Morgunblaðið - 07.12.2009, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askriftPöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16.00
föstudaginn 18. desember 2009.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105, kata@mbl.is
Í þessu blaði verða kynntir fullt af þeim mögu-
leikum sem í boði eru fyrir þá sem stefna á
heilsuátak og bættan lífstíl í byrjun ársins 2010.
Heilsa og
lífsstíll
Morgunblaðið gefur út
glæsilegt sérblað um
heilsu og lífstíl mánudaginn
4. janúar 2010.
Meðal efnis verður:
Hreyfing og líkamsrækt.
Hvað þarf að hafa í ræktina.
Vinsælar æfingar.
Heilsusamlegar uppskriftir.
Andleg vellíðan.
Bætt heilsa.
Ráð næringarráðgjafa.
Umfjöllun um fitness.
Jurtir og heilsa.
Hollir safar.
Ný og spennandi námskeið
á líkamsræktarstöðvum.
Skaðsemi reykinga.
Ásamt fullt af
fróðleiksmolum og
spennandi viðtölum.
Kassinn, nýjasta mynd leik-stjórans Richards Kelly,sem gerði það gott meðDonnie Darko árið 2001,
er nú sýnd hérlendis. Sagan gerist
árið 1976 í rannsóknarmiðstöð
NASA í Langley í Virginiu, og ná-
lægu úthverfi. Ókunnugur maður
(Langella) gefur sómakærum hjón-
um (Diaz og Marsden) svartan
kassa með rauðum takka á og lofar
þeim milljón dölum ef þau ýti á
takkann innan 24 stunda en þá mun
einhver sem þau þekkja ekki deyja.
Fyrir hlé nær myndin að byggja
upp og viðhalda áhugaverðu og sér-
stæðu andrúmslofti sem er trega-
blandið misáleitnum siðferðisspurn-
ingum er varða afleiðingar gjörða
mannfólksins. Sjónræn umgjörð er
að mestu fáguð en myndin byggir
upp spennu á gamalreyndan hátt
sem virðist frekar tilheyra myndum
frá áttunda áratug síðustu aldar.
Leikmyndin er stórbrotin end-
urgerð á menningarlegri heims-
mynd ársins 1976 og leikur og per-
sónusköpun einkennast af vissum
einfölduðum stífleika í anda sjón-
varpsþátta frá þeim tíma. Einnig er
notast við langar tökur og drama-
tíska kvikmyndatónlist til að undir-
strika upplifun og erfiða stöðu per-
sóna. Þessi spyrðing verður, þó
háleit sé, gjarnan hálfþvinguð, lát-
bragð leikara virðist ýkt og tilgerð-
arlegt og línurnar sem þeir fara með
eru ótrúverðugar og best til þess
fallnar að dauðrota áhorfendur. Sið-
ferðisspurningarnar sem leita á per-
sónurnar eru niðursoðnar í neyt-
endavænar umbúðir og allt bit hefur
verið tekið úr þeim.
Myndin er ætluð fyrir meg-
instraumsmarkað eins og kristallast
í þessari niðursoðnu siðfræði og vali
á Cameron Diaz í lykilhlutverk sem
er gott og gilt, en við það tapast
kynngimagn höfundarins og höfund-
areinkenni Kellys þar sem blandað
er saman vísindaskáldskap, banda-
rískri úthverfamenningu og súrreal-
isma nær aðeins að verða áhugavert
á stöku stað. Ef leikstjórinn hefði
látið sér nægja að draga upp mynd
af hefðbundinni bandarískri milli-
stéttarfjölskyldu, sem glímir við yf-
irskilvitleg öfl á sögusviði, sem er
stílfært og markað í tíma og rúmi,
hefði útkoman hugsanlega verið
smellin. Þess í stað leitast Kelly við
að innleiða of marga trosnaða enda,
samsæri og menningarfyrirbæri inn
í frásögnina og persónurnar eru allt
annað en sannfærandi. Splundruð
framvindan er allt of flókin og að
sumu leyti oftúlkuð þannig að áhorf-
andinn tapar áttum.
Öll þessi togstreita í kringum
rauða takkann og önnur öfgafyllri
og óskiljanlegri próf er til dæmis
hluti af geimrannsókn sem er stýrt
af ókunnuga manninum, NASA og
Öryggisráði Bandaríkjanna (NSA).
Áhorfandinn á erfitt með að átta sig
á hvað þessum samtökum gengur til
– ef hugmyndin er að láta mann-
kynið eyða sér sjálft hlýtur að vera
til skilvirkari leið en að borga hverri
úthverfafjölskyldu fúlgu fjár til þess
að ýta á takka og granda þar með
einum einstaklingi. Auk þess er tor-
ráðið hlutverk fjölda persóna sem fá
blóðnasir áður en þær breytast í
uppvakninga og peð í valdatafli
samtakanna. Hallærislegar tækni-
brellur með vatn og endalaust fro-
ðusnakk um „eilífa bölvun“ gerir svo
útslagið og myndin verður fáránlega
kjánaleg og eiginlega ekki áhorfs-
verð.
Smárabíó, Borgarbíó
Kassinn / The Box bbnnn
Leikstjórn og handrit: Richard Kelly.
Byggt á smásögu eftir Richard Mathe-
son. Aðalhlutverk: Cameron Diaz,
James Marsden og Frank Langella. 116
mín. Bandaríkin, 2009.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
The Box „Leikmyndin er stórbrotin
endurgerð á menningarlegri heims-
mynd ársins 1976 [...].“
Togstreitan í kring-
um rauða takkann BYRJAÐ er að bóka sveitir á
Hróarskelduhátíðina í Danmörku
fyrir næsta sumar. Fimm nöfn
hafa verið gefin upp og er breska
rokksveitin Muse þeirra stærst,
en sveitin spilaði síðast á Hróars-
keldu 2007.
Gamla pönksveitin NOFX mun
koma fram á hátíðinni, einnig
dönsku hljómsveitirnar Dizzy
Mizz Lizzy og The Kissaway
Trail og danski tónlistarmaðurinn
og ljóðskáldið C.V. Jörgensen.
Hróarskelduhátíðin 2010 verð-
ur 1. til 4. júlí.
Miðasala á hátíðina er hafin og
fer m.a. fram á midi.is.
Muse á
Hróarskeldu
AP
Tónlistarhátíðin Aðalsviðið á Hróarskeldu er appelsínugult.
SPRENGHLÆGILEG GAMANMYND MEÐ FRÁBÆRUM LEIKURUM
SÝNDÍÁLFABAKKA
EKKI VIÐ HÆFI
UNGRA BARNA
JIM CARREY
Sýnd með íslensku
og ensku tali
HHHH
„JÓLASAGA Í FRÁBÆRRI, NÝRRI ÞRÍVÍDD
SEM SLÆR ÚT ANNAÐ ÁÐUR HEFUR SÉST“
„CARRY ER ENGUM LÍKUR...“
– S.V – MBL
ÞRIÐJA STÆRSTA FRUMSÝNINGAR-
HELGI ALLRA TÍMA Í USA
BYGGT Á HINNI GRÍÐARLEGU VINSÆLU BÓKASERÍU STEPHENIE MEYER
Robert Pattinson og
Kristen Stewart eru
mætt í einni stærstu
kvikmyndaseríu
allra tíma!
„ÞEIR SEM DÝRKUÐU FYRSTU MYNDINA...
MUNU ÁBYGGILEGA ELSKA ÞESSA ÚTAF LÍFINU.“
T.V. KVIKMYNDIR.IS
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
STÆRSTA BÍÓOPNUN Í USA Í ÁR!
VINSÆLASTA MYNDIN Á ÍSLANDI
HVERNIG STÖÐVARÐU
MORÐINGJA SEM ER NÚ
ÞEGAR Í FANGELSI?
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK / SELFOSSI
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 - 10:10 12
THE INFORMANT kl. 8 7
LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:40 16
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 - 10:30 12
MORE THAN A GAME kl. 8 7
NINJA ASSASSIN kl. 10 16
THE TWILIGHT 2 NEW MOON kl. 8 12
A CHRISTMAS CAROL m. ensku tali kl. 8 7
LAW ABIDING CITIZEN kl. 10:10 16
PANDORUM kl. 10:40
Myndin byggist á smásögunni
Button, Button eftir hinn róm-
aða Richard Matheson frá
árinu 1970 og hentar grunn-
hugmyndin því formi vel. Síð-
ar var sagan löguð að sam-
nefndum sjónvarpsþætti í
röðinni The Twilight Zone og
aftur giftist form og efni en
þegar reynt er að teygja hug-
myndina í heila frásagnar-
kvikmynd verður útkoman
langdregin og hálf mislukkuð.
The Twilight
Zone