 2007, en gert er ráð fyrir að
framkvæmdirnar hefjist á ný í febr-
úar.
„Markmið breytinganna er að
koma betur til móts við vaxandi kröf-
ur nútímans um aðbúnað aldraðra og
yfirlýst markmið Hrafnistu um að
vera leiðandi í þjónustu og umönnun
aldraðra,“ segir Pétur Magnússon,
forstjóri Hrafnistuheimilanna.
Breytingarnar á næsta ári varða
F-álmu Hrafnistuheimilisins í
Reykjavík, en í álmunni eru 58 rými.
Ætlunin er að stækka og bæta að-
búnað í herbergjum álmunnar, en
við breytingarnar fækkar rýmum
varanlega um 30.
Flytja heimilismenn á Landakot
Að auki þarf að flytja til 20 til 30
heimilismenn á meðan framkvæmdir
standa yfir, segir Pétur. Þeir verða
annars vegar fluttir til innan Hrafn-
istu og hins vegar yfir á Landakot,
en tekist hafa samningar um að
leigja þar deild sem ekki er í notkun.
Pétur reiknar með að fækkun
rýma á næsta ári þýði að stöðugild-
um á Hrafnistu í Reykjavík fækki
um tíu, en alls starfa rúmlega 400 á
heimilinu. Pétur segir að frekar en
að segja fólki upp verði reynt að
færa það til í störfum, ráða ekki í
stað þeirra sem hætta og framlengja
síður tímabundna samninga.
Breytingarnar á næsta ári munu
kosta um 300 milljónir, en eins og áð-
ur segir eru fyrirhugaðar breytingar
hluti af breytingum sem staðið hafa
yfir á Hrafnistu í Reykjavík undan-
farin ár og miða m.a. að því að sam-
eina og stækka herbergi.
Gert er ráð fyrir að heildarbreyt-
ingarnar taki 5 til 8 ár, og að kostn-
aður vegna þeirra nemi alls um 1.000
milljónum króna. Breytingarnar eru
að 60% hluta fjármagnaðar með
ágóða af Happdrætti DAS og að 40%
hluta með framlagi úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra.
Af Hrafnistu á Landakot
Rýmum á Hrafnistu í Reykjavík fækkar um 30 vegna breytinga á næsta ári, og
stöðugildum fækkar Herbergi stækkuð og aðbúnaður færður í nútímalegra horf
» Heimilismenn á Hrafnistu í Reykjavík voru
300 þegar breytingarnar hófust árið 2007
» Gert er ráð fyrir að þeim ljúki á tímabilinu
2012 til 2015, og þá verði heimilismenn 235
HORNIN á hinum sjö vetra gamla hrúti, Tuma,
sem er frá bænum Fjalli I á Skeiðum, eru með
þeim glæsilegri sem sjást. Bjallan sem hangir í
öðru þeirra, þjónaði í gamla daga ekki aðeins
þeim tilgangi að ærnar heyrðu hvar forystusauð-
urinn væri staddur, heldur gat smaladrengurinn
einnig runnið á hljóðið þar sem hann rölti á eftir
hjörðinni í vondum veðrum. Þótt bjallan í Tuma
sé meira til gamans í dag gegnir hann hlutverki
sínu sem forystusauður af stakri prýði, ekki síst
eftir leitir á haustin þegar hann leiðir féð hik-
laust á áfangastað í túninu heima.
KLINGJANDI FORYSTUSAUÐUR MEÐ VOLDUG HORN
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
BÆTA þarf upplýsingagjöf embættismanna á fram-
kvæmda- og eignasviði til pólitískt kjörinna fulltrúa
framkvæmda- og eignaráðs, að því er segir í bréfi frá
Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar, sem lagt hefur
verið fram á fundi borgarráðs.
Óskar Bergsson, formaður framkvæmda- og eigna-
ráðs, hafði áður gert athugasemd við lítið upplýsinga-
flæði til ráðsins, og er álit Innri endurskoðunar því í sam-
ræmi við athugasemd Óskars. „Það er búið að fara yfir
þetta bæði á sviðinu og hjá ráðinu,“ segir hann. „Í starfs-
áætlun fyrir árið 2010 eru gerðar breytingar á þessum
málum þannig að ráðinu er gert kleift að sinna betur
þeirri eftirlitsskyldu sem því ber að gegna.“
Í bréfi Innri endurskoðunar vegna úttektar á innra eft-
irliti á Framkvæmda- og eignasviði segir orðrétt: „Meðal
helstu niðurstaðna úttektarinnar var að bæta þarf upp-
lýsingagjöf til framkvæmda- og eignaráðs m.a. með því
að leggja reglulega fram árshlutauppgjör og upplýsingar
um kostnað við framkvæmdir á vegum Framkvæmda- og
eignasviðs borinn saman við sambærilegar framkvæmdir
hjá öðrum sveitarfélögum eða einkaaðilum.“
Jórunn Frímannsdóttir, sem situr í framkvæmda- og
eignaráði, segist telja að skortur á upplýsingum frá svið-
inu til ráðsins hafi ekki haft bein áhrif á rekstur sviðsins
né í hvaða framkvæmdir hefur verið ráðist. „En það er
klárlega til bóta að upplýsingaflæði til ráðsins verður
meira og reglulegra.“
Ákvarðanir vegna framkvæmda á brunareitnum á
horni Lækjargötu og Austurstræti eru í svari Innri end-
urskoðunar við fyrirspurn minnihlutans um málið, nefnd-
ar sem dæmi um ákvarðanir sem teknar hafa verið án
þess að bera það til samþykktar í framkvæmda- og eigna-
ráði.
Innri endurskoðun hefur gert sambærilegar úttektir á
flestum sviðum borgarinnar, en eftir því sem Morgun-
blaðið kemst næst hafa ekki verið gerðar álíka athuga-
semdir um skort á upplýsingagjöf á öðrum sviðum.
Framkvæmdasvið upplýsi
framkvæmdaráð betur
Innri endurskoðun borgarinnar tekur út framkvæmdasvið
NÝR meirihluti
Samfylkingar,
Sjálfstæðisflokks
og Vinstri grænna
í Grindavík hefur
verið myndaður.
Ólafur Örn Ólafs-
son verður bæjar-
stjóri en hann var
bæjarstjóri þar til
upp úr meiri-
hlutasamstarfi
Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks
slitnaði sumarið 2008. Hörður Guð-
brandsson verður forseti bæjar-
stjórnar og Guðmundur Pálsson
verður formaður bæjarráðs.
Í fréttatilkynningu frá nýjum
meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur
segir að flokkarnir séu sammála um
að starfa saman til loka kjörtímabils-
ins í vor.
„Hvað varðar málefni eru flokk-
arnir m.a. ásáttir um að vinna sam-
kvæmt auðlindastefnu Grindavíkur-
bæjar í orkumálum, undir forystu
forseta bæjarstjórnar. Flokkarnir
munu standa vörð um þá stefnu að
styðja við íbúa sína á krepputímum.
Þetta verður gert með því að standa
vörð um atvinnulífið í Grindavík
ásamt því að laða til bæjarins ný at-
vinnutækifæri. Þrátt fyrir miklar
hækkanir verðlags er ætlunin að hafa
því sem næst óbreytta gjaldskrá. Þá
er einhugur í meirihlutanum um að
hefja skólastarf í Menntaskóla
Grindavíkur haustið 2010,“ segir í
fréttatilkynningu nýja meirihlutans.
Nýr
meirihluti
tekur við í
Grindavík
Ólafur Örn
Ólafsson
Ólafur Örn Ólafsson
verður bæjarstjóri
SJÓREKIÐ lík miðaldra konu
fannst í flæðarmálinu skammt frá
æfingasvæði Golfklúbbs Keilis í
Hraunkoti í Hafnarfirði í gær. Veg-
farandi kom að líkinu en tilkynning
barst lögreglu um kl. 14.
Að sögn lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu er ekkert sem bendir
til þess að konan hafi látist með
saknæmum hætti en málið er í rann-
sókn.
Líkfundur
í Hafnarfirði