Morgunblaðið - 31.12.2009, Page 7

Morgunblaðið - 31.12.2009, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. DESEMBER 2009 Fréttir 7 Í ÞEIM breytingum sem mörg fyrirtæki ganga í gegnum um þessar mundir getur það vafist fyrir stjórn- endum hvernig hægt er að framkvæma breytingar sem áhrif hafa á starfsmenn, en um leið viðhalda vilja og áhuga þeirra á að leggja sig fram og sýna samstöðu í breytingum. Þá finna stjórnendur stundum fyrir mót- stöðu, áhugaleysi og jafnvel vonleysi innan stafsmannahópsins, andstætt því sem þeir hefðu viljað sjá innan hópsins. Breytingar og samningsrof Það sem gjarnan gerist við breyt- ingar er að bæði vinnuveitandi og starfsmenn upplifa að sá samningur sem þeir hafa gert sín á milli sé rof- inn. Er þá fyrst og fremst átt við huglæga hluta samningsins sem snýr að væntingum um annað og meira en vinnuframlag og viðveru fyrir ákveðin laun og kjör. Þetta geta t.a.m. verið væntingar starfs- manns um starfsöryggi, starfsþróun eða starfsánægju og væntingar vinnuveitanda um trúnað, sveigjanleika, hollustu og tryggð starfsmanna. Skipulagsbreytingar geta valdið því að starfsmönnum finnst starfsöryggi eða rétti til starfsþróunar ógn- að, á meðan vinnuveit- andi getur saknað sveigjanleika, aðlög- unarhæfni og vilja starfsmanna til að leggja sig fram. Þá geta aðgerðir tengdar launabreyt- ingum eins og launalækkanir eða lækkað starfshlutfall verið erfiðar að takast á við. Starfsmenn, sem áður byggðu sjálfsmat sitt að einhverju leyti á þeim launum sem þeir þáðu, geta upplifað bakslag í því mati og finnst framlag þeirra skyndilega minna virði og upplifa eins konar samningsrof, jafnvel þó að þeir skilji rökin á bak við aðgerðirnar. Minni hollusta starfsmanna Það umrót sem breytingum oft fylgir getur hæglega dregið úr þeirri hollustu og tryggð fólks við vinnu- stað og starf, sem áður var til staðar, sem eru meðal þeirra lykilþátta sem áhrif hafa á árangur fyrirtækja. Starfsmenn sem eru hollir sínum vinnustað og helga sig starfinu eru að jafnaði tilbúnir að leggja sig meira fram en aðrir. Þeir vilja vinna verkefni sín eins vel og kostur er, ekki eingöngu vegna fyrirtækisins, viðskiptavina eða samstarfsmanna, heldur vegna þess að góður árangur veitir þeim ánægju og skiptir þá máli. Það sem hins vegar getur staðið í vegi fyrir því að þessir sömu starfs- menn leggi sig alla fram, eru þættir eins og óljós markmið og hlutverk, upplýsingaskortur eða ef verkefni samræmast ekki hæfni þeirra og getu. Vonbrigði með aðgerðir vinnu- veitanda og tilfinningin um samn- ingsrof geta þar að auki dregið veru- lega úr hollustu og tryggð fólks við bæði starf sitt og vinnustað. Á tímum samdráttar, þegar starfsöryggi er minna og atvinnu- tækifæri færri en áður er vissulega minni hætta á að tryggustu og oft á tíðum bestu starfsmennirnir yfirgefi fyrirtækið, þrátt fyrir óánægju með breytt kjör eða aðrar breytingar. Því geta kraftar þeirra nýst fyr- irtækinu vel þegar farið er í gegnum erfitt tímabil. Hins vegar mega stjórnendur ekki gefa sér að þessir sömu einstaklingar, sem alla tíð hafa verið fyrirtækinu tryggir verði það þegar efnahags- og atvinnuástand batnar. Mikilvægt er því að stjórnendur hugi að því hvernig þeir ætla að halda í sína bestu starfsmenn þegar efnahagsástand batnar. Ef starfs- maður hefur sýnt að hann er tilbúinn að leggja sig fram á einum vinnustað er nokkuð líklegt að hann verði einn- ig tilbúinn til þess annars staðar, ekki síst ef starfsumhverfið stuðlar að góðri frammistöðu og árangri. Að halda í besta fólkið Það getur verið erfitt að standa ráðþrota gagnvart starfsmönnum sínum og geta litlu svarað um fram- tíðina. Slíkt gerir stjórnendum erf- iðara um vik að hvetja starfsmenn, byggja upp og viðhalda drifkrafti og hollustu þeirra. En þetta er raun- veruleikinn hjá mörgum fyr- irtækjum í dag. Það er lykilatriði fyrir fyrirtæki að vinna markvisst að því að komast í gegnum erfiðasta hjallann og um leið vinna að því að halda í réttu starfsmennina þegar ástandið batnar. Til að tryggja þetta þurfa stjórn- endur að vanda til verka í öllum þeim tímabundnu breytingum sem ráðist er í. Þær verða að vera vel rökstuddar, útfærðar og kynntar. Þá er mikilvægt að skilaboð séu skýr um hvað koma skal, að gengið sé hreint til verks og að starfsfólk skynji að ákvarðanir séu vel ígrund- aðar. Stjórnendur verða að nýta samráð við starfsfólk vel og mega ekki gera ráð fyrir samstöðu og samheldni hópsins og treysta því að tryggustu starfsmennirnir fari sjálf- krafa með þeim gegnum breytingar og erfið tímabil. Þeir þurfa að kalla eftir samstöðu hópsins og fá starfs- menn í lið með sér við að útfæra ný markmið. Starfsmenn sem fá kost á slíku eru mun líklegri til að finnast þeir eiga sinn þátt í því að fyrirtækið náði settum markmiðum. Þannig geta stjórnendur stuðlað að aukinni holl- ustu og tryggð starfsmanna við starf sitt og fyrirtækið og tryggt að þeir vilji nýta krafta sína hjá fyrirtækinu áfram, en ekki á öðrum vettvangi þegar ástand batnar. Umrót í fyrirtækjarekstri og hollusta starfsmanna Eftir Ernu Agnarsdóttur »Mikilvægt er því aðstjórnendur hugi að því hvernig þeir ætla að halda í sína bestu starfs- menn þegar efnahags- ástand batnar. Erna Agnarsdóttir Höfundur er M.Sc. í sálfræði og starfar sem stjórnunarráðgjafi. Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is Deilur Kínverja við helstu viðskipta- ríki sín um inn- og útflutning á stáli náðu nýjum hæðum í gær, þegar bandarísk yfirvöld ákváðu að hækka tolla á stálpípur frá Kína. Halda Bandaríkjamenn því fram að stuðn- ingur kínverska ríkisins við þarlenda stálframleiðendur skekki samkeppn- isstöðu bandarískra stálframleið- enda. Er tollunum ætlað að jafna þá stöðu, en tollur á stálpípur verður um 10-16 prósent. Bandarísk stjórn- völd hafa verið undir miklum þrýst- ingi frá þarlendum stálframleiðend- um um að grípa til aðgerða sem þessara. Langvarandi deilur Þessi ákvörðun er ekki sú fyrsta sinnar tegundar, sem tekin hefur verið varðandi innflutning á kín- versku stáli til Bandaríkjanna. Í nóv- ember var ákveðið að leggja 99 senta toll á ákveðnar tegundir stálpípna frá Kína og á þriðjudag var ákveðið að leggja tolla á kínverskar stálristar að fjárhæð samtals 91 milljón dala, eða um 11,4 milljarða króna. Þessi deila er ekki ný af nálinni, en bandarískir stálframleiðendur og bandarísk stjórnvöld reyndar líka, hafa lengi haldið því fram að Kín- verjar brjóti í bága við alþjóðlegar reglur með opinberum stuðningi við eigin stálframleiðslu. Þessu hafa Kínverjar neitað þrátt fyrir að fleiri ríki, Evrópusambandið þar á meðal, hafi í meginatriðum verið sammála skilningi Bandaríkjamanna á málinu. Talsmaður kínverskra stálútflytj- enda sagði ákvarðanir bandarískra stjórnvalda undanfarna daga vera ósanngjarnar. Bandarískir stálfram- leiðendur hefðu grætt á tá og fingri árið 2008 þegar verð á stáli var sem hæst. Gátu þeir reyndar ekki annað eftirspurn. Í ár hrundi hins vegar eftirspurn eftir stáli og það hefði komið harkalega niður á bandarísk- um stálframleiðendum, eins og reyndar í fleiri ríkjum. Það væri kín- verskum stálfyrirtækjum hins vegar ekki að kenna og því væri ekki sann- gjarnt að Kínverjum væri refsað fyr- ir duttlunga markaðarins. Reyndar hafa samskipti Kínverja og Bandaríkjamanna á sviði við- skipta farið versnandi frá því í sept- ember þegar bandaríkjastjórn ákvað að leggja innflutningstolla á kín- verska hjólbarða. Þá hafa Kínverjar hafið rannsókn á innflutningi á bandarískum bílum, varahlutum og fuglakjöti. Gegndarlausir verndartollar Til tíðinda dró svo í byrjun þessa mánaðar þegar Kínverjar ákváðu að leggja tolla á innfluttar stálafurðir frá Bandaríkjunum og Rússlandi og beittu fyrir sig svipuðum rökum og notuð hafa verið gegn þeim áður. Sögðu þeir Rússa og Bandaríkja- menn vera að selja stál til Kína fyrir óeðlilega lágt verð og því væri gripið til álagningar tolla til að rétta hlut kínverskra fyrirtækja. Segja þeir einnig að herferð Bandaríkjamanna, þar sem bandarískir neytendur eru hvattir til að kaupa bandarískar vörur, séu ígildi opinbers stuðnings við stáliðnaðinn þar í landi. Þá segjast þeir munu leggja tolla á stálafurðir frá ESB eftir að sam- bandið ákvað að leggja tolla á inn- flutta skó frá Kína. Það er kaldhæðnislegt að komm- únistaríkið Kína skuli nú saka Vest- urlönd og Bandaríkin sérstaklega um gegndarlausa verndartollastefnu og er erfitt að sjá að sú ásökun sé al- gerlega úr lausu lofti gripin. Annað langvarandi deiluefni milli Kínverja og helstu viðskiptaríkja þeirra er gengi kínverska gjaldmið- ilsins, renmimbi. Telja margir geng- ið óeðlilega lágt. Kínverjar eru reyndar sjálfir sáttir við lágt gengi, þar sem það dregur úr innflutningi en eykur útflutning. Kröfur að utan um styrkingu hafa hins vegar orðið háværari eftir að fjármálakreppan skall á, þar sem Bandaríkin, Evrópu- sambandið og fleiri ríki vilja sjálf draga úr innflutningi og styrkja út- flutningsgreinar. Hingað til hafa Kínverjar hafnað öllum slíkum kröfum og segja að út- flutningur hafi dregist svo mjög saman í kreppunni að ómögulegt sé annað en að viðhalda lágu gengi ren- mimbisins. Harðnandi deilur milli Kína og Bandaríkjanna um tolla  Bandaríkin og Kína keppast nú við að tollaleggja hvort annars stálafurðir  Aðrir, eins og Rússland og Evrópusambandið, hafa dregist inn í deilurnar  Gengi gjaldmiðla annað þrætuepli Reuters Stál Eftir mikið erfiðleikatímabil virðist kínverskur stáliðnaður vera við það að ná fótum, en þarf nú að glíma við hækkandi tolla í helstu viðskiptaríkjum sínum. Hér sést starfsmaður í stálveri í Shanxi-héraði við vinnu sína. Í HNOTSKURN »Á efnahagslegum erf-iðleikatímum eykst gjarn- an þrýstingur á stjórnvöld að verja heimaframleiðslu með tollum á innfluttar vörur. »Alvarlegasta dæmið umþetta voru tollamúrarnir sem reistir voru ríkja á milli í kreppunni miklu á fjórða ára- tug síðustu aldar. »Hagfræðingar eru hinsvegar langflestir sammála um að innflutningstollar bitni harðast á almenningi þess lands sem leggur þá á og séu alls ekki hagkvæmir fyrir þjóðina í heild sinni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.