Morgunblaðið - 07.12.2009, Qupperneq 28
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
HHH
„HRÖÐ, SPENNANDI... OG SNARKLIKKUÐ
MYND FRÁ A-Ö... EKTA AFÞREYINGAR-
BÍÓ!”
T.V - KVIKMYNDIR.IS
HHH
„ÓSVIKINN GEIMHROLLUR SEM SVER
SIG Í HEFÐINA, MINNIR EINKUM Á ALIEN-MYNDIRNAR.“
„GÓÐ SKEMMTUN OG DÁLÍTIÐ GEGGJUÐ.“
S.V. - MBL
SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK
LET’S BE HONEST, KILLING IS
THIS FILM’S BUSINESS...AND
BUSINESS IS GOOD.
CHRIS NASHAWATY / ENTERTAINMENT WEEKLY
“ROARING ACTION.”
KYLE SMITH / NEW YORK POSTHÖRKU HASARMYND
FRÁ ÞEIM SÖMU OG FÆRÐU
OKKUR MATRIX ÞRÍLEIKINN
EINHVER FLOTTUSTU BARDAGAATRIÐI
SEM SÉST HAFA Í LAAANGAN TÍMA!
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
GERRARD BUTLER OG JAMIE
FOXX Í EINHVERRI MÖGNUÐUSTU
HASARMYND Á ÞESSU ÁRI!
FRÁ LEIKSTJÓRA THE ITALIAN JOB
/ KRINGLUNNI
NINJA ASSASSIN kl.8 -10:40 16
THE TWILIGHT NEW MOON kl.6 -8-9-10:10 12 DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ísl. tali kl.5:503D 7 3D-DIGITAL
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl.5:503D ótextuð 7 3D-DIGITAL
/ ÁLFABAKKA
NINJAASSASSIN kl. 5:50-8-10:10 16 DIGITAL ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl.8-10:10 7
NINJAASSASSIN kl. 8 - 10:10 LÚXUS PANDORUM kl.8 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl.5:20-8-10:10-10:40 12 LAW ABIDING CITIZEN kl. 8 16
THETWILIGHT2NEWMOON kl. 5:20 LÚXUS COUPLES RETREAT kl. 5:50 12
ACHRISTMASCAROLm.enskutali kl. 5:503D ótextuð 7 3D DIGITAL
ACHRISTMASCAROLm.ísl.tali kl. 5:50 7
Sviðið er hringlaga með lág-um bogadregnum veggbakatil sem fylgir hringn-um til hálfs. Litir eru fáir.
Ljós einfalt. Hér ríkir hinn grái
tónn sem er svo leiðinlega grár að
hann er nánast hvítur. Sveppurinn
á gólfinu er í sama lit, þrjár þústir
með sama lit, ein stærri þúfa rétt
utan hrings jafn litlaus og ljót. Ein
örsmá maríuhæna liggur þarna
umkomulaus í leiðindum. Svona
geta hlutirnir ekki verið til lengd-
ar – og því birtist grænn álfur!
Og hann er svo dæmalaust
grallaralegur með rauðan hárlubb-
ann og hann tekur til við að dansa
og gefa frá sér undarleg hljóð –
ekki há – og hann leggur við hlust-
ir og viti menn þá heyrum við það
sama og hann; náttúruhljóð svo
sem fuglasöng og skordýratíst. Og
álfurinn leikur sér að litlu maríu-
hænunni, dregur hana á eftir sér
eins barn leikfangabíl. Dregur
hana svo út af sviðinu og þá upp-
hefst galdurinn!
Augnabliki síðar kemur nefni-
lega risavaxin maríuhæna aftur
inn á sviðið. Hefur sú litla stækkað
– eða minnkaði álfurinn?
Smám saman eflist ævintýrið og
galdurinn. Álfurinn og maríu-
hænan eigast við, fyrst á nótum
tortryggni, og stríðni af álfsins
hálfu, en svo ná þau saman. Og
eftir því sem á líður og samband
þeirra styrkist og dans þeirra
verður samstilltari þá lifnar sýn-
ingin í litadýrð og hið gráa hlýtur
að tapa – og það tapar. En kátína
og fegurð vinna sigur, litir vinna
sigur, samheldni og samlíðun vinn-
ur sigur og fullkomnast í því þegar
álfurinn tekur að draga dám af
maríuhænunni, þeim báðum og
leikhúsgestum til gleði. Að leiðar-
lokum fá ungu leikhúsgestirnir að
vera með því álfurinn lánar þeim
marglita klúta að veifa svo þeir
geti tekið þátt í sigri litana yfir
grámóskunni.
Dansararnir eru frábærir. Tinna
Grétarsdóttir er maríuhænan, hún
hefur nostrað við hreyfingarnar og
gerir allt af innblæstri og þokka.
Höfundurinn, Bertrán de Lis,
dansar álfinn og gerir það af sömu
færni og gleði. Tónlist og hljóð-
heimur og búningar eru stór þátt-
ur sýningarinnar og leggja sitt af
mörkum ásamt með einfaldri lýs-
ingunni svo þetta megi verða frá-
bær sýning fyrir þá allra yngstu!
Ég veit ekki af hverju – en mér
datt í hug orðið „frelsandi“ þar
sem ég sat og horfði á þetta ein-
falda fallega ævintýri.
Þessi sýning fangar hið flókna
samspil einfaldleika og fegurðar
svo vart verður betur gert – hún
er ætluð yngstu börnunum og
yngstu börnin kunnu greinilega
vel að meta – mér sýndist hrifn-
ingin meiri eftir því sem leik-
húsgestir voru yngri. Einn 10
mánaða sat rétt fyrir framan mig.
Hann skildi þetta ALLT, tók það
ALLT inn og með tilkomumikilli
tjáningu hins ómálga barns fagn-
aði hann í hvert sinn sem vel var
gert á sviðinu og hann fagnaði
stöðugt!
Þetta er frelsandi sýning!
Frelsandi „Dansararnir eru frábærir. Tinna Grétarsdóttir er maríuhænan,
hún hefur nostrað við hreyfingarnar og gerir allt af innblæstri og þokka. Höf-
undurinn Bertrán de Lis dansar álfinn og gerir það af sömu færni og gleði.“
Þjóðleikhúsið – Kúlan
Maríuhænan, Inger Cecilie
Bertrán de Lis
bbbbm
Dansleikhús frá Noregi – gestasýning í
Þjóðleikhúsinu. Sýningar voru 5. og 6.
desember.
Dansarar: Inger Cecilie Bertrán de Lis
og Tinna Grétarsdóttir. Tónlist: Karoline
Rising Næss. Búningar: Hilde Elisabeth
Brunstad. Lýsing: Elisabeth Kjeldahl
Nilsson og Gunnvá Meinseth. Tónlistar-
flutningur: Karoline Rising Næss
(selló), Andreas Bratlie (slagverk), Tele
M. Mydske (söngur). Framleiðandi: Ing-
er Cecilie Bertrán de Lis.
Kúlan – 5. desember 2009.
GUÐMUNDUR S.
BRYNJÓLFSSON
LEIKLIST
Frá gráu og smáu til litskrúðugs frelsis
FYRIR utan gluggann nefndist gjörningur listakonunnar Helenu Hans sem fór fram á
laugardagskvöldið.
Helena bauð til sín fjórum þekktum myndlistarmönnum til að snæða dýrindis kvöldverð á
heimili sínu. Einnig bauð hún öllum öðrum landsmönnum til gjörningsins og ásamt þeim
sem mættu stóð hún úti og horfa inn á listamennina borða. Úti var rómantísk fátækra-
stemnig með logandi eldi í tunnu, tónlistarflutningi og heitri súpu.
Gestir voru vel klæddir og horfðu löngunaraugum á listamennina fjóra, Snorra Ásmunds-
son, Hannes Lárusson, Harald Jónsson og Ásmund Ásmundsson, borða dýrindis steik inni í
hlýju eldhúsinu.
Þessi samfélagsgjörningur var partur af einkalistahátíð Helenu sem ber nafnið „Kreppa
2009 til tíu, ekki gera ekki neitt.“ Skipting Mænt á Ásmund, Snorra, Hannes og Harald.
Myndlistarmenn Yfir matnum var margt rætt. Spegilmynd Drengur horfir löngunaraugum inn með súpubolla í hönd.
Morgunblaðið/hag
Ylur Það var notalegt að fá heita súpu í kuldanum.
Steikin var
inni, súpan úti