Morgunblaðið - 15.02.2010, Page 23

Morgunblaðið - 15.02.2010, Page 23
Minningar 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. FEBRÚAR 2010 MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is TILBOÐSDAGAR 20-50% afsláttur af völdum legsteinum með áletrun á meðan birgðir endast 10% afsláttur af öðrum vörum ✝ Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir, amma og langamma, ÁSLAUG GUÐLAUGSDÓTTIR, áður til heimilis Norðurbrún 1, andaðist á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ mánu- daginn 1. febrúar. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Þökkum auðsýnda samúð og sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarbæjar og Norðurbrúnar 1. Kristín Axelsdóttir, Árni Ísleifsson, Edda Axelsdóttir, Ómar Friðriksson, Axel Hilmarsson, Sína S. Magnúsdóttir, Steinunn Bjartmarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Henry J. Schnei-der fæddist í Harr- ison í New Jersey í Bandaríkjunum árið 1919. Hann lést á Hal- quist minningarlíkn- ardeildinni í Arlington í Virginíu 14. febrúar 2009. Henry var kvæntur Hallfríði Guðbrands- dóttur Schneider í 64 ár, þau eiga tvær eft- irlifandi dætur, Matt- hild Schneider í Wash- ington og Karen Lisowski í Killeen, Texas og son, dr. John B. Schneider í Pullman, Wash- ington, og átta barnabörn. Þriðja dóttirin, Ellen Schneider, lést árið 2006. Henry nam við Rutgers háskólann og háskóla Marylands, auk þess var hann með gráðu frá Stjórnendahá- skóla bandaríska land- hersins. Hann gekk í herinn 1939 og eftir að hafa verið á Íslandi í seinni heimsstyrjöld- inni gekk hann í bandarísku utanrík- isþjónustuna. Hann var konsúll á Íslandi í þrjú ár. Í Kóreustríð- inu var hann aftur kallaður í herinn og þjónaði í bandarísku herstjórninni í aust- urlöndum fjær og síð- ar á ýmsum stöðum í Bandaríkjunum, þar á meðal í Alaska. Síðasta starf hans í hernum áður en hann hætti árið 1966 var sem yfirmaður samskiptastjórnar landhersins í Suðaustur-Asíu, í Víet- namstríðinu. Þar á eftir hélt hann áfram í utanríkisþjónustunni, allt þar til að hann fór á eftirlaun 1979. Ég kynntist Henry og Öddu fyrst á námsárum okkar Ingu Dóru í New York, haustið 1977, þegar við heim- sóttum þau um jól í Washington DC. Þau bjuggu á fögru íslensku heimili í háborg heimsveldisins og var hver dagur sem nýtt ævintýri með hljóm- leikum, listasýningum og heimsókn í vesturvæng Hvíta hússins. Einnig sóttum við alls kyns viðburði í Íslend- ingafélaginu þar sem Henry og Adda voru virkir félagar. Eftir það heimsótt- um við Öddu og Henry oft í Wash- ington og var dvölin hjá þeim alltaf vel- komin hvíld frá streitunni í New York. Það voru alltaf fjörugar samræður á heimilinu, enda hjónin víðlesin og vel að sér um margt. Ég hreifst strax af Henry. Hann var ekki aðeins ákaflega laglegur maður heldur líka mjög vand- aður og vingjarnlegur og hafði ákaf- lega góða kímnigáfu. Hann var vitur og lífsreyndur og allar samræður við hann gerðu mig fróðari. Ég tók sér- staklega eftir því hvað hann hafði skynsamlegar skoðanir og skarpa at- hyglisgáfu og í fyrstu var ég dálítið hissa á því að hann sem hafði verið í Ví- etnam var svo oft gagnrýninn á utan- ríkisstefnu Bandaríkjanna. Hann hafði mikinn áhuga á vísindum og hafði mjög gaman af að ræða um þau og sendi hann mér oft greinar um nýjar vísindakenningar og vísindauppgötv- anir. Við Inga Dóra söknum Henrys og erum þakklát fyrir að hafa fengið að kynnast jafn vönduðum og vel gefnum manni. Björn Birnir. Henry J. Schneider Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma BRITTA GÍSLASON, Östra gatan 19, Kungälv, Svíþjóð, lést í Kungälv miðvikudaginn 10. febrúar. Útför hennar fer fram frá Kungälvs kyrka fimmtudaginn 4. mars. Marta Magnúsdóttir, Þóra Magnúsdóttir, Eva Magnúsdóttir, Björn Magnússon, Hans Magnússon, Jón Magnússon, Kristín Magnúsdóttir, Gunnar Magnússon, Anna Magnúsdóttir, og fjölskyldur. ✝ Hallfríður Guð-brandsdóttir Schneider fæddist í Hallgeirseyj- arhjáleigu í Austur- Landeyjum 5. mars 1922. Hún lést á jóla- nótt 2009. Foreldrar hennar voru Matt- hildur Kjart- ansdóttir, f. 1891, d. 1974, og Guðbrandur Magnússon, forstjóri Áfengisverslunar rík- isins, f. 1887, d. 1974. Systkini Hallfríðar eru Kjartan, f. 1919, d. 1952, Magnús, f. 1924, d. 1999, Sigríð- ur, f. 1925, og Helga, f. 1929. Hallfríður ólst upp í Reykjavík og lauk stúdentsprófi frá Mennta- skólanum í Reykjavík vorið 1941. 14. júlí árið 1945 gekk hún að eiga Henry J. Schneider og flutti vestur um haf. Þau áttu fjögur börn, Matthildi, f. 1949, Karen Ann, f. 1952, Ellen Völu, f. 1954, d. 2006, og John Brand, f. 1960, og átta barnabörn. Henry og Adda bjuggu víða, meðal annars í Japan, Alaska, Seattle og Annapolis, en lengst af bjuggu þau í Falls Church, úthverfi Washington DC. Minningarathöfn um Hallfríði verður í Washington í dag, 15. febrúar. Ég var ekki ýkja há í loftinu þegar ég gerði mér grein fyrir því að yfir móðurfjölskyldu minni grúfði samof- ið ský sorgar og skammar. Móður- systir mín Adda hafði lent í ástandinu á stríðsárunum, gifst bandarískum hermanni og horfið landinu sínu sjón- um fyrir fullt og allt. Til að draga úr skömminni var því vanalega bætt við að Adda hefði verið heppin, hún hefði gifst svo góðum manni. Þegar ég var átta eða níu ára ríkti mikil tilhlökkun í fjölskyldunni, Adda var væntanleg í heimsókn til landsins í fyrsta sinn. Það var þó ekki aðeins koma hennar sem beðið var með eft- irvæntingu heldur líka allt það sem hún hafði með í farteskinu. Fram- takssamar konur í fjölskyldunni höfðu nefnilega orðið sér úti um Se- ars and Roebuck katalóg og pantað einhver reiðarinnar býsn af fatnaði og dóti, sem Adda flutti til landsins, en á tímum hafta og skammtana jafn- aðist ekkert á við að eiga frænku í Ameríku! Ég hitti Öddu ekki aftur fyrr en ég hóf framhaldsnám í mannfræði í New York haustið 1977. Okkur hjónum var boðið að eyða jólunum með fjöl- skyldu hennar í úthverfi Washington DC. Þegar við stigum inn á heimili Öddu, hlýlegt, látlaust en fágað, hitt- um glæsilega manninn hennar, hann Henry, dæturnar þrjár, Matthild, Karen og Ellen sem voru hvor ann- arri fallegri og soninn John Brand, sem sór sig alfarið í móðurættina, hár, ljóshærður og bláeygður. Þá varð mér spurn: Hver var skömmin? Adda frænka hafði ákaflega sterk- an og heillandi persónuleika, var ræðin, fróð og skemmtileg og á heim- ili hennar ríkti mikil gleði og fjör. Þessi fyrstu jól okkar hjá Öddu eru okkur ógleymanleg. Farið var í alls kyns leiki og alltaf var stutt í spaug og hlátur og margar jólagjafirnar voru ansi skrautlegar. Upp frá þessu bundumst við Öddu, Henry og börn- um þeirra órjúfanlegum vináttu- böndum. Frumburðurinn okkar hlaut ekki aðeins fullt nafn Öddu, Hallfríður, heldur erfði hún líka gælunafn hennar Adda. Fram á síð- ustu stundu notuðum við hvert tæki- færi sem bauðst til að heimsækja Öddu og Henry í Washington DC. Það voru kynni mín af Öddu frænku sem á sínum tíma kveiktu áhuga minn á að vinna að rannsókn um ís- lensku konurnar sem giftust banda- rískum hermönnum á stríðsárunum, en ég áttaði mig fljótt á því að sú mynd sem dregin var upp af þessum konum á Íslandi var í engu samræmi við frásagnir og reynslu þeirra sjálfra. Einn afrakstur þessarar rannsóknar var heimildarmyndin Ást og Stríð, sem ég vann að í samvinnu við Önnu Björnsdóttur, en í þeirri mynd kemur ástríkið sem ríkti á milli Öddu og Henry mjög vel í ljós. Það skiptust á skin og skúrir í lífi Öddu og Henry eins og í lífi flestra, en þau voru að mestu sólarmegin í líf- inu. Stærsta áfallið kom mjög seint, en það var árið 2006 þegar dóttir þeirra, Ellen, lést skyndilega og á mjög sviplegan hátt. Lát hennar reið Öddu og Henry nærri því að fullu og voru síðustu æviárin þeim afar erfið og hvíldin langa því báðum kærkom- in. Henry lést 14. febrúar 2009, á degi ástarinnar, en Adda kvaddi þennan heim á jólanótt árið 2009. Inga Dóra Björnsdóttir. Hallfríður Guðbrands- dóttir Schneider ✝ Hörður Í. Magn-ússon fæddist í Reykjavík 5. júní 1934. Hann lést 28. janúar sl. Foreldrar hans voru Magnús Hösk- uldsson, skipstjóri, f. 5. nóvember 1907, d. 4. október 1977, og Jóhanna Vilhelmína Jónatansdóttir, f. 19. ágúst 1910, d. 30. júlí 1986. Hörður kvæntist Mörtu Kristínu Egg- ertsdóttur, f. 30. maí 1934, d. 28. nóvember 1991. Þau skildu. Börn þeirra eru sjö: Magnús Jóhann, kvæntur Sólveigu Jónsdóttur; Að- alheiður Emma, gift Sigurþóri Sigurðssyni; Jónas Karl, kvæntur Vil- borgu Reynisdóttur; Albert Ísfeld, ókvæntur; Jóhanna Vilhelmína, gift Ást- mari Kára Ástmars- syni; Guðný Krist- veig, fráskilin; Margrét Elísabet, gift Alexander Diehl. Einnig eignaðist Hörður Írisi með Borgrúnu Öldu Sig- urðardóttur en sam- býlismaður Írisar er Hilmir Chadwick Guðmundsson. Hörður á 18 barnabörn og fimm barnabarnabörn. Útför Harðar var gerð í kyrr- þey. Fyrir sirka 33 árum hitti ég Hörð Magnússon fyrst. Stóran og vígalegan karl sem horfði á mig rannsakandi augnaráði, sem sagði: „Ætlar þessi tittur að fleka dóttur mína“. Ég greip til þess sem ég átti mest af, það er ágætis orða- forða, sem dugði til að mýkja karl- inn. Hörður var geysiöflugur maður. Eitt sinn mættum við manni á göngu með hest í taumi. Aftan úr hestinum hékk gaddavírsflækja. Hörður spurði manninn hvort hann ætlaði ekki að losa flækjuna, maðurinn kvað nei við. Þá fór Hörður að losa hana sjálfur, en hestamaðurinn ætlaði að ýta Herði frá, sem brást illa við, tók í hnakkadrambið og afturendann á kauða og fleygði honum yfir girð- ingu. Eitt sinn bað Hörður mig og bróður minn að aðstoða sig við að koma ísskáp upp á 3. hæð. Eitt- hvað hefur Hörð verið farið að lengja eftir okkur því að þegar við komum var ísskápurinn kominn á sinn stað. Hörður hafði borið hann einn upp. Svo var það þegar hann var að berjast við að koma þekkt- um kappreiðahesti í hús en hest- urinn var mjög erfiður, stökk æv- inlega með miklu afli frá og rykkti í tauminn sem Hörður hélt í. Að lokum gafst hesturinn upp og fór í hús en þá var Hörður búinn að slíta vöðva í handlegg. Hörður hafði yndi af hestum og fór ég oft í útreiðartúra með hon- um. Þá vildi hann vera í fárra manna hópi, enda einfari í eðli sínu. Hörður hafði gaman af að segja sögur, oft voru það sögur af siglingum og ferðum til annarra landa, sem hann sagði af mikilli innlifun og sem hann endaði oft setningar með orðunum „og fram eftir götunum“ til að stytta mál- gleðina. En það er nú önnur saga. Hörður var stálheiðarlegur og vildi að orð stæðu, handaband og engar undirskriftir. Hann hafði yndi af góðum söng og spilaði gjarnan í bílnum. Þá hafði hann mikla ánægju af veiðiskap og að skoða landið sitt. Hann átti fáa vini aðra en börnin sín sem hann var ákaflega duglegur að heim- sækja, sum hver, bæði á vinnu- stað og heimili. Þó voru til nokkr- ir eldri vinir sem hann hitti stöku sinnum. Nú þegar þessari för Harðar er lokið, þá situr eftir minning um mann sem ég hefði ekki viljað missa af að kynnast. Mönnum eins og hann var fer fækkandi. Víkingur af gamla skólanum með krafta í kögglum. Bálför Harðar hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Sigurþór Sigurðsson. Hörður Ísfeld Magnússon Kær bróðir minn, BJÖRN HELGASON, Fossi á Síðu, andaðist 12. febrúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Guðleif Helgadóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is og viðeigandi efnisliður valinn. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.