Morgunblaðið - 07.12.2009, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 341. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3890 HELGARÁSKRIFT 2400 PDF Á MBL.IS 2200
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
FÓLK Í FRÉTTUM»
Heitast 7 °C | Kaldast 2 °C
Hæg norðaustlæg átt,
skýjað og þurrt að
mestu, dálítil rigning
með köflum á aust-
anverðu landinu. Hiti 2 til 7 stig. » 10
Brynhildur Þórar-
insdóttir skrifaði
spennusögu fyrir
börn sem gerist árið
1222 í Gásakaup-
stað. »23
BÓKMENNTIR»
Gott fólk og
glæpamenn
FÓLK»
Flugan fór víða um
helgina. »24
Komin til að vera,
nóttin, eftir Ingunni
Snædal, er býsna
heilsteypt verk og
bráðskemmtilegt af-
lestrar. »27
BÓKMENNTIR»
Bráð-
skemmtilegt
TÓNLIST»
Emilíana Torrini blæs til
þriðju tónleikanna. »26
KVIKMYNDIR»
The Box er fáránlega
kjánaleg. »29
Menning
VEÐUR»
1. Líkfundur í Hafnarfirði
2. Hélt að hún væri rosalega fræg
3. Tvö ný tilfelli stökkbreytinga
4. Á skíðum þrátt fyrir mænuskaða
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Söngkonan góð-
kunna Ragnheið-
ur Gröndal heldur
þrenna tónleika
hérlendis í vikunni
í tilefni þess að
sjötta sólóplata
hennar, Tregagás,
kom út í byrjun nóvember.
Ragnheiður byrjar tónleikaferð-
ina á morgun, þriðjudaginn 8. des-
ember, í Víkurkirkju í Vík í Mýrdal
og hefjast tónleikarnir kl. 20.30.
Á miðvikudaginn verður hún í Sal
Tónlistarskólans á Akranesi kl. 21
og þriðju og síðust tónleikarnir
verða í Reykjavík hinn 10. desember
kl. 21 í Smiðjunni við Fiskislóð.
Með Ragnheiði leika Haukur
Gröndal á klarínett, Guðmundur
Pétursson gítar, Birgir Baldursson
og Matthías Hemstock á slagverk.
TÓNLIST
Ragnheiður Gröndal í Vík, á
Akranesi og í Reykjavík
Jólauppboð Gall-
erís Foldar verður
haldið í kvöld og
annað kvöld.
Boðin verða upp
um 180 verk af
ýmsum toga, bæði
nýleg og eftir
gömlu meistarana.
Elsta verkið er frá 1891, málað af
Þórarni B. Þorlákssyni. Þá verður
boðið upp afar sérstæð og glæsileg
geometria eftir Nínu Tryggvadótt-
ur, frá 1955. Ennfremur verður Haf-
meyjan eftir Nínu Sæmundsson boð-
in upp. Einnig verða boðin upp verk
eftir Mugg, Ásgrím Jónsson, Kjar-
val, Svavar Guðnason, Barböru
Árnason og Ásmund Sveinsson.
Uppboðin verða haldin í húsakynn-
um gallerísins og hefjast báða dag-
ana klukkan 18.15.
MYNDLIST
Verk eftir Nínu Tryggva-
dóttur boðið upp í kvöld
Bjarki Sigurðs-
son varð að sætta
sig við að fylgjast
með félögum sín-
um í FH af áhorf-
endapöllunum þeg-
ar FH tapaði fyrir
Haukunum í tví-
framlengdum æsispennandi bikar-
leik í Kaplakrika í gær. Bjarki, sem
er 42 ára gamall, hefur leikið síðustu
leiki FH-inga í N1-deildinni en þar
sem hann spilaði með ,,old boys“-liði
Aftureldingar í bikarnum fyrr í vet-
ur var hann ekki gjaldgengur með
FH í gær. Haukar náðu með sigr-
inum að hefna ófaranna frá því í
fyrra en þá sló FH granna sína út í
átta liða úrslitum bikarkeppninnar.
HANDBOLTI
Bjarki ekki löglegur
í bikarleiknum með FH
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
FJÓRIR stórhuga sagnfræðingar
hafa kynnt fyrir Þingvallanefnd
hugmyndir sínar um torfbæjarhótel
á Þingvöllum. Þar vilja þeir að
verði lifandi safn þar sem ferðafólki
gefst kostur á að ferðast allt að
þúsund ár aftur í tímann. Fyrir-
tæki sagnfræðinganna nefnist Stór-
saga og þeir telja nafnið vera í
samræmi við sögustaðinn Þingvelli.
Einkum hafa fjórmenningarnir
augastað á svæðinu á Skógarhólum
og hafa meðal annars rætt við for-
ystumenn hestamanna sem þar
hafa aðstöðu. Þau hafa reyndar
rætt við fleiri sem komið hafa hug-
myndum sínum á framfæri varð-
andi uppbyggingu á Þingvöllum.
Svava Lóa Stefánsdóttir, Krist-
björn Helgi Björnsson, Sigurlaugur
Ingólfsson og Andri Steinn Snæ-
björnsson vilja að reist verði stór-
býli úr torfi á Skógarhólum og auk
þess lítil kirkja, fjós, smiðja og
þingbúðir. Lifnaðarhætti landnáms-
manna verði í fyrirrúmi á daginn,
en á kvöldin verði svæðið nýtt sem
hótel. Þannig fái gestir að upplifa
gistingu í þjóðveldisbæ og geti
kynnst því af eigin raun hvernig Ís-
lendingar bjuggu öld eftir öld um
leið og byggingarefni og -lag fái
sinn sess.
Svava og Kristbjörn störfuðu í
tvö sumur sem staðarhaldarar í
Þjóðveldisbænum á Stöng og þar
fæddist hugmyndin. „Okkur langaði
að gera svo dæmalaust margt með
Þjóðveldisbæinn og hugmyndirnar
sem fæddust virtust óþrjótandi,“
segir Svava.
„Við vildum gera meira fyrir
ferðafólk heldur en þar var í boði
og þannig hefur þessi hugmynd
okkar þróast. Við stöndum síðan
fjögur að fyrirtækinu og höfum
lagt mikla vinnu í verkefnið síðasta
árið. Meðal annars fórum við í vett-
vangsferð til Danmerkur og skoð-
uðum þorp sem byggt er upp á
þennan hátt. Núna er hönnunar-
vinnu að ljúka og ef þetta verður
samþykkt tekur við leit að styrkj-
um og fjárfestum. Við trúum á
þessa hugmynd og það væri
sannarlega stórkostlegt að sjá hana
verða að veruleika.“
Svava og félagar sjá fyrir sér að
þarna verði starfsemi allt árið;
mjaltir, sláttur, matargerð, verk-
færasmíði. Allt handverk upp á
gamla mátann og starfsmenn í bún-
ingum þjóðveldistímans.
„Við viljum miðla sögunni til
ferðamanna á nýjan hátt. Ferða-
maðurinn kemur á stað þar sem
hann getur keypt sér gistingu og
fæði eins og var á boðstólum fyrir
þúsund árum og skynjar hvernig
var í raun og veru að búa á Íslandi
allt frá landnámi fram á 20. öld-
ina.“ | 9
Morgunblaðið/Ómar
Sagnfræðingar Kristbjörn Helgi Björnsson, Andri Snæbjörnsson, Sigurlaugur Ingólfsson og Svava Stefánsdóttir.
Óþrjótandi hugmyndir
Stórhuga sagn-
fræðingar vilja
reisa torfbæjar-
hótel á Þingvöllum
Í HNOTSKURN
»Hugmyndin fæddist er tvöþeirra störfuðu sem stað-
arhaldarar á Stöng.
»Fyrirtækið heitir Stór-saga, í samræmi við sögu-
staðinn Þingvelli.
»Byggt yrði á Skógarhólumí samráði við hestamenn.
»Fjórmenningarnir hafakynnt sér slíkt þorp í Dan-
mörku.
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynurorri@mbl.is
LÖGREGLUMAÐUR átti fótum sínum fjör að
launa er ökumaður sem hann reyndi að stöðva til að
láta blása í áfengismæli ók á ljóskeilu sem lögreglu-
maður rétti út til merkis um að nema ætti staðar.
Grunur leikur á að ökumaður bílsins sé aðeins fimm-
tán ára gamall, og því ekki kominn með aldur til að
aka bíl.
Atvikið átti sér stað á Eiríksgötu til móts við Hall-
grímskirkju aðfaranótt laugardags. „Þegar bíll kem-
ur akandi frá bænum bendi ég honum á að beygja
inn á bílastæði,“ segir lögreglumaðurinn sem um
ræðir. „Hann sinnir því ekki, svo ég stíg út á götuna
og rétti fram ljóskeilu í akstursstefnu bílsins. Þá
keyrir hann á ljóskeiluna og strýkst við mig, og þýtur
svo í burtu á mikilli ferð.“ Ekki tókst að stöðva öku-
manninn, en bíllinn fannst síðar um nóttina yfirgef-
inn á Tjarnargötu. Að sögn lögreglu er maður sem
kominn er vel á aldur skráður eigandi bílsins, en er
lögreglan hafði samband við hann sagði hann son
sinn vera umráðamann bílsins. Reynt var án árang-
urs að hafa samband við soninn um nóttina. Daginn
eftir mætti hann þó á lögreglustöðina til að vitja bíls-
ins, og bar því við að honum hefði verið stolið.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni þótti
saga mannsins ekki trúverðug, en grunur leikur á að
sonur hans – sem sagt afabarn þess sem skráður er
fyrir bílnum – hafi ekið honum um nóttina. Sá er
fæddur 1994, en hefur þó áður verið tekinn akandi á
umræddum bíl. hlynurorri@mbl.is
Hunsaði stöðvunarmerki
og ók utan í lögreglumann
Morgunblaðið/Júlíus
Tekinn í tékk Ökumaðurinn sinnti ekki stöðv-
unarmerkjum, og ók á ljóskeilu lögreglunnar.