Morgunblaðið - 15.02.2010, Page 12

Morgunblaðið - 15.02.2010, Page 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010 einfalt & ódýrt! Krónu saltk jöt ódýrt398kr.kg Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is Á ÍSLANDI er frjór jarðvegur fyr- ir áhættufjárfestingar,“ segir Terry McGuire, áhættufjárfestir frá Bandaríkjunum. „Hér er mikið af hæfileikafólki með metnað, sem í núverandi efnahagsástandi er að leita leiða til að gera eitthvað nýtt. Stundum þarf að vera einhver broddur til að skapa frjóan jarðveg. Sum af bestu fyrirtækjunum hafa sprottið upp úr erfiðu ástandi. Google náði árangri þegar netbólan sprakk og allir voru að reyna að forða sér.“ McGuire tók þátt í að stofna fyr- irtækið Polaris Venture Partners fyrir 14 árum. Hann fjárfesti á sín- um tíma í Íslenskri erfðagreiningu og er nú kominn aftur inn í fyr- irtækið eftir að það var endurreist og situr í stjórn þess. Efnahagsáhrif áhættufjár „Ég er formaður samtaka banda- rískra áhættufjárfesta og við höf- um verið að skoða áhrif fyrirtækja, sem studd voru með áhættufé. Staðreyndin er sú að eitt af hverj- um níu störfum í einkageiranum í Bandaríkjunum má rekja til fyr- irtækja, sem fengu áhættufé. 20% af þjóðarframleiðslu Bandaríkj- anna eru sprottin af fyrirtækjum, sem í upphafi fengu áhættufé. Slík fyrirtæki skapa störf tvöfalt hraðar en önnur einkafyrirtæki. Áhættu- fjárfestar hafa því haft talsverð áhrif í bandarísku efnahagslífi.“ McGuire hefur kynnt sér að- stæður á Íslandi, sérstaklega frá sjónarmiði áhættufjárfesta. „Á Íslandi er allt að finna, sem þarf til að stofna fyrirtæki. Hér er mjög hæfileikaríkt vinnuafl, öfl- ugur frumkvöðlaandi, sem til dæm- is má sjá hjá Kára Stefánssyni og samherjum hans hjá Íslenskri erfðagreiningu, og þær hugmyndir, sem er verið að vinna í, eru nýstár- legar og mjög áhugaverðar og það skiptir mestu máli. Frá mínum sjónarhóli er hér allt fyrir hendi, sem þarf til að mynda sterkt sam- félag frumkvöðla og sprotafyr- irtækja.“ McGuire kemur nú öðru sinni að fjárfestingu á Íslandi og hann kveðst ekki hafa fundið fyrir neinni andstöðu á Íslandi við fjárfest- ingum. „Fjárfestingu okkar var fagnað,“ segir hann. „Það voru engar skattalegar hindranir á þeim tíma. En ég held að ríkisstjórnin gæti hins vegar gert það meira aðlað- andi að fjárfesta á Íslandi, til dæm- is í sambandi við skatta.“ McGuire fjárfesti í Íslenskri erfðagreiningu árið 1997. „Mér fannst hugmyndin um að rannsaka erfðamengi mannsins til að finna nýjan grundvöll til að stunda lækn- ingar heillandi,“ segir hann. „Ég var í stjórn fyrirtækisins þar til fyrir rúmlega ári og var alltaf jafnt spenntur fyrir þeim möguleikum, sem hafa orðið til við rannsóknir þeirra í erfðafræði. Ég tel að Ís- lensk erfðagreining hafi þurft að glíma við vandamál, sem blasir við í mörgum greinum, og það er að vera á undan sinni samtíð. Ég held að eftir á að hyggja sé hægt að segja að Íslensk erfðagreining hafi verið fimm til sjö árum á undan samtíð sinni og var ekki ein um það. Önnur erfðafyrirtæki þurftu að glíma við sama vandamál, – miklir möguleikar, en hvernig á viðskiptalíkanið að líta út?“ Að njóta ávaxtanna McGuire líkir þessu við leit- arvélar á netinu. „Fyrir tíu til fimmtán árum höfðu fyrirtæki á borð við Netscape og Altavista leyst vandamálið hvernig ætti að leita á netinu, en það var ekki fyrr en áratug síðar, sem Google tókst að átta sig á því hvernig á að nýta sér þetta í viðskiptaskyni. Ég held að sömu möguleikarnir séu í erfða- fræði. Síðasti áratugur fór í rann- sóknir og uppgötvanir og að átta sig á því að eftir því sem tíminn liði ykist færnin. Nú þarf að lækn- isfræðin að nýta sér þetta, hvort sem það verður með nýjum lyfjum eða læknisþjónustu á persónu- legum grunni. Þess vegna lít ég svo á að nú sé góður tími til að koma aftur inn í Íslenska erfðagrein- ingu.“ Í leitarvélalíkingunni ruddu hins vegar ekki sömu fyrirtækin braut- ina og nú njóta ávinningsins. McGuire vill að Íslensk erfðagrein- ing njóti árangursins af erfiðinu: „Fyrirtækið á þess kost að vera áfram í fararbroddi.“ Frjór jarðvegur fyrir áhættufé  Stundum skapar erfitt ástand grundvöll til að ná árangri, segir formaður félags bandarískra áhættufjárfesta  Terry McGuire áhættufjárfestir telur að Íslensk erfða- greining eigi að ná því að njóta ávaxtanna af frumkvöðlastarfi Morgunblaðið/RAX Bjartsýnn Terry McGuire hefur öðru sinni sett fé í Íslenska erfðagreiningu og lýsti ákvörðun sinni yfir kaffibolla á Hótel Borg. Úti á gangstétt talar forstjórinn, Kári Stefánsson í símann. McGuire segir að það veki ekki furðu þegar hann segist vera að skoða möguleika á Íslandi: „Ég var að tala við danskan fjárfesti, sem var mjög spenntur yfir því að við værum komin aftur til Íslands. Ég held að Ísland sé ekki brennimerkt í augum áhættufjárfesta, Ísland varð harkalega úti í efnahagshremmingunum, en það urðu aðrir líka og ég held að það sé vilji til að fara að byggja upp í stað þess að horfa í baksýnisspegilinn.“ Ekki brennimerkt SIGRÚN Björk Jakobsdóttir, forseti bæjarráðs og fyrrverandi bæj- arstjóri, vann öruggan sigur í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins á Akureyri vegna bæjarstjórnarkosninga í vor, en prófkjörið fór fram á laugardag. Hlaut hún 762 atkvæði í 1. sæti listans. Ólafur Jónsson, sitjandi bæj- arfulltrúi, lenti í 2. sæti og nýliðinn Njáll Trausti Friðbertsson komst að í 3. sæti. Sigurður Guðmundsson verslunarmaður, sem stefndi á 1.-2. sæti, lenti aðeins í því sjötta. Þá vek- ur athygli að Elín Margrét Hall- grímsdóttir bæjarfulltrúi, sem sóttist eftir 2. sætinu, komst ekki inn á listann. Sigrún Björk er eini núverandi bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem skipar nýja listann. Kristján Þór Júlíusson hætti í bæjarmálunum þeg- ar hann settist inn á þing, Hjalti Jón Sveinsson gaf ekki kost á sér og Elín Margrét Hallgrímsdóttir náði ekki kjöri eins og fyrr segir. Njáll Trausti Friðbertsson kemur nýr inn í sveitarstjórnarmálin og hef- ur ekki starfað innan Sjálfstæð- isflokksins áður. Áherslur hans eru á atvinnuuppbyggingu og samgöngur við bæinn enda byggist atvinnulífið á samgöngum. Honum líst vel á listann. „Það er mikil breidd i hópnum því þar er samankomið fólk úr mörgum átt- um og með mismunandi bakgrunn.“ Nýr leiðtogi á Ísafirði Í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Ísafirði fór Eiríkur Finnur Greipsson framkvæmdastjóri með sigur af hólmi og leiðir listann í vor. Gísli H. Halldórsson bæjarfulltrúi hreppti 2. sæti listans en Guðfinna M. Hreið- arsdóttir, sem stefndi að 1. sæti, lenti í því þriðja. Hún er eiginkona Hall- dórs Halldórssonar, núverandi bæj- arstjóra Ísafjarðar, sem lætur af embætti í vor. Kjörsókn var með mesta móti og greiddu alls 820 manns atkvæði af þeim 992 sem voru á kjör- skrá, eða 82,6%. Líkt og á Akureyri varð talsverð nýliðun á framboðslistanum. Gísli Halldór Halldórsson náði eins og áð- ur sagði 2. sæti, en hann hafði stefnt að 1.-2. sæti. Guðný Stefanía Stef- ánsdóttir, sitjandi bæjarfulltrúi, náði aðeins sjötta sæti listans. Sigurveg- arinn, Eiríkur Finnur Greipsson, Guðfinna M. Hreiðarsdóttir í 3. sæti og þær Kristín Hálfdánsdóttir og Margrét Halldórsdóttir í 4. og 5. sæti koma öll ný inn á lista. Guðfinna M. Hreiðarsdóttir segir það vissulega vonbrigði að ná ekki því sæti sem hún sóttist eftir. „Þetta voru hins vegar allt mjög hæfir ein- staklingar sem buðu sig fram svo það var allan tímann ljóst að þetta yrði mjög tvísýnt.“ Mikil endurnýj- un á listunum Fáir sitjandi bæjarfulltrúar komast að Sigrún Björk Jakobsdóttir Eiríkur Finnur Greipsson BJÖRGUNARSVEITIN Lífsbjörg í Snæfellsbæ hefur fengið margar gjafir frá fyrirtækjum og félaga- samtökum vegna byggingar nýs húsnæðis sveitarinnar á Rifi. Davíð Óli Axelsson, formaður Lífs- bjargar, segir að húsbyggingin sé komin á lokastig og vonar að hægt verði að taka húsið í notkun seinni hluta sumars. Síðastliðinn föstudag færði útgerðarfélagið Nesver ehf. Lífsbjörgu eina milljón króna að gjöf til minningar um Tryggva Eð- varðsson, afa Ásbjarnar Óttars- sonar, eins af eigendum Nesvers. Lífsbjörg fékk gjafir vegna byggingar nýs húsnæðis Gjöf Margrét Scheving afhendir formanni Lífsbjargar gjöfina. Morgunblaðið/Alfons

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.