Morgunblaðið - 07.12.2009, Page 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
!"#$ &'()*+ ,-(,./ !"# ' 0123145+ 6"0 7801 )4' ,-(,9
:10;<3" ,91/
=12#2 &>4?6<"@?A>?2@2&
B8!+ -C, ( D$ E,F FF-F
GGG+@H41+"?
"#$%&'()) *+ , -.(/(0('
Könnur með dýrum
og traktorum
J ó l a s ö f n u n
Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur
er hafin
Oft var þörf en nú er nauðsyn
Þeir sem vilja leggja nefndinni lið vinsamlega
hafið samband á skrifstofutíma í síma 551 4349
eða á netfangið maedur@simnet.is.
Einnig er hægt að leggja framlög inn á reikning
nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119.
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur,
Hátúni 12b.
Mokkakápur
Mokkajakkar
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Jólajakkinn
20% afsláttur
www.andriki.is
„Brotið hefur verið gegn þjóð-
réttarlegum skyldum í samskiptum
okkar. Það er algerlega ljóst. Það er
ekkert, frú forseti, í ESB-samningnum
eða alþjóðareglum sem mælir
fyrir um það að ríkisstjórnir beri ábyrgð á
bankainnstæðum í einkabönkum, eins og
hér hefur verið farið fram með samningum
um Icesave-reikninga ríkisins við Breta og
Evrópusambandið. Undir þeirri kúgun. Engin
ákvæði í alþjóðarétti mæla fyrir um það.“
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður
og þingmaður VG, á alþingi 18. desember 2008.
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
„VIÐ höfum séð ýmsar hugmyndir,
stórar og smáar, allt frá lágreistum
torfbæjum með sögusýningum til
stórra stein-
steyptra hótela
og það er greini-
legt að áhugi á
staðnum er mik-
ill, “ segir Álf-
heiður Ingadótt-
ir, heilbrigðis-
ráðherra og
formaður Þing-
vallanefndar.
Hún segir að
hugmyndirnar séu á öllum stigum
og tengist ekki aðeins Valhallar-
reitnum heldur mun stærra svæði í
Þjóðgarðinum og nágrenni hans. Þá
séu höfundarnir með mjög mismun-
andi þjónustu í huga.
Í sumar verður 80 ára afmæli
Þjóðgarðsins fagnað og segir Álf-
heiður vel við hæfi að tengja þau
tímamót „einhvers konar skipulags-
eða hugmyndavinnu sem almenn-
ingur gæti átt beina aðkomu að.“
Álfheiður segir að hátt í tíu hug-
myndir um uppbyggingu á Þingvöll-
um hafi verið kynntar fyrir henni
sem formanni nefndarinnar, en eng-
in afstaða hafi verið tekin til þess
hvað gert verður. Mikill fjöldi ferða-
manna komi á Þingvelli á hverju ári
og fyrir þá þurfi að vera aðstaða.
Fram kemur í fundargerð Þing-
vallanefndar frá því í september að í
Fræðslumiðstöðina á Hakinu koma
um 170 þúsund gestir árlega og eru
gistinætur á tjaldsvæðunum um 10
þúsund.
Ýmsar hugmyndir hafa verið viðr-
aðar um framtíðarnýtingu svæðisins
eftir Valhallarbrunann 10. júlí í sum-
ar. Í fundargerð nefndarinnar frá
því í september kemur fram að tvær
arkitektastofur hafa haft samband
við nefndarmenn vegna reitsins,
sömuleiðis Sigríður Margrét Guð-
mundsdóttir og Kjartan Ragnarsson
í Landnámssetrinu í Borgarnesi.
Þá hafa sagnfræðingarnir Krist-
björn Helgi Björnsson og Svava Lóa
Stefánsdóttir kynnt viðskipta-
hugmynd um uppbyggingu svæðis á
eða við Þingvelli þar sem einblínt
verður á búskaparhætti á þjóðveld-
isöld. Loks má nefna að Árni John-
sen alþingismaður hefur lagt til að
nú þegar verði hafinn undirbún-
ingur að byggingu Þingvallaseturs
sem hýsi a.m.k. 200 herbergja hótel
og ferða- og ráðstefnuaðstöðu. Í
Þingvallasetrinu verði einnig þing-
salur fyrir Alþingi og Þingvallasalur
sem hýsi sögu Þingvalla.
Land og vatn viðkvæmt
„Fyrir mér væri mikils virði að
opna Þjóðgarðinn betur fyrir al-
menningi með því að gera göngu-
stíga meðfram vatninu og festa í
sessi net gamalla göngustíga um
Þjóðgarðinn með merkingum og út-
gáfu á korti, sem stendur til að
gera,“ segir Álfheiður. „Þjóðgarður-
inn þarf að verða betra athvarf fyrir
gangandi fólki sem gæti notið nátt-
úrunnar, en því miður hefur hring-
akstur og útsýnisakstur verið tals-
verður á Þingvöllum.“
Álfheiður leggur áherslu á að
Þjóðgarðurinn á Þingvöllum sé í
ævarandi eigu þjóðarinnar og þar
verði að fara með gát. Landið sé við-
kvæmt og á hreyfingu og vatnið sé
friðað sérstaklega, þannig að öll um-
svif og förgun úrgangs séu flókin á
svæðinu. „Þarna þarf að vera þjón-
usta, en hvar, hversu umfangsmikil
og hvers eðlis þarf að skilgreina vel
því það skiptir miklu máli að verja
svæðið áníðslu og vatnið mengun,“
segir Álfheiður.
Háreist hótel og lágreistir torfbæir
Margar hugmyndir um uppbyggingu á Þingvöllum Þjóðgarðurinn 80 ára í sumar Mikils virði að
opna þjóðgarðinn betur fyrir almenningi Land og vatn viðkvæmt og brýnt að fara með gát
Þingvellir Á svæðinu þarf að vera þjónusta, en hvar, hversu umfangsmikil og hvers eðlis þarf að skilgreina vel.
Í HNOTSKURN
»Hótel Valhöll brann tilkaldra kola 10. júlí í sumar.
»Auk Þingvallanefndarkoma forsætisráðuneytið
og UNESCO að ákvörðunum
varðandi Valhallarreitinn.
»Á næstunni verður þjóð-garðsvörður ráðinn, en 78
umsóknir bárust um stöðuna.
»Allir lóðaleigusamningar ísumarhúsabyggðinni við
vatnið renna út í sumar.Álfheiður
Ingadóttir
LÁTINN er í Reykja-
vík, Pétur H. Ólafsson
sjómaður, 89 ára að
aldri. Pétur fæddist í
Stykkishólmi 10. febr-
úar 1920 og var einn af
þrettán systkinum en
sex þeirra lifa enn. Pét-
ur var sjómaður nánast
alla sína starfsævi og
sigldi með ítölsku skipi í
frægri ferð PQ-17
skipalestar banda-
manna sem flutti vistir
og vopn til Murmansk í
Rússlandi í seinni heimsstyrjöldinni, í
apríl 1942. Lestin lenti í miklum
hremmingum á leið sinni þegar Þjóð-
verjar gerðu árás á hana undan Nor-
egsströndum. Um þá atburði og ævi
Péturs ritaði Jónas Jónasson bókina
Krappur lífsdans, sem kom út árið
1994. Pétur var aðal-
hvatamaður alþjóð-
legrar ráðstefnu um
skipalestir banda-
manna til Rússlands,
sem haldin var í
Reykjavík í júlí í fyrra.
Þá var hann í þrígang
sæmdur rússneskum
heiðursorðum vegna
þátttöku sinnar í sigl-
ingunum, m.a rúss-
nesku ríkisorðunni.
Pétur var einn af stofn-
endum Félags eldri
borgara og sat þar í stjórn lengst af.
Einnig söng hann með Kór eldri
borgara í fjölda ára. Eiginkona Pét-
urs var Jóhanna Davíðsdóttir, sem
lést 2003 og áttu þau sex börn, fjögur
sem lifa. Alls urðu afkomendur Pét-
urs og Jóhönnu 52 talsins.
Andlát
Pétur H. Ólafsson