Morgunblaðið - 07.12.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
nýtt kortatímabil
kr.
pk.259
Passionata
pizza
2 tegundir
kr.
pk.166
Passionata
margarita p
izza
Nýtt!
Nýtt!
1
kíló
600
grömm
FP lasagne
699kr.pk. FP biksemad m/
svínakjöti
398kr.pk.
4x125
grömm
500
grömm
FP hrísgrjó
n179kr.pk.
FP kornflek
s349kr.pk.
Eftir Sigrúnu Rósu Björnsdóttur
sigrunrosa@mbl.is
NÚ þykir orðið ljóst að loftslagsráð-
stefnan komi ekki til með að skila
lagalega bindandi samningi sem tek-
ur við af Kyoto bókuninni, þegar hún
rennur út 2012. Það sem er hins veg-
ar nýtt er að ríki sem ekki hafa áður
komið að borðinu mæta til ráðstefn-
unnar; stórveldin Bandaríkin, Kína
og Indland.
Svandís Svavarsdóttir umhverfis-
ráðherra bindur því vonir við að að-
koma þeirra þýði að hægt verði að
ná bindandi samningi eftir ár.
Vilji til að draga úr losun
Skipta má þeim markmiðum sem
lagt er upp með í þrennt.
„Það sem við leggjum þarna fram
er að í fyrsta lagi er Ísland að brjóta
blað, hvað varðar það að við viljum
draga úr losun á gróðurhúsaloftteg-
undum og setja okkur það markmið.
Við viljum taka þátt í markmiðum
Evrópusambandsins og höfum verið
í viðræðum við ESB um það. Ég
vonast til að þeim samningnum ljúki
núna alveg á næstu dögum þannig
að okkur takist að vera þátttakendur
í sameiginlegum markmiðum ESB,“
segir Svandís um leið og hún undir-
strikar að það feli ekki í sér neina af-
stöðu til aðildar að ESB. Það þjóni
eingöngu hagsmunum okkar mjög
vel að verða samferða ESB í sam-
ingaviðræðum að því er varðar
losunarmarkmiðin.
Svandís segir ráðstefnuna að
sumu leyti frekar táknræna en
eiginlegan samningafund og þarna
sé frekar verið að skrifa undir það
sem unnið hafi verið að undanfarna
mánuði.
Nýtt kerfi – engin undanþága
Svandís segir ekki óskað eftir
framlengingu á íslenska Kyoto und-
anþáguákvæðinu enda fari íslenska
stóriðjan undir sameiginlegt evr-
ópskt viðskiptakerfi með losunar-
heimildir fyrir stóriðju, frá 2013, eða
frá þeim tíma er gildistími Kyoto-
bókunarinnar rennur út en flugið
fari undir þetta viðskiptakerfi 2012.
Verið sé verið að tala um að það að
stóriðjan á Íslandi sitji við sama
borð og stóriðjan í Evrópu.
Þegar gengið hefur verið frá ESB
viðskiptakerfi um losunarheimildir,
færast þær frá ríki til fyrirtækja ár-
ið 2013 sem Svandís segir þýða að ís-
lensk stóriðjufyrirtæki fái hlut úr
heildarkvóta ESB. Fyrirtækin þurfi
fyrst og fremst að aðlaga sig nýju
kerfi.
Kerfið virðist virka sem hvati til
þess að fyrirtæki taki upp hjá sjálf-
um sér að minnka losun en til að
byrja með verður losunarheimildum
úthlutað og svo smám saman sett
verð á þær í hlutfalli við losun.
Sagt viðráðanlegt fyrir stóriðju
Þegar spurt er hvað niðurfelling
íslensks hluta Kyoto bókunarinnar
þýði fyrir okkur og hvort litið sé
öðru vísi á hann en sveigjanleika-
ákvæðin í bókuninni sem heimila
m.a. viðskipti með losunarheimildir,
segir Svandís það mjög snúið tækni-
legt viðfangsefni. „Það að fara frá
þessum Kyoto ákvæðum og yfir í að
halda áfram annars vegar innan
þeirrar hugsunar og fara svo hins
vegar inn í þetta sameiginlega við-
skiptakerfi innan EES svæðisins.“
Samningarnir snúist nú aðallega að
því að breyting hvað stóriðjuna
varðar gangi sem snurðulausast fyr-
ir sig. Það sé hins vegar tæknilega
flókið í frágangi og sjái ekki alveg
fyrir endann á því. Til dæmis hvað
varðar hverjir fái fríar losunarheim-
ildir til að byrja með og hverjir þurfa
að borga frá byrjun.
Vilhjálmur Egilsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífs-
ins segir menn telja þetta fyrir-
komulag viðráðanlegt. Aðalmálið sé
að gæta þess að samkeppnisstaða ís-
lenskra fyrirtækja versni ekki. Fyrir
stóriðjuna gæti þetta komið ágæt-
lega út þar sem okkar fyrirtæki
standi sig mjög vel miðað við fyrir-
tæki í Evrópu. Það gefi þeim betri
stöðu þar sem þeir sem standi sig
best eigi að fá kvótann án þess að
greiða fyrir hann.
Ísland verði í fremstu röð
Vilja brjóta blað í samdrætti á losun gróðurhúsalofttegunda Verið að ljúka samningum um þátttöku í
evrópsku viðskiptakerfi ESB um losunarmarkmið sem komi í raun í stað hins íslenska Kyoto ákvæðis
Reuters
Loft Kona skoðar ísskúlptúr af ísbirni sem þykir táknrænn fyrir hlýnun jarðar en Yvo de Boer framkvæmdastjóri
Rammasamnings SÞ um loftslagsbreytingar er bjartsýnn á að alþjóðlegt samkomulag náist á loftslagsráðstefnunni.
Í HNOTSKURN
»Samkvæmt hinu svo-kallaða íslenska ákvæði
í Kyoto samningnum var
Íslandi heimilt að auka út-
streymi gróðurhúsaloftteg-
unda um 10% á skuld-
bindingartímabilinu
2008-2012.
»Heimildin var háð þvíað notuð yrði endurnýj-
anleg orka, að notkun
hennar leiddi til sam-
dráttar í útstreymi, að
besta fáanlega tækni væri
notuð og að við framleiðslu
yrði gætt að
umhverfisvernd.
Stærsta loftlagsráðstefna sem
haldin hefur verið hefst í
Kaupmannahöfn í dag. Þar mæta
fulltrúar 193 ríkja og ræða
aðgerðir til þess að berjast gegn
hlýnun jarðar.
Svandís Svavars-
dóttir
Vilhjálmur
Egilsson
Alls fara 14 fulltrúar íslenska rík-
isins á loftslagsráðstefnu SÞ sem
sett er í Kaupmannahöfn í dag.
Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra og Svandís Svav-
arsdóttir umhverfisráðherra fara
um næstu helgi. Með þeim fara
aðstoðarmennirnir Hrannar Björn
Arnarsson og Hafdís Gísladóttir.
Önnur sem fara eða eru farin:
Ragnhildur Arnljótsdóttir ráðu-
neytisstjóri, Sturla Sigurjónsson,
ráðgjafi forsætisráðherra í utan-
ríkismálum, og Sigrún Ólafsdóttir
sérfræðingur. Þórir Ibsen, sendi-
herra og formaður samninga-
nefndarinnar. Frá umhverfisráðu-
neyti: Magnús Jóhannesson
ráðuneytisstjóri, Hugi Ólafsson
skrifstofustjóri og Stefán Ein-
arsson sérfræðingur. Frá utanrík-
isráðuneyti: Ingibjörg Davíðs-
dóttir skrifstofustjóri. Frá
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneyti: Þorsteinn Tómasson
skrifstofustjóri. Frá iðnaðarráðu-
neyti: Sveinn Þorgrímsson. Þá er
vitað að von er á einhverjum
þingmönnum og fulltrúum félaga-
samtaka héðan.
Fjórtán fulltrúar frá Íslandi á ráðstefnunni
ÖKUMAÐUR grunaður um ölvun
við akstur ók bíl sínum yfir hring-
torg á Skeiðarvogi snemma á
sunnudagsmorgun, þannig að bíl-
inn skemmdist talsvert og varð
óökufær.
Lögreglu barst tilkynning um
að ungur maður hefði sést á
hlaupum yfirgefa bílinn þar sem
hann sat fastur á hringtorginu.
Skömmu síðar náði lögregla
manninum hlaupandi á Sogavegi
skammt þaðan sem óhappið varð.
Tekið var blóð- og þvagsýni úr
manninum og sent til rannsóknar.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni leikur grunur á að mað-
urinn hafi ekið undir áhrifum
áfengis en rannsókn á sýnunum
mun skera úr um það.
Lögreglan náði öku-
manni á hlaupum
UM hálfellefuleytið í gærkvöldi
höfðu 29.000 manns undirritað
áskorun til Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands, um að synja
nýjum Icesave lögum staðfest-
ingar.
„Ég tel að það sé sanngjörn
krafa að sú efnahagslega byrði sem
ríkisábyrgðin leggur á íslenskan
almenning og framtíðarkynslóðir
þessa lands, verði borin undir ís-
lensku þjóðina í þjóðaratkvæða-
greiðslu,“ segir á vef InDefence.
sigrunrosa@mbl.is
29.000 skora á for-
seta vegna Icesave