Morgunblaðið - 07.12.2009, Side 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
„Vill Samfylkingin fórna öllu fyrir ESB-
aðild? Standa ekki í fæturna? Vera
ekki með nokkra samningsstöðu í
dag? Hvaða samningsstöðu munum
við eiga gagnvart Evrópusambandinu
ef það veit hversu veik við erum í hnjánum?
Hversu veik við vorum í hnjánum gagnvart
Icesave-reikningunum og Alþjóðagjaldeyris-
sjóðnum. Hvar endar það?“
Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður
og þingmaður VG, á alþingi 18. desember 2008.
www.andriki.is
LÉTU dómarar í ítölsku borginni Perugia undan þrýstingi
þegar þeir dæmdu Amöndu Knox og fyrrverandi unnusta
hennar, Raffaele Sollecito, til fangelsisvistar í um hálfan
þriðja áratug fyrir morðið á Meredith Kercher?
Blaðamaðurinn John Hooper veltir þessu fyrir sér á vef
breska blaðsins The Guardian eftir að dómurinn var kveð-
inn upp um miðnætti að ítölskum tíma á föstudag.
Orðspor þjóðar og háskólaborgar að veði
Hooper bendir á að hér hafi meira en örlög tveggja
ungra einstaklinga legið undir. Ítölsk yfirvöld hafi viljað
sýna fram á að þau gætu leitað uppi og sakfellt morðingja.
Ímynd hinnar friðsælu háskólaborgar Perugia sé einnig að
veði enda varði miklu að sannfæra foreldra þúsunda er-
lenda stúdenta að málið sem varpað hafi skugga á borgina
sé einsdæmi og að námsfólki sé óhætt að dvelja þar.
Hooper víkur einnig að rökstuðningnum fyrir dómnum
og bendir á að Knox og Sollecito fengu vægari dóma en
meintur vitorðsmaður þeirra, Fílabeinsstrendingurinn
Rudy Guede, þrátt fyrir að í dómslýsingu séu þau sögð
hafa framið morðið eftir að hann misþyrmdi Kercher kyn-
ferðislega. Jafnframt hafi Guede fengið þyngri dóm, eða 30
ár, þrátt fyrir að málsmeðferð hans hafi verið hraðað í von
um að það skilaði vægari dómi. En Knox, sem er banda-
rísk, fékk 26 ár og Ítalinn Sollecito 25 ár.
Sakborningar á Ítalíu eiga kost á tveimur áfrýjunum en
Hooper bendir á að að fingraför Knox og Sollecito hafi ekki
fundist í herberginu þar sem að Kercher var myrt. Fingra-
för Guede hafi hins vegar verið á víð og dreif um herbergið,
auk efasemda um sönnunargögn sem byggist á erfðaefni.
Dómararnir undir þrýstingi
að sakfella parið í Perugia?
Mótsagnir og efasemdir um
sönnunargögn á morðstað
Amanda Knox Raffaele Sollecito Meredith Kercher
Falinn
fjársjóður
ÍTALSKA lögreglan hefur lagt hald
á safn listaverka í
eigu Calisto
Tanzi, stofnanda
matvælafyrir-
tækisins Parma-
lat, sem áfrýjaði
10 ára fangelsis-
dómi fyrir aðild
sína að einu
stærsta fjár-
svikamáli Evr-
ópu, gjaldþroti
upp á 2.562 milljarða króna.
Safnið hefur að geyma margar
gersemar eftir nokkra af meisturum
myndlistarsögunnar, svo sem Pablo
Picasso, Vincent van Gogh, Degas og
Monet en alls er safnið metið á um
100 milljónir evra, um 18,3 milljarða
króna miðað við gengi gærdagsins.
Auðugur og vel tengdur
Tanzi var einn auðugasti maður
Ítalíu og fjölskylda hans öflugur
bakhjarl Forza Italia, flokks Berlu-
sconis forsætisráðherra. Líkt og
Berlusconi, eigandi stórliðsins AC
Milan, átti Tanzi hlut í knattspyrnu-
liði, félaginu sem kennt er við borg-
ina Parma. Talið er að selja hafi átt
verkin en ekki hefur komið fram
hvort andvirðið gangi uppi í kröfur í
þrotabú Parmalat.
Listaverk fyrir átján
milljarða í leitirnar
Calisto Tanzi
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
STJÓRNVÖLD á Filippseyjum segjast hafa kom-
ið í veg fyrir uppreisn í héraðinu Maguindanao eft-
ir að þau komu á herlögum og sendu þúsundir lög-
reglu- og hermanna til að handtaka á sjöunda tug
fylgismanna Andal Ampatuan héraðsstjóra og
leiðtoga fjölmenns herliðs fjölskyldu hans.
Mikil ólga hefur verið á Filippseyjum undan-
farnar tvær vikur eftir að um 100 vígamenn rændu
konum sem skyldar voru Ismael Mangudadatu,
pólitískum andstæðingi Andals, jafnframt því sem
þeir tóku höndum óbreytta borgara og fjölda
blaðamanna sem að með þeim voru.
Mannránið var árás á pólitískan andstæðing en
Mangudadatu er í framboði til héraðsstjóra á
næsta ári. Hann lætur ekki stöðva sig en meðal
hinna látnu eru kona hans og tvær systur.
Mannræningjarnir gengu fram af geysilegri
grimmd og tóku fólkið, alls 57 manns, af lífi.
Þeir sýndu konunum mikinn hrottaskap og leik-
ur grunur á að mörgum þeirra hafi verið nauðgað
áður en þær voru teknar af lífi.
Eina leiðin til að lægja öldurnar
Stjórn Gloriu Arroyo forseta segir herlögin einu
leiðina til að koma í veg fyrir frekara ofbeldi. Her-
lögin eru umdeild og svarar stjórnin því til að þau
séu nauðsynleg til að hindra að fylgismenn Andals
myndu grípa til vopna sér til varnar.
Ampatuan er ættarnafn valdamikillar íslamskr-
ar fjölskyldu sem tók völdin í héraðinu fyrir ára-
tug eða svo með stuðningi vopnaðra hópa.
Fjölskyldan hefur verið á meðal tryggustu
bandamanna forsetans í suðurhluta landsins og
liður í þeirri stefnu stjórnarinnar að mynda
bandalög við valdamikla hópa víðsvegar um landið
til að hafa hemil á íslömskum uppreisnarmönnum.
Forsetinn sker á tengslin við fjölskylduna
Bandalagið við Ampatuan-fjölskylduna þykir nú
of dýru verði keypt og hefur stjórnin vikið héraðs-
stjóranum og ættingjum Andals úr flokki Arroyo.
Meðal þeirra er Andal Ampatuan yngri sem
kærður hefur verið fyrir 25 manndráp og fyrir að
skipuleggja ódæðið fyrir hálfum mánuði, en hann
hafði áður boðið sig fram sem eftirmaður föður
síns í embætti héraðsstjóra gegn Mangudadatu.
Talið er að 4.000 stuðningsmenn Ampatuan-
fjölskyldunnar séu undir vopnum en meðal þess
sem hald var lagt á um helgina er heimasmíðuð,
brynvarin bifreið sem geymd var í vöruhúsi.
Andal yngri hefur lýst sig saklausan en hann
gaf sig sjálfviljugur fram síðastliðinn fimmtudag.
Uppreisn kæfð með herlögum
Arroyo, forseti Filippseyja, bregst við fjöldamorðum í héraðinu Maguindanao
Yfir 60 handteknir í áhlaupi hersins Ódæðisverkin af pólitískum rótum runnin
Reuters
Sorg Ættingjar Daniel Tiamzon,
eins fórnarlambanna, við útförina.
Stjórnvöld á Filippseyjum hafa loks brugðist
við hrottafenginni árás á pólitíska andstæð-
inga valdamikillar fjölskyldu. Þúsundir her-
manna eiga að tryggja öryggi í héraðinu.
ÆTTINGJAR ungs manns sem að fórst í brunanum á næturklúbbi í rúss-
nesku borginni Perm berjast við tilfinningarnar þegar hann var borinn til
grafar í útjaðri borgarinnar í gær. Mikil sorg er í Rússlandi og hefur
Dmítrí Medvedev forseti lýst yfir þjóðarsorg í dag. Eldurinn kviknaði þeg-
ar flugeldasýning fór úr böndunum með þeim afleiðingum að eldur læstist í
þakið. Alls fórust 112 í eldsvoðanum og eru margir alvarlega særðir.
Reuters
ÞJÓÐARSORG Í RÚSSLANDI EFTIR BRUNA