Morgunblaðið - 15.02.2010, Side 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010
Signý Kolbeinsdóttir hönnuður
20 mismunandi bækur
sem dæma þarf af kápunni.
UMHVERFISVOTTUÐ
PRENTSMIÐJA
Oddi fyrir þig,
þegar hentar,
eins og þér
hentar.
Prentun
frá A til Ö.
Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is
Eftir Örn Arnarson
ornarnar@mbl.is
REGLUR Efnahags- og mynt-
bandalags Evrópu kveða á um að
skuldir hins opinbera mega ekki
vera meiri en 60% af landsfram-
leiðslu og að fjárlagahalli hvers
árs megi ekki fara yfir 3% af
landsframleiðslu. Í ljósi þessa
velta margir fyrir sér hvernig
evruríki á borð við Grikkland hafi
komist í þá aðstöðu að skulda
meira en 120% af landsframleiðslu
í kjölfar þess að hafa rekið viðvar-
andi halla á ríkisfjárlögum sínum.
Halla sem í fyrra nam 13% af
landsframleiðslunni.
Svarið við þessari spurningu er
margþætt en þó koma afleiðu-
viðskipti og skapandi reiknings-
skil í bókhaldi ríkisins oftar en
ekki við sögu. Sköpunargáfa
grískra stjórnvalda í samstarfi við
bandaríska bankamenn var þvílík
að komið hefur á daginn að þau
veðsettu um aldamótin framtíð-
artekjustreymi sitt af lottóinu í
landinu og af lendingargjöldum á
grískum flugvöllum. Með þessum
fjármálagerningum fengu þau
fjármagn upp í hendurnar en hins-
vegar voru þeir ekki færðir til
bókar sem skuld í ríkisreikningum
heldur sem eignasala. Þetta þýddi
að ríkisreikningarnir sýndu ekki
hina raunverulega skuldastöðu.
Bókhaldsbrella í boði
Goldman Sachs
Eins og fram kemur í umfjöllun
á vefsíðu þýska tímaritsins Der
Spiegel hefur grískum stjórnvöld-
um aldrei tekist að uppfylla reglur
evrusvæðisins um opinbera
skuldastöðu og þeim hefur aðeins
tekist að halda fjárlagahallanum í
skefjum með því að beita bók-
haldsbrellum. Eins og fram kemur
í umfjöllun vikuritsins hafa þau
gengið svo langt að sleppa eitt
sinn að færa gríðarleg útgjöld til
varnarmála til bókar og öðrum
sinnum var litið framhjá millj-
arðaskuldum vegna útgjalda til
heilbrigðismála.
Í umfjöllun í bandaríska blaðinu
The New York Times kemur fram
að stjórnvöld í Aþenu hafi oftar en
ekki leitað til sérfræðinga Gold-
man Sachs eftir aðstoð. Þannig út-
færðu þeir síðarnefndu rétt eftir
að Grikkir tóku upp evruna fjár-
málagerning sem fólst í gjaldeyr-
isskiptasamningum. Þeir fela í sér
að stjórnvöld gefa út skuldabréf í
annarri mynt en sinni eigin og
skipta svo á því og öðrum skulda-
bréfum. Slíkir samningar eru al-
gengur hluti af fjármögnun ríkja
en samningurinn sem Goldman
Sachs sá um var frábrugðinn að
því leyti að stuðst var við allt ann-
að gengi en markaðsgengi við-
komandi gjaldmiðla. Eins og bent
er á í Spiegel gátu stjórnvöld með
þessu aflað sér 11 milljarða
Bandaríkjadala í stað þeirra tíu
sem hægt hefði verið að fá hefði
verið stuðst við markaðsgengi
dalsins og evrunnar á þeim tíma
sem samningurinn var gerður.
Aldrei færður til bókar
Þessi samningur, ekki frekar en
fleiri sambærilegir gjörningar,
var aldrei færður til bókar sem
skuldbinding í ríkisreikningum
þannig að þeir skekktu verulega
hina raunverulegu skuldastöðu
ríkisins. Reyndar hafa ríki á borð
við Ítalíu framkvæmt sambæri-
legra gjörninga til þess að fegra
skuldastöðu ríkisins. Hægt er að
komast upp með þetta þar sem
reglur Evrópusambandsins kveða
ekki á um nákvæma upplýs-
ingagjöf um afleiðuviðskipti í
tengslum við fjármögnun stjórn-
valda.
Eins og fram kemur í umfjöllun
New York Times var hart tekist á
um upplýsingagjöf vegna afleiðna
meðal fjármálaráðherra ESB um
aldamótin en hinsvegar var ákveð-
ið að gera ekki strangar kröfur.
Reglurnar voru að vísu hertar árið
2002 en það leysti ekki vandann.
Fram kemur í New York Times að
Eurostat, tölfræðistofnun ESB,
hafi kvartað yfir því árið 2008 að
fjöldi fjármálagerninga virðist
hafa verið hannaður til þess eins
að fegra ríkisreikninga á kostnað
hinna sönnu stöðu hins opinbera.
En þrátt fyrir einbeittan vilja
hefur mönnum ekki enn þá tekist
að láta skuldir hverfa að eilífu og í
raun og veru er líklegt að kostn-
aður stjórnvalda vegna samninga
eins og hér hefur verið lýst verði
verulegur á endanum.
Reuters
Skapandi þjóð Grísk stjórnvöld hafa lagt stund á skapandi reikningsskil en þau hafa gefið skekkta mynd af raunverulegri skuldastöðu ríkisins.
Skapandi ríkisfjármál
Grísk stjórnvöld veðsettu lottótekjur og lendingargjöld flugvalla til þess að
fegra skuldastöðu ríkissjóðs Fjárlagahallinn vantalinn frá upptöku evru
Handritshöfundar
breska sjónvarps-
þáttarins Doctor
Who á níunda ára-
tugnum höfðu það
meginmarkmið
að velta ríkis-
stjórn Margrétar
Thatcher úr sessi.
Þetta kemur fram
í viðtali við Syl-
vester McCoy í Sunday Times en
hann var ráðinn til þess að leika dokt-
orinn í þessari vinsælu vísindaskáld-
skaparseríu árið 1987 eða þremur
mánuðum eftir að Thatcher vann
sinn þriðja kosningasigur.
Fram kemur í viðtalinu að þeir
sem störfuðu við þáttinn töldu rétt að
nota vinsældir hans til þess að grafa
undan stöðu Thathcers í breskum
stjórnmálum. Hann segir ennfremur
að það hafi verið viðtekin skoðun
þáttagerðarmannanna á þessum tíma
að Thatcher væri mun ógnvænlegri
en þau skrímsli sem doktorinn hafði
þurft að glíma við í þáttunum.
Hárprúður einræðisherra
The Daily Telegraph segir að þætt-
irnir Gleðivaktin hafi augljóslega
einnig beinst að Thatcher. Sá þáttur
fjallar um hárprúða konu sem er ein-
ræðisherra á plánetunni Terra Alpha
þar sem hún drottnar yfir lánlausum
þegnum sem eru neyddir til þess að
vinna í verksmiðjum. Doktorinn tek-
ur málin í sínar hendur í þættinum og
sannfærir verkamennina um að
leggja frá sér tól og tæki og efna til
uppreisnar gegn hinum hárprúða
einræðisherra. Þykir söguþráðurinn
vera augljós vísun í verkalýðsátök í
valdatíð Thatchers. Sem kunnugt er
náðu þeir sem störfuðu að þáttunum
ekki markmiði sínum en Thatcher
hélt völdum fram til ársins 1990 en
þátturinn Doctor Who var tekinn af
dagskrá árið 1989.
Doctor
Who gegn
Thatcher
Vildu steypa
Járnfrúnni af stóli
Margaret Thatcher
SKEMMTIKRAFTUR heldur á frekar stórum spilum fyrir utan fyrsta
spilavítið í Singapúr. Spilavítið var opnað í gær og er opnunin hluti af áætl-
un stjórnvalda um að auka tekjur af erlendum ferðamönnum.
TEKNIR MEÐ TROMPI
Reuters
JOE Biden, varaforseti Bandaríkj-
anna, segir að stjórnvöldum í Wash-
ington hafi orðið verulega ágengt
við að mynda þrýsting gegn klerka-
stjórninni í Íran þannig að þau láti
af kjarnorkuáformum sínum. Hann
lét þessi orð falla í sjónvarpsþætt-
inum Meet the Press í gær. Hann
sagði ennfremur að búast mætti við
því að kínversk stjórnvöld sam-
þykktu að slást í hóp þeirra ríkja
sem þrýstu á klerkastjórnina.
Þrýst á Íran